Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2000, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2000
Fréttir I>V
Bréf Þorsteins Erlingssonar og Ólafar á Hlöðum í tveimur útgáfum:
Heitar bréfaástir
Skáldin Þorsteinn Erlingsson og
Ólöf Siguröardóttir á Hlöðum eru
svo brennandi heit um þessar
mundir aö út eru komnar tvær bæk-
ur með bréfaskiptum þeirra eftir að
leynd hefur hvílt yflr þeim síðan
þeim lauk 1914, dánarár Þorsteins.
Heitir önnur bókin Bréfaástir og er
gefln út af Þórönnu Tómasdóttur
Gröndal en hin Orð af eldi, fjórða
bindi í ritröðinni Sýnisbók íslenskr-
ar alþýðumenningar og sá Erna
Sverrisdóttir um þá útgáfu. Var
nánast rétt vika á milli útgáfanna
og komu Bréfaástir á undan.
Þóranna skrifaði fyrir tæpum
áratug BA-ritgerð um bréfaskipti
skáldanna og er meðal annars vitn-
að til þeirrar ritgerðar í 3. bindi ís-
lenskrar bókmenntasögu sem út
kom 1996. Síðan hefur Þóranna unn-
ið með kennslu að meistEuraprófsrit-
gerð sem líka byggist á ljóðum þess-
ara skálda og samskiptum þeirra.
Hún varð því að vonum slegin þeg-
ar hún komst að því að bók um
bréfaskipti þeirra væri á leiðinni í
prentsmiöju og dreif í að gefa bréfin
út með inngangi sem byggist á BA-
ritgerð hennar.
Orð gegn orði
Sigurður Gylfi Magnússon sagn-
fræðingur, annar ritstjóri Sýnis-
bóka íslenskrar alþýðumenningar,
segir að hann og hans fólk hafi ekki
haft hugmynd um vinnu Þórönnu í
þessum bréfum þegar þeim bauðst
útgáfurétturinn á þeim frá erfingj-
um Þorsteins Erlingssonar - sem
heldur ekki höfðu hugmynd um að
bréf Þorsteins til Ólafar væru í ann-
arra höndum en þeirra. Bréf Ólafar
til Þorsteins hafa hins vegar verið
aðgengileg lengi í bréfasafni hans
sem er varðveitt á Landsbókasafni.
Segist Þóranna hafa fengið ljósrit af
bréfum Þorsteins til Ólafar á Þjóð-
minjasafni en þangað hafi Ásthildur
Erlingsdóttir, sonardóttir Þorsteins,
Dugmiklir ungir Breiodælingar
Börnin úr leikskólanum og grunnskólanum gengu rösklega til verks viö skóflustungurnar. Engu var líkara en þau ætl-
uöu aö Ijúka við aö grafa grunninn strax þennan hátíöisdag.
Öflugar skóflustungur barnanna:
Líkt og vinnuvélar væru að verki
DVTBREIDDALSVÍk:
Fyrsta skóflustungan að íþrótta-
húsi við Grunnskóla Breiðdals-
hrepps var tekin á laugardag í
ágætu vetrarveðri. Þar rættist lang-
þráður draumur nemenda, kennara
og íbúa. Leikskóla- og grunnskóla-
börn tóku fyrstu skóflustunguna af
miklum krafti svo að á tímabili leit
út fyrir að stórvirkar vinnuvélar
væru óþarfar.
Húsið verður 563 fermetrar að
grunnfleti með íþróttasal, búnings-
klefum og sturtuklefum, sem enn
fremur nýtast fyrir sundlaug í fram-
tíðinni. Þjónustubygging er á tveim
hæðum og á efri hæð verður 60 fer-
metra salur og snyrtingar. Heildar-
kostnaður við nýja íþróttahúsið er
áætlaður 47 milljónir króna.
1 tilefni dagsins var stutt dagskrá
þar sem gestir voru látnir spretta úr
spori og farið var í leiki. Breiðdals-
hreppur bauð að lokum til kaffisam-
sætis sem grunnskólaböm sáu um.
-HI
Kápumyndir Margrétar Magnúsdótt-
ur og Öldu Lóu Leifsdóttur
Bréfabækurnar eru báðar smekkleg-
ar í útliti eins og hæfir innihaldinu.
sent hana þegar hún gaf henni leyfi
til að nota þessi bréf. Hafi ritari
þjóðminjavarðar afhent henni ljós-
ritin í kassa frá safninu. Þór Magn-
ússon, fyrrv. þjóðminjavörður,
kannast ekki við þetta og segist ekki
geta séð i sínum gögnum að slík
ljósrit hafi komið inn á safnið og þá
að sjálfsögðu ekki farið þaðan út.
Frumritin af bréfunum eru í eigu og
varðveislu erfingja Þorsteins. Þang-
að kom Steindór Steindórsson á
Hlöðum þeim en honum fól Ólöf þau
til varðveislu áður en hún lést.
Verða þau bréf afhent Landsbóka-
safni til varðveislu við hátíðlega at-
höfn eftir páska.
Ásthildur Erlingsdóttir er látin
en eiginmaður hennar, Jónas Elías-
son prófessor, sagði að þetta væri
afar leiðinlegt mál. Að sjáifsögðu
hefði verið leitað til Þórönnu um
þessa útgáfu ef vitað hefði verið um
ritgerð hennar.
Yfir bréfasambandi Ólafar og Þor-
steins hefur hvílt leynd í tæpa öld;
þeirri leynd er nú aflétt á svo afger-
andi hátt að hægt er að lesa bréf
þeirra í tveimur bókum! Bækumar
eru að því leyti ólikar í útgáfu að í
Bréfaástum er stafsetning sam-
ræmd við það sem nú tíðkast en í
Orðum af eldi eru þau birt stafrétt.
Þar eru einnig birt bréf sem fóru á
milli Ólafar og Guðrúnar Erlings,
ekkju Þorsteins, eftir að hann lést.
-SA
Brúin yfir Ströngukvísl:
Sópaöist burtu
DV, SAUDÁRKRÓKI:
I vatnavöxtunum í síðustu viku
hrifu ísjakar og straumþungi
Ströngukvíslar og Herjólfslæks með
sér stálbita og trédekk brúarinnar
sem byggð var yfir ána sumarið
1983. Brúin, sem er 25 metra löng,
var byggð vegna samninga um
Blönduvirkun milli Landsvirkjunar
og upprekstrarfélags bænda á Ey-
vindarstaðaheiði. Guðmundur
Hagalín, stöðvarstjóri við Blöndu,
segir að við þessu hafi mátt búast.
Brúin verði lagfærð strax og að-
stæður leyfi í vor. Hann segist ekki
eiga von á öðru en umferð komist
þarna á áður en langt er liðið á sum-
arið. Reyndar sé umferð um brúna
litil nema í tengslum við fjárleitir á
haustin.
Sigurjón Stefánsson, bóndi á
Steiná í Svartárdal, skrapp fram að
Ströngukvísl á sunnudag til að
skyggnast eftir tófu, en hann leggur
út fyrir tófuna og skýtur hana við
æti úr gangnamannaskálanum. Sig-
urjón sá stálbitana og urmulinn af
timbrinu liggja 250-300 metra neðan
við brúarstæðið og var greinilegt að
bitarnir höfðu svignað til hliðar
undan þunganum og jakahrönglið
náði talsvert upp fyrir stöplana.
„Það sem gerist er að flaumurinn
úr Ströngukvísl ryðst fram og síðan
kemur til viðbótar framrennslið úr
Herjólfslæknum sem er þarna rétt
ofan við brúna, og þegar það fer af
stað stendur ekkert fyrir þessu,“
sagði Sigurjón á Steiná.
Guðmundur Hagalín í Blöndu-
virkjun giskar á að kostnaður við
lagfæringu brúarinnar verði um 1,5
milljónir króna.
-ÞÁ
Lægir og rofar til
Dregur úr vindi í kvöld og nótt og rofar til í
fyrramálið en snýst síðan smám saman í
noröanátt. Suðvestan 10-15 m/s og slydduél
á vestanverðu landinu en hægari og bjart
veður austan til. Frystir á Norðurlandi.
Eur sjíijzs/jojj
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 20.47 20.37
Sólarupprás á morgun 06.09 10.42
Síódegisflóð 22.58 15.01
Árdeglsflóó á morgun 11.37 04.31
Siiýjflngar á vr«iiirtúitniim
10°«— HITI
15) ....... -10°
NfROST
<1
ii
S.VINDSTYRKUR
i nwtrtun á eokániiu
LÉTTSKÝJAO HÁLF-
SKÝJAÐ
SKYJAÐ ALSKYJAO
RIGNING SKURIR SLYDDA SNJOKOMA
“h
ÉUAGANGUR ÞRUIV1U- SKAF- ROKA
VEÐUR RENNINGUR
||
Hálka fyrir noröan
Gera má ráö fyrir hálkumyndun á
vegum, einkum norðan heiöa, meö
kólnandi veðri. Vissara er því aö huga
vel aö aöstæðum ef fólk hyggur á
langferðir. Engin aftök veröa þó í
veðrinu og þaö stefnir í skaplegasta
veöur sunnan heiöa og þá væntanlega
með sólskini næstu daga.
Kólnandi
Búist er við norðan 8-13 m/s víða um land en þó má búast við hægari
vindi norðvestan til. Dálítil él verða norðaustanlands en léttskýjað sunnan-
og vestanlands. Frost veröur 0 til 8 stig.
Vindur: (
5-10
Hiti 0°til -0°
Wmrrfix BEP*
Gert er ráó fyrir hægrl
breytllegrl átt og víða
léttskýjuðu.
Vægt frost, 0 tll 5 stlg.
Vindur:
5-10 m/<
Hiti 0°til 4)°
J
Suðvestanátt, súld verður
meö köflum suðvestan- og
vestanlands en bjart veður
austanlands.
Hltl 0 tll 7 stlg.
Hiti 0°til 41°
Suðvestanátt, súld verður
með köflum suövestan- og
vestanlands en bjart veður
austanlands.
Hltl 0 tll 7 stlg.
^ IÍ2 J
AKUREYRI úrkom 5
BERGSTAÐIR úrkoma 5
BOLUNGARVÍK skýjað 5
EGILSSTAÐIR 8
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjað 7
KEFLAVfK skúrir 5
RAUFARHÖFN Léttskýjaö 7
REYKJAVÍK úrkoma 4
STÓRHÖFÐI Snjóél 5
BERGEN léttskýjað 8
HELSINKI alskýjaö 4
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 7
OSLÓ léttskýjað 10
STOKKHÓLMUR 6
ÞÓRSHÖFN skýjaö 9
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 8
ALGARVE skýjaö 17
AMSTERDAM skýjaö 19
BARCELONA léttskýjaö 14
BERLÍN léttskýjaö 8
CHICAGO skýjaö 3
DUBUN léttskýjaö 9
HAUFAX þoka 7
FRANKFURT skýjaö 14
HAMBORG skýjaö 9
JAN MAYEN snjóél -7
LONDON mistur 12
LÚXEMBORG skýjaö 13
MALLORCA rigning 14
MONTREAL þoka -3
NARSSARSSUAQ skýjaö -2
NEW YORK snjókoma 1
ORLANDO léttskýjaö 8
PARÍS skýjaö 12
VÍN skýjaö 9
WASHINGTON skýjaö 1
WINNIPEG léttskýjaö -9
BVGU.T A UrrÍYSiÍNOUM 11°A VLWH51