Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRlL 2000 Fréttir DV Enn deilt um kaup borgarinnar á hellum. Pípugeröin sökuð um undirboð: Stuttar frettir Alvarlegum ásökunum um viðskiptaþvinganir ósvarað segir Júlíus Vífill Ingvarsson. Útboð um hellugerð fór loks fram á dögunum Júlíus Vífill Ingvarsson: „Það er ekki hægt fyrir Reykjavíkur- borg aö sitja undir því aö hér hafi ekki veriö staöiö réttaö málum.“ „í greinargerð BM Vallár koma fram ýmsar ávirð- ingar og stórar fullyrðingar um samninginn og það er útilokað annað en að kanna þær. Það er ekki hægt fyrir Reykja- víkurborg að sitja undir þvi að hér hafi ekki verið staðið rétt að mál- um, að viðskipta- samningar hafi verið gerðir undir__________________ þvingun er nokk- uð sem borgin getur ekki unað við að sé borið á hana án þess að skoðað sé gaumgæfilega. Þetta eru of alvarlegar ásakanir," segir Július Vifdl Ingvars- son borgarfulltrúi og vísar til svars BM Vallár vegna gagnrýni Eyþórs Amalds, þáverandi borgarfulltrúa, á síðasta ári um að fyrirtækið hefði feng- ið milljónaviðskipti við borgina um hellukaup án útboðs. Sjálfstæðismenn lögðu fram fyrirspum í borgarráði 11. april síðastliðinn, þess efnis hvort borgarstjóri hygðist kanna réttmæti fullyrðinga sem fram koma í greinar- gerð BM Vallár til Gatnamálastjóra vegna málsins. Þar er fullyrt að Pípu- gerðrn hf., sem þá var í eigu Reykja- víkurborgar, hafi gripið til undirboða á almennum markaði til aö knýja á um sölu helludeildar fyrirtækisins. í grein- argerðinni kemur enn fremur fram að þegar samningaviðræður BM Vallár og Pípugerðarinnar hf. um sölu hellu- deildarinnar sigldu í strand á síðari hluta árs 1995 hófust undirboð af hálfu Pípugerðarinnar hf. Þau undirboð hefðu leitt til þess að endanlegir samn- ingar um sölu helludeildar Pípugerðar- innar hf. til BM Vallár ehf. tókust í ársbyrjun 1996. Gagnrýni á rekstur borgarinn- ar i samkeppni í greinargerð BM Vallár segir að fyrirtækið hafl við kaupin á helludeild- inni yfirtekið tyrirliggjandi skuldbind- ingar Pípugerðarinnar hf. gagnvart Reykjavíkurborg samkvæmt samningi 28. nóvember 1995. Þama er átt við samning borgarinnar við Pípugerðina um viðhald til nokkurra ára og tók BM Vallá þar með við einkaréttinum. Þá JS’fl'ada miííjóna v,Ö!*!PtiJn úfboðs sínum tíma. segir að fyrirtækið hafi jafnframt yfir- tekið m.a. skuldbindingar um einingaverð Pípugerðarinnar sem var það lægsta sem sést hafði i útboði. Vill fyrirtækið meina að samningur Pipugerð- arinnar við borgina hafi verið svo óhagstæöur að fyrirtækið hafi tapað 11 milljónum eftir að hafa selt lager og tæki sem kaupunum fylgdu. í borgarráði á þriðjudag var lagt fram svar Eggerts Hauks- sonar sem var framkvæmda- stjóri Pípugerðarinnar á þess- um tíma. Hann segir að BM Vailá hafi veriö fullkunnugt um samning Pípugerðarinn- ar við Reykjavíkurborg sem hafi verið gerður að undan- gengnu útboði sem margir tóku þátt í. Sá samningur lá, með öðrum orðum, allan tímann fyrir. Augljóst hafi verið að hver sá sem keypti helludeildina, yrði hún á annað borð seld, hlyti með samþykki Gatnamálastjóra að yfirtaka þann samning með gögn- um og gæðum. Eftir stendur gagnrýni sem fram Eyþór Arnakts, þáverana h*"™' ' fyrra *f^hæwl^Sl^^m^gagnrýna hefur nú komiö aö miUi* ^ar^sga / fyrra. / ijós IHUHlpeim var harölega mótmæitT™ ðSÖkurh hefur komið, þess eihis að þátttaka borgarinnar í rekstri fyrirtækis í sam- keppni hafi árið 1995 verið orðin mikil timaskekkja. Telja margh- að þegar helludeild Pípugerðar- innar var seld hafi átt að nota tækifærið og afnema viðhalds- samninginn sem BM Vallá tók við. Þá voru hellukaupin alfarið komin í hendur hins frjálsa markaðar og borðleggjandi að kanna hvort ekki væri hægt að leita hagstæðari kaupa á hellum og gefa fyrirtæki með hreint borð tækifæri. Þann 6. apríl voru svo loks opn- uð útboð hjá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar á hellum og steinum. Þar átti Steypustöðin ehf. langlægsta boðið sem nam um 75% af kostnaðaráætlun. BM Vallá ehf. átti næstlægsta boðið, sem nam um 84% af kostnaðaráætlun, en tveir aðrir aðilar áttu einnig tilboð. Virð- ist því sem önnur fyrirtæki fái nú tækifæri en enn hefur þó ekki verið gengið til samninga. -hdm Tvennt slasað í bílveltu í Þorskafiröi Tvennt var flutt meö þyrlu Landhelgisgæslunnar á slysadeild Landspitaians í Fossvogi eftir aö bíll valt um klukkan 15 í gær- dag í Reykhólahreppi. Fernt var á ferö í bílnum þegar bílstjórinn missti stjórn á honum vegna holu í veginum í austanveröum Þorskafiröi. Allir farþegarnir voru i bílbeltum. Ökumaöurinn, 41 árs gamall karlmaöur, og 19 ára stúlka sem sat í aftursæti bifreiöarinnar slösuöust en hinir tveir farþegarnir sluppu meö skrekkinn. Bíllinn er mikiö skemmdur. -SMK Þessi mynd var tekin örstuttu eftir að tilkynning barst um brunann í Dugguvogi. Mikinn reyk lagöi þá út um glugga og slökkviliö var ekki komið á staöinn. Eldur í Dugguvogi Slökkvilið Reykjavíkur og lög- reglan í Reykjavík voru kölluð að Tré og blikki í Dugguvogi 2 að kvöldi föstudagsins langa, rétt eftir klukkan 21. Mikil reyksprenging varð og brotnuðu gluggar vestan megin í húsinu í sprengingunni. Reykkafarar fóru inn meö hita- myndavélar og náði slökkviliðið fljótt yfirtökum á eldinum. Engin slys uröu á fólki en miklar skemmd- ir urðu á tækjum fyrirtækisins og þremur bifreiðum sem voru í hús- inu. Ekki er vitað hver upptök elds- ins voru. -SMK MasterCard-mótið í bridge: Sveit Subaru íslandsmeistari Sveit íslandsmeistara Subaru Siguröur Sverrisson, Jón Baldursson, Aðalsteinn Jörgensen, Matthias Þorvaldsson og Sverrir Ármannsson. íslandsmótið í sveitakeppni í bridge, sem kennt var við MasterCard, var óvenju sviptingasamt og einar fjórar sveitir áttu möguleika á titl- inum fyrir lokaum- ferðina. Sveit Subaru náði góðum loka- spretti og tryggði sér sigurinn í lokaum- ferðinni. Úrslita- keppnin fór fram dag- ana 19.-22. apríl. Sveit Subaru er skip- uð Aðalsteini Jörgen- sen, Jóni Baldurssyni, Matthíasi Þorvalds- syni, Sigurði Sverris- syni og Sverri Ármannssyni. Það var fátt sem benti til sigurs sveitar Subaru þegar vel var liðið á mótið. Að loknum fimm umferðum af 9 virtust sveitir Ferðaskrifstofu Vest- urlands (97,5) og sveitir Skeljungs (90) líklegastar til afreka en sveit Subaru var þá í sjöunda sætinu með 66 stig. Að lokinn sjöundu umferð af 9 var sveit Skeljungs með forystu með 128,5 stig, Ferðaskrifstofa Vesturlands með 126,5 og sveit Subaru með 113 stig. í lokaumferðinni fékk sveit Subaru 22 stig en sveit Skeljungs þurfti aðeins 14 stig úr viðureign sinni við sveit ís- lenskra verðbréfa til að tryggja sér titilinn. Skeljungur tapaði hins vegar leiknum 11-19 og þar með titlinum. Þaö kom nokkuð á óvart í annars jöfnu móti að sveit Samvinnu- ferða/Landsýnar, íslandsmeistara síðasta árs, hafnaði í 6. sæti. Sveit Skeljungs hafnaði í öðru sæti vegna sigurs í innbyrðisviðureign við sveit Ferðaskrifstofu Vesturlands. Lokastaða efstu sveita var þannig: 1. Subaru 160 2. Skeljungur 157,5 3. Ferðaskrifstofa Vesturl. 175,5 4. Þrír Frakkar 150,5 5. Jóhann Þorvarðarson 142 6. Samvinnuferðir 140 -ÍS Nýbúum í fiskvinnslu fjölgar Nýbúum sem starfa við fisk- vinnslu fjölgar jafnt og þétt og Páll Pét- ursson félagsmála- ráðherra telur nauð- synlegt að fjölga at- vinnumöguleikum þeirra hérlendis. Páll sagði í samtali við fréttastofu Sjónvarpsins að tryggja yrði að nýbúar einangruðust ekki og með stofnun sérstakrar ný- búamiðstöðvar mætti stuðla að því að þeir gætu orðið fidlir þátttakendur í þjóðlíflnu. Góð aðsókn að Listasafninu Aðsókn að Listasafni Reykjavíkur var mjög góð yfír páskana. Safnið var opnað í Hafnarhúsinu á miðvikudag i síðustu viku og hafa á þriðja þúsund gestir skoðað það síðan. RÚV sagði frá þessu. Óánægðir slökkviliðsmenn Margir slökkviliðsmenn eru óá- nægðir með fyrirhugaða sameiningu slökkviliða á höfuðborgarsvæðinu. Helsta ástæðan er sú að talið er að margir verði fyrir kjaraskerðingu vegna þessa en slökkviliðsmenn telja að lítið samráð hafi verið haft við starfsmenn við sameiningarumræð- ur. Stöð 2 sagði frá. Risaskósamningur Islenska skófyrirtækið X-18 hefur gert risasamning upp á milljarða króna um skósölu í Bandaríkjunum. Samningurinn gæti gert það að verk- um að skór yrðu næstmesta útflutn- ingsvara íslendinga á Bandaríkja- markað á eftir flski. Stöð 2 sagði frá þessu. Allsherjar altarisganga Allir prestar landsins munu út- deila sakramenti til allra sem vilja í alt- arisgöngu sem fram fer undir bermn himni á Kristnihátíð á Þingvöllum í sum- ar. Karl Sigurbjöms- son, biskup Islands, segir þetta vera td þess að sýna að hátíðin snerti alla landsmenn og sé ekki einstakur at- burður einstakra útvalinna. Sjón- varpið sagði frá. Landssímahúsið vinsælt Mikill áhugi er á Landssímahúsinu við Austurvöll en það fer á sölu þeg- ar starfsemi fyrirtækisins flyst það- an. Meðal þeirra sem rennt hafa hýru auga til hússins er Alþingi, auk þess sem Reykjavíkurborg hefur áhuga. Ýmsir einkaaðilar eru einnig áhuga- samir um fasteignina. Stöð 2 sagði frá. Almenningur hjálpi til Kristján Ólafsson, slökkviliðsstjóri í Reykjavík, vill að almenningur taki meiri þátt í að slökkva sinuelda. Skóflur eða kústar geta verið nytsam- leg til þess, sérstaklega ef eldarnir em litlir. Sjónvarpið greindi frá. Gróður i vanda Sólfar á daginn og næturfrost í apríl- mánuði er farið að spilla gróðri víða um land. Sá gróður sem fer hvað verst út úr þessu veður- fari er sígrænn gróð- ur. Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri í Reykjavík, segir að aprOmánuður eins og þessi sé með því versta sem gróður getur orðið fyr- ir. Ríkisútvarpið greindi frá. -KJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.