Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2000, Blaðsíða 12
4L * * vikuna 1.7-8.7 2000 26. vika The Bloodhound Gang gerði unglinga íslands að fíflum í Höllinni með því að berja einn þeirra uppi á sviði. Unglingarnir okkar verðlaunuðu þá með því að klappa og öskra og koma þeim í annað sæti með óð sinn til klámmyndastjörnunnar Chasey Lee. Hún á barn en fer að vinna aftur, fljótlega. Topp 20 Vikur @ If 1 Told You Whitney H./George M. A lista © 5 (02) The Ballad Of Chasey L. Bloodhound Gang X13 (03) Sól ég hef.. Sálin hans Jóns míns 5 (04) Oops 1 Did Again Britney Spears J, 11 (05) Freestyler Boomfunk MC's J/10 (06) Hvar er ég? írafár -f 5 (07) Tell Me Einar Ágúst & Telma ^12 08 Mambo Italiano Shaft 4,11 (09) Are You Still... Eagle Eye Cherry 4,15 (10) Eina nótt með þér Greifarnir 3 (n) Endalausar nætur Buttercup 4, 3 (12) The One Backstreet Boys t 2 (73) Jammin' Bob Marley & MC Lyte 4r 6 (74) He Wasn't Man Enough Toni Braxton 4» 15 (75) Ennþá Skítamórall t3 (76) Broadway Goo Goo Doll W 6 (77) There You Go Pink t410 (78) Respect Yourself Selma t 3 (79) My Heart goes Boom French Affair X13 (20) Hvort sem er Sóldögg 4* 5 Q topplag vikunnar J hastökkvarí ji vikunnar )( nýtt a listanum /K hækkarsigírá ' stSistu viku X lækkar sig frá siiistuviku fall vikunnar 21. Try Again Aaliyah t 2 22. Daily TQ 4, 5 23. It feels so good Sunique -p 3 24. Day & Nicht Billie Piper t 2 25. Mr. Bongo Housebuilders n e 26. Life Story Angie Stone n 4 27. Razor Toungue DJ Mendez 4- 4 28. Too much of Heaven Eiffel 65 4, 3 29. Candy Mandy Moore X 1 30. Buggin' True Stepper Feat. t 2 31. If Only Hanson n s 32. Eitthvað Nýtt Land og Synir 4- 5 33. Riddle En Vogue 4, 6 34. Shackles Mary Mary n 8 35. Just Around The... Sash&Tina C. 4, 9 36. Fill Me In Craig David 4, 11 37. Sunshine Reggae Laid Back 4, 10 38. Flowers Sweet Female Attitude 4- 6 39- 1 think l’m in Love Jessica Simpson X 1 40. Bingo Bango Basement Jaxx X 11 ifókus Það er bara gaman að komast ókeypis inn núna,“ segir Georg í Sigur Rós en hann borgaði sig inn ‘95 og spilar ‘00. Gaman að komast ókeypit $ inn Sigur Rós og Magga Stína spila á Hróarskelduhátíðinni sem fer fram um helgina. Dr. Gunni heyrði í hinum frábæru fulltrúum okkar erlendis Hróarskelduhátíðin er fram undan um helgina. Hellingur af íslendingum verður á svæðinu til að sjá glæsilega dagskrána og til að upplifa einstaka stemninguna. Stærstu númerin í ár eru The Cure, Iron Maiden, Oasis, Nine Inch Nails, Lou Reed, Pearl Jam, D.A.D., Willie Nelson og Pet Shop Boys, en af athyglisverðum minni við- burðum má neftia Kelis, Flaming Lips, Travis og Kid Koala. Svo eru það fulltrúar okkar á Hróarskeldu, Sigur Rós og Magga Stína og Bikarmeistaramir. Bæði spila böndin í hvíta tjaldinu, Magga kl. 18 á laugardaginn, en Sigur Rós á sunnu- daginn kl. 18.30. Það er skrýtin tilviljun að þessi bönd voru nánast þau einu af íslensku flórunni sem spiluðu ekki á tónlistarhátið Reykjavíkur. Spenntur fýrír logandi vorum Sigur Rós fer beint á Hróarskeldu eftir fimm tónleika ferð um Bretland. Bandið spilaöi þar fyrr í þessari viku á túr sem skipulagður var af ameríska post-rokk bandinu Labradford og hét „Drifting". Einnig með i þeirri for voru Robin Guthrie úr Cocteau Twin, þýski rafvirkinn Pole, íslandsvinurinn David Pajo úr Papa M, rithöfundurinn I a i n Sinclair og Bruce Gilbert úr Wire sneri plöt- u m . Áhugi er- lendis á Sigur Rós h e f u r ekki farið fram hjá neinum, en hann ætti þó fyrst að byrjafyrir a 1 v ö r u þ e g a r „Ágætis byrjun" kemur út hjá Fat Cat merkinu í Bretlandi þann 14. ágúst. „Þetta var frábær túr,“ segir Georg bassaleikari og talsmaður Sigur Rósar. „Tónleikamir voru í gömlum leikhús- um og kirkjum, mjög flott.“ Að vanda em eingöngu ný lög á efri- isskrá Sigur Rósar og það verða heldur engin gömul lög spiluð á Hróarskeldu. „Okkur líst bara ágætlega á að spila á Hróarskeldu," segir Georg. „Ég hef verið þama einu sinni sem áhorfandi, 1995, en það er bara gaman að komast ókeypis inn núna.“ Ætlaröu aó sjá einhver bönd? „Já, ég er mjög spenntur fyrir að sjá The Flaming Lips. Því miður missi ég af Smog, sem hefði verið gaman að sjá, og Iron Maiden náttúrlega líka.“ Hvaó tekur svo við eftir Hróarskeldu? „Við komum bara heim og forum að spá í næstu plötu. Það er fúllt af lögum til, þetta efni sem við erum að spila núna. Það bætast eflaust fleiri lög við. Hugmyndin er að við komum okkur upp stúdíói á Vestfjörðum og tökum nýju plötuna upp þar.“ Er búiö aó undirbúa spilirí samhlióa útkomu Ágœtis byrjunar í Bretlandi? „Það verður náttúrlega eitthvað spil- að. Þetta hafa allt saman verið mjög stuttir túrar hjá okkur hingað til.“ Radiohead vilja víst ólmir fá ykkur til aö spila meö sér - hafiði heyrt í þeim, eöa kannski einhverjum öörum stórum númerum? „Ja, það er ekkert ákveðið enn þá svo ég má ekki segja neitt.“ Hvaða, hvaóa, ég lofa aó segja eng- um. „Nei, sorrí,“ segir Georg, mjög leyndardómsfullur að lokum. Gubbutilfinningin gleymist í flugvélinni Magga Stína hefur aldrei verið á Hróarskelduhátíð en alltaf spennst upp þegar vinir hennar hafa verið að fara. Hún er því himinlifandi að kom- ast núna. „Við spilum létt lög af síðustu plötu. Ég ætlaði að vera með 200.000 ný lög, en það gekk ekki alveg upp. Maður hefúr verið upptekinn við aðra hluti eins og gengur. Það verður þó eitthvað nýtt eftii á prógramminu." Magga er nýoröin mamma í annaó sinn en hvaö annaö ætli sé í kristaiskúl- unni hjá henni? „Ég spái nú lítið í framhaldið. Ég lifi þannig lífi að ég veit voða litið hvað gerist í framtíðinni, lifi svo fjölbreyttu og spennandi lífi, sjáðu til. Ég veit aldrei hvað brestur á eftir 5 mínútur. En ég er alltaf að gera ný lög, það vant- ar ekki. Maður fær stundum gubbutil- fmningu í kringum alls konar reddi- vesen í þessu. Maður ætlar bara að spila lög en er svo bara í bankanum í staðinn. Gubbutilfmningin gleymist þó fljótt í flugvélinni þegar maður er byrjaður að djóka með strákunum." Á aö sjá einhver bönd? „Ja, ég skoðaði dagskrána og fmnst náttúrlega Iron Maiden spennandi af því ég er kölluð „Jámfrúin" af hljóm- sveitinni minni. Vinur minn Goran Bregovyc er þama lika. Hann er Júgóslavi sem finnst gaman að semja pönk fyrir túbur. Svo er margt annað sem maður kíkir á, en ég verð með yngsta bikarmeistarann með mér og ég held ég láti nú ekkert of mikið „dunk-dunk-dunk“ skella á höfðinu á henni.“ Magga Stína ætlar sér aö sjá Iron Maiden á Hróarskeldu af því aö hún er alltaf kölluö Járnfrúin af strákunum í bandinu. Þrjár Bjarkar-plötur á leiðinni Björk er í góðu stuði þessa dag- ana á Spáni. Hún er í sama stúdí- ói og hún tók „Post“ upp í að vinna nýja plötu sem gengur und- ir vinnsluheitinu „Domestica“. Platan á að koma út á næsta ári. Áður munu þó koma út tvær Bjarkar-plötur. I september kem- ur tónlistin úr myndinni „Dancer in the Dark“ og heitir sú plata „Selmasongs". Þar hefur Björk risavaxna sinfóníuhljómsveit sér til aðstoðar og Thom Yorke syng- ur með henni dúett í laginu „I’ve Scene It All“. í desember kemur svo tónleikaplata sem tekin var upp á órafmögnuðum tónleikum sem Björk hélt með The Brodsky Quartet seint á síðasta ári. 12 f ó k U S 30. júní 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.