Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2000, Blaðsíða 12
* vikuna 20.10-27.10 2000 42. vika Ungu strákarnir í Coldplay halda toppsæti listans eftir að hafa skotist óvænt þangað í síðustu viku. Lagið þeirra Yellow er þó ekki eina lag plötunnar Parachutes og má fastlega búast við fleiri smellum á næstunni. Gömlu hundarnir í U2 eru komnir á skrið eftir góða pásu og tylla sér í annað sætið með laginu Beautiful Day á meðan Madonna er komin niður í þriðja sætið og virðist á niðurieið. Sérstaka athygli vekur innkoma Lands og sona með nýja útgáfu af Sigurjóni Digra. Fókus spáir þeim toppsætinu innan tíðar. Topp 20 01 Yellow Coldplay 02 Beautiful Day U2 (03) Music Madonna (OÍ) Groovejet Spiller (05) Ég hef ekki augun af þér Sóldögg (06) Lady Modjo (07J Með þér Skítamórall 08 Could I have this kiss Houston/lglesias (09) Fiesta (HouseParty) DJ Mendez (/0) Hollar Spice Girls @ Lucky Britney Spears @) WastingTime Kid Rock (Í3j Come on over Christina Aquilera (@ Ekkertmál Á móti sól @ Porcelain Moby (@ RockDj Robbie Williams @ Wonderful Everclear (18) It’smylife Bon Jovi (jgj Let’s get loud Jennifer Lopez 20 Sigurjón Digri Land & Synir og Stefán Karl 9 Sætin 21 til 40 ® topplag vikunnar You’re a God Vertical Horizon t 2 4- 8 J hástökkvari vikunnar Out of your mind Stepper & Beckham / Sky 'Wttttk Sonique 3 nýtt á listanum Hvenær Buttercup t 2 X Where do 1 begin Bassey & Away T... 4, 5 A stenduristað 1 turn to you Melanie C 4, 4 A hækkar sig trá siðustu vlku Tom’s Diner Kenny Blake 4 71 X 9 4, 1 4, 5 4. 9 411 4ll| T Most girls Pink 4, tækkarsigtrá On a night like this Kylie Minogue siðustu viku Woman Trouble Artful D & Robbie 7 fall vikunnar Jumpin’ Jumpin’ Destiny’s Child Life is a roller... Ronan Keating Seven Days Craig David Absolutely Nine Days 4 8 Öll sem eitt Sálin hans Jóns... We wilí rock you Five & Queen ■H Why didn’t... Macy Gray 4 10 Give me just one... 98 Degrees X 1 Spinning around Kylie Minogue 4 11; Let the music play Barry & Funkstar X 1; ifókus íslenski listinn er samstarfsverkefni DV og FM 957 og birtist vikulega í Fókus. Listinn er fluttur á FM í umsjá Einars Ágústs Víðissonar. f Ó k U S 20. október 2000 vergsins Líklega eru fá bönd jafn alþjóð- leg og Placebo, ef svo má að orði komast, en sveitin er skipuð þeim Brian Molko, sem syngur og spil- ar á gítar, Stefan Olsdal, sem plokkar bassann, og Steve Hewitt sem sér um trommuleikinn. Molko er Bandaríkjamaður, Stefan sænsk- ur og Steve breskur. Annars gerir sveitin út frá Bretlandseyjum þar sem meðlimir eru búsettir. Leiðir Brians og Stefan lágu hins vegar fyrst saman í heimavistarskóla í Lúx- emborg þegar þeir voru mjög ungir að aldri. Brian fluttist til Lundúna þegar hann varð 17 ára og hóf nám í leiklist og um svipað leyti fluttist Stefan aft- ur til Svíþjóðar. Leiðir þeirra lágu þó aftur saman, fyrir algjöra til- viljun, þvi þeir rákust á hvor annan á götu- homi í Lundúnum einn daginn. Þá hafði Brian hafið að leggja drög að tónlistarferli sínum og var kominn i samstarf við trommarann Steve Hewitt. Stef- an hafði flust til Lundúna með for- eldrum sínum og var farinn að læra á gítar og fljótlega afréðu fé- lagarnir að stofna band. Steve Hewitt var þá starfandi í öðru bandi - Breed - og hélt tryggö við þá félaga sina en aðstoðaði tví- menningana þó eftir megni og lék meðal annars á fyrsta demóinu þeirra. Njóli í Britpopp-garðinum Félagamir fundu fljótlega sína rödd og hún líktist litið því sem þá bar hæst í tónlistarflórunni, Brit- poppið stóð þá í blóma og tröllreið öllum vinsældalistum. Placebo sótti hins vegar í brunn lista- manna á borð við Sonic Youth, PJ Harvey og Tom Waits, auk þess að draga ríkulega úr eigin brunni. Útkoman varð eitthvað sem má ráða í og túlka á ýmsa vegu, en eitt er þó alveg víst, Placebo er einstakt band. Einhver varð þó að halda taktin- um og úrræðið varð að taka inn í hópinn Svíann Robert Schultzberg. Sá náði þó ekki að viðhalda þeim neista sem Hewitt myndaði með þeim og á endanum fór nú svo að hann tók að sér að verma trommustólinn, þó rúmt ár liði þar til þaö gerðist. Ráðist til atlögu Það var í janú- ar 1995 sem hljómsveitin kom fyrst fram opinberlega og vakti strax mikla athygli fyr- ir kraftmikl- ar og jafnframt mótsagnakenndar tónsmíðar. Sérstaða sveitarinnar var greinileg og piltamir voru fljótlega plat- aðir í stúdíó af Fierce Panda-út- gáfunni. Þeir tóku upp nokkur lög, gáfu út smáskífu og spiluðu víðs vegar. Árangurinn lét ekki á sér standa og smáskífan Come Home, á vegum Deceptive- útgáfunnar, náði þriðja sæti á óháða vinsældalistan- um í lok ársins. Á nýja árinu varð eitt fyrsta verk drengjanna að gera samning við Hut-útgáfuna. Um svipað leyti komst Davld Bowie yfir demóspól- umar og bauð sveitinni að hita upp fyrir sig á tónleikaferð um Evrópu, sem hún þáði að sjálfsögðu með þökkum. Mörgum þótti sér- stök symmetría í því að sjá þessa listamenn spyrta saman, þar sem menn sáu í Placebo ýmsa hluti sem rekja mátti til þess eldri og ráðsett- ari. Tónleikaferðin varð þeim að sjálfsögðu til framdráttar og að henni lokinni hófst sveitin handa við að hljóðrita sína fyrstu plötu. Hún bar sama nafn og sveitin og kom út sumarið 1996. Platan vakti talsverða athygli og þegar lagt var í tónleikaferð í kjöífariö greindu menn mikla aukningu i aðsókn. Þegar heimalandið hafði verið þrætt var ákveðið að leggja til at- lögu við Ameríku og meginland Evrópu en um það leyti kom Steve Hewitt aftur inn í bandið. Bowie og Velvet Goldmine Til staðfestingar vaxandi vin- sældum strákanna fór smáskífan Nancy Boy í fjórða sæti breskra vinsældalista og í sama mánuði spiluðu þeir í 50 ára afmæli David Bowie í Madison Square Garden, við góðan orðstir. Michael Stipe bauð meðlimum síðan hlutverk i kvikmyndinni Velvet Goldmine. Sú byggði laus- lega á glam-skeiði garpanna Iggy Pop og fyrmefnds Bowie og ekki alveg úr takti að flétta þá inn í það verkefni. Brian Molko er með ein- dæmum kynlegur kvistur og ekki ólíklegt að hann endi á stalli með þessum görpum einn veðurdag. Pönk glam er líka hugtak sem al- veg mætti nota til skilgreiningar á stefnu strákanna og þeir tóku sig að sjálfsögðu vel út við hlið Ewan McGregor og Eddie Izzard. Um þær mundir sem myndin var frumsýnd voru strákarnir að leggja lokahönd á sína næstu plötu. Smáskífa ársins Without You I’m Nothing stimplaði piltana kirfilega á landakortið og innihélt einhverjar 3-4 smáskífur sem gengu vel. Þeg- ar upp var staðið hafði platan selst í mn 300.000 eintökum í heimalandinu og milljón til við- bótar á heimsvísu. Þegar tónlist- arpressan gerði upp árið varð platan enda ofarlega á flestum listum og smáskífan Pure Morn- ing smáskífa ársins 1998 í Melody Maker. Um haustið 1999 minnti sveitin síðan skemmtilega á sig er hún gaf titillag plötunnar út í nýrri útgáfu sem innihélt raddframlag marg- nefnds David Bowie. Upp úr ára- mótum var svo ráðist í gerð þriðju breiðskífunnar sem nú hefur litið dagsins ljós. Á þessari stundu lítur ekki út fyrir annað en áframhald- andi velgengni þessarar sérstæðu hljómsveitar. >

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.