Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2000, Blaðsíða 10
 i > Það hlaut hreinlega að koma að því að Lenny Kravitz félli af toppnum og ekki var verra að það væru ungu mennirnir f Coldplay sem veltu honum þaðan. Þeir snúa nú aftur með annað lag af plö- tunni sinni og er það hreint ekki siðra en það fyrsta, Yellow. Fred Durst og félagar hans halda þriðja sætinu og Gwyneth Palthrow gerir það sama í því fimmta. Destiny's Child stökkva hins vegar óvænt upp f það sjötta og verða að teljast líklegar til frekari árangurs. Topp 20 01) Trouble Vlkur Í álistal Coldplay ^ 2 02 Again Lenny Kravitz 4- 6 03 My Generation Limp Bizkit M 3 04) Cruisin’ Gwyneth Palthrow & Huey Lewis 4 (05) Independent Women Destiny’s Child T 3 06) Don’t mess with my man Lucy Pearl 4- 5 (07) Ekki nema von Sálin hans Jóns míns 4> 6 08 MyLove Westlife V 3 09 Body II Body Samantha Mumba t 4 10) Sigurjón Digri Land & Synir og Stefán Karl §4< 7 @ Get along with you Kelis 4« 6 12) On a night like this Kylie Minogue 7 (73; Kids Robbie Williams& Kylie Minogue 2 14) Give me just one night 98 Degrees |4» 7 (15) Spanish guitar (remix) Toni Braxton 4* 5 16) Why does my heart... Moby 4/ 5 I 77) Með þér Skítamórall 4» 14 18 La Fiesta Club Fiesta i 4- 6 (19) Overload Sugarbabes f 3 20 Comeonover Christina Aquilera 4- 9 1 Sætin 21 til 40 g vikurwar listanum Body Groove Architecs feat. Nana Yellow Coldplay Hollar Spice Girls Let the music play Barry White feat Aldrei Buttercup 1 Shape of my heart Backstreet Boys Beautiful Day U2 [ She Bangs Ricky Martin Stop messing ar... Craig David You’re God Vertical Horizon Music Madonna Eg hef ekki augun af þér Soldögg Orginal Prankster Offspring Lady Modjo Fiesta (Houseparty) Dj Mendez | Groovejet Spiller Ekkert mál Á móti sól | 1 wonder why Tony Touch feat Sky Sonique 1 When 1 dream... Marc Anthony T 5 4-12 -þ 8 4- 7 X1 T 2 'MO T 2 4, 4 4- 8 -þ 5 4^13 4.11 4, 1 4.12 4,10 4,12 4- 9 4, 9 X1 ifókus íslenski listinn er samstarfsverkefni DV og FM 957 og birtist vikulega í Fókus. Listinn er fluttur á FM í umsjá Einars Ágústs Víðissonar. Þegar Erykah Badu kom fram á sjónarsviðið fyrir þremur árum markaði djassskotin soul-tónlistin hennar tímamót. Síðan hafa komið fram margar flottar soul-söngkonur (Lauryn Hill, Macy Gray, Angie Stone, Kelis, Jill Scott...), en eins og Trausti Júlíusson komst að þegar hann hlustaði á nýju plötuna hennar þá er Erykah enn þá í sérflokki. Erykah Badu er engin venjuleg söngkona. Hún semur flest lögin og alla textana sem hún flytur, hún stjómar upptökum á myndböndun- um, hún leikur í kvikmyndum, semur ljóð... Þegar fyrsta platan hennar „Baduizm" kom út, þá var eins og hún hefði orðið til úr engu, hún birtist fullsköpuð. Platan fór beint í annað sæti bandaríska list- ans og hafði selst i mflljón ein- tökum innan tveggja mánaða frá útgáfudegi. Á henni voru líka margir smellir, t.d. „On and on“, „Next Lifetime" og „Other Side of the Game“. Erykah fékk ótal verð- laun fyrir plötuna, þ. á m. tvenn Grammy-verðlaun. Kom fyrst fram fjögurra ára En auðvitað var löng þróun á bak við þessa frábæru plötu. Erykah er fædd í Dallas árið 1972 og þar hefur hún enn sínar bæki- stöðvar. Hún kom fyrst fram á sviði í leikriti með móður sinni, sem er leikkona, þegar hún var fjögurra ára og samdi fyrsta lagið sitt þegar hún var sjö ára á píanó sem amma hennar keypti handa henni. Hún lagði stund á söng, dans og myndlist á unglingsárun- um, á sama tima og hún drakk í sig soul-tónlist sjöunda og áttunda ára- tugarins, r&b og hip-hop tónlistina sem var þá í örum vexti... Stofnaði hip-hop hljóm- sveit Eftir menntaskólanám, þegar hún taldi sig hafa fundið sig í til- verunni, breytti hún nafninu sínu úr Erica Wright í Erykah Badu. „Kah“ stendur fyrir innra sjálfið og „ba-du“er tekið úr sönghefð djasssöngkvenna. Hún stofnaði hip-hop hljómsveitina Erykah Free með frænda sinum Robert „Free“ Bradford og svo tók eitt við af öðru: hún tók upp 19 laga demó sem vakti mikla athygli og þegar hún hitaði upp fyrir D’Ang- elo á tónleikum þá kynntist hún umbanum hans, Kedar Massen- burg og á endanum gerði hún samning við hann. 1 dag er Kedar stjórnandi Motown-útgáfunnar og nýja Badu-platan er því gefin út á því sögufræga merki. Erykah talar um árin 93 til 97 sem uppbygging- artímann. Á sama tima og honum lauk eignaðist hún soninn Seven Sirius, en hann átti hún með Dre (Andre Benjamin), meðlimi rapp- dúósins OutKast, en þeir voru einmitt að senda frá sér frábæra plötu nú á dögunum. Sækir stíft í hefðina Erykah hefur sótt mikið i soul- og djass-hefðina, tónlistin hennar þykir minna á Bessie Smith, Mar- vin Gaye, Curtis Mayfleld og Chaka Khan, svo dæmi séu tekin. Mest þykir hún samt minna á Erykah Badu. Mama’s Gun er biðinnar viröi. Billie Holiday og má segja að tón- listin á Baduizm sé eins konar nú- tímatúlkun á djasssöng síðustu ald- ar. Textamir eru líka magnaðir. Erykah upplifir sig mjög sterkt sem hluta af hip hop senunni: „Ég hugsa um það sama og rappararn- ir, segir hún, ég syng um það sem þeir era að rappa um“ Löng bið Biðin eftir annarri Erykah Badu- plötunni er orðin ansi löng og henni hefur verið margfrestað. Erykah hefur þó ekki setið auðum höndum þessi ár síðan Baduizm kom út. Hún gaf út tónleikaplötu „Erykah Badu Live“ tæpu ári eftir útkomu Baduizm. Það er frekar óvenjulegt að gefa út tónleikaplötu eftir að hafa aðeins gefið út eina stúdíóplötu, sérstaklega þegar það eru að miklu leyti sömu lögin á báðum plötunum, en þetta virkaði alveg hjá henni, tónleikaplatan seldist í 2 milljónum eintökua og hún innihélt lika metsölulagið „Tyrone". Hún hefur lika sungið inn á plötur með öðrum, t.d. Common (lagið „The Light“), Guru (“Plenty" á nýju Jazzmatazz- plötunni) og The Roots, en lagið sem hún söng með þeim, „You Got Me“, var valið besta r&b-lagið árið 1999. Svo hefur hún lika verið að reyna fyrir sér sem leikkona, lék t.d. í Blues Brothers 2000 og The Cider House Rules. Valinn maður í hverju horni Tónlistin á nýju plötunni, „Mama’s Gun“, er að miklu leyti unnin af sömu klíkunni og vann „Voodoo“-plötu D’Angelo og „Like Water For Chocolate" með Comm- on. Upptökustjórar eru James Poyser, Jay Dee og Erykah sjálf. Á meðal gesta á plötunni eru svo Stephen Marley(sonur Bob Marley að sjálfsögðu), sem syngur á móti henni í laginu „In Love With You“ (sem verður örugglega smellur) og gamla soul-stjarnan Betty Wright. Tónlistin á Mama’s Gun er að stórum hluta í beinu framhaldi af Baduizm; þetta djass- aða soul sem rödd Erykuh nýtur sín svo vel í. Sum lögin eru mjög r&b- og hip hop-skotin, en í öðrum er djassstemmningin ráðandi. Fyrsta smáskífulagið, „Bag Lady“, er að gera það gott vestanhafs, en það segir ekki mikið um plötuna, þessi plata er nefnilega töluvert fjölbreyttari en fyrri platan. Þetta er líka plata sem vinnur á, það tekur nokkrar umferöir að ná henni til fulls. Bag Lady notar reyndar sama Isaac Hayes-grúvið og „Xplosive" með Dr. Dre. Það má segja að Baduizm hafi búið til nýja viðmiðun í ný-soul-tónlist- inni. Á Mama’s Gun þróar Erykah Badu sinn persónulega stíl enn frekar og tekur inn i hann ný áhrif. 10 f Ó k U S 1. desember 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.