Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Blaðsíða 8
8 _________________________MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2001 Fréttir I>V mundir og þeir Heimir og Torfi óttast báöir að finnist ekki æfinga- aðstaða fari menn á hjólum sínum út fyrir vegina. „Markmið klúbbs- ins er að halda utan um vélhjóla- akstur og koma í veg fyrir akstur utan vega. Á meðan menn hafa ekki æfingasvæði er hætt við að einhverjir fari út á vegina, lendi í árekstrum við hestamenn og valdi fólki truflun," segir Heimir Bárð- arson. -aþ Vélhjólaklúbburinn Vík enn og aftur á hrakhólum: Börn og fullorðnir svipt æfingasvæðinu - hætt við akstri utan vega ef engin er aðstaðan, segir stjórnarmaður Verð frá — 35.500 EVRó Allar stærðir Gs?^v|?;3 „Það er slæmt að æfingasvæð- inu skuli hafa verið lokað. Þarna var eina vélhjólabrautin fyrir börn á höfuöborgarsvæðinu og nú er alls óvist hvenær æfingar geta hafist á ný,“ segir Torfi Hjáhnars- son, gullsmiður og vélhjólamaður. Hann hefur ásamt tveimur böm- um sínum stundað æfingar hjá Vélhjólaklúbbnum Vík sem á dög- unum missti æfingasvæði sitt við Lyklafell. Torfi segir á þriðja tug barna og unglinga stunda vélhjóla- sportiö að staðaldri og sífellt séu nýir félagar að bætast í hópinn. Æfingasvæðiö við Lyklafell er í eigu Kópavogsbæjar og var afhent vélhjólaklúbbnum fyrir tæpum þremur ámm, til bráðabirgöa. „Allt frá stofnun klúbbsins 1978 hefur hvorki gengið né rekið að finna klúbbnum framtíðarsvæði. Yfirvöld virðast hafa skilning á málinu en svo ekki söguna meir,“ segir Heimir Bárðarson, stjórnar- maður í klúbbnum. Heimir segir klúbbinn hafa flutt rúmlega 15 sinnum frá stofnun og það sjái hver maður að slíkt er óviðunandi. „Það kostar alltaf mikla vinnu, peninga og fyrirhöfn að koma upp æfingabrautum. Vél- hjólaakstur telst víst ekki almenn- ingsíþrótt og það skýrir sjálfsagt af hverju yfirvöld visa okkur í ýmsar nefhdir þar sem ekkert ger- ist. Það má minna á að sífellt fleiri börn og unglingar sækja í þessa íþrótt og löngu orðið brýnt að finna málinu farveg," segir Heim- ir. Framtíð Vélhjólaklúbbsins Vík- ur er með öllu óviss um þessar DV-MYND BRINK Síðasta æfingin í bili Jói, Sigrún og Torfi haft æft sig á vélhjólum einu sinni í viku en nú er útlit fyrir aö hié veröi á æfingum - þar til vélhjólaklúbburinn fínnur æfíngasvæöi. Storsýmng í Laugardal!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.