Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2002, Blaðsíða 1
HEF HLEGIÐ SIÐAN EG VANN
- SJÁ NÁNAR Á BLS. 10
!On
■O
in
DAGBLAÐIÐ VISIR
116. TBL. - 92. ARG. - FOSTUDAGUR 24. MAI 2002
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Knappur tími
Könnun DV í dag sýnir að þrjú stjórnmálaöfl af þeim sex sem bjóða fram í Reykjavík eiga möguleika á að ná fulltrúa inn í nýja borgarstjórn á morgun. Hér sjást
teiðtogar þessara afia, Ólafur F. Magnússon, efsti maður F-lista, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, leiötogi R-lista, og Björn Bjarnason, borgarstjóraefni D-tista.
1200 manna skoðanakönnun DV frá í gærkvöld:
R-listinn heldur velli
R-listinn heldur meirihluta sín-
um í Reykjavík samkvæmt nýrri
skoðanakönnun DV sem gerð var í
gærkvöld. i könnuninni sögðust 51,1
prósent mundu kjósa R-listann, 42,6
prósent D-listann, 5,3 prósent F-list-
ann og 1 prósent aðra lista. Fylgi R-
listans eykst um 3,1 prósentustig frá
því i könnun DV 15. mai en D-list-
inn tapar 3,8 prósentustigum. Fylgi
F-lista eykst um 0,6 prósentustig.
Þessar niðurstöður þýða að R-list-
inn fengi 8 borgarfulltrúa kjöma, D-
listinn 7 en F-listinn á nokkuð í
land að ná inn manni.
Úrtakið í könnuninni. var 1200
kjósendur í Reykjavik, 600 karlar og
600 konur, eða tvöfalt stærra en í
undanfornum könnunum. Spurt
var: Hvaða lista mundir þú kjósa ef
borgarstjómarkosningar færu fram
núna?
Athygli vekur að óákveðnir og
þeir sem ekki svöruðu reyndust 22,6
50%
40%
30%
20%
10%
03TO g 16/05 R23/05
Kosningar
í borginni
■ R-listi er aftur me6
forskot á D-lista.
Munurinn er 8,5
, ■ prósentustig.
ABrir
prósent, mun fleiri en í könnun DV
i síðustu viku. Þá reyndist þetta
hlutfall 15,7 prósent. í könnun DV
21. apríl reyndust 18,3 prósent óá-
kveðin eða neituðu að svara.
Meðal 600 karla er ekki marktæk-
ur munur á D-lista og R-lista, mun-
urinn er 2,1 prósentustig. R-listinn
hefur hins vegar afgerandi forskot
meðal 600 kvenna þar sem munur-
inn á fylgi listanna mælist 15,4 pró-
sentustig. Fylgi F-lista er 2 pró-
sentustigum meira meðal karla en
kvenna.
Fjórða hver kona óákveðin
Niðurstaðan er ólík síðustu könn-
unum DV fyrir kjördag 1998 og 1994
að þvi leyti, að í fýrsta sinn dregur
aftur í sundur með stóm fylkingun-
um skömmu fyrir kosningar eftir að
munurinn hafði farið jafnt og þétt
minnkandi.
Ástæðan virðist ekki síst vera sú,
að mikil fylgisaukning D-lista meðal
kvenna í síðustu könnun DV hefur
að miklu leyti gengið til baka. Lík-
legt virðist að margar konur sem
studdu D-lista í fyrsta sinn í síðustu
könnun segist núna óákveðnar, þvi
að hlutfall óákveðinna í röðum
kvenna hefur snarhækkað úr 14,7%
frá síðustu könnun í 25,3%.
Hlutfall óákveðinna er óvenjuhátt
eins og fyrr segir. Það getur því ver-
ið eftir miklu að slægjast hjá fylk-
ingunum þótt skammt sé til kosn-
inga.
Athygli vekur að F-listi heldur
áfram að bæta við sig fylgi, en fylgi
listans hefur dalað nokkuð í öðrum
könnunum undanfarið, í kjölfar
þess að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
lýsti þvi yfir að hún yrði ekki borg-
arstjóri fengi R-listinn ekki hreinan
meirihluta í kosningunum og hún
þau- með ekki sæti i borgarstjóm
sem áttundi maður R-listans.
F-listinn þyrfti að bæta við sig
um það bil 1 prósenti til þess að
Ólafur F. Magnússon næði kjöri til
borgarstjómar. Það yrði að öllum
líkindum á kostnað 7. manns D-
lista, Gísla Marteins Baldurssonar.
Baráttan virðist þó fremur standa á
milli Gísla og Helga Hjörvars, 9.
manns R-lista.
-hlh/-ÓTG
■ NÁNARI UMFJÖLLUN Á
BLS. 2 OG BAKSÍÐA í DAG
SAMSETT MYND
Clapton í lax
- veiðir í Laxá á Ásum
„Það er rétt að Eric Clapton mun
veiða í nokkra daga í Laxá á Ásum,
þrjá, fjóra daga, en það hefur ekki
mikið verið rætt um þetta, enda
hefur veiðitúrinn farið mjög leynt,“
sagði leiðsögumaður í samtali við
DV í gærkvöld.
Eric Clapton hefur ekki áður
komið til landsins en hann hefur
stundað veiðiskap þónokkuð í
gegnum tíðina. Það er Veiðifélagið
Lax-á sem hefur veg og vanda af
komu Claptons en Ámi Baldurs-
son, forsvarsmaður þess, var stadd-
ur við veiðar í Argentínu í gær og
verður þar þangað til hann kemur
heim og opnar Blöndu, 5. júní.
Veiðifélagið Lax-á er marga daga
í Laxá á Ásum, en aðeins er veitt á
flugu í sumar í ánni og dýrasti dag-
urinn er á 220 þúsund. -G.Bender
LOGI OLAFSSON, AÐSTOÐAR-
ÞJÁLFARI LILLESTRÖM:
Þroskandi og
gaman að takast
á við þetta
FOKUS I OPNU BLAÐSINS:
Sellófon,
sköllótta-
liðið o.fl.
Aðeins eitt símtal! 8001111
punktur'nn Íslandssími
islandssimi.is