Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2002, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2002, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2002 DV Fréttir 7 Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Borgarnes: Slátrað þrátt fyrir allt! Sláturtíð er nú hafm hjá Borgar- nes kjötvörum í Borgamesi. Slátur- húsarekstri virtist lokið í byrjun þessa árs en skipt var nokkrum sinnum um eignarhald á því á árinu með tilheyrandi uppstokkunum. Norðlenska matborðið tók við rekstri Kjötvinnslunnar og stór- gripasláturhússins um mitt ár 2001 og leigði húsnæðið af Kjötumboðinu hf. Öllu starfsfólki Norðlenska í Borgamesi var sagt upp störfum í lok árs. í febrúar var tilkynnt um samkomulag Norðlenska og Borg- firðinga um yfirtöku hinna síðar- nefndu á rekstri sláturhúss og kjöt- vinnslu í Brákarey. Vel gekk að manna sláturhúsið í haust. -GG Gúmmaði gróf- lega í Ríkinu Akureyringur á sextugsaldri hefur verið dæmdur í 3ja mánaöa skilorðs- bundið fangelsi fyrir fjársvik auk greiðslu skaðabóta sem nema hundruðum þúsunda. í september í fyrra gerði maðurinn sér i tvígang ferð niður á vínbúð ÁTVR á Akur- eyri og keypti áfengi fyrir annars vegar rúmlega 350.000 krónur en i hitt skiptið rúmar 285.000 krónur. Innstæða reyndist ekki fyrir tékkun- um og telur Héraðsdómur Norður- lands eystra að þriggja mánaða skil- orðsbundið fangelsi til tveggja ára sé hæfileg refsing. Maðurinn játaði brot sitt en hefur ekki greitt skaðabætur. Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkis- ins hafði sakarferill ákærða ekki áhrif í málinu. -BÞ Forstöðumaður Barnaverndarstofu vill láta breyta reglum: Fóstur og ættleiðing verði hjá sama embætti - óeðlilegt ef fyrrverandi veikindi hindra ættleiðingu FRAMBOÐSFRESTUR Ákveðiö hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur við kjör fulltrúa á ársfund Alþýðusambands íslands 2002. Kjörnir verða 45 fulltrúar og 28 til vara. Framboðslistar ásamt meðmælum 100 fullgildra félags- manna VR þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur, Húsi verslunarinnar fyrir kl. 12:00 á hádegi, fimmtudaginn 17. október nk. Kjörstjórn Bragl Guðbrandsson. Bragi Guð- brandsson, for- stöðumaður Barnavemdar- stofu, er ósáttur við að hans emb- ætti hafí ekki með ættleiðing- armál að gera. Þær reglur gilda um fósturráð- stafanir að bamaverndarnefndum er óheimilt að ráðstafa fyrr en að fenginni um- sögn Barnavemdarstofu. Það er til að tryggja að samræmt mat sé á þeim kröfum sem gerðar eru til hæfis fósturforeldra í landinu öllu, enda ekki eðlilegt, að mati Braga, að svoleiðis vinna dreifist á 50 barnaverndarnefndir í landinu. --------- „Ef við litum hins vegar á ættleiðingar sem eru í eðli sínu alveg sam- bærilegar ráð- stafanir þá ber svo við að hæfis- matið liggur ekki hjá Barna- verndarstofu heldur í umsókn viðkomandi barnavemdamefnda. Síðan fer matið inn í dómsmála- ráðuneytið en ég tel að þetta ætti allt að vera á sömu hendi þannig að sambærilegar reglur giltu um þetta hæfismat," segir Bragi. „Þetta á allt aö vera á einni hendi þannig að sömu aðferðir og fag- þekking sé viðhöfð. Ég sé engin Sólveig Pétursdóttir. 39. tbl. 64. árg., 8. okt. 2002. VER0 599 kr. M/VSK. Hvað er eitt brjóst a milli hjona? rök fyrir því að hafa tvö aðskilin kerfi í gangi. Það gæti bitnað á fagþekkingu. Ættleiðingarmál voru til um- ræðu á Alþingi í fyrradag. ísólfur Gylfi Pálmason, þingmaður Fram- sóknarflokksins, kallaði það hróp- legt óréttlæti að manneskja sem hefði veikst alvarlega fengi ekki að ættleiða barn, jafnvel þótt hún væri búin að ná sér af sjúkdómn- um og ætti fullfrískan maka. Bragi er sammála þingmanninum um að þetta sé óeðlilegt ef rétt sé. „Ég álít að ef allt annað er í góðu lagi eigi fyrrverandi veikindi ekki að vera frágangssök. Þetta kemur á óvart ef rétt er en ég þekki þessi mál ekki gjörla þar sem þetta er aðskilið frá rekstri Bamaverndar- stofu,“ segir Bragi. Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra sagði m.a. í umræðun- um á Alþingi að þessi mál væru viðkvæm en skjóta mætti vafaat- riðum til sérstakrar nefndar og væri þar um mikla réttarbót að ræða. -BÞ Johanna Johannsdottir UJLUUf.Fr-odi.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.