Alþýðublaðið - 06.05.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 06.05.1967, Blaðsíða 11
 t=RitstíórTÖrn Eidsson^í^ SÉIM Myndin er af íþróttahúsi Réttarholtsskólans Breiðablik sigraði Keflavík óvænt 1:0 Úlfar Þórðarson kosinn formaður ÍBR: iKinan ÍBR eru 21 félag með 10.937 félagsmenn Breiðablik kom sannarlega á ó- vart í Litlu bikarkeppninni á upp- stigningardag, þeir sigruðu Kefl- víkinga með einu marki gegn engu. Markið skoraði Guðmund- ur Þórðarson á glæsilegan hátt, hann fékk boltann á miðjum vall- arhelmingi, lék á varnarmenn og skaut síðan af löngu færi. Bolt- inn hafnaði uppi í horni marks- ins, óverjandi fyrir markvörð Keflvíkinga. . Lið Breiðabliks hefur sýnt framfarir í leikjum sínum í vor, m.a. gert jafntefli við Akurnes- inga og nú sigrað Keflvíkinga, scm áttu eitt sterk'asta liðið hér í fyrra. Með sama áframhaldi verður þess ekki langt að bíða, að Kópavogur eignist lið í 1. déild, þrátt fyrir mjög lélega aðstöðu. Ef svo “færi, að Breiðablik kæm- sumar, getur lið- upp á löglegan ist' í 1. deild i ið ekki hoðið keppnisvöll. í leiknum á sunnudag áttu Keflvikingar fleiri tækifæri, m.a. tvívegis fyrir opnu marki, en bolt inn fór fram hjá. Keflvíkingum nægði jafntefli i þessum leik til að tryggja sér sigur í Litlu bik- arkeppninni í ár. Á sunnudag leika Akurnesing- ar og Keflvíkingar í Keflavík og Breiðablik og Hafnarfjörður í Kópavogi. Staðan í Litlu bikarkeppninni er nú þessi: Keflavík Akranes Breiðablik Hafnarfj. 5 4 0 4 12 5 12 4 10 1 8:2 8 1 7:7 4 2 7:9 4 3 7:11 Z 'Ársþing íþróttabandalags Reykja víkur var lialdið dagana 17. og 27. apríl í húsi Slysavarnafé- lags íslands. Við setningu þingsins minntist formaður bandalagsins, Baldur Möller, samstarfsmanna og for- ystumanna-, sem fallið hafa frá á árin Guðlaugar Jónsdóttur, Eggerts Kristjánssonar, Erlings Pálssonar, Benedikts G. Waage, Sigurðar Jónssonar og Benedikls Jakobssonar. Þingið sátu 64 fulltrúar frá að- íldarfélögum og sérráðum banda- lagsins. Þingforseti var kosinn Stefán G. Björnsson og þingrit- ari Sveinn Björnsson. Baldur Möller, formaður Í.B.R., flutti ársskýrslu framkvæmda- stjórnar fyrir árið 1966 og kem- ur þar fram, að innan bandalags- ins er nú 21 félag með 10.937 félagsmenn. Sæmundur Gíslason, gjaldkeri bandalagsins, gaf yfirlit yfir reikn inga þess og sérsjóða. Skuldlaus eign var um sl. áramót kr. 4.180.000,00. Á fyrri fundi var kosið í nefnd- ir, sem störfuðu milli fúnda. Á síðari degi þingsins afhenti formðaur verðlaun fyrir keppni skólanemenda í Reykjavík, en hún fór fram í sambandi við Nor- rænu sundkeppnina á sl. sumir. Keppni barnaskólanna vann Laugalækjarskóli, en keppni framhaldsskólanna vann Réttar- holtsskólinn. Veittu íþróttakenn- arar skólanna, Ólafur Unnsteins- son frá Laugalækjarskóla, og Árni Njálsson frá Réttarholtsskóla. á- letruðum styttum viðtöku fyrir hönd skóla sinna. Baldur Möller, sem verið hef- ur varaformaður bandalagsins í 18 ár og formaður sl. 5 ár, baðst úndan endurkosningu. Formaður bandalagsins var Valur og Fram leika á morgun ÉINS og sakir standa með veður og völl eru allar líkur til að unnt verði að hefja knattspyrnumót Reykjavíkur á raorgun, sunnudag Svo sem ákveðið hafði verið af niðurröðunarnefnd KRR skyldi mótið hefjast á sumardaginn fyrsta með leik milli Víkings og Vals. En þegar til átti að taka brá til hinnar verstu veðráttu með frosthörku, sem torveldaði og Igerði að engu þá áætlun. Síðan hafa verið næturfrost og sólbráð til skiptlst, þannig að völlurinn Ihefir ýmist verið ísi lagður eða forarvilpa og engu kviku út á hann fært, hvort heldur að degi eða kvöldi. Þrotlaust starf vallar- stjóra og manna hans undanfar- inn hálfan mánuð hefir þó ofkað því ásamt skánandi tíð að fært mun mega téljast að gera tilraun til að hefja knattspyrnuna á morg un með leik milli Fram og Vals. Er þá niðurröðunin látin halda sér, og á mánudagskvöldið leika svo KR og Þróttur (Reykjavíkur- meistari). Að því búnu mun svo verða skipað til leiks að nýju af niðurröðunarnefndinni. kosinn Úlfar Þórðarson, læknir, og á fundi fulltrúaráðsins síðar voru kosnir í framkvæmdastjórn Andreas Bergmann, Ólafur Jóns- son, Sæmundur Gíslason, og Sig- urjón Þórðarson. í varastjórn voru kosnir Gunnar Sigurðsson og Haukur Bjarnason. Endurskoðendur voru kosnir Sveinn Helgason og Finnbjörn Þorvaldsson og í héráðsdómstól Í.B.R. Jakob Hafstein. Forseti Í.S.Í., Gísli Halldórs- son, flutti bandalaginu kveðju framkvæmdastjórnar Í.S.Í. og þakkaði fráfarandi formanni bandalagsins, Baldri Möller, sem nú dregur sig í hlé eftir 23 ára starf í framkvæmdastjórn, fyrir mikil og giftudrjúg störf fyrh' bandalagið og íþróttahreyfinguna. Forseti Í.S.Í. drap síðan á ýms mál, sem eru á döfinni hjá íþrótta sambandinu. Hann bauð nýkjör- inn formann bandalagsins vel- kominn. Baldur Möller þakkaði þingfull trúum og samstarfsmönnum inn- an bandalagsins fyrir samstarf og þá ánægju, sem hann hefði not- ið í 23 ára starfi að málum banda- lagsins. í þinglok ávarpaði Úlfar Þórð- arson þingið. Þingið samþykkti fjárhagsáætl- un fyrir yfirslandandi ár. Einnig voru þessar samþykktir gerðar: Ársþing Í.B.R. felur fram- kvæmdastjórn að skipa fimm manna nefnd, er taki til ræki- legrar athugunar erfiðleika skiða íþróttarinnar í Reykjavík. Nefndin skal auk þess kanna möguleika á 1. byggingu skíðamiðstöðvar fyr- ir almenning í nágrenni Reykja víkur, 2. byggingu skíðastökkpalla á Framhald á bl. 14. Hér leggur Ingi Björn í úrslitaglímunni. Glímt fyrir norðan Síðastliðinn sunnudag fór fram á Akureyri Fjórðungs- glíma Norðlendinga, og er það í annað skipti, sem hún er hald- in. Ungmennasamband Eyja- fjarðar sá um framkvæmd glím- unnar, en keppendur votu alls 8 frá 3 íþróttasamböndum. Mjög hörð barátta varð um efsta sæt- Skemmtifundur Sunddeildar ÍR Sunddeild ÍR efnir til fræðslu- og skemmtifundar í ÍR-húsinu við Túngötu á sunnudögum. kl. 2. — Rætt verður um þjálfun- ina í sumar, ferðalag lít á land og loks verður sýnd kvikmynd. Allir, sem æft hafa sund hjá ÍR í vetur eru beðnir að mæta og auk þess eru nýir félagar velkomnir á fundinn. ið, og jafnframt veglegt glímu- horn, sem KEA gaf, en í úrslita- glímunni milli Inga Árnasonar, Framhald á 14. síðu Ingi Björn í úrslitaglímunni. 6. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.