Dagur - 06.04.1933, Blaðsíða 4

Dagur - 06.04.1933, Blaðsíða 4
5ö DAGUR 14. tbl. »*t»»t •- •• • •••••• • • *• • • • ••• •-••• Hér með tilkynnist heiðruðum viðskiftavinum mínum: þar sem félagi minn, Jakob E'narsson, er fluttur úr bænum, hefi eg keypt hans hluta af vinnustofu okkar, Dlvanavinnustofu Jakobs Einarssonar og Co. — Nafni vinnustofunnar hefi eg breytt, og heitir hún nú >FJAÐRAHÚSGAQNAGERÐIN«. Virðingarfyllst. Jón Hallur. Postulíns- og leirvörur, ■■ nýkomnar. Kaffistell, margar tegundir. Leirföt. Leirkrukkur. Blómapottar. KAUPFÉLAG BYFIRÐINGA Járn- og Glervörudeild. Leikfélag Akureyrar ieikur Fiðken Júliuog Hinrik og Pérnillu á Sunnudaginn kemur i siðasta sinn. Aðgöngumiðar kosta 1 krónu. kostur er á, en til þess þarf skurðurinn, sem vatnið leiðir burt, að vera venjulegur fram- ræsluskurður. Menn mega ekki hika við að grafa 1,20—1,50 m. djúpan skurð, ef þörf krefur, Það borgar sig eftir á, þótt dýrara sé í fyrstu. En svo djúpur og voldug- ur skurður má ekki undir neinum kringumstæðum vera minna en 3 metra frá vegarbrún. Það er vafa- samt að aðrir vegir reynist end- ingarbetri en sá, sem í gegnum mýri er lagður, þegar vel er fyrir öllu séð í fyrstu. Þar sem hugsun- arleysi og trassamennska er með í starfi, sökkva verkin í foraðið óaflátanlega og viðhaldið tekur engan enda. VII. Þess er hér að framan getið, að enda þótt við neyddumst til að nota vandræðaefni til vegagerða, mundi það verða hlutskifti okkar enn nokkur ár fram í tímann. Það er nokkur huggun í því efni, að viða um sveitir finnast hólar og melar, — hinir ákjósanlegustu sparisjóðir, sem grípa má til, til ofaníburðar og viðhalds vegunum, Á hinum fyrstu upphleyptu veg- um, sem gerðir voru, leiddi það af líkum að slitlag var svo að segja ekkei’t, enda seinlegt og dýrt að flytja möl í pokum eða kláfum eins og þá gerðist. Síðar komu kerrumar til sögunnar, og var þá fyrst um að ræða verulega möguleika til þess að fá haldgott slitlag á vegina. Allstaðar, þar sem nothæf möl fæst í grennd við vegina, verða kerran og hesturinn sjálfsagðir kraftar til flutninga. En það er nú svo, að möl og möl á ekki saman nema að nafninu, til ofaníburðar á vegi. Möl finnst af- ar víða, en tiltölulega óvíða sem ákjósanlegt slitlagsefni. Eru augu manna nú á síðustu tímum með réttu opin fyrir því, að nota bif- reiðar til þess að sækja mölina þangað, sem hún bezt finnst inn- an hæfilegra fjarlægða. Því miður vantar gott slitlag alltof víða. Ým- ist er mölin alltof leirborin, svo hún veðst upp í hvert sinn, sem dropi fellur úr lofti, eða hún er of gróf, og staksteinar áberandi, svo vegirnir verða mjög ógreiðir og ómjúkir yfirferðar. Fjörumöl og sandur er óhæft til ofaníburðar nema með því að blanda hvorutveggja með leir, eða valta það ella niður í vota vegina að hausti, eða snemma vors. Er það traust nokkuð, að góð mol finnst í allríkum mæli, í flestum sveitum, og skiftir eigi mjög miklu máli þó flytja þurfi um all- langa vegu, jafnvel svo kílómetr- um skifti, þegar um viðhald brautanna er að ræða. VIII. Þá kem ég að því atriðinu sem viðast hefir hingað til verið van- rækt um of, til skapraunar fyrir ökumennina, og öllum til skaða. Þó vegirnir séu úr bezta efni gerðir og bygging þeirra óaðfinn- anleg, er umferð og veðrátta því valdandi, að þeir þurfa árlegt við- hald, og því meira viðhald, sem þeir eru fjölfarnari. Frainh. H r a n n i r. Kaldri storma ströndu jeg stari hljóður af. Við mér blasir bylgjótt, breitt og svipþungt haf. Ég stari af strönd og hlusta á stormþyt og sævarnið. Freyðandi hvítar hrannir hníga við skerja rið. Þar brotna þeirra fætur, og þar með er endað skeið; þannig fer fyrir öllum sem fara of grýtta leið. Gunnar S. Hafdal. -----o------- Kvöld. Teiknar kvöldsins geislaglóð gullna skýjafingur. Yndisfagran ástaróð aftan biærinn syngur Jónatao Sígtryggsson frá Tungu. ---- 0.... - F réttir. Fyrirlestur um æskuua os Slengid Nytu, Páll H. Jónston frá Fremslafelli, að til- hlutun U. M. F. í„ f Skjaldborg, kl, 8V2 e. h í kvöld. — Aðgangur ókeypis. Messur í Akureyrarpiettakalli um há- tfðarnar: Pálmatunnudag kl. 2 Akureyri. Sklrdag — 2 Akureyrl. — — 6 Ak. (altarisganga). Föstudag langa — 2 Ak„ kl. 5 Olerárþ. Páskadag — 11 Lögmannshllð. — — 4 Akureyri. 2, pátkadag — 2 Akureyri. Geysir syngur í Nýja-Bló á Sunnudag- inn kemur kl. 4 e. h. Hefir kórinn æft af mikium kraftl undanfarna mánuði, og söngskráin að þessu sinni sú fjölbreytt- asta og stærsta, sem Oeysir nokkru sinnl hefir tungið. Má þar telja meðal annart þrjú óperulög: úr Lucla di Lammermoor, eftlr Donizettl, Hermannakórinn úr Faust, eitir Oounod og Pilagrímakórið úr Tann- hauser, eftir Wagner, auk annars. Öll eru lög þessi sungtn við íslenzka texta, við flygel undirspil. Ennfremur eru á söng- skránni: Fánasöngurinn eftir Wennerberg, lög eftir Palmgren, R'ccius, Björgvin Ouð- mundsson o. fl. Einsöngvari er Ounnar Pálison. SKRIFSTOFA FRAMSÓKNARFLOKKSINS er á Amtmannsstfg 4 (niðri). Slml 4121. Reykjflvik. Sfra Siguröur Gislason frá Þingeyri í Dýrafirði, sem staddur er hér f bænum, flutti erindl í Samkomuhúsinu i gærkveldl. Fjailaði það um Talisman-slysið 1922 eða öllu heldur um minnismerkl yfir hinar föllnu sæhetjur, er þá létu lífið. Vill ræðu- maður að reistur verði vili i nánd við strandstaðinn (á Sauðanesi), og að f sam- bandi við þá byggingu verði sett upp minnismerki. Hefir sr. Slgurður gengízt fyrir sjóðsöfnun á Vestfjörðum i þessu skyni og er nú að vinna að þessn sama hér norðanlands af mlklum og Ioftverðum áhuga. Urðu dilitlar umræður að erindinu loknu; var tekið mjög vel f málið og kosln nefnd, til að beitast fyrir fram- kvæmdum. DÓmilf er falllnn í Haag f Orænlandc- deilumáli Dana og Norðmanna. Er dóm- urinn Dönum í vil, en með öllu and- stæður kröfum Norðmanna til landnims og yfirráða i Orænlandl. Einar Olgeirsson kom hingað með Ooða- fossi á laugardaginn og dvelur hér i bæn- um um stundarsakir. Tunnusmiðið er nú loks byrjað hér i bænum og vinna að því um 40 manns. Far tóku sér til Reykjavíkur með Ooða- fossi á laugardaginn: Árni Jóhannsson gjaldkeri i K. E. A. og bændurnir Berg- steinn Kolbeinsson, Hólmgeir Þorsteins- son og Þórhaliur Ásgrimsson. Voru þeir kjörnir fulltrúar til að mæta á flokksþingi Framsóknarmanna, er hófst f gær. Eldur varð laus i verzlunarhúsi K. E, A. hér í bænum síðastl. föstudagskvöld. Kviknaði í þvottahúsi tilheyrandi leigu- ibúð á efri hæð hússint. Slökkviliðinu tókst að kæfa eldinn, ðður hann næði að breiðast út. Ailt, sem brunnið gat i þvotta- húslnu, varð eldinum að brið, og næsta herbergi skemmdist einnig nokkuð. Talið er, að kvlknað hafi út frá linsléttujárni. Skaðlnn er metinn 4-5 þúsund krónur. Vélbóturfnn »Páll« fré Hnifsdal er tal- inn hafa farizt i fiskiróðri fyrra miðviku- dag. Hefir hans verið mikið leitað, en árangurslaust. Á bátnum voru 4 menn, Halldór Pálsson, kunnur formaður 54 ára gamall og 3 menn aðrlr unglr og ókvæntir. Hfengisvamalélag er stofnað hér i bæn- um og var frambaldsstofnfundur baldinn í fyrrakvöld, Stofnendur eru nær 50 og er bsrjarfógetlnn einn þelrra, Vanti ykkur Veggfóður, Pensla, eða málningavörur, er langmesta úrvalið og lægsta verðið f Verzlun Vigfúsar P. Jónssonar Hafnarstræti 103. Húspartur. Tvær stofur, eldhús og lít- ið herbergi, stór geymsla og nokkur lóð tii sölu strsx með sérstökum vildarkjör- um og laust til ibúðar frá 14. maf n. k. lngimundur Árnason. Herbergi með sérinngangi og miðstððv- arofni hefi eg til leigu. Kristjdn Sigurðsson kennari. »PELIKAN«-lindarpennar eru aftur komnir. Kaupfélag Eyfirðinga. Járn- og glervörudeildin. Yiirheyrslur hóf bæjarfógetinn hér f fyrradag út af Nóvu-uppþotinu. Var fyrst yfirheyrður formaður Verkamannafélagsins, Steingrímur Aðalsteinsson, og svaraðt hann öllum spurningum skilmerkilega. Tveir aðkomumenn, Jón Rafnsson og Þór- oddur Ouðmundsson, voru og kallaðir fyrir rétt, og urðu þeir báðir mállausir, þ. e, neituðu að svara dómaranum. - í sambandi hér við fór eítthvað af komm- únistum kröfugðngu og hafði Einar 01- geirsson orð fyrir þeim. Basar heldur Kristniboðsféiag kvenna n. k. föstudag i Hersalnum. Þar verða á boðstólum margir góðtr og ódýrir munir, sem félagskonur hafa unnið i vetur til ágóða fyrir bygglngarsjóð félagslns. Bas- arinn verður opnaður kl. 4 e. h. Ritstjóri: Ingimar Eydal. Prentsmiðja Odds Bjönusonar,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.