Dagur - 12.11.1960, Blaðsíða 1

Dagur - 12.11.1960, Blaðsíða 1
f 1 Má:.c..«;n I ram.sóknarmanna R rsrjÓRi: Ermncuk Dávíh.snon Skiíí'FS I Oí-A i Haknarstr.ch 90 StM! I l<>»> . StTNlNCU Oi; PRENTUN ANNAS1 I’Kfc.VIVhRK Ol)UN B.IÖRNSSONAK U.l . Ak< RIARI ______________________________j Akureyri, laugardaginn 12. nóv. 1980 XLIII. árg. Ai c.i.vstngast jórí; ]<Sn Sam- ÓEJ-SSON , ÁBCíANVa.TlNN kOSt AR Ktt. 100.00 . < ; i VI.DDAla KR 1. JUi.í ■BlaOIO KfHUtt t'l Á M!B\I!Uíl)Ör.- f\! Úí; A I Aí I. '.RlHH.!'4.! M'.CiAR Ást.K>A t>VKIR TTI. Samningaviðræðum sé lafarlaust slitið Á fimmtudaginn lögðu Hermann Jónasson, Eysteinn Jónsson, Lúðvík Jósefsson og Finnbogi R. Valdemarsson fram svohljóðandi tiilögu á Alþingi, til þingsályktunar: „Alþingi ályktar að lýsa yfir því, að ekki komi til mála að veita nokkurri þjóð rétt til fiskveiða innan fiskveiðilandhelgi íslands eins og hún hefur verið ákveðin, og felur því ríkisstjórninni að til- kynna stjórn Bretlands að frekari samningsviðræður um fiskveiði- landhelgi íslands komi ekki til mála. Að kvöldi erilsams baráttudags í Michigan-fylki staldrar Kennedy fyrir framan hljóðnema fréttamanna og svarar spurningum þeirra. Greinargerð. „HINN 10. ágúst s. 1. tók ríkis- stjórnin þá ákvörðun að fallast á tilmæli Breta um að taka upp samningaviðræður við þá um landhelgismálið. Þessa ákvörð- un tók ríkisstjórnin án þess að leita samráðs við stjórnarand- stöðuna og rauf þar með það samstarf, sem verið hafði á milli allra stjórnmálaflokkanna á Al- þingi um landhelgismálið. Sú ákvörðun að taka úpp samningaviðræður við Breta um landhelgismálið var í algerri mótsögn við áður markaða stefnu Alþingis og þjóðarinnar í landhelgismálinu. Alþingi I NÆSTIBÆNDA- , I KLÚBBSFUDNUR I verður að Hótel K. E. A. mánu- daginn 14. þ. m. á venjulegum tíma. Umræðuefni: Búvélar. Framsögu hafa: Erik Eylands ráðunautur, Akureyri, og Sig- urjón Steinsson bústjóri, Lundi. Nýr forseti Bandaríkjanna HINN 8. nóvember fóru fram forsetakosningar í Bandaríkjun- um og var fylgzt með þeim og undirbúningi þeirra um allan heim af miklum áhuga. Jafnvel hér á Akureyri var veðjað á forsetaefnin, þá Kennedy og Nixon. John Fitzgerald Kennedy varð hlutskarpari og tekur væntanlega við hinu mikilvæga embætti, sem æðsti maður ríkja- samsteypunnar miklu í vestri, í janúarmánuði, Atkvæðamunur varð minni en nokkru sinni fyrr í forseta- kosningum vestra. Kennedy er 43 ára og yngstur þeirra, er flutt hafa í Hvíta húsið, að Roosevelt einum undanskildum. Og Kennedy er fyrsti kaþólski maðurinn, sem sigrað hefur í forsetakosningum vestan hafs. Kosningunni er fagnað víða um heim og þykir benda til þess, að frjálsar verði um stjórn- artaumana haldið, bæði í heims- málunum og innanlandsmálum. •IIIIIIÍIIIMMIÍIIMUMHIIMII llllll tlllllllll.il II •IIIMIIIin* 1 DagukI kemur næst út á miðvikudng- inn, 15. nóvember. OIl handrit þurfa að berast í tæka tíð. Talið er, að Kennedy sé mað- ur þróttmikill og ákveðinn með afbrigðum, hreinskilinn og ótta- laus. Víst er, að ný kynslóð er að taka við völdum í Banda- ríkjunum og er mikils af henni vænzt undir forystu hins unga og dugmikla forseta. □ Áðgerðirnar leiða af sér lömun r r Form. L. I. U. viðurkennir að efnahagsráð- stafanirnar hafi brugðizt herfilega Við setningu þings landssambands íslenzkra útvegsmanna á fimmtudaginn, sagði formaðurinn, Sverrir Júlíusson, það afdráttarlaust, að efnahagsráðstafanirnar hefðu brugðizt og ekki tryggt grundvöll útgerðarinnar betur en svo, að vá væri fyrir dyrum. Orðrétt sagði hann m. a.: „Það verður skýlaus krafa frarn- leiðenda, að vextir út á unnar framleiðsluvörur verði færð- ir niður, a. m. k. í það sama og þeir voru áður en lögin um efnahagsmálin tóku gildi.“ Ennfremur þetta: „En í þessum efnum (þ. e. forða efna- hagslegu hruni) held ég megi líkja aðgerðunum („viðreisn- inni“) við, að uppskurðurinn muni leiða af sér lömun þjóð- arlíkamans og þess vegna sé nauðsýnlegt að snúa við, áður en það er orðið um seinan“. „Um lánaþörfina segir Sverrir m. a.: „Til þess að forða atvinnuleysi við sjávarsíðuna, tel ég að stjórnarvöld landsins verði að leysa þennan vanda (stofnlána þörf sjávarútvegsins) með löngum fjárfestingarlánum með hóflegum vöxtiun. En hér er þörf á aðgerðum, sem þola enga bið.“ □ hafði samþykkt 5. maí 1959 með samhljóða atkvæðum allra al- þingismanna, „að ekki komi til mála minni fiskveiðilandhelgi en 12 mílur frá grunnlínu um- hverfis landið“. Með þeirri samþykkt hafði Alþingi útilokað með öllu, að fiskveiðilandhelgin yrði minni en 12 mílur frá grunnlínum um- hverfis landið, án undantekn- ingar. Samningaviðræður við Breta, sem byggðar eru á því að ræða um tilslakanir frá 12 mílunum, eru því tvímælalaust í ósamræmi við yfirlýsingu Al- þingis. Þá hefur það verið skýrt mörkuð stefna íslendinga frá upphafi í landhelgismálinu, að samningar við einstakar þjóðir um stærð fiskveiðilandhelginn- ar kæmu ekki til mála. Frá þeirri stefnu hefur ríkisstjórnin vikið með því að taka upp samningaviðræður við Breta um landhelgismálið. Samkvæmt upplýsingum sem fram hafa komið á Alþingi síð- ustu daga frá í'íkisstjórninni sjálfri, hefur í viðræðunum við Breta verið um það rætt að heimila þeim fiskveiðiréttindi innan fiskveiðilandhelginnar. Flutningsmenn þessarar til- lögu telja, að samningar á slík- um grundvelli séu stórháska- legar fyrir hagsmuni landsins og í fullu ósamræmi við mark- aða stefnu þjóðarinnar í land- helgismálinu að af þeim ástæð- um sé nauðsynlegt, að Alþingi grípi nú þegar í taumana og stöðvi slíkt undanhald með nýrri ályktun. íslendingar hafa þegar unnið sigur í landhelgis- málinu og náð fram full tvö ár þeirri friðun á fiskimiðunum í öllum aðalatriðum, sem stefnt var að með 12 mílna fiskveiði- landhelginni. Breta hafa einir allra þjóða, sem veiðar stunda við ísland, beitt okkur ofbeldi vegna 12 mílna fiskveiðilandhelginnar. Þeir hafa tekið íslendinga eina út úr, allra þjóða, sem þegar hafa tekið sér 12 mílna fisk- veiðilandhelgina, og beitt her- skipaflota sínum gegn okkur. Það á því ekki að koma til mála að verðlauna ofbeldisárásir Breta með því að veita þeim . sérstök fríðindi innan íslenzkr- ar fiskveiðilandhelgi. Fyrir nokkrum dögum var til- kynnt í London, að fi'amhalds- viðræður fulltrúa Breta og ís- lenzku ríkisstjórnarinnar hæf- ust n.k. mánudag, þann 14. nóv. Samninga um réttindi Bret- um til handa innan íslenzkrar fiskveiðilandhelgi verður að stöðva nú þegar. Flutnings- menn leggja því ríka áherzlu á, að tillaga þessi fái sem hrað- asta afgreiðslu á Alþingi." □ seguíbðndi j „ÍSLENDINGUR“ segist eiga I stórmerka ræðu um rekstur = samvinnufélaga á segulbandi -|~og birtir glefsur úr henni, I fi'ábærlega grunnfærnislegan \ þvætting um einokun, póli- = tíska misnotkun o. fl. í þeirn = dúr. En nú sé útlit fyrir, að j um „stöðnun“ sé að ræða í | rekstri SIS, það sé „ánægjuleg j þróim.“ Blaðið segir ennfrem- § ur, að þessar merku upplýs- i ingar eigi „ekki sízt erindi til : Akureyringa, þar sem SÍS i hefur kappkostað öðrum frem- j ur að ná einokunaraðstöðu og \ orðið vel ágengt þótt nokkuð i hafi liorfið til hins betra nú j síðustu árin.“ i Svo bætir blaðið þessú við: 1 „Með þessu er engan veginn : verið að draga úr því ómetan- i lega gagni, sem af kaupfélög- I unum hefur leitt.“ i Nú væri æskilegt að „fs- 1 lendingur“ hugleiddi, hvemig i það má fara saman, hið „ómet- I anlega gagn, sem kaupfélögixx \ hafa gert og að það horfi til i betri vegar að starfsemi þeirra j dragist saman. i Væri æskilegt að blaðið j gerði það áður en næst verður i birt úr hinni „stórmerku“ seg- i ulbandsræðu. Á laugardaginn kl. 3 e. h. vei'ða þýzkar kvikmyndir sýnd- ar í Borgarbíó. Þangað eru all- ir boðnir velkomnir og kvik- myndirnar sýndar ókeypis. Fyr- ii-hugað er að sýna almenningi fleiri þýzkar myndir fi'amveg- is. Nokkur áhugi er fyrir því að stofna félagsskap til að treysta vináttu þjóðanna og axxka gagn- kvæm kynni milli íslendinga og Þjóðvei'ja. Þeii', sem áhuga hafa á þeirri félagsstofnun, eru hvattir til að sækja kvikmynda- sýningarnar og skiptast á skoð- unum um aukin ménningarvið- viðskipti þessai-a þjóða. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.