Dagur - 15.12.1965, Blaðsíða 1
I
Sjómenn á Húsavík eru í verkfalli
Húsavík 14. des. Á föstudaginn
fóru sjómenn sinn síSasta róð-
ur í bráðina. Vegna ágreinings
milli þeirra og stjómar Fisk-
iðjusamlags Húsavíkur um
grein í samþykktum samlagsins
lögðu þeir niður róðra.
í dag er jarðsunginn • hér á
Húsavík góður borgari, Þráinn
Maríusson, sem nýlega lézt á
sjúkrahúsi á Akureyri, 62 ára
Sjúkrabíllinn nýi, sem áður
er um getið, hefur komið í góð-
ar þarfir. En éinhverjum eigin-
mönnum brá þó í brún, er önn-
ur af tveim fyrstu sængurkon-
um, sem í bílnum voru fluttar
á sjúkrahús, ól tvíbura.
Sæmilegt bílfæri er um hér-
aðið og hafa mjólkurflutningar
ekki fallið niður enn þá, en
stundum taíizt. Þ. J.
Enn snýst allf um síld fyrir ausfan
Á SEYÐISFIRÐI eru komin um
750 þús. mál í bræðsiu til
Valur Amþórsson.
beggja verksmiðjanna og enn
er brætt af fullum krafti og
verður svo til jóla a. m. k. Mik-
ið hefur einnig verið að gera við
útskipun á síld og mjöli að und-
anförnu.
Dansmeyjar tvær komu til
Seyðisfjarðar og hugðust kenna
mönnum sporið. En metin
nenntu því ekki og fór enginn
fullorðinn maður í þessa fóta-
mennt. Menn dánsa bara í
kringum síldina.
Vopnfirðingar eru hættir að
bræða, eiga 25 þús. mál í þróm
og geta bætt þar við a. m. k.
10 þús. málum. Ætla þeir. svo
að hefja bræðslu í janúar.
• í Vopnafjarðarkauptúni er nú
byrjað að æfa Gullna hliðið eft-
ir Davið Stefánsson. Leikstjóri
er Guðjón Ingi Sigurðsson frá
Hafnarfirði. □
TIL AKUREYRAR er kominn
. Valur Arnþórsson og byrjaður
að starfa hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga, sem fulllrúi kaupfélags-
stjóra. En það sæti hefur staðið
.autt síðan Ingimundur Árnason
féll frá.
Valur Arnþórsson er um þrí-
tugt, ættaður af Austurlandi,
fyrrum nemandi á Eiðum og
síðan í Samvinnuskólanum, en
hefur unnið 12 ár hjá Samvinnu
tryggingum og deildarstjóri þar.
Hann hefur dvalizt erlendis til
að kynna sér málefni samvinnu-
manna,. m. a. í Englandi og
Skandinavíu, nú síðast í Sví-
Norskt skip strandaði
á Vattarnesi
N O R S K A flutningaskipið
Metco strandaði á Vattarnesi
við Reyðarfjörð á mánudaginn.
Það hafði m. a. 500 tonn af lýsi
innanborðs.
Skipið losnaði þegar dælt
hafði verið nokkru af lýsi í sjó-
inn. Flýtur lýsið nú um allan
sjó og ógnar fuglalífi. Q
Frá Bamaskóla Akureyrar.
(Ljósm.: E. D.)
Ýmsar framkvæmdir hjá Kf. Langnesinga
Bagur leitaði frétta um þær hjá Gísla Péturs-
syni framkvæmdastjóra á Þórshöfn
NVR fulltrúi hjá keá
þjóð og er nýlega kominn
þaðan.
Valur er kvæntur Sigrúnu
Ólafsdóttur og eiga þau þrjú
börn.
Eyfirzkir samvinnumenn
bjóða hinn nýja fulltrúa vel-
kominn til starfa. □
í ÞISTILFIRÐI á Langanesi og
Strönd eiga bændur víðáttumik
il sauðlönd, ein hin beztu á land
inu. Við Langanes eru kunn
fiskimið frá fyrri öldum. Þar
stunduðu Frakkar m. a. fisk-
veiðár og síðar Færeyingar, auk
landsmanna sjálíra fram á þenn
an dag.
Þórshöfn í Þistilfirði er 450
manna sjávarþorp. Þar er allt
að tugur 4—17 tonna þilfarsbáta
og álíka margir opnir vélbátar.
Þar er og frystihús, þar sem
aðstaða er fyrir störf 40—50
manna ef starfrækt væri af full-
um krafti.
Nokkuð hefur verið unnið að
hafnarframkvæmdum í sumar,
byggður sjóvarnargarður utan
við þann hafnargarð, sem var,
og gerð allmikil uppfylling
milli garðanna.
1300 ferm. stálgrindahús; ný
Á þessari uppfýllingu er risið
síldarverksmiðja. Meðal eig-
enda er Þórshafnarhreppur, og
einstaklingar, sem eiga fiskiskip
um tvö þús. tonn samanlagt.
Dagur hringdi til Gísla Pétui’S
sonar kaupfélagsstjóra Kaupfé-
lags Langnesinga á Þórshöfn á
miðvikudaginn og spurði hann
frétta *af starfi kaupfélagsins.
Hann tjáði blaðinu, að ný mjólk
urstöð, sem unnið hefur verið
við undanfarið, yrði starfhæf
með vorinu. Stöðin er 300 fei-m.
hús og fyrst og fremst til þess
byggð að hafa á boðstólum
gerilsneydda mjólk, svo og
rjóma, smjör og skyr fyrir Þórs
höfn og Bakkafjörð, sem er 60
—70 manna þorp, og til að geta
fullnægt þörf skipanna hvað
þessar vörur snertir. yélar í
mjólkurstöðina eru sumar
komnar, aðrar rétt ókomnar,
sagði kaupfélagsstjórinn. Hugs-
anlegt er, sagði hann, að plast-
pokar verði notaðir í mjólkur-
umbúðir eða kassar.
Á Baklcafirði hefur kaupfélag
ið reist vöruskemmu, en þar
hefur félagið útibú, og látið end
(Framhald á blaðsíðu 5).
KIKHÓSTI KOMINN í BÆINN
SAMKVÆMT upplýsingum Jó-
hanns Þorkelssonar héraðslækn
is, gengur kikhósti nú á Akur-
eyri, en er ekki útbreiddur og
mjög vægur. Mun hann hafa
borizt frá Reykjavík eða Húsa-
Frá smábátahöfninni á Oddeyri.
(Ljósm.: E. D.)
vík. Full greining hefur ekki
farið fram, sagði héraðslæknir-
inn, en það leikur þó naumast
á tveim tungum, þar sem um
hósta og sog er að ræða. Þessi
faraldur verður léttur, sagði
hann, og litlar líkur til að hann
verði mjög útbreiddur.
Flest börn hafa verið spraut-
uð gegn kikhósta og þarf því
eklti að óttast veikina, eins og
áður var.
Heilsufar er að öðru leyti
afleitt, og er inflúensukennt
kvef að ganga og hálsbólga.
Hins vegar var heilsufar mjög
gott í haust og fram í nóvember
mánuð, sagði héraðslæknirinn
að lokum. □
RÁÐHERRA GEFUR
SKÝRSLU
Á DAGSKRÁ Sameinaðs þings
í dag er skýrsla ríkisstjórnar-
innar um byggingu aluminium-
verksmiðju á íslan'di. Jóhann
Hafstein iðnaðarmálaráðherra
gefur skýrsluna. Q