Dagur - 16.10.1985, Blaðsíða 1

Dagur - 16.10.1985, Blaðsíða 1
Skinnasala til Finnlands: Fyrir 1 rnillj. dollara 68. árgangur Akureyri, miðvikudagur 16. október 1985 121. tölublað I gær voru undirritaðir samn- ingar skinnaiðnaðardeildar „Hræðilegt áfall“ - fyrir atvinnuvegina ef gengið yrði fellt um 10%, segir Valur Arnþórsson „Gengisfelling myndi fram- kalla verðbólgu, hafa áhrif á kjarasamninga og það yrði hræðilegt áfall fyrir atvinnu- vegina ef riði yfir ný verð- bólguholskefla,“ sagði Valur Arnþórsson, stjórnarformaður Sambandsins, um þá kröfu að gengið verði að fella um 10% til að bjarga fiskvinnslunni. „Staða fiskvinnslunnar var rædd á síðasta stjórnarfundi Sambandsins. Það er ljóst að af- koma hennar hefur versnað mjög mikið. Á þessu ári jukust tekjur fiskvinnslunnar vegna gengis- breytinga og styrkingar á mark- aðsverði erlendis um 5-6%. Kostnaðarhækkanir á þessu ári eru hins vegar orðnar 15-18%, þannig að staðan hefur versnað um a.m.k. 10%. Það er augljóst að fiskverkunin er komin með hallarekstur að meðaltali. Hins vegar er ljóst að staða útgerðar- innar er enn verri og hún þolir illa gengisfellingu vegna skulda í erlendri mynt. Það er því ekki einhlítt að fella gengið. Eins og ég sagði áður myndi það framkalla verðbólgu að hafa áhrif á komandi kjara- samninga og hafa mjög slæm áhrif á atvinnuvegina. Mestu varðar að ná verðbólgunni niður. Stöðu útgerðarinnar þarf að leið- rétta með því að létta af henni vaxtakostnaði og svipaðra leiða verður að leita til að létta af fisk- vinnslunni. Það er auðvitað fráleitt að grundvallaratvinnuvegirnir, sem skapa fjármagnið í þjóðfélagið, séu að kikna m.a. undan allt of háum fjármagnskostnaði. Á sama tíma raka fjármagnseigend- ur saman peningum vegna geysi- hárra raunvaxta. Að mínu mati þarf að Ieita leiða til að rétta grundvöll fiskvinnslunnar og út- gerðarinnar í gegnum fjármagns- kostnað og aðra þætti, sem ríkið getur haft áhrif á, en reyna eftir föngum að halda við þá gengis- stefnu sem ríkisstjórnin hafði markað, þ.e. að svigrúm til geng- isbreytinga væri öðru hvorum meg- in við 5%,“ sagði Valur Arnþórs- son að lokum. HS A bærinn að eiga boðveitur? - nefnd skipuð til að kanna máiin „Ég tel tímabært að Akureyr- arbær fjalli um það hvort og þá með hvaða hætti bærinn eigi að taka þátt í þeirri þróun sem óhjákvæmilega mun verða á sviði boðveitna, en þar er t.d. átt við kerfí sem hægt er að senda um sjónvarpsmerki, tölvuboð og fleira,“ sagði Jón Sigurðarson, bæjarfulltrúi, að- spurður um tillögu hans sem kom fram í bæjarstjórn í gær um að skipuð verði nefnd á vegum bæjarins til að kanna þessi mál. Jón sagði að á því léki enginn vafi að aðgangur að fjölmiðlum og boðveitum almennt verði meðal þeirra þátta sem skipta máli fyrir almenning, þegar hann metur aðbúnað í hverju sveitarfé- lagi. Því teldi hann tímabært að umræða hæfist um hugsanlegt hlutverk bæjarins í þessum mála- flokki. Spurningar vöknuðu um það hvort bærinn ætti að hafa milligöngu um að bæjarbúar gætu séð staðbundið sjónvarp og gervihnattasjónvarp erlendis frá - jafnvel hvort bærinn ætti að taka þátt í slíkum rekstri. Þá kæmi inn í þetta tölvutenging heimilanna við upplýsingabanka af ýmsu tagi, t.d. varðandi hug- myndir um háskólanám með þeim hætti, bankaviðskipti o.fl. Tillaga Jóns fékk góðar undir- tektir á bæjarstjórnarfundinum og voru bæjarfulltrúar á einu máli um nauðsyn þess að málefni boðveitna yrðu skoðuð gaum- gæfilega. Samþykkt var með 11 sam- hljóða atkvæðum að skipa á næsta bæjarstjórnarfundi þriggja manna nefnd til að undirbúa stefnumörkun þessara mála. HS '''' ' ' ' i Svavar Cesar við bíl sinn á Öxnadalsheiði. Hér mátti ekki miklu muna. Mynd: KGA Iðnaðardeildar Sainbandsins á Akureyri og fínnska fyrirtækis- ins Friitala um kaup Finnanna á skinnavörum fyrir upphæð sem nemur einni milljón doll- ara á næsta ári. „Þessi samningur er okkur verulega hagstæður og leiddi til verulegrar verðhækkunar í er- lendri mynt,“ sagði Örn Gústafs- son forstöðumaður skinnaiðnað- ar Sambandsins er við ræddum við hann í gær. „Hér er nánast eingöngu um að ræða sölu á fullunnum afurð- um þ.e. mokkaskinnum en fram að þessu hafa þeir keypt mest forsútaðar gærur. Þetta er auðvit- að mun betra og það sem við höf- um stefnt að,“ sagði Örn. „Þegar við verðum svo tilbúnir til viðræðna um sölu á leðri sem sennilega verður í janúar á næsta ári þá hafa Finnarnir áhuga á að kaupa slíkt af okkur líka.“ Örn sagði að þetta finnska fyrirtæki væri elsti og besti við- skiptavinur skinnadeildarinnar frá upphafi og hefði aðstoðað við byggingu sútunarverksmiðjunnar á sínum tíma. gk-. skot i glugga Tvö byssuskot höfnuöu í glugga á vistheimilinu Sólborg á Akureyri sl. föstudagskvöld. Fór annað skotið í gegnum ytra gler en hitt fór í gegnum gluggalista og sprengdi ytra gler. Þessi atburður átti sér stað um kvöldmatarleytið á föstudag. Samkvæmt upplýsingum rann- sóknarlögreglunnar fann lögregl- an haug af glerkrukkum og ljósa- perum um 300 metra frá húsinu og er talið líklegt að sá haugur hafi verið skotmarkið þótt svona hafi tekist til. Er ljóst að þarna hafa menn farið óvarlega með skotvopn svo ekki sé meira sagt. Voðalegt helvíti“ „Þetta var alveg voðalegt hel- víti. En það sem bjargaði því að bíllinn fór ekki allur fram af var hve rólega ég ók,“ sagði Svavar Cesar Kristmundsson bflstjóri frá Húsavík, en vöru- flutningabíll hans lenti niður um ræsi á Öxnadalsheiði í fyrrinótt. „Ég sá smá rák yfir veginn við ræsið og dró verulega úr ferð og þegar ég kom út á steypuna hrundi hún í heilu lagi undan bílnum. Ég er með bílasíma og hringdi í lögregluna á Akureyri og beið í bílnum þangað til hún birtist. Það var alveg óskaplegt vatns- magn hérna í nótt í kringum ræs- ið en það sjatnaði þegar fór að flæða yfir veginn austan við ræsið,“ sagði Svavar Cesar. - KK

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.