Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 1

Dagur - 14.04.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 14. aprfl 1992 73. tölublað Mikið að gera í fiskvinnslu á Grenivík: Góð tilbrevting að hafa húsið Mt af fiski - sagði Ásgeir Arngrímsson, framkvæmdastjóri Kaldbaks „Þetta er búið að vera mjög gott. Við höfum byrjað kl. 6 á Aðalfundur KEA: Valdimar og Pétur kosnir í stjóm Nýjar samþykktir fyrir Kaup- félag Eyfirðinga var meginmál aðalfundar félagsins, sem hald- inn var síðastliðinn föstudag. Hinar nýju samþykktir voru samþykktar einróma eftir miklar umræður á fundinum. Helstu nýmæli hinna nýju sam- þykkta eru að nú verður mögu- legt að sækjast eftir fjármagni á frjálsum fjármagnsmarkaði með sölu samvinnuhlutabréfa. Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri sagði í lok flutnings skýrslu sinn- ar að hagræðing, vöruþróun og aukið markaðsstarf‘yrðu megin viðfangsefni í rekstri félagsins á næstunni og aðhalds yrði gætt í fjárfestingum. Amsteinn Stefáns- son, bóndi og Valgerður Sverris- dóttir, alþingismaður gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn félagsins og voru Valdimar Bragason, framkvæmdastjóri á Dalvík og Pétur Þórarinsson, sóknarprestur í Laufási kosnir í þeirra stað. Áformað hafði verið að fundurinn stæði í tvo daga en vegna þess hversu fundarstörf gengu greiðlega tókst að ljúka honum á föstudagskvöld. Sjá nánar frá kaupfélagsfundi á bls.. ÞI morgnana og unnum allan laugardaginn og til hádegis á sunnudag,“ sagði Ásgeir Arn- grímsson, framkvæmdastjóri Kaldbaks hf. á Grenivík en mikil vinna er í fiskvinnslu á staðnum þessa dagana. Unnið verður fram á skírdag í frysti- húsinu og horfur eru á að vinna þurfi næsta laugardag, sem og á annan páskadag. „Við vorum núna um helgina að reyna að búa okkur undir að geta náð þremur dögum í frí um páskana, þ.e. föstudag, laugar- dag og sunnudag, en það stefnir samt í að við verðum að vinna á laugardag. Þetta er páskahrotan hjá okkur og það er góð tilbreyt- ing að hafa húsið fullt af fiski. En annars hefur gengið vel eftir ára- mótin að fá hráefni," sagði Ásgeir. Togarinn Frosti landaði 80 tonnum nú um helgina og sömu- leiðis var Sjöfnin að taka upp netin í Breiðafirðinum og kam heim með 35 tonn af góðum neta- fiski. Sjöfnin fer nú í lögbundið páskastopp. JÓH Sigurreifir íslandsmcistarar ásamt þjálfara sínuin, Árna Stefánssyni. Akureyrar á laugardagskvöldið. Myndin var tekin við heimkomuna til Mynd: Golli Islandsmót yngri flokka í handknattleik: KA íslandsmeistari í 4. flokki - 5. flokkur félagsins í 3. sæti og 3. flokkur í 4. sæti KA varö um helgina íslands- meistari í handknattieik í 4. flokki en úrslitakeppni yngri flokka fór þá fram í Hafnar- firði. Þetta er fyrsti íslands- meistaratitill KA-manna í handknattleik. 5. flokkur KA hafnaði í 3. sæti og 3. flokkur í 4. sæti. Fjögur lið léku til úrslita í hverjum fiokki og tryggði KA sér sæti í úrslitaleik með því að sigra Fram 19:14 í undanúrslit- um. Liðið sigraði síðan Gróttu 18:17 í æsispennandi úrslitaleik. Þjálfari 4. flokks er Árni Stefáns- son. Sjá nánar um úrslitakeppnina á bls. 9. Þrotabú Prentverks Odds Björnssonar á Akureyri: LandsbanJdnn keypti lausafé og rekstur - flestir starfsmenn endurráðnir og prentsmiðjan rekin áfram Landsbankinn hefur keypt lausafé og rekstur Prentverks Odds Björnssonar á Akureyri, en í síðustu viku var óskað eftir gjaldþrotaskiptum í fyrirtækinu. Smásagnasamkeppni Dags/MENOR: Valgeir SkagQörð hreppti verðlaunin Valgeir Skagfjörð, leikari og tónlistarmaður, fékk fyrstu verðlaun í smásagnasamkeppni Dags og Menningarsamtaka Norðlendinga. Þá fékk Rósa Jóhannsdóttir, Hleiðargarði í Eyjafjarðarsveit, viðurkenn- ingu fyrir sína sögu. Úrslitin voru tilkynnt í hófi í Gamla Lundi sl. sunnudag. Dómnefnd fékk á borð til sín 52 sögur og eftir mikla yfirlegu voru tvær valdar til viðurkenn- ingar. Þegar umslögin með rétt- um nöfnum höfunda voru opnuð kom í Ijós að höfundur sögunnar sem dómnefnd taldi besta var Valgeir Skagfjörð og höfundur sögunnar sem talin var næstbest var Rósa Jóhannsdóttir. Smásögur bárust úr öllum landsfjórðungum og voru höfund- arnir á ýmsum aldri, allt frá grunnskólanemendum upp í elli- lífeyrisþega. Verðlaunasögurnar verða birtar í Degi á skírdag og einnig viðtöl við höfundana. Sjá nánar bls. 7. SS Um helgina náðust samningar við þrotabú fyrirtækisins og tók bankinn við rekstrinum í gær. Landsbankinn mun reka prentsmiðjuna í nær óbreyttri mynd undir nafninu Prentverk POB. Flestir starfsmenn POB voru endurráðnir í gær, tíma- bundið, en þeim var öllum sagt upp í kjölfar gjaldþrotabeiðn- innar. Að sögn Jakobs Bjarnasonar hjá Landsbankanum er fyrirhug- að að stofna sjálfstætt hlutafélag um reksturinn og halda honum áfram, enda næg verkefni fyrir- liggjandi. Á síðari stigum verður reynt að selja fyrirtækið. „Tilgangur Landsbankans er ekki að reka prentsmiðju enda er hann fjármálafyrirtæki. Við mun- um reyna að koma fyrirtækinu út en með þessum ráðstöfunum erum við að tryggja að það legg- ist ekki af meðan við erum að athuga hvort einhver treystir sér til að reka það,“ sagði Jakob. Heildarskuldir POB námu um 118 milljónum króna samkvæmt síðasta ársreikningi og er Lands- bankinn langstærsti kröfuhafinn með um 70% af skuldunum. Aðrir kröfuhafar eru m.a. Iðnlánasjóð- ur og ýmsir viðskiptaaðilar prent- smiðjunnar. Á móti kemur að þrotabúið á nokkrar eignir. Þess hefur verið farið á leit við Bjarna Sigurðsson, prentsmiðju- stjóra, að hann haldi starfi sínu áfram við hlið Eiríks S. Jóhanns- sonar sem kemur inn í fyrirtækið frá Landsbankanum. Ný stjórn verður mynduð og sagði Jakob að þetta væru hliðstæðar aðgerðir og voru viðhafðar hjá Álafossi á sínum tíma. „Verkefnastaðan hjá POB er ágæt og öllum verkefnum verður sinnt og ný tekin inn. Viðskipta- vinirnir eiga að fá sömu þjónustu og áður eða betri í kjölfar upp- stokkunar. Þarna er hæft starfs- fólk sem getur sinnt góðri prent- un og við vonum að fyrirtækinu verði tekið vel áfram,“ sagði Jakob. SS Smíði liafin á 81 íbúð á Akureyri á síðasta ári Á árinu 1991 var hafin smíði á 81 íbúð á Akureyri. Þar af voru 11 einbýlishús, 8 raðhús með 33 íbúðum og 2 fjölbýlis- hús með 37 íbúðum. Þetta kemur fram í yfirliti yfir bygg- ingaframkvæmdir á Akureyri, sem embætti byggingafulltrúa hefur tekið saman. Á síðasta ári voru 43 íbúðir skráðar fullgerðar, þ.e. 11 ein- býlishús, 22 íbúðir í raðhúsum og 10 íbúðir í fjölbýlishúsum. í árs- lok voru 27 einbýlishús fokheld og lengra komin í byggingu, 19 íbúðir í raðhúsum og 68 íbúðir í fjölbýlishúsum. Þá voru 10 íbúð- arhús komin skemmra á veg í byggingu, 30 íbúðir í raðhúsum og 59 íbúðir í fjölbýlishúsum. Fram kemur í samantekt bygg- ingafulltrúa að á árinu 1991 hafi verið hafnar framkvæmdir við þriðja áfanga Síðuskóla, íþrótta- hús KA, viðbyggingu við Furu- velli 1, Stúdentagarða við Kletta- stíg 4, hús Hjtavntu Akureyrar við Rangárvelli, Skipagötu 16 og Þórsstíg 4. Lokið var fram- kvæmdum við Árstíg 6, Víðilund 22, Þórsstíg 4, Frostagötu 3A og viðbyggingu við Norðurgötu 62. óþh Norðurland: Gola og hægviðri Veðrið í dag um Norðurland allt verður á sömu nótum og í gær og undangengna daga, þó er ekki reiknað með jafn góðu veðri og síðasta laug- ardag. Austan og norðaustan kaldi mun auðkenna veðrið í morg- unsárið á Norðurlandi. Er líð- ur á daginn dettur veðrið nið- ur í golu eða hægviðri. Bjart verður að mestu til landsins. Á miðvikudag og fimmtudag spáir Veðurstofan hægri breytilegri átt og hitastigi frá 0 til 6 gráður. ój

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.