Dagur - 04.12.1992, Blaðsíða 8

Dagur - 04.12.1992, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Föstudagur 4. desember 1992 Steindór Císlason. 19 ára, 178 sm og 75 kg. Nemandi í Verkmenntaskólan- um á Akureyri. Birgir Brynleifsson. 20 ára, 188 sm og 74 kg. Vinnur hjá Mjólkursamlagi KEA og 1929. Arnar Grant. 19 ára, 180 sm og 68 kg. Nemandi í Verkmenntaskólan- um á Akureyri. Guðmundur Ingi Gunnarsson. 15 ára, 176 sm og 65 kg. Nemandi í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Birgir Sigþórsson. 25 ára, 180 sm og 67 kg. Vinnur á sambýli í Dvergagili. Módelmynd og Sjallinn: Fyrirsætukeppni karla í Sjallanum í Nú er röðin komin að strákun- um í fyrirsætukeppni Módel- myndar og Sjallans en stúlk- urnar spreyttu sig um síðustu helgi. Þá láðist að geta þess að snyrtistofan Betri líðan sá um snyrtingu á stúlkunum og Hulda Hafsteinsdóttir á Hár- greiðslustofunni Medúllu sá um hárgreiðsluna. Kolbrún Aðalsteinsdóttir hjá Módel- mynd vill færa þessum aðilum bestu þakkir. I kvöld munu sjö ungir herramenn stíga á svið í Sjallanum og dómnefnd sker úr um hver þeirra skuli hreppa sigurlaunin. Keppendur voru upphaflega átta en einn heltist úr lestinni á síðustu stundu. Piltarnir eru á aldrinum 15-25 ára og allir búsettir á Akureyri. Þeir heita Arnar Grant, Birgir Brynleifs- son, Birgir Sigþórsson, Guð- mundur Ingi Gunnarsson, Ingvar Björn Ingvarsson, Jón Ólafsson og Steindór Gíslason. Meðfylgj- andi myndir af keppendum eru teknar af Bonna. Piltarnir hafa verið á æfingum að undanförnu og eru þeir tilbún- ir í slaginn í kvöld. Hulda Haf- steinsdóttir sér einnig um hár- greiðslu þeirra. Skemmtunin í Sjallanum hefst kl. 21 með fordrykk. Keppend- urnir sýna ástralska herrafrakka frá tískuvöruversluninni Töfrum í Borgarkringlunni í Reykjavík og tískuvöruverslunin Perfect á Akureyri sýnir allt það nýjast í jólafatnaði fyrir dömur. Stúlk- urnar sem urðu í 1.-3. sæti í fyrir- sætukeppninni um síðustu helgi sýna fatnaðinn og önnur módel að auki. Boðið er upp á fjölbreytt skemmtiatriði. Keppendur taka þátt í léttgeggjuðu hermanna- atriði. Verslunin Eyfjörð lánaði búningana. Sýnt verður eróbik- atriði frá Púls 180, Yasmine frá Púlsinum sýnir Michael Jackson atriði með keppendum og Linda Björk Óladóttir sýnir líkamsmál- un á módeli (Body Paint) með snyrtivörum frá Make-Up kvöld Forever, svo helstu atriðin séu nefnd. Þá leikur hin vinsæla hljómsveit Ný dönsk fyrir dansi fram á nótt. Dómnefnd skipa þau Björn Torfi Hauksson (Bonni) ljós- myndari, Kristín Couch förðun- arfræðingur frá Make-Up Forever, Pétur Steinn Guð- mundsson frá Vikunni, Sigurður Ágúst Hjartarson dansari, Sig- mundur Sigurðsson (Simbi) hár- skeri, Kolbeinn Gíslason frá Sjallanum og Guðfinna Sigurðar- dóttir frá Púls 180. Kynnir er Jón Axel Ólafsson og úrslit í fyrirsætukeppninni munu væntanlega liggja fyrir í kringum kl. 12.30. „föll þau ár sem ég hef unnið með keppendum þá hef ég sjald- an eða aldrei kynnst eins hressum og góðum strákum og hér á Akureyri. Ég vona svo sannar- lega að fólk taki hlýlega á móti þeim og skemmti sér vel í Sjall- anum í kvöld. Áfram strákar!" sagði Kolbrún Aðalsteinsdóttir í samtali við Dag. SS Nýtt fyrirtæki á Húsavík: Rósa Borg opnar hárgreiðslustofu Rósa Borg hefur opnað Hár- greiðslustofu Rósu að Garð- arsbraut 26 á Húsavík. Rósa lærði á Hárgreiðslustofunni Medullu á Akureyri en hefur starfað á Húsavík síðan í sept- ember. „Það er mjög gaman að opna eigið fyrirtæki," sagði Rósa er Dagur leit við á nýju stofunni. Hún sagði að verkefnastaðan væri sveiflukennd og enn hægt að panta jólaklippinguna. Annars býður Rósa alla almenna hár- snyrtiþjónustu auk þess að versla með Sebastian hársnyrtivörur. IM Ingvar Björn Ingvarsson. 16 ára, 177 sm og 69 kg. Nemandi í Menntaskólanum á Akureyri. Jón Ólafsson. 18 ára, 180 sm og 67 kg. Vinnur hjá Sandblæstri og málmhúðun. Jólakort Glerárkirkju Sóknarnefnd Lögmannshlíðar- sóknar hefur nú gefið út nýtt jólakort til styrktar byggingar Glerárkirkju. A nýja kortinu er teikning af Glerárkirkju eftir Kristinn G. Jóhannsson. í ár fer sölufólk ekki með kortin í hús en þau eru seld í Glerárkirkju, hjá Elínu Múlasíðu 28, Gunnhildi Litluhlíð 4 b, Guðrúnu Tungu- síðu 16, Jóhanni Stapasíðu 11 i og í Möppudýrinu Sunnuhlíð. Börnin á myndinni litu við á ritstjórn Dags fyrir skemmstu með afrakstur tombólu sem þau efndu til. Upphæðin 3.700 krónur rennur til söfnunarinnar „Börnin heim“. Á myndinni eru talið frá vinstri: Sigríður Svala Hjartardótt- ir, Hjalti Bergmann Hjaltason, Adda Björk Ólafsdóttir, Andri Fannar Ólafsson, Bjarney Inga Olafsdóttir. Á myndina vantar Stellu Guðrúnu Stef- ánsdóttur. Mynd: ój

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.