Þjóðviljinn - 24.04.1937, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 24.04.1937, Blaðsíða 2
PJOÐVILJINN Laugardaginn 24. apríl 1937. Er þetta alþýdnfylking? ,Vestmannaeyingar! Á morg- un verður selt á götunum og í Kaupfélagi Alþýðu, blað jafnað- armanna í V estmannaeyjum, »Alþýðufylkingin«. Eitthvað á þessa leið hljómaði fregnin í útvarpinu 8 apríl s. 1. Alþýðufylking, samfylking, lýðfylking, eining. — Alt eru þetta orð, einnar merkingar í augum alþýðunnar, — orð, sem minna á glæsilegustu kaflana í, sögu, frönsku, og spönsku alþýð- unnar, þeirrar alþýðu, sem með rá,ði og dáð varð þess u,m komin að tileinka sér í verkinu lær-; dómana af óförum systurstétta sinna í Þýskalandi og Austur- ríki, — orð, sem geta fengið lot- ið bak verkamannsins til að rétt- ast snögglega og augu; hans til að skjóta eldingum fram í sort- ann, — orði, sem verka gagnó- líkt hinni frjálsu frumvarpa- samkepni á Alþingi þegar kosn- ingar standa fyrir dyrugn; eitt- hvað, sem, minnir alþýðu, Eyj- anna á, hennar eigin sigra í at- vinnuleysisbaráttunni undanfar- in ár, hinn glæsilega 1. maí s. 1. sigur hennar í svokaliaðri Eld- borgardeilu í fyrrayor o. s. frv. Þ. e. þá þætti sögunnar, sem segja frá því, þegar hennwr var mátturinn og dýrðin. Svona áhrif getu,r ein stutt útvarpsfrétt framkaþað, að vísu mismunandi sterk, eftir því hve vel hún hittir á stund og stað. Jú, — »Alþýðufylkingin« skartaði á forsíðu með nokkrum viðurkendum velferðarmálum lýðs og lands: Frumvarp fM laga um breýtingu á lögum Lands- bankans, einu helsta maurabúi ídenskrar fjármál aspillingar, Kveldulfi skal rutt wr vegi heU- brigðs þjóðarbúskapar, — ráð- stafanir skulu gerðar til viö- reisnar sjávarídveginum, sömu- leiðis ráðstafanir til stuðnings togaraútgerðinni 0, s. frv. — tJm tvÖ seínni atríðin er það að segja, að tiæpast mun neinn flokkur hafa kveðíð sér hljóðs á Alþingi, sem ekki hefir talið þau vera sín innilegustu hjartans mál, en um tvö hin fyrri það, að fyrir sleitul.aust starf Komm- únistaflokksins nokkur s. 1. ár, hafði íslensk alþýða gert. þau að einróma kröfu sinni, löngu áður en nokkur þingflokkur gerði þau að sinni kröfu,. Að svona er komið ber þó síst að lasta, en það, sem vekur eftirtekt í þess- ari forsíðugrein er það, að svo lítur út, sem þetta sé, og haíi verið mál Alþýðuflokksins — og einungis hans. Ekki er i grein- inni minst einu, orði á leiðir til að hrinda málunum í fram- kvæmd, ekki heldur nein hug- mynd gefin um, hgernig »A1- þýðufyl,kingin« — íklædd holdi og blóði — skul.i þta út. En ef marka má, verður fyrir manni gxein á þriðju síðui, sem ætlast er víst til að »bæti« þetta upp. Eru þar m. a. settar fram þess- ar skoðanir: Vegna þess að meginþorri verkakvenna í Vestmannaeyj- Eftir Jón Raínsson »Alþýða Eyjanna sér ekki uppfyllingu óska sinna í því einu að auglýsa þær á stokkum og steinum, held- ur fyrst og fremst í baráttueiningu sinni. Þess vegna krefst hún bandalags verklýðsflokkanna gegn aftur- haldinu.« um, þar með talinn sá hluti stéttarinnar, sem. haldið hefir uppi hagsmunabaráttu verka- kvenna síðan samtök þeirra urðu til í bœnum, vill ekki skil- yrðisla'ust leggja rdður samtök sín og lúta einræði 3—U kvenna, sem þykjast fara með umboðs- vald einhverra Alþýöuflókksfor- ingja í Rvík, — þessvegna skal heil verkakvennastétt í einum stærsfa bce landsins útilokuð frá landssamtökunum! Vegna þess að Sjómannafél. Vestmannaeyja, sem áðu;r fyrr stóð fyrir kaupdeilum á hverju ári og va,nn stöðugt eitthvað á til hagsbóta fyrir sjómenn, leyf- ir sér að vera andvígt hinum stöðugu kauplækkunum síðan »Jötunn« var stofnaður, og vill ekki leysa upp félagsskap sinn né gefa »Jötni« eign sína í Al- þýðuhúsinu, nema með því skil- yrði að allir meðlimir þess fái félagsréttindi í »Jötni«, og er stöðugt að ónáða Jötuns-forust- una með slíkum sameiningartil- boðu(mi sem þessum, — fyrir því dcemist rétt vera, að Sjómanna- félag Vestmannaeyja sé höfuðó- virmrinn sem framar öllu óðru verði að berjast gegn, hvað sem öðru líður! Þá þykir greinarhöf. miklu máli skifta, (í, sköpun Alþýðun fylkingarinnar) að Verka- mannafélagið Drífandi, eina fé- lagið í bænum, sem hefir r.m nokkurt skeið átt því iáni að fagna að njót,a sameinaðra, ein- lægustu krafta beggja verklýðs- flokkanna, — álítist einskis nýtt fyrir alþýðuna! — Og loks er hafnað í þeirri vísindalegu úr- lausn, að »verkalýðsfélög« al- þýðuflokksins séu það sem koma skal! Heildarboðskapur blaðsins verðu,r því á þessa leið: Baráttan við einræðisöfl aft- urhaldsins, fyrir verndun lýð- ræðisins, er best háð með þv; að afnema það í verklýðshreyf- ingunni, skoðanakúgun fasism- ans á bestan hátt fyrirbygð með því að leiða hana til öndvegis í félögum alþýðunnar, — stór- málum alþýðunnar best trygð úrlausn með því að tvístra fylk- ingum hennar frá þeim í allar áttir o. s. frv. -—Og á framhliö þessa góðgætis, er letrað stórum stöfum orðið sem saga alþýð- unnar á Spáni vígir nú til helgis, í blóði sinna bestu, sona og dætra: Alþýðufylking! Misbeiting ástfólgnustu hug- taka alþýðunnar; að nota þau sem umbúðir u,tan yfir fláttskap og pólitíska stigamenskUj, hefir verið og er eitt af skæðustu, vopnum fasismans, listin, sem íslenskar landráðakljkur leika nú best undir sjálfstæðisgrím- unni. »Myndið alþýðufylkingu inn- an Alþýðuflokksins«. Eitthvað á þessa leið svöruðui þýskir Al- þýðuflokksburgeisar, endurtekn- um samfylkingaráskorunum Kommúnistaflokks Þýskalands. »Endurreisn Þýskalands og útrýming þjóðmádaspillingarinn- ar«, æptu brenniuvargar Ríkis- þingsins, en hindruðu með vopn- um þátttöku alþýðunnar í kosn- ingunum og útfyltu, sjálfir kjör- seðla hennar. »Vilji þjóðarinnar, lýðræðið«! tautuðu. svo brennumenn lýðræð- isins í þýsku verklýðshreyfing- unni, þegar afleiðing þeirra eig- in atgjörða kom í Ijós og fasism- inn veifaði sigurpálmanum. »Lifi lýðveldið«, hrópuðu her- menn Francos í Barcelona, til að fá verkamannahersveitir lýð- veldisins til að staðnæmast, svo betri tími gæfist til að skjóta, þær niður, daginn sem uppreisn- in hófst á Spáni. Að slá, um sig með alvarleg- ustu og brýnustui velferðarmál- um fólksins, á þeim örlagatím- u,m, sem nú standa yfir, en vinna jafnframt gegn, einingu fjöldans, er hrein barátta gegn þessum velferðarmálum. Og að fremja. slíkt gerræði undir kjör- orðum einingarinnar er gl.æpur. Sé hér um að ræða yfirvegað »herbragð« til að aíla Alþýðu- flokknum atkvæða, á kostnað einingarinnar og lýðræðisins, gegnir sama máli. En fari hér saman (sem eg vona að sé) skortur á þekkingu og ábyrgð- artilfinningui, er þess að vænta, að hinir betri kraftar í hópi jafnaðarmanna grípi hér í taumana, menn, sem treysta má það vej í þroska og dreng- lund, að þeir líði ekki skemdar- starf launsátursmanna og á- byrgðarleysingja í griðum þeirr- ar samfylkingar, sem þegar er hafin í Vestmannaeyjipn. Hver einasti heill jafnaðar- maður og kommúnisti í Vest- mannaeyjum verður að finna helgustu skyldur sínar undir þessum kjörorðum: Eining, lýð- ræði og sjálfsákvörðunarréttur í hagsmxmasamtökum al þýðunn- ar. Alþýða Eyjanna sér ekki upp- fyllingu óska sinna í því einu, að auglýsa þær á stokkum og staurum, — heldur fyrst og fremst, í baráttueiningu sinni. Þessvegna krefst hún bandalags verkalýðsflokkanna u,m hin póli- tísku hagsmunamál gegn, aftur- haldinu. Hún lætur afstöðu hvors flokksins fyrir sig gagnvart þessari kröfu verða prófstein á einlægni hans og. kveður upp sinn lýðræðislega dóm, á þeim forsendum. Ve. 1U. apr. 1937. Jón Rafnsson. Hafnbann Francos rofið FRAMHALD AF 1. SIÐU eftirför. Þegar skipin nálguðust spánska landhelgi bar að vopn- aðan togara uppreisnarmanna og annað skip í fylgd með hon- um. Var skotið fyrir stefni eins breska skipsins, Gaf þá »Hood« merki um að hin bresku, skip skyldu látin afskiftalaus, og sneru þá spönsku; skipin á brott. Litlu síðar, er matvælaskpin sigldu inn í landhelgi, var skot- •ið úr virki á, ströndinni í áttina til skipa uppreisnarmanna. Tvö bresk matvælaskip eru, komin til St. Jean de Luz, á leið til Bilbao, og er annað þeirra skip »Kartöflu Jones«. Eitt skip hlaðið matvælum er í Gíbraltar-. Á Baskavígstöðvunum hafa staðið yfjr ákafir bardagar, og hefir .hvor aðili sína sögu um þá að segja. Uppreisnarmenn segj- ast hafa tekið nokkur þorp, náð matvælabirgðum, tekið talsvert af herfangi, þar á meðal tvo brynvagna og tvær loftvarnar- byssur. Stjórnin heldur því fram, að hún hafi ekkert land mist í hendur uppreisnarmanna, og að fangar þeir, sem teknir hafi ver- ið, hafi staðfest fréttir þær sem umdanfarið hafa borist um óá,- nægju og nppreisnartilraunir í liði upprei§narmanna, 1 fréti frá Valencia segir, að 170 strokumenn úr liði uppreisn- armanna í Cordovahéraði hafi sagt frá því, að þeir hafi ætlað sér að gera uppreisn áður en þeir voru sendir til Spánar frá Afríkui, en þeir hefðu ekki get- að komjð því við, en notu,ðu fyrsta tækifærið eftir að til Spánar kom, að ganga í lið stjórnarinnar. Loftárás var gerð á Madrid í dag. Nokkrum sprengjum var varpað yfir miðja borgina. Um manntjón er ekki vitáð. (F.Ú.) Víðavangs- hlaup I. R. 1 fyrradag (á sumardaginn fyrsta) fór fram víðavangshlaup hið 21 í röðinni, sem I. R. gengst fyrir. Fjögur félög tóku þá,t.t í kepninni, Iþróttafélag Borgar- fjarðar, Iþróttafélag Kjósar- sýslu. K. R. og I. R. Alls tóku 22 keppendu,r þátt í hlaupinu. Fyrstur að markinu var Sverrir Jóhannesson úr K. R., annar Bjarni Bjarnason úr 1. B. og þriðji Pétur Jóhannesson úr K. R. Orslit urðu þau, sem hér segir: K. R. vann og hlaut 9 stig, 1. K. fékk 18 stig, 1. B. 28 og 1. R. 31 stig. Sá sem fyrstur varð að marki, Sverrir Jóhannesson hljóp skeið- ið Sem var 4 km. á 14 mín. 22,4 sek. Hlnn kunnl íi.m críski rithöfuiuT- ur John Dos Passos er nýlega kominn til Valencia. Hann ætlar ásamt ame- ríska rithöfundinum Ernest Heming- way að taka kvikmynd af Spánar- striðinu. Hollenski kvikmyndatöku- maðurinn Joris Ivens mun aðstoða þá við kvikmyndatökuna. -p ftalska andfasistanefndin í New York hefir nýlega sent spönsku stjórninni 400 dollara sem á að skipta meðal aðstandenda þeirra ítala, sent nú berjast í liði. stjórnarinnar á Spáni í hinni svonefndu Garibaldi hersveit. A Síðan Metaxas-stjóinin tók við völdum í Grikklandi hefir pólitísk- um föngum fjölgað mjög í landinu. bæði í fangelsum og eins á ýmsurn eyjum í Grikklandshafi, þar senr stjórnin geymir fanga sína. Fréttir frá Aþenu herma að tala þessara fanga sé aldrei minni en 3000. f gömlu fangelsi frá þvi á miðöldum hefir nú verið komið upp fangabúð- um, sem taka um 800 fanga. Með- ferð fanganna er mjög eftir fyrir- myndum Hitlers. í bænuin Mnr del Plata skamt frá Buenos Aires hefir nýlega verið- hafin ofsókn gegn öllum vinstri mönnum. Mál var höfðað gegn öll- um leiðtogum verklýðsfélaganna í bænum og þeir dæmdir í fangelsi fyrir »kommúnistískan undirróður«. ic Franska lögreglan hefir nýlega íundið allmikla vopnageymslu hjá fasista eijium í Norður-Frakklandi. Fasisti þessi hefir áður sætt ákæru fyrir frönskum dómstóli fyrir morð- tilraun við verkamann í Carvin. Danskui* úrvals- leikilokkur kemur til íslands í sumar KHÖFN 1 GÆRKV. Danska þingið hefir samþykt að veita 10.000 krónur til þess, að úrvalsflokku,r leikara frá Konupglega l.eikhúsinu geti far- ið til Islands í suimar, og leikið þar. Ráðgert er, að flokku,rinn leiki sex kvöld og sýni »Eras- mus Montanus« eftir Holberg, »Skærmydsler« eftir Gustav Wied og »Brudesengen« eftir Schluter. Tuttugu, af leikurunt leikhússins verða með í förinni. (F.Ú.) Starfsmannafélag Reykjavíkur hélt aðalfund 181 þ. m. var kosin ný stjórn: Nikulás Friðriksson form., Guö- bjartur Ölafsson varaformi., Erl- ingur Pálsson, ritiari, Karl ö. Bjarnason, gjaldkeri. Meðstjórn- endu.r Helgi Sigurðsson, Ágúst Jósefsson, Sæmupdur Bjarna- son. — Varastjám: Sigurður Þorsteinsson, Jóhann Möll.er, María Maac.k. Endurskoðenduir: Guðlaugur Jónsson, Þorkell Gíslason og til vara Karolína Lárusdóttir. — 1 félaginu eru I á þriðja hnndrað manns.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.