Þjóðviljinn - 01.06.1939, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.06.1939, Blaðsíða 1
Gerszt medlimtir í Sósialísta~ f flokknum l IV. AKGANGUK FIMMTUDAGUK 1. JUNI 1939 123. TÖLUBLAÐ Htad hefur þú gcrf fifl ad úfbreida ÞjódTíljann ® Kínversk liðsíoringjaefni á hergöngu. ...J Japaiir fara balloka Félagsmálaráðherra St. Jóhann framdí í gær eítt það mesta hnevhslí, sem framíð hefur verið af íslenzkum ráðherra. Með bráðabírgðarlögum sviptí hann byggíngarfélög alþýðu ákvörðunarréttí um ínnanfélagsmál þeírra og þvíngar þau til að brjóta sin eigín lög og samþykktir. Með þessum bráðabírgðarlögum er byggíngarfélögunum gert að skyldu að kjósa fjóra stjórnarmeðlímí hlutbundínní kosníngu, en um formannsval fá þau engu ráð- ið, hann skal skípaður af félagsmálaráðherra. Þá er byggíngarfélögum bannað að kjósa styrktarfélaga í trúnaðarstöður. Tílgangur þessara ofbeldisráðstafana er sá eínn, að bola Héðní Valdímarssyni ur stjórn Byggingarfélags alþýðu hér í bæ. En hann er, sem kunnugt er, höfundur laganna um verkamannabústaði, og hefur veríð formaður Byggíngarfélagsins frá stofnun þess. Alþýðublaðið hefur undanfarið gert þær kr.öfur, að honum og nú- verandi stjórn félagsins væri ekkí fengíð fé í hendur, og sýnír það ásamt fleírm að félagsmálaráðherra veígrar sér ekkí við að beíta fjölmenn félög ofbeldí, tíl þess eíns að koma fram hefndum á pólítískum andstæðingi. Lögbirtingablaðið birti í gær svohljóðandi BráðabirgðalÖg imi breyting á lögum nr. 3, 9. jan- úar 1935, um verkamannabústaði. 1. gr, Aftan við 3. mgr. 4. gr. laganna bætist orðin: Enda full- nægi félagið skilyrðum 6. gr. þess- ara laga. 2. gr. Á undan 1. tölulið 6. gr. komi nýr töluliður, sem verður 1. töluliður svohljóðandi, enda breyt ast töluliðir greinarinnar sam- kvæmt því: 1. Að stjórn byggingarfélagsins sé skipuð 5 mönnum og skal for- maður stjórnarinnar skipaður af þeim ráðherra, sem fer með félags mál, en hina stjórnarnefndarmenn ina skal kjósa hlutbundinni kosn- ingu af þeim félagsmönnum, sem fullnægja skilyrðum 4. töluliðs þessarar greinar. 3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Engum getum þarf að því að leiða, að ástæðan til þessarar laga breytingar er fylgisleysi Breið- fylkingarinnar innan Byggingar- félags alþýðu í Reykjavík. Á ný- afstöðnum aðalfundi félagsins var stjórn þess öll endurkosin, en hana skipa nú Héðinn Valdimarsson for maður, Guðmundur Pétursson rit- ari og Þorlákur G. Ottesen gjald- keri. Allir hafa þessir menn setið í stjórn félagsins um langt skeið og formaðurinn frá því það var stofnað. Skjaldbyrgingararmur Breiðfylk ingarinnar vildi gera kosninguna pólitíska. En við þá tilraun kom í ljós, að fulltrúi hans við for- mannskjör fékk aðeins 40 atkvæði St, Jóhann ofbeldismálaráðherra en Héðinn Valdimarsson 136 atkv- Þegar þessi úrslit urðu kunn, hóf Alþýðublaðið hatrama árás á stjórn félagsins, þá sömu stjórn, sem það hefur ekkert haft við að athuga í öll þau ár, sem félagið hefur starfað, þá sömu stjórn, sem hefur staðið fyrir byggingu 172 , verkamannaíbúða, íbúða, sem nú búa í um 1100 manns. Á þessum árum hefur rekstur félagsins í hví vetna þótt til fyrirmyndar, enda hefur það aldrei tapað einum eyri Svo langt gengur Alþýðublaðið í ósómanum og ósvífninni, að það krefst þess að þessari stjórn verði ekki fengið fé í hendur til bygg- ingar nýrra verkamannabústaða, og ástæðuna telur það þá, að þeir séu allir „kommúnistar”. Með bráðabirgðalögunum er að því stefnt, að gera kosningar inn- an byggingarfélagsins pólitískar, með því að ákveða að þær skuli vera hlutbundnar. Þá er rétturinn tekinn af félögunum til þess að kjósa sér formann, og þeim bann- að að fela styrktarfélögum trún- aðarstörf. Allar þessar breytingar koma í bág við lög félaganna. Hvað Bygg ingarfélag alþýðu hér í Reykja- vík áhrærir, þá verður lögum þess ekki breytt nema á aðalfundi og þarf til þess samþykki 2/3 fund- armanna, en næsti aðalfundur fé- lagsins getur ekki orðið fyrr en á árinu 1940, og er því þannig beiniínis fyrirskipað að brjóta sín eigin lög, Ákvæðið um að útiloka styikt- arfélagsmenn frá trúnaðarstörf- um fyrir félögin er næsta athyglis vert. 1 Byggingarfélaginu hér í Reykjavík munu vera 3 styrktar- félagar, sem samkvæmt lögum fé- lagsins hafa málfrelsi og tillögu- rétt á fundum, en ekld atkvæðis- rétt. Hinsvegar er lieimilt að kjósa þá í trúnaðarstöður fyrir félagið. Einn þessara þriggja manna er Héðinn Valdimarsson. Þess vegna er talin „brýn nauðsyn” á að breyta þessu ákvæði. Byggingarfélög alþýðu eru einu samvinnufélögin, sem skipuð eru verkamönnum einum, og það er forseti Alþýðusambandsins, gervi- forseti að vísu, sem leyfir sér að taka sjálfsákvörðunarréttinn af þessum félögum. Bærinn hefur eftirlit með rekstri' félagsins og ríkisstjórninni stencrur auðvitað opið að fá allar þær upplýsingar um hag þess og rekstur, sem hún óskar á hverjum tíma. Þess má geta, að annarsstaoar á Norður- löndum starfa samskonar bygg- ingarfélög og njóta þau meiri rnð inda og betri lánskjara en hér. Þau borga af lá.num sínum 3% í vexti og afborganir, en hér er borgað 5%. Ekki hefur þó dús- Pramhald á 4. síðu. FjársSinon fyrir Þjóð- ▼iljann hefst i dag Allir meðlimir Sósíalistaflokksius og aðrir velunnarar Þjóð- viljans þurfa að taka þátt I fjársöfnuninni fyrir Þjóðviljann, sem hefst í dag. I þetta sinn fer söfnunin fram á þann hátt, að safnað verður 5 — fimm — krónum hjá öllum, sem það geta látið, — og það eru margir, sem geta látið það af mörkum, er þeir vita að til- vera efling eina dagblaðs verkalýðshreyfingarinnar er undir söfn uninni komin. Söfnunargögn verða afhent á skrifstofu Sósíalistafélagsins í Hafnarstræti 21 og á afgreiðslu Þjóðviljans í dag kl, 5—7. Flokksfélagar og vinir Þjóðviljan.s! Hefjið söfnunina strax og skilið því, sem safnast, jafpóðum á skrifstofurnar! Sameíníngafflokkur alþýðu Sósíalisfaflokkurínn EINKASK. TIL ÞJðÐVILJANS, MOSKVA 1 GÆRKVÖLDI Frá Chun-king er símað: Kínverskar herdeildir í norður- hluta Hupeh-fylkis hafa hreinsað héruðin Tsianan og Suichow alveg af Japönum. Reka nú kínversku hersveitirnar flótta Japana. Smáskæruhóparnir í Sjansi, sem standa undir stjórn 8. hersins, hafa háð framúrskarandi glæsi- lega baráttu. Þaðan hefur smá- skæruhernaðurinn breiðzt út til Hupeh, Tsjahar og Sjantung. Á fylkislandamærunum milli Hupeh, Sjansi og Tsjahar, í fjall- lendinu Utaichan, hefur með sam- starfi Kommúnistaflokksins og Kuomintang verið mynduð fyrsta þjóðfylkingarstjórnin á landsvæði bak við herlínur Japana, Á síð- asta hálfu ári hefur japanska her stjórnin sent 10 herdeildir gegn smáskæruhópum þessa fylkis. — Fjórum sinnum hófu Japanir sókn þangað, er 50.000 hermenn tóku þátt í í hvert sinn. En smá- skæruhóparnir hafa alltaf rekið árásirnar af höndum sér. Hershöfðingi Kinverja í Sjansi, Yan Si Chan, lýsti því yfir, að á 20 mánuðum smáskæruhernaðar hefði komið til 3273 bardaga við óvinina. Féllu í þeim yfir 92 þús- und japanskir hermenn og 975 japanskir foringjar í hemum. Tóku Kínverjar m. a. 238 vél- byssur og yfir 6600 byssur í bar- dögum þessum. Rsða EINKASK. TIL þJÓÐVILJANS MOSKVA 1 GÆRKV. Hitaveitumáiið verður útkiiáð f HaupmanuaMfn Borgatrsfíóiífi, bæj azverkfræðíngm og líkl@ga tfármáflatráðlieirra Sara ufan med Lyru í dag, tífl að ganga frá samningfifim Löngu áður en Molotoff hóf ræðu sína á þingi Sovétríkjanna i dag voru allir áheyrendapallar troðfullir, erlendir sendiherrar og blaðamenn fjölmenntu. Er Stalin, Molotoff, Vorosíloff, Míkojan, Kal inin og Kaganovitsj komu inn í salinn, var þeim heilsað með lang 'varandi lófataki Var ræðu Molo- toffs beðið með mikilli eftirvænt- ingu. FRÉTTARIT ARI. Aðalatriði ræðunnar verða birt hér í blaðinu á morgun. Á Reykjvíkurmótinu í gær kepptu K. R. og Fram í 1. flokki. Vann K. R. með 8 : 0. 1 kvöld keppa Víkingur og Fram í meistaraflokki. Bankaráð Landsbankáns og rsk- isstjórnin hafa fyrir sitt leyti sani þykkt liitaveitulánið, þó með því skilyrði, að fulitrúar þeirra séu viðstaddir endanlega samninga- gerð og samþykki hana. Pétur Halldórsson borgarstjóri og Valgeir Björnsson bæjarverk- fræðingur taka sér far utan með Lyru í kvöld. Verður reynt að fá betri samninga við Höjgaard & Schultz í Höfn, en það tilboð, sem nú liggur fyrir. Fulltrúi ríkisstjórnarinnar, að öllum líkindum Jakob Möller fjár málaráðherra, fer og væntanlega utan í kvöld. En hinsvegar mun Magnús Sigurðsson bankastjór sem dvelur erlendis í lánsútveg- anatilraunum fyrir 'ríkið, mæta fyrir hönd Landsbankans. Er nú beðið með óþreyju úr- slita þessa máls.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.