Þjóðviljinn - 01.09.1939, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.09.1939, Blaðsíða 1
Hvad hctiir þ« gcr! tíl aö útbrcíða Þjódvílíann i Styrjöld f ærist nær Brezkl flotlnn hervæðist 3 millíónir manna flutiar burt úr siórborg- um Englands og Sfeotlands EINKASKEYTI TIL ÞJÖÐVILJANS. KHÖFN í GÆRKV Brezka stjórnin bíður enn efíir svari við orðsendingu þeirri, er hún sendi Hitler * gærkvöldi, en yfirleitt virðist í dag að stríðsótti hafi aukist mjög í álfunni. Veldur því einkum sú ákvörðun brezku stjórnarinnar að allur brezki flotinn skuli hervæð- ast nú þegar, og hervæðing brezka landhersins og fiugflotans hefur einnig verið aukin. Þá hefur það einnig vakið mikla athygii að tilkynnt hefur verið að brott- flutningur fólks úr London og öðrum stórborgum í Englandi og Skotlandi verði haf inn á morgun í stórum stíl. Er gert ráð fyrir að 3 milljónir manna verði fiuttir úr stórborgunum út um sveitir og verða skólabörn, konur og sjúklingar fyrst fluttir burt. Chamberlain og Halifax lávarður hafa í 'dag átt langar viðræður við ráðherra þá, er hafa landvarnarmálin með höndum. Aliar járnbrautarlestir í Hollandi hafa verið teknair í þágu hersins. Hítler skípar fímm manna verndarráð Hitler hefur gefið út fyriir- ^kipun um að stofna skuli svo nefnt „verndarráð“ og er Göring formaður ráðs þessa, en það er skipað 5 af áhrifamönnum á sviði her mála og fjárfháia. Rudolf Hess á sæti í ráðinu, sem persónulegur fulltrúi Hitl- ers. „Varnarráð“ þetta getur gefið út lög og tilskipanir um allt sem varðar atvinnu, fjármál og herafla ríkisins. Þýzfea alþýðan móí« maelír hungursijórn nazísta. - Fregnir -berast um alvarlegan matvælaskort í Þýzkalandi. Skömmtun flestra fæðutegunda er þegar hafin, en fólk er víða mjög nðþrengt. Ensk blöð skýra frá því að allvíða í þý/.kum borgum liafi götukröfugöngur verið farnar til að mótmæla hungurskömmtun na/ istayfirvaldanna. Einkum hefur borið á ákafri oanægju Austurríki, en þar er al- ^enningur fyrst nú að gera sér ’jóst að styrjöld vofi yfir. Enska stórblaðið Times slcýrir f|'á því, að Þjóðverji sem hand- tekinn var vegna sprengitilrauna 1 Pólska bænum Kattowics, liafi Jatað, að nazistaflokkurinn í Slésíu t'afi falið sér að gera sprengjutil- f*ði við hús og eignir Þjóðverja 1 Kattowics, er síðar átti að kenna ólverjum um. Síðnstu írétítr: Pýzhalanð selnr Pnl- landi DFslitabosti Pólska sfjórnín svarar cngu. — « Bardagar hófust í gaerkvöld á landamærum Póllands Þýzfea útvarpið sendi út í gærkvöld fíl- kynníngu um úrslífakosfL cr þýzka sfjórnín hefdí senf pólsku stjórnínní fyrír fveím dög- 1 um, Þar sem ekkerf svar værí enn komíd, lífí þýzka sf jórnín svo á, ad fillögunum hefði veríd hafnad. Samkvaemf þýzkum fregnum , hefur þegar slegíð í bardaga millí þýzkra og pólskra herja í landamærahéruðunum. Aðalatríðí tíllagna þYzku stjórnarínnar, sem eru i 16 líðum, eru þessí: Danzig sameinast tafarlaust Þýzkalandi. f héruðum Pólska hliðsins fari fram allslierjaratkvæðagreiðslá er skeri úr um, livort héruðin skuli tilheyra Þýzkalandi eða Pól- landi. Þó skal Gdynia áfram vera pólskt land, og hvorn veg sem atkvæðagreiðslan fer, verði Þjóðverjum tryggð frjáls umferð til Danzig og Austur-Prússlands og Pólverjum til Gdynia. Einfaldur ineirihluti ráði úrslitum í allsherjaratkvæðagreiðsl- uimi. Síðast þegar fréttist liafði brezka stjóruin enga afstöðn tekið til þessara atburða, en búizt var við opinberri tilkynningu í nótt. Hcrstyirkuf Rauda hcrsins þrcfald^ aður síðan 1930 EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐVILJANS. MOSKVA I GÆKKV. f dag kom Æstaráð Sovétríkjanna saman í báðum deildum. Þeg ar fundir hófust voru ýmsir af forustumönnum ríkisins viðstadd ir, ásamt fulltrúum erlendra ríkjaog fréttariturum erlendra og inn lendra blaða. Strax er fundur hafði verið settur, hóf Vorosiloff hermálafuíl- trúi framsöguræðu um frumvarp til Iaga um almenna herskyldu, er liggur fyrir þingiuu. Helztu atriði frumvarpsins er sem hér segir: Allir borgarar Sovétríkjanna skulu herskyldir, hvaða þjóðerni eða stétt sem þeir tilheyra. Her- skyldutími er: að landhernum 2 ár, undirforingjar landhersins skulu þó þjóna í þrjú ár. I loft- hernum þrjú ár og sjóhernum 4 ár. Þjónustutími er frá 19 ára aldri; en fyrir þá er hafa lokið gagnfræðaprófi frá 18 ára aldri Engum má segja upp starfi.þó að hann sé kallaður til lieræfinga, og' hver maður heldur helmingi venju legra starfslauna, meðan hann er í herþjónustu. Þá er ennfremur fyrirskipað, að í öllum skólum landsins fari fram vikulegn.r heræfingíir nemenda i fimmta og sjötta bekk. Ræða Vorosíloffs um herskyldulögín I ræðu sinni við þetta tækifæri sagði Vorosiloff meðal annars: Sovétríkin eru ríki sérstakrar teg- undar og þau eru umgirt fjand- samlegum rikjum. Hvað varnir rÍK isins snertir, hafa Sovétríkin engu öðru að treysta en sínum eigin mætti. Her Sovétríkjanna hefur vaxið að fjölda og hann hefur eflst að tækni. Ef miðað er við árið 1930 sem 100%, verður erfitt að skýra vöxtinn með hundraðstölum Skriðdrekar hafa fjörutíu og þrefaldast. Fiugvélum liefur fjölg- að svo að þær eru meira en sex sinnum fleiri en þá. Þung stór- skotatæki hafa sjöfaldast. Skrið- drekavarnarbyssur eru 7 sinnum fleiri en 1930 og tala vélbyssna liefur meira en 5 faldast. Riddaraliði'ð hefur vaxið 39r hvað snertir hermenn, en um 3,07 %• hvað hesta snertir. Flotinn hef- ur verið aukinn að tonnatali um 230%. Framliald á 8. síðu. Albníkíl síld- veíðt í gær Síldveiði .var allmikil í gær og komu meðal annars tveir togarar með mjög sæmilegan alla. Alls inun síldarverksmiðjunum hafa borist um 11—12 þúsund mál. Síldarsöltun var fremur lítil á Siglufirði. Þó voru saltaðar urn hálft þriðja þúsund tunnur og var meirihluti þess veiddur í reknet. Kolkrabbi er mikill á síldarmið- unum og segja sjómenn að vegna hans sé helzt útlit fyrir að síldín sé á flótta frá luudimi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.