Þjóðviljinn - 29.12.1939, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 29.12.1939, Blaðsíða 4
þJÓÐWUINH Úrboi»gínnl Næturlæknir í nótt: Axel Blön- dal, Eiríksgötu 31, sími 3951. Næturvörður er þessa viku í Reykjavíkur apóteki og Lyfjabúð- inni Iðunn. Hjúskapur. Um jólin voru gef- in saman í hjónaband frk. Elín Hólm og Ingimundur Jónsson, Bústaðabletti 19. Hjúskapur. Hinn 27. þ. m. voru gefin saman í hjónaband frk. Jó- dís Halldórsdóttir og Viggó Egg- ertsson, yfirmatsveinn á Esju. Kvikmyndahúsin. Góð aðsókn hefur orðið að jólamyndunum „Sigur hugvitsmannsins” á Nýja Bíó og „Sweethearts” á Gamla Bíó. Valur Gislason í „Dauðinn nýtur lífsins”. Leikfélag Reykjavíkur sýnir leikritið „Dauðinn nýtur lífsins” í kvöld. — Alþingismönnum og bæjarráði er boðið á þessa sýn- ingu. — Sýningin á annan í jólum vakti mikla hrifningu og má því mikillar aðsóknar vænta að þess- um leik. Lettneskt kolaskip er fyrir skömmu komið hingað með 5500 tonn af kolum til Kol & Salt og Kolasölunnar. Innbrot. Aðfaranótt miðviku- dags sl. var brotizt inn í trésmíða verkstæðið Þór á Hverfisgötu 30, og stolið þar rennivél. títvarpið í dag: 10.00 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 19.20 Þingfréttir. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Útvarpssagan: „Ljósið, sem hvarf” eftir Kipling. 20.45 Píanókvartett útvarpsins: Kaflar úr píanókvartett, Op. 16, eftir Beethoven. 21.05 Hljómplötur: a) Jólalög frá ýmsum löndum. b) 21.30 Harmoníkulög. 21.50 Fréttir. Póstferðir 30. des.: Frá Reykjavík: Mosfellssveit- ar, Kjalarness, Reykjaness, Ölf- uss- og Flóapóstar, Þingvellir, Laugarvatn, Hafnarfjörður, Grímsness og Biskupstungnapóst- ar, Akranes, Álftanesspóstur. Til Reykjavíkur: Mosfellssveit- ar, Kjalarness, Reykjaness, Ölf- uss- ' og Flóapóstar, Þingvellir. ep Ný/abio a§ m Gamlabio % f t t 4 4 4 1 t x Sígur hugvíts- | 4 mannsms. f t Söguleg stórmynd frá Fox, X er sýnir þætti úr hinni bar- !»! átturíku en fögru ævisögu hugvitsmannsins heimsfræga, X Alexanders Graham Bell, er X t fann upp talsímann. Aðalhlut.X t verkin leika: t Don Ameche, Henry Fonda og systurnar Polly, Georgiana og Loretta Young. JÓLAMYND 1939. ^Sweetbearts* Gullfalleeg og hrífandi amer- !*! & Ísk söngmynd, öll tekin í eðli •!• Y •!• legum litum, þeim fegurstu, Y y r j *f er sést hafa. Aðalhlutverkin 1*1 X leika og syngja uppáhalds- •!• x *% leikarar allra: 4 t t t t t t t t Jeanette McDonald og Nelson Eddy. | Leikfélag Reykjavíkur: f 1 „Dauðinn nýtur Iífsins” f ^ Sjónleikur í 3 þáttum eftir Alberto Casella. | 4 Sýning í kvöld kl. 8. X Y V yHljómsveit undir stjórn Dr. V. Urbantschitsch aðstoðar. t y y **)Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 í dag. X X Venjulegt verð á aðgöngumiðum, sem eftir verða kl. 4, til % '4 þess tíma hækkað verð. *:* Eldhúsufnrœdurnar, Framhald af 1. síðu lýsum þetta brot á þingsköpum og þar með landslögum, framið í því skyni að hindra gagnrýni á störf og stefnu ríkisstjórnarinnar og svipta þar með landsmenn lög- legum og hefðbundnum rétti. Við álítum þetta lagabrot vera enn eitt skref ríkisstjórnarinnar í átt- ina til þess að brjóta niður þing- ræði og lýðræði í landinu og skor- um á stjórnarflokkana að mæta oss til að ræða stjórnarstefnu þeirra og gerðir í útvarpinu. Alþingi 28. des. 1939. Sýndi Einar þvínæst fram á að þingsköp og þar með landslög ætl- uðust til þess að eldhúsumræðum væri útvarpað og þær hefðu und- anfarið verið veigamestu atriði í útvörpuðum umræðum Alþingis. Rakti hann því næst í skarpri á- deiluræðu hversvegna ríkisstjórn- in færi inn á þessa braut gerræð- is og einræðis. Ríkisstjórnin hefði gert sig seka um slík afglöp og slíka kúgun gagnvart landslýðn- um, svo sem- birtist í Rauðku- málinu, kaupgjaldskúguninni Verkamannabústaðamálinu og fleirum, að hún þyrði ekki að láta ræða þessar aðgerðir sínar opin- berlega og kæfði því niður opin- bera gagnrýni með lagabrotum og gerræði sem því, er nú væri verið að fremja. Að lokinni ræðu Einars var síð- an tillaga Breiðfylkingarinnar borin upp og samþykkt með at- kvæðum Breiðfylkingarmanna gegn 3. Þarmeð hefur Alþingi enn einu sinni sýnt undirlægjuhátt sinn gagnvart Kveldúlfsvaldinu, sýnt vilja sinn til að koma á einræði á íslandi til að halda Kveldúlfs- hneykslinu, bitlingunum og klíku- völdunum við. Hafnarfjörður, Rangárvallasýslu póstur, Austur- og Vestur-Skafta- fellssýslupóstar, Akranes, Álfta- nesspóstur. I kvöld komum við saman í Al- þýðuhúsinu við Hverfisgötu til sameiginlegrar kaffidrykkju. Láttu þig ekki vanta, því fleiri sem mæta, því betri skemmtun. Um áramótin ættu allir að vera skuldlausir við flokkinn. Komið á skrifstofuna til Jóns Rafnssonar og greiðið gjöld ykkar í dag eða á morgun. fþróttír FRAMH. AF 2. SIÐU. því fyrirkomulagi að sá er tapar er úr. K.R. varð sigurvegari í þess ari fyrstu keppni. Þá tel ég sýningu Olympíumynd arinnar stórviðburð, þó þrjú ár séú liðin frá því þeir fóru fram. Síðasti merkisviðburður ársins og sá er kemur til með að hafa mest áhrif á alla framtíðarstarf- semi íþróttamála hér á landi, ef vel til tekst, er frumvarp það til íþróttalaga, er Alþingi afgreiddi . nú rétt fyrir jólin. — Ýmislegt mætti telja fram sem íþróttavið- burði og árangra einstakra manna t. d, setti Jónas Halldórsson sitt fimmtugasta rnet á þessu ári og það áður en hann varð 25 ára. Er það frábært. — Verður ekki nánar farið út í afrek snillinga að Kolviðarhól og skíðaskálaannála að þessu sinni. Bygging stökkbrautanna við Kolviðarhól og skíðaskálann bygging róðrarskýlis Ármanns, út gáfa knattspyrnubókarinnar o. fl. verður einnig að bíða vegna rúm- leysis. Þá hef ég haft óljósar fregnir af því, að úti um land hafa verið reistir skíðaskálar, sundlaugar og íþróttahús, en skýrslur og ná- kvæmar frásagnir af því hef ég ekki getað aflað mér og harma ég mjög að það gat ekki orðið hér imeð. K-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X-X. k-x-x-:-x-x—:-x-x-:-x—:-x-x—x< | Flokkurínn I f x v k-:~x-x—:-:• ♦x—x—x—:—:—:• •!• EDNA FERBER: 48. SYONA STOR ...! og var aflur larin að vona að úr öllu rætlisl einhvem- tíma. Löngu áður var henni orðið ljóst, að til þessa mundi reka. Hún svaraði ákveðið: „Vertu ekki að Jæssari vit- leysu, Pervus. Kverimannsverk! Pað er ekkert erfiðara að vinna í görðunum en að standa á hausnum í húsverk- um allan liðlangan daginn. Húsverk eru erfiðustu störf í heimi. Þessvegna forðast karlmenn Jrau eins og heitan éld”. Hún lók Dirk oft með sér út í garðinn, og léL hann sitja þar sem skugga bar á, á hrúgu af pokum. En liann skreið alltaí ofan af pókunum, og fór að róta í svart'ri og hlýrri moldinni með fitlu liöridunum. Hann reyndi meir að segja að hjálpa móður sinni, og togaði af öll- um kröftum í hlómiii, og el’ það vildi til að eitthvað lét undan, datt hann á rassinn, en þóttisl mikill maður. „Sjáðu,. hann er orðinn hóndi strax”, sagði Per.vus þá. En eitthvað’í Selínu hrópaði: „Nei, nei”. í maí, júní og júlí vann Pervus ekki einungis frá morgni til kvölds, lieldur líka við lunglsljós á nóttunni. og Selína vann með honum- Oíl sváfu þau ekki nema þrjár, fjórar slundir á sólarhring. Pannig liðu árin, tvö ár, þrjú ár, fjögur ár. Á fjórða búskaparári Selínu missti hún einu vinkonuna, sem lvún átti í High Prairie. Maartje Pool dó af barnsförum, en þannig fó'ru þær íriargar, bóndakónurnar, enda fengu þær ekki aðra lijálp en frá lélegri og ólærðri yfirsetu- konu. Barnið dó líka. Dauðinn hafði ekki verið Maartje Pool náðugur, hann hafði hvorki íært andliti hennar æsku né frið, eins og hann gerir ]>ó stundum. Pegar Selína liorfði niöur i andlit þessarar grafkyrru konu, sem verið hafði svo snúningalipur og á eilifum þönum allt sitt lif, varð henni ljóst, að hún hafði aldrei, öll þau ár sem þær höfðu þekkzt, séð Maartje Pool hvíla sig. það virtist ótrú- legt, að hún lægi þarna, með barniö i faðminum, þegar húsið var fullt af fólki, og þurfti að þveitast um með stóla, þvo og hreinsa, sjóða mat og framreiða. Selúia sat þarna ásamt öðrum konum úr nágrenninu, og hún gat ekki losnað við þá hræðilegu tilhugsun, að fyrr en varði mundi Maartje rísa upp af líkbörunum og taka við stjórn- nnni, bursta og nudda forina af buxnaskálmunum hans Iílaas (hann hafði verið úti að líta eftir hestunum), þagga niður í Geerlje og Jozinu, strjúka hrjúfri hendi yfir stór og starandi augun hans Roelfs, sem aldrei sást gráta, og þurka rykið af stofuborðinu. er aldrei hafði fengiö að blettast meðan hún var á lífi. „Maður getur ekki strokið nógu langt”, hafði Maartje sagt. „Maður getur ekki flúið frá lífinu nema með því að hætta ai» lifa”. Ójá, í þetta sinn hafði hún strokið nógu langt. Roelf var nú sexlán ára, Geertje fólf, Jozina ellefu. livernig færi nu íyrir þessu heimili, án konunnar, sem hafði þrælað fyrir öllu þessu fólki? Hver mundi annast litlu lelpurnar, halda þeim hreinum og þokkaléga til fara? Hver mundi nú taka fram í fyrir Iílaas Pool þegar liann skeytli skapi sínu á Roelf, oog segja: „Goði Klaas, lállu drenginn í friði-, Hann gerir þér ekkert”. llver mundi annasf Klaas sjálfan, elda matinn lianda honuin, þvo fötin hans, draga á skyrturnar hans, vero slplt af . þessum stóra og barnalega risa? Klaas svaraði þessum spurningum réttum níu mánuð- um síðar ineð þvi að kvænasl ekkju Paarleribergs. Aldrei hafði neitt komið High Prairie eins að óvörum. Mánuð- um saman var ekki talað um annað í sveitinni en þessa giftingu. Pau fóru í brúðkaupsferð lil Niagarafossanna, öllu átti að breyta heima lijá Pool, — ónei, sagði annar, þau ætluðu að flytja í slóra húsið ekkjunnar (hún var alla sína ævi kölluð ekkja Paarlenbergs), — ónei, það átli að koma fyrir fínu baðherbergi hjá Klaas Povl, með sí- rennandi lieitu og köldu vatni, —- ónei, þau ætluSu að lcaupa jörðina hans Stikkers, sem lá á nrilli jarða Pools og Paarlenbergs og gera úr öllu saman eina heljarstóra jör'S, langstærstu jörðina í High Prairie, Low Prairie, og New Haarlem. Forvitni High Prairie-fólksins um þetta hjónaband var óseðjandi, hver smáfrétt, sönn eða login, var því dýr- mæt. Pegar það vilnaSist að Roeíf hefði strokið að heim- I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.