Þjóðviljinn - 29.10.1940, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 29.10.1940, Blaðsíða 1
V. ARGANGUK. ÞRIÐJUDAGUR 29. OKT. 1949 246. TÖLUBLAÐ Hernadaradgerdír á landí, i loffí og á sjó, Brezka sfjórnín lofar affrí hugsanlegrí hjáfp Mussolíní, Hítler, von Ríbbentrop og Cíano greífi hítfast í Florenz Snemma í gærmorgup, um kl. 5,30 réðist ítalskur her frá Alb- aníu inn yfir landamæri Grikklands og tókust þegar liarðar orustur við grískan her, er þar var fyrir til varnar. Um nóttina hafði ít- alska stjórnin krafðist þess að henni yrði leyft að taka á vald sitt hernaðarlega þýðingarmikla staði í Grikklandi og halda þeim með- an stýrjöldin við Breta stæði. Var krafizt svars innan þriggja klukkustunda. Metaxas forsætisráðherra svaraði ítalska sendiherr- anum því að hann liti á úrslitakosti þessa sem stríðsyfirlýsingu. Gríska stjórnin fór þegar fram á stuðning Breta, og lofaði brezka stjórnin allri þeirri hjálp, sem í hennar valdi stæði að veita. Bretland ábyrgðist sjálfstæði Grikklands um Ieið og samskonar á- byrgðarloforð voru gefin Póllandi og Rúmeníu. DagMi saUgttlr Maia al seoia opg saniiogiooii Ákvedíd að hafda framhafdsfund ínnan hálfsmánadatr Svo virðist- sem ítalski herinn hafi hafið innrás á öllum landa- mærum Albaníu og Grikklands, en -aðalsóknin virðist tvíþætt. Beinist annar sóknararmurinn suður með vesturströnd Grikklands, en hin- um er stefnt í vesturátt, þvert yf- ir landið til Saloniki. Þar er um tvær leiðir að ræða, aðra sem Iigg- ur um borgina Florina, nálægt júgóslavnesku landamærunum, en hin sunnar, um borgina Kastoria. Sókn inn í Grikkland er mjög tor- velduð af hinu f jöllótta landslagi. ffalír hafa míkid lið o$ hergagnabír$ðír í Albaníu Talið er að Italir hafi 10—11 herfylki (divisions) í Albaníu, þar af eitt þaulæft fjallaherfylki. Vit- að er að Italir hafa safnað saman ÁVARP Stjórn Sambands íslenzkra barna kennara hefur ákveðið að stofna sjóð sem beri nafn séru Miujniísar Hcúgasonar og samþykkt að leggja til hans eitt þúsund króntir úr sambandssjóði sem stofnfé. Enn- fremur var ákveðið að leita ineð- al kennara og annarra nemenda séra Magnúsar eftir frjálsum fram lögum í sjóðinn. Fulltrúaþing S. I. B. sem haldið verður næsta sum ar, mun ákveða hveirdg sjóðnum skuli aflað tekna framvegis og semja skipulagsskrá. Það er ‘ósk Sambandsstjórnarinn ar að sjóður þessi megi hið fyrsta verða sem öflugastur og eru það því tilmæli yor að þeir kennarar tog ja ðrir nemendur og vinir séra Magnúsar, sem vilja heiðra minn- ingu hans, leggi skerf sinn í sjóð- inn. Skrifstofur bamaskólamna í Reykjavík veita viðtöku,; fé í þessu skyni, og þar liggja frammi skrár, sem gefendur rita nöfn sín á. 1 Hafnarfirði veitir Guðjón Guðjóns son skólastjóri gjöfunum móttöku. F. h. stjórnar S. í. B;. Sigurður Thorlacíus. í Albaníu mikinn forða matvæla og hergagna svo að þeir þurfi ekki að óttast þó að samgöngur við heimalandið rofnuðu. Grikkir hafa 14 herfylki fót- gönguliðs og eitt af riddaraliði. Herinn er illa búinn að nútíma hernaðartækjum. Loffárásír á Aþenu, Pafras o$ Korínf uskurd- ínn Þegar í gærmorgun fyrirskipaði Metaxas forsætisráðherra Grikkja almenna hervæðingu og myrkvun í Aþenu. Snemma dags voru tvisv- ar gefin aðvörunarmerki um loft- árás í Aþenui, án þess að tii árás- ar kæmi, en í þriðja skiptið kom- ust ítalskar sprengjuflugvélar inn yfir borgina og vörpuðu niður sprengjum. Griskar orustuflugvél- ar réðust gegn ítölsku flugvélun- um og lpftvamabyssur borgarinn- ar voru stöðugt í notkun heilan klukkutíma. Italskar flugvélar gerðu sprengjuárásir á Patras, þriðju stærstu hafnarborg Grikklands, um tíuleytið í gærmorgun. Patras liggur við mynni Korintufjarðar- ins. Komu flugvélamar í þrem öldum og vörpuðu niður allmiklu af sprengjum. Samkvæmt grísk- um tilkynningum fómst 4 menn, en 17 særðust, en hafnarmann- virki skemmdist nokkuð. Loftárás var einnig gerð á brúna yfir Korintuskurðinn. Skurðurinn skilur suðurhluta Grikklands, Peloponnes-skagann frá meginlandinu. Hann er graf- inn 1893 og aðeins fær smærri skipum. ífölsk hetrskíp ireyna að seffa líð á land í Kotrfu Italir reyndu í gær að setja lið á land á eyjunni Korfu við vest- urströnd Grikklands með aðstoð herskipa. Kom til omstu við grísk herskip og strandvamarvirki eyj- unnar. Saydam, forsætisráðherra Tyrk- lands hélt ræðu í gær á 17 ára af- mæli tyrkneska lýðveldisins. Lagði hann áherzlu á einingu þjóðarinnar, hemaðarstyrkleik og vilja til vamar árásum hvaðan sem þær kæmu. Fundurínn í Fforenz Hitler, von Ribbentrop utanrík- isráðherra Þýzkalands og von Keitel, forseti þýzka herforingja- ráðsins, komu til Florenz á Italíu í gær. Vora þar fyrir Mussolini og Ciano greifi, utanríldsráðherra Itala. Hófst þegar viðræðufundur og stóð í þrjá klukkutíma. Ekkert hefur verið gefið upp um viðræður þessar annað en að fullt samkomulag hafi náðst um öll þau atriði, er rædd hafi verið. Itölsk blöð gefa. í skyn að Mussolini, Hitler, Franco og Laval eða Pétain muni koma saman á ráðstefnu innan skamms. Btrefar víðurkenna að sfórskípínu Empress of Brifaín hafi veríð sökkf Brezka flotamálaráðuneytið hefur nú viðurkennt, að brezka stórskipið „Empress of Britain” hafi farizt af yöldum hemaðarað- gerða Þjóðverja.. Á skipinu voru, 643 menn og hafa 598 þeirra bjargazt. Síðustu dagana hefur verið all mikið um uppsagnir í Breta- vinnunni. Flest mun hefa verið um 1500 manns í þessari vinnu, en nú vinna þar um þúsund manns. Skráðir eru hjá vinnumiðlunar- skrifstofunni 225 menn atvinnu- lausir. Engum þarf að koma á óvart, bó Bretavinnan fari nú að þverra, því ætla má að byggingum þeim, sem 'þeir ætla aði reisa hér um smn, sé nú að mestu lokið. Það er því augljóst mál að búast má við vaxandi atvinnuleysi í bænum, svo að segja með hverjum degi, sem líður, ef ekki verður gripið til sérstakra ráðstafana til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi. Til slikra ráðstafana verður að grípa og liggja 'trl þess tvennskönar rök. Fyrst þau, að verkamenn þola alls enga vinnustöðvun eins Eins og til stóð var Dagsbrún- arfundur haldinn í fyrradag í Iðnó. Stóð hann yfir frá kl. 3—6. Þrátt fyrir það, að fjöldinn allur af verkamönnum var tepptur við vinnu, sótti fundinn töluvert á fjórða hundrað manns. Það vakti strax í fundarbyrjun nokkra athygli, þegar forseti sam- einaðs Alþingis og þjóðstjómar- gæðingurinn Haraldur Guðmunds- son tryggingarstjóri ríkisins, hlassaði sér í formannssætið og flugu fyrir spumingar um hvað nú ætti að tryggja, fæstir höfðu trú á að það mundi vera hagur alþýðunnar. Fyrir fundinum iágu félagsmál, kaupgjaldsmálin, kosning í stjórn- amppástungunefnd og kjörstjóm, Bretavinnan o. fl. Þar sem upplýst var, að sjóð- þurrðarmálið og önnur hnéykslis- mál núverandi félagsstjómar, áttu að takast til umræðu undir fyrsta lið dagskrárinnar, en hins- .vegar upplýst að fundarhúsið var .ekki leyft félaginu til afnota nema í þrjár klukkustundir, bar Jón Rafnsson fram tillögu þess efnis, að þessu mikla hitamáli yrði frest- að þar til ýms aðkallandi mál hefðu verið afgreidd, svo sem kaupgjaldsmálin, kosning nauð- synlegra nefnda, ýms mál, sem biðu óafgreidd frá síðasta fundi o. fl., sem krafðist skjótrai* úrlausn- og nú standa sakir um kaupgjald og dýrtíð, og þar næst þau, að gnótt fjár er nú til í landinu, sem verja ber til atvinnuaukningar, og þar með koma í veg fyrir stór- aukinn fraínfærslukostnað, sveit- ar og bæjarfélaganna, sem at- vinnuleysi hlýtur að hafa í för með sér. Frá hvaða sjónarmiði, sem á mál þessi er litið, verður niður- staðan ein og hin sama, sú, að ríkinu og bæjarfélögunum |ber í sameiningu að tryggja að ekkert atvinnuleysi verði hér til á kom-, andi vetri. HAUSTMARKAÐI KRON verð ur lokað 10. nóv. Sem allra flest ir ættu að nota þetta ágæta tæki- færj til að fá • sér ódýran matar- forða ttl vetrarins. kvæði þessa sjálfsögðu tillögu, lýsti fundarstjóri, Haraldur Guð- mundsson yfir því, að hann mundi sjá um að mál þetta yrði ekki reifað undir þessum lið, svo að af- greiðsla aðkallandi mála tefðist ekld. Létu fundarmenn sér þetta lynda. En það kom brátt í ljós, að hér lágu brögð að baki. Svokallaður formaður félagsins, Sig. Halldórs- son, hóf umræður undir þessum dagskrárlið og dvalidi því nær ein- göngu við sjóðþurrðarmálið. Upp- lýsti hann m. á. að tjónið af þjófn- aði þeirra Einars Björnssonar og Marteins Gíslasonar hefði verið að fullu bætt, en með því skilyrði að ekki yrði höfðað mál á hendur þeim seku. Guðm. ö. Guðmunds- son tók þá til máls, og gaf merkið til atlögunnar á stjómarræfilinn og lagði mikinn hita í ummæli sín Frambald i 4, siÖ». Verkamannafé" lagld Eínín$ín krefsf sameiníng ar verkalýðsíns „Hlif" se$ir upp samn- ingum F'undur í verkakvennafélaginu „Eining” Akureyri, haldinn í bæj- arstjómarsalnum 20. október 1940, samþykkti eftirfarandi á- skoran: „Þar sem viðhorf þeirra tíma, er vér lifum á, em þau alvarleg- ustu, sem íslenzk alþýða hefir nokkm sinni horfzt í augu við, er ástæða fyrir verkalýðinn að gera ráðstafanir til eflingar samtaka sinna og styrktar í baráttu þeirri, sem framundan er. Eitt aðalskilyrði fyrir sigri í baráttunni er eining stéttarinnar. Því skorar fundurinn á stjóm Al- þýðusambands Islands að leggja fyiir næsta Alþýðusambandsþing tillögur, er feli i sér: 1) Að verkalýðsfélögin vérði óháð öllum stjómmálaflokkum. 2) Að verklýðsfélög innan Al- þýðusambandsins og þau, sem em í Landssambandi íslenzkra stéttarfélaga ,verði sameinuð í eitt samband á hreinum stétt- argrundvelli. 3) Að í slíku sambandi verði ríkj- andi fullt skoðanafrelsi, jafn- rétti og lýðræði, svo ekkert geti orðið þvi til fyrirstöðu að öll alþýða og hagsmunafélög hennar geti starfað innan vé- banda þess”. Verkamannafélagið Hlíf i Hafn- arffirði ákvað á fundi sínuin á föstudagskvöld að segja upp samn ingum. ar. I stað þess að bera undir at- Rlhlii oo BMliiui bor oo irooola i0 hir oorði ohherl alolnnoleosl I lotir Brctavínnan er þverrandL um 500 manns hefur veríð sagf upp. Skráðír afvínnufeysín$jar eru 225

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.