Þjóðviljinn - 05.12.1940, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 05.12.1940, Blaðsíða 2
Eúnmtudag’ur 5. desember 1940. D.l 6SV1LJ1NN Sósíalístaflobkurínn hefur þegar á 2. flokksþíngí sínu lýst síg reíðubúínn tíl samvínnu víð öll þau öfl, sem af heiíum hug vílja vínna að sjálfstæðí landsíns En þjóðstjórnarbroddarnír munu eíns og híngað tíl halda áfram að sundra þjóðínní í þágu stríðsgróðramanna í Reykjavík og erlends auðvalds Eiðabamþykktín Á samkomu á Eiðum 1. desember, sem sótt var af um 300 manns, var samþyktó í einu hljóði eftir ýtarlegar umræður ályktun, sem í ihöfuðatriðum fól í sér eftirfarandi: 1. Fundurinn skoraði á þing og stjórn að vinna að því á allan hátt að Island yrði framvegis sjálfstætt ríki, óháð erlendri íhlutun. Ennfremur skoraði fundurinn á alla landsmenn, hvernig sem hag- ir þeirra og skoðanir væru, að leggja þessu máli málanna lið sitt og hefja það yfir flokkadeilur og sundmng. Sérstaklega beinti fundurinn slíkri áskorun til æskunnar og æskulýðsfélaga. 2. Fundurinn skoraði á alla .landsmenn að koma einarðlega fram við setuliðið, forðast jafnt áreitni sem undirlægjuhátt, en sýna þó fullan drengskap og gæta þess' í hvívetna að framkoman sé samboðin þjóð, sem verðskuldi að vera frjáls. 3. Fundurinn skoraði á alla Islendinga, flokka, stéttir og ein- staklinga að beita nú alveg Sérstaklega sem beztum drengskap og sannsýni í öllum viðskiptum sínum innbyrðis. 4. Fundurinn beinir því til ríkisvalds og þjóðarinnar til athug unar, hvort ekki sé þörf á myndun alþjóðarsamtak til að vinna að framgangi þeirra skoðana, sekn í ályktuninni felast. [Ályktun, sem enn hefur því miður ekki fengist orðrétt, er samin af þeim Gunnari Gunnarssyni skáldi, Páli Hermannssyni, Gísla Helgasyni í Skógargerði, Sveini Jónssyni á Egilsstöðum, Birni Hallsyni á Rangá, Skúla Porsteinssyni skólastjóra og Stef- áni Péturssyni í Bóí.] iHðmnuiNH j ÍJtgefandi: Samekningarflakkur aljþýðu — SósíaliHtaflokkurinn. Ritstjórar: Einar Olgdrsaon. Sígfús A. Sigurhjartarson. Ritstjórm: Hverfisgötu 4 (Víkings- prent) súni 22T0. Afgreiðsla og auglýsingaœkrif stofa: Austurstraati 12 (1. ^ hwð) sími 2184. Áskriftargjald á mánuði: Reykjavík og nágrenni kr. 2.50. Annarsstaðar á land- inu kr. 1,75. I lausasölu 10 aura eintakið. Víkingsprent h.f., Hverfisgötu Eíníng uin>> fram allf! Skipulagsbreytingar þær, sem gerðar hafa verið á Alþýðusam- bandinu, eru grundvöllur fyrir ein ingu allra íslenzkra verkalýðsfé- laga, grundvöllur, sem á verður að byggja, þrátt fyrir þær leyfar einræðis, sem enn er þar að finna, þær leifar verða hreinsaðar burt eins og gamlir fúaskúrar af lóð, sem nýtt stórhýsi á að rísa á. Jafnhliða því, að verkalýðsfé- lögin verða að undirbúa hina skipulagslegu einingu heildarsam takanna verða þeru að koma fram sem einn maður í þeirri kaup- gjaldsbaráttu, sem nú er hafin og sem á að verða lokið um ára- mótin. ' Verkalýðsfélögin hafa nú ó- - venjulega gott tækifæri. Samning ar standa fyrir dyrum um land nllt. Þrælalögin, sem bönnuðu verkamönnunum að verðleggja vinnuafl sitt, falla úr gildi um áramótin, og verkamenn verða að halda svo á sínum spilum, að stjórnarvöldin dirfist ekki að setja slík lög aftur. ÖUum má vera ljóst, að eina örugga leiðin að því marki að tryggja að þrælalögin verði ekki endurlífguð, og að meginkröfur \erkamanna, kröfurnar um 8 st. vinnudag og um kauphækkun i fullu samræmi við hina vaxandi ilýrtíð nái fram að ganga, er að valdhafarnir viti, að verkalýðs hreyfingin á Islandi er vald, sem taka verður tillit til, slíkt vald er verklýðshreyfingin, ef hún er sameinuð, slikt vald er verka- lýðshreyfingin ekki ef hún er sjálfri sér sundurþykk. Þetta er engum ljósara en yfir stéttinni, og öll hennar afstaða til verkalýðsmálanna miðar því, í smáu sem stóru að því að hindra einingu verkalýðssamtak- anna einmitt nú, þegar mest á ríður. Þegar skipulagsbreytingarnar á Alþýðusambandinu voru gerðar, á Alþýðusambandsþinginu, var að yfirlöigðu ráði byrjað á að skipa sambandinu stjórn, á þann hátt, að ekki gat samrýníst hin- um nýja grundvelli. Af þessu hlaut í senn að leiða óánægju meðal verkamahna, og að leið- ' ogaH Sjálfstæðisflokksins fengju tækifæri til að hlaupa frá sínum stóru orðum, um sameiningu \ erklýðsfélaganna í einu alls- herjarsambandi. Hvorttveggja Samþykkt sú, sem gerð var á Eiðum 1. des. og birt er í blað- inu í dag, er mjög eftirtektar- vert tímanna tákn. Samþykkt þessi sannar hvernig fólkið sjálft gerir kröfur um að þjóðin öll sameinist um að afla sér frelsis og skorar á flokksforingjana að láta þetta sjónarmið sitja í fyrir- rúmi fyrir öllum öðrum. Að þessari samþykkt standa tvímælalaust menn úr öllum flokkum og stéttum, menn, sem finna til þess, hvílík hætta er á ferðum, ef þjóðin er sundruð i þeim átökum, sem nú eru fram undan. Þeir heimta einingu, ,ein- ingu umfram allt. Á hverju strandar nú þessi krafa fólksins sjálfs um einingu, — óskir og draumar hinnar vým andi íslenzku þjóðar um að hún megi öll standa sem einn maður gegn frelsisskerðingunni ,og í bar áttunni fyrir að vinna frelsið á ný?. ' Þessi eining strandar á því, að í Reykjavík sitja nokkrir pólitísk ir braskarar, sem halda stjórnar- flokkunum þremur í helgreipum sínum, og skoða það, sem helzta hlutverk sitt að kljúfa þjóðina í tvennt: þjóðstjórnarliðið annars- vegar og skuli heldri menn þess hljóta hverskonar hnossgæti, sem völdum og auð fylgja, — en ut-' angarðsmenn hinsvegar, en svo nefna þeir áhangendur sósíalism- ans, og þeir skulu ofsóttir og sviptir mannréttindum, svo sem þjóðstjórnarliðið frekast treystir sér til. Shk klofning þjóðarinnar, sem með þessu er framkvæmd, girðir vitanlega fyrir alla einingu í þjóð- málum. Og það þarf ekki lengi að leita til að finna orsakir til þess að klofningsmenn þjóðar- innar skuli hafa þessa afstöðu. Þær eru þessar: þetta mun tefja baráttu sósíalist anna fyrir einingu verkalýðsfélag anna innan Alþýðusambandsims, en vonandi ekki svo mikið að tjón verði að. Starfsaðferð afturhalds og at- vinnurekenda er þó enn eftirfekt- arverðari innan Dagsbrúnar. Þeg- ar ljóst var orðið, að verkamenn í Dagsbrún mundu sem einn mað ur fylkja sér um að hvergi yrði hopað frá þeim grundvellí i k!aúp gjaldsmálunum, sem lagðar eru í samningsuppkasti því, er samn inganefnd hefur gert, koma stjórn málaflokkar atvinnurekenda því til leiðar, að kallaður er saman fundur í hinu óstaffhæfa trúnað- arráði Dagsbrúnar, til þes:s að reka aðalforustumann einingar- stefnunnar ínnan félagsins, Jón Rafnsson, úr félaginu. Með þessu hyggjast þeir geta vakið deilur innan félagsins, er geri fféim bægara um vik, að ráða 1. Þessir yfirmenn þjóðstjórnar flokkanna (svo sem Ólafur Thors, Jónas Jónsson og St. Jóh. Stef- ánsson) eru fulltrúar fyrir hags- muni mjög fámennra sérréttinda stétta í Reykjavík (togaraeig- enda og hálaunamanna), sem ótt- ast um sérréttindi sín sakir kraf- anna, sem alþýða landsins nú gerir til sómasamlegs lífs og túlk aðar eru í sósíalismanum. Þeir óttast því þessar lífskröfur al- þýðunnar meira en allt annað og hata því formælendur sósíalism- ans meir en t. d. nokkurt erlent innrásarhervald. 2. Þessir yfirmenn þjóðstjórnar flokkanna standa í nánara sam- bandi við erlent auðvald og þá sérstaklega enskt, en við vinnandi stéttir lands vors sjálfar og hafa á úrslitaaugnablikum sýnt að { niðurlögum verkamanna í kaup- gjaldsmálunum. Þetta má ekki takast. Verkamenn verða að gera sér Ijóst, að þeir 40 menn í trúnað- arráði, sem flokkar þessir fengu til að rétta upp hendurnar með þessu fáránlega rekstrarmáli, hafa gert það af barnalegri einfeldni og þægð við stjórnmálaleiðtog- ana. Margir þessaro manna voru beinlínis sóttir heim til sín til þess að greiða atkvæði. Vænt anlega sýna verkamenn þann þroska, að þessir 40 fái enga stuðningsmenn, þegar á fund kemur, og skemmtilegast væri, að þeir yrðu þá búnir að losa sig undan áhrifavaldi atvinnurekenda og farnir að skilja. að Dagsbrún hefur nú annað þarfara að gera én að reka verkamenn úr félag- inu. Munið það, verkamenn, að nú er það eining umfram allt, er berjast verður fyrir. þeir beygja sig fyrir fyrirmælum hins erlenda valds frekar en á- kvörðunum kjósenda landsins. Þeim er jafnvel erlendur innrás- arher kærkominn bandamaður gegn íslenzkri alþýðu, ef þeim byði svo við að horfa, enda hafa þeir hlýleg mök við foringja hins erlenda innrásiarhers á sama tima, sem þeir ofsækja íslenzka verkamenn og fulltrúa þeirra. 3. Yfirmenn þjóðstjórnarflokk- anna þurfa einnig á tvístringi þjóðarinnar- að halda, til að getá leikið áfram þann skollaleik, sem þeir nú leika. Flokkaskipun þeirra er mestmegnis orðin til þess eins að blekkja fólkið á víxl til fylgís við yfirstétt Reykjavikur undir mismunandi forsendum, auk þess sem þeir keppast um það innbyrðis að rægja hvern annan við yfir- völd innrásarhersins til að koma sjálfum sér sem mest í mjúkinn hjá þeim. Það er því augljóst mál, að með slíkri forustu þjóðstjórnar- fíokkanna er engrar einingar að vænta. Þessir pólitisku braskarar lifa á sundrung þjóðarinnar og það eina, sem þeir eru fullkom- lega sammála um er að viðhalda henni. Sósíalistaflokkurinn lýsti því yf ir á 2. flokksþingi sínu að hann væri „reiðubúinn til samstarfs við öll þau samtök og alla þá ein- staklinga meðal þjóðarinnar, er með honum vilja vinna" að þeim aðgerðum, sem að hans áliti eru nauðsynlegar til að koma á „frjálsu samstarfi íslenzku þjóð- arinnar fyrir sjálfstæði sínu og almennum framförum". Sósialistaflokkurinn sýndi það 10. apríl að ekki stóð á honum að skapa alger einingu þjóðar- innar á hættustund. En hvað kom þá í Ijós á eftir? Það kom í Ijós að þjóðstjórnarbroddarnir höfðu haft hið svívirðilegasita laumuspil í frammi, höfðu leynt Alþingi þeirra hættu, sem yfir þjóðinni vofði, hertökunni, og því ekkert gert til að reyna að afstýra henni. Þannig var beinlínis svikist að þjóðinni af þeim, sem hún fól vernd sinna æðstu gæða. Skoðun Sósialistaflokksins um að engin þjóðleg eining sé hu,gs- anleg með þjóðstjórnarbroddun- um er ]jví byggð á rökum og reynzlu og þessir broddar munu sem fyrr sýna það nú næstu dagana að þeir vilja enga þjóð- lega einingu, að hatur þeirra á sósíalistum og róttækri alþýðu þessa lands yfirgnæfir alla ásl þeirra á ættjörðinni, sem þeir tala svo fagurlega um. En þjóðleg eining allra Islend ingaerjafn nauðsynleg fyrir það. Samþykkt Eiðafundarins er hvað stefgu hennar snertir jafn rétt- mæt fyrir það. Vilji Sósíalista- flokksins til samvinnu við öll þau öfl meðal þjóðarinnar, sem af heilum hug vilja heyja baráttuna fyrir sjálfstæði hennar stendur jafn óhaggaður fyrir það. Það er rödd lýðsins, sem talar í Eiðasamþykktinni. Það er rödd bændanna, verkamannrmna og menntamannanna úr þeim fjórð- ungi landsins, sem síðastur beygði sig undir erlent ok, er Islendingar glötuðu frelsinu fyrir tæpum 700 árum. Sósíalistaflokkurinn fagnar þess ari rödd og hann er reiðubúinn til þeirrar þjóðlegu einingar, sem Eiðasamþykktin óskar eftir. En Sósíalistaflokkurinn telur það um leið skyldu sína að benda hik- laust og djarft á það, hvaðan hættan stafar fyrir þá þjóðlegu einingu, sem skapa á. Það voru hinir ríku og voldugu höfðingjar, sem tortýmdu sjálfstæði Islands forðum daga, og frá sporgöngu- mönnum þeirra stafar hættan enn. Vér getum gert oss i hugarlund hve heitt þeir Gissur Þorvalds- son, Sturla Sighvatsson eða Þor- gils skarði hefðu hatað þá fátæku bændur og húskarla þeirra tima, sem eflt hefðu flokk gegn þeim höfðingjunum, til að svifta þá vöildum alla sem einn og skapa þjóðveldi frjálsrar bændaalþýðu á íslandi þess tíma, ef það hefði verið mögulegt. Þá skiljum vér og hatur sérréttindastéttarinnar í Reykjavík til róttækrar alþýðu. enda er það sama eðlis og af- staða sú, er fékk frönsku yfir- stéttina til að kjósa heldur tor- týmingu föðurlandsins í höndum Hitlers, en að eiga það á hættu, að franska alþýðan skapaði frjálst Frakkland vinnandi stéttanna. Þjóðleg eining Islendinga á 19. öld undir forustu Jóns Sigurðs- sonar var sköpuð i harðvítugri Framh. á 3. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.