Þjóðviljinn - 18.12.1940, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.12.1940, Blaðsíða 1
MaFalMagrett í Dagshrúa ggi Digggsloan, DiODsaaihagdifl og bFOiirehstraga Atkvæðagareiðsla þessi er þarflaus en er látín fara fram af því sfjórnín þorír ekki að halda félagsfund Verkamenn! Heímílíð vinnusfððvun um áramótín en láfíð ekki reka Jón Rafnsson og Sveín Sveínsson! r af ,öla GarDa‘ furip aðfinisluniar Þanníg svaira Skjaldborgarbroddarnír kröfum sjómanna um öryggí Grein sú, er 2. vélstjóri á “Óla Garða”, Sveinbjörn Erl- ingsson, sendi til allra dagblaðanna samtímis, en birt var eingöngu í Þjóðviljanum, hefur vakið mjög mikla eftirtekt. Eigendur “Óla Garða”, stríðsgróðamenn Skjaldborgarinn ar í Hafnarfirði, svöruðu aðfinnslum vélstjórans á þann hátt að verða aðeins að nokkru leyti við þeim kröfum hans, að bæta úr því, sem ábótavant var, en láta hann fara af skipinu. Daginn eftir komst Sveinbjörn hinsvegar að sem fyrsti vélstjóri á öðrum togara. Vopn atvinnukúgunarinnar bítur nú illa í höndum Skjaldborgarinnar. Stjórn Dagsbrúnar hefur ákveðið að láta fara fram alls herjaratkvæðagreiðslu innan félagsins, næstkomandi föstu- dag, laugardag og sunnudag. Þrjár spurningar verða lagð- ar fyrir félagsmenn: 1) Hvort félagsmenn vilji heimila stjórninni aó' 'hefja vinnustöðvun 1. jan. 1941 ef samningar um kaup og kjör verkamanna nást ekki fyrir 23. þ. m. Við þessari spurningu hlýtur hver einasti verkamaður að segja JÁ. 2) Hvort félagsmenn vilji ákveða að Dagsbrún gangi ekki 1 Alþýðusambandið fyrr en kosið veröi á Alþýöusam bandsþing samkvæmt hinum nýju lögum. Slík ákvörðun er ástæðulaus með öllu, það er sjálfsagt fyrir Dagsbrún að hafa óbundnar hendur með að ganga inn í sambandið hvenær sem félaginu hentar. Og er því rétt að segja NEí við þessari spurningu. 3) Hvort reka skuli Jón Rafnsson og Svein Sveinsson úr félaginu. Það er af ótta við að leggja þessa spurningu fyrir félags fund, að stofnað er til þessarar allsherjaratkvæðagreiðslu. Hver einasti heiðarlegur Dagsbrúnarmaður segir NEI við þessari spurningu. Hvetrs vegoa aíkvæða~ greíösla ? Það er rétt og sjálfsagt, að stjórn Dagsbrúnar leiti heim- ildar félagsins til þess að hefja vinnustöðvun um áramótin, ef samningar takast ekki í tæka tíð, og þaö er jafnsjálfsagt aö hver einasti verkamaöur sam- þykki að veita henni slíka heimild. Það .er hinsvegar firn mikil og fádæmi, að slíkrar heimildar skuli vera ieitað án þess að ræða fyrst á félags- fundi samningsgrundvöllinn, þannig að skýrt geti komiö fram hver þau atriði eru, sem Dagsbrúnarmenn vil j a 4 undir engum kringumstæðum þoka frá. Þegar verklýðsfélögin gefa stjórn sinni heimild til vinnu- stöövunar, er það sjálfsögð og ófrávíkjanleg regla, að þau geri sér áður ljóst um hvaöa meginatriði ágreiningurinn snúist. En hverjir kunna að halda, að vinnustöðvun þurfi að sam- þykkjast með allsherjarat- kvæðagreiðslu svo lögmæt sé? Samkvæmt vinnulöggjölfinni getur trúnaðarmannaráð lýst yfir vinnustöövun, ef % með- lima þess samþykkja, og því er í lögum hlutaðeigantíi félagi gefið slíkt vald. Samkvæmt þessu hefur trúnaðarmanna- ráð Dagsbrúnar, sem skipaö er 9 mönnum, rétt og vald til þess að ákveða vinnustöðvun. Eðlilegur gangur þessa máls hefði því verið sá, að ræða samningsgrundvöllinn á félags fundi, og að sá fundur hefði síðan falið trúnaðarmannaráði að lýsa yfir vinnustöðvun í tæka tíð, ef vissar kröfur, sem fundurinn samþykkti næöu ekki fram að ganga með frið- samlegum samningum. Því fór ekki stjórnin þessa sjálfsögðu leið? Þessari spurningu verður ekki svarað nema á einn veg. Stjómin þorir ekki að halda félagsfund, en býr sér til tilefni til að láta fara fram allsherj- aratkvæðagreiðslu í þeirri von, að telja megi nógu mörgum verkamönnum, sem ekki voru á síðasta Dagsbrúnarfundi, trú um, að Jón Rafnsson og Sveinn Sveinsson hafi gerzt sekir um óspektir á fundi þeim ef verða mætti til þess, að stað fest yrði hin hneykslanlega framkoma hins ólögmæta trún aðarráðs í garð þessara manna Afsfaðan tíl Alþýðusam- bandsíns Sennilega heftsir aldrei verið lögð fáránlegri og vitlausari spurning fyrir nokkurt verkalýðs- félag, en spurning sú, sem stjórn Dagsbrúnar leggur fyrir við pessa allsherjaratkvæðagreiðslu varð- andi afstöðu félagsins til Alþýðu- sambandsins. Það er augljóst mál, að allir sem unna einingu verkalýðssam- takanna, hljóta að óska eftir því, að Dagsbrún gerist sem fyrst að- ili að hinu endurskipulagða Al- þýðusambandi, þrátt fyrir þær leifar einræðisins, sem samband- ið enn dregst með. Þegar Dags- brún gengur í Alþýðusambandið fær hún fulltrúa í fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík, og þar með mikil áhrif á starf heildarsamtaka verkalýðsfélag- ianna í Reykjavik. Einnig er vert að benda á, að þó stjórn Alþýðu- sambandsins sé slærn, er hægt að vænta þess að þróttmikil verkalýðsfélög geti knúð hana til heiðarlegra starfa við og við. Aftur á móti er sjálfsagt fyrir Dagsbrún að krefjast þess, áður en hún gengur inn í Alþýðusam- bandið, að unnið verði að því af heilum hug, af hálfu sambands- stjórnar að allur klofningur inn- an verkalýðssamtakanna verði þurrkaður út, að verkalýðsfélög- in t.d. á Akureyri og í Vestmanna eyjum verði sameinuð og starfi innan Alþýðusambandsins, og eng ir verkamenn hlutaðeigandi starfs greina verði útilokaðir frá þeim. Að gera samþykkt og þar með allsherjaratkvæðagreiðslu um að félagið skuli vera utan Alþýðiu- sambandsins, „þar til kosiðverði sambandsþing samkvæmt hinum nýju lögum“, er í senn ástæðu- laust, vitlaust, og er ótrúlegt að stjórnin fái marga verkamenn til að segja já við slikri firru. Adalafríðíd Eins oig þegar hefur verið sýnt fram á, er stofnað til þessarar atkvæðagreiðslu til þess að reyna Prh. á 4. síðu. Alþýðublaðið hefur viðtal við stríðsgróðamennina í Hafnarfirði og eru þeir að reyna að bera í bætifláka fyrir sig hvað frágang björgunarbátanna snertir með því að segjast hafa borgað 440 kr. viðgerðarreikning á þeim íágúst! — En því hefur Alþýðublaðið ekki viðtal við sjómennina á „óla Garða“ um öryggisútbúnaðinn ? En ætli það að fá þá til að segja sannleikann væri bezt fyrir þá að láta þeim fyrs,t í té vottorð um að þeir verði ekki reknir fyrir að segja satt. — En það er ekki líklegt að málgagn hafnfirzku togaraeigendanna kæri sig um að fá fram álit sjómanna í blaði sínu. Sófeo brczha hersíns ínn i Libýu heldur áfram liafa Gríkkír tebíð borgína Tepelíno? í hernaðartilkynningum Breta í gær er skýrt frá töku borgarinnar Sollum og virkisins Fort Kapuzzo, og áfram- haldandi sókn inn í Líbýu. Eftir fregnum þessum að dæma vhðist ítölum ekki hafa tekizt aö síööva sólm Breta við landamæri Líbýu, en þar voru fyrir hendi öflug varnarvirki þegar í stríðsbyrjun. Brezkar flugvélar vörpuðu sprengjum á alla flugvelli ítala milli Bardia og Tobruk í gær, og tóku flugvélar einn ig þátt í bardögum þeim er stóðu yfir í gær í nánd við Bardia. í hernaðartilkynningu Itala 1 gær var það ekki viðurkennt að Sollum og Fort Kapuzzo væru fallin, en aðeins sagt að harðir bardagar stæðu yfir við landamæri Líbýu. Bretar telja að fimm af sex orustuskipum ítala muni nú stórskemmd. Þrjú þeirra hafi orðið fyrir alvarlegum skemmd um í loftorustunni í Taronto og tvö muni hafa skemmzt í loftárásinni á Neapel nú um helgina. Athygli er vakin á því í Lon- don, að ítalski flotinn hafi eng ar tilraunir gert til aö hindra aögerðir brezka flotans úti fyr- ir ströndum Egyptalands og Líbýu, nema lítillega um síð- ustu helgi er kafbátur og litl- ir tundurskeytabátar voru sendir gegn herskipum Breta án þess að nokkur árangur yrði af. Brezki flotinn hefur þó unnið her Grazianis á ströndinni mikinn skaða, og verið brezka landhernum dýr- mæt hjálp í sókninni. Lausafregnir frá Júgóslavíu í gær herma að gríski herinn hafi tekið albönsku borgina Tepelina. í hernaðartilkynn- ingu Grikkja var sagt, að gríski herinn héldi áfram sókn inni, en áköf snjókoma hindr- aði mjög hernaðaraðgerðir. Vínáft^ sáff- máli Ungverja og jiígóslava 1 försinni til Belgrad undirrit- aði Czaky greifi, utanríkisráð- herra Ungverjalands, vináttusátt- mála milli stjórna Ungverjalands og Júgóslavíu. I ^samningi þessum skuldbinda bæði ríkin si,g til þess að leita friðsamlegrar lausnar á öllurn ágreiningsmálum, er upp kunni að koma, og samningurinn gerir ennfremur ráð fyrir náinni stjórnmálasamvinnu ríkjanna. Framhald á 4. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.