Þjóðviljinn - 18.12.1940, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 18.12.1940, Blaðsíða 4
Nœturlœknir í nótt: Karl S. Jónasson, Sóleyjargötu 13, síml 3925. Næturvördur er þessi viku í Ingólfs- og Laugiavegsapótekum. Útvar/MÖ í dag\■ 12,00 Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 19,25 Hljómleikar: Lög úr óper- um. 19.50 Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20.30 Kvöldvaka: Um Sighvat Grímsson Borgfirðing. Aldar- minning, Kristinin Guðlaugsson bóndi — J. Eyþ. 20,55 Otvarpshljómsveitin leik- ur. 21,00 Árni Óla blaðam.: Einbúi í Krýsuvík. Frásaga. 21,25 Friðfinnur Guðjónsson: „Leidd í kirkju“, smásaga eftir Þorgils Gjallanda. Upplestur. Otvarpshljómsveitin leikur. 21.50 Fréttir. Dagskrárlok. Specjillinn kemur út á morgun, og óskar eftir söludrengjum. Sjá auglýsingu. Skrifstofa Mœdrastijrksnefndar fer í pingholtsstræti 18, sími4349. Þangað eru peir, sem eitthvað vilja láta af hendi rakna til styrktar niæðrum og börnum fyr dr jólin, vinsamlegast beðnir að beina gjöfum sinum. Skrifstofan er opin daglega kl. 4—6 e. h. Gjafir til Mœdrastijrksnefndar. Ónefndur 20,00. Gógó 10,00. Frá skrifstofu ríkisféhirðis 15,00- Guð rún Sæmundsdóttir, Túngötu 30 10,00. D. 5,00. H. G. 5,00. N. N. 2,00. Svava Þórhallsdóttir 10,00. Ingibjörg 5,00. H. Ólafsson & Bernhöft 100,00. Ragnhildur Sig- urðard. 5,00. N. N. 5,00. Starfs- fólk Landsímans 70,00. í. 10,00. M. Þ. 1 0,00. K. Á. 10,00. Frá D. 1 böggull, A. A. Do. Frú V. S. Fatnaður. Saumaklúbb ur danskra kvenna í Reykjavík, barnafatnaður. Lovísa Wendel, fatnaður. Kærar pakkir. Nefndin. Yínáttusáttmálí llngverja og lúgó- slava Framhald af 1. síðu. Samningsgerð þessari hefur ver ið misjafnlega tekið. 1 Þýzkalandi og ítaliu er litið á hana sem stað- festingu þess, að Júgóslavía nálg ist óðum stefnu Möndulveldanna, en Ungverjaland er sem kunn- ugt er aðili að „þríveldasáttmála" Þýzkalands, ítalíu og Japans. — Hinsvegar telja ýms brezk blöð að 'samningurinn hafi eruga breyt- ingu í för með sér á afstöðu Ungverja og Júgóslava til Mönd-' ulveldanna. Kveðjuathöfn Guðmundar Páls Guðmundssonar frá Siglufirði, er lézt í Landakotsspítala 15. þ. mán. fer fram frá spítalanum í dag kl. 5 síðd. — Líkið verður flutt norður til greftrunar. Fyrir hönd vandamanna. Nokkrír vínír. Verkamannafélagíð Dagsbrún. Tilkynning. Samkvæmt ákvörðun stjómar félagsins fer fram allsherj aratkvæSagreiðsla meðal félagsmanna um 3 tillögur er stjórn in hefur áður auglýst. Atkvæðagreiðslan stendur yfir föstudaginn 20. þ. m. og laugardaginn 21. þ. m. frá kl. 10 f. h. til kl. 10 e. h. og sunnudaginn 22. þ. m. frá kl. 10 f. h. til kl. 11 e. h. og verð- ur þá atkvæðagreiðslunnihætt. ATHUGIÐ: Þeir einir hafa atkvæðisrétt, sem eru fullgildir meðlimir þegar atkvæðagreiös lan hefst. Kjörskráin liggur frammi á skrifstofu félagsins miðviku daginn 18. og fimmtudaginn 19. þ. m. frá kl. 1—7 e. m. Kjörstjórnin. 0-00000000000000000000000000000000000 Dagstminarmálín Framhald af 1. síðu. að fá staðfestingu á hinni gjör- ræðilegu samþykkt hins ólög- mæta trúnaðarráðs, um að reka Jón Rafnsson og Svein Sveins- son úr Dagsbrún. En til þessa reksírar var grip- ið þegar félagsfundur hafði kos- ið Jón Rafnsson til þess. ásamt liffilsun og MOfnaOir i lanOs- OanKonnni Einn starfsmanna Landsbank - ans, Sigurðar Sigurðsson, hefur játað á sig víxilfölsun og þjófn- (iði í sambandi við fölsunina, og var hann úrskurðaður í gæzliu- varðhald í fyrradag. Hefuur Sigurður játað að hafa tekið 8000 krónur af fé bankans með vixilfölsunum. Sigurður falsaði fimm víxla, að upphæð 1200 kr., tvo á 1500 kr. 1800 kr. og 2000 kr. Falsaði Sig- urður öll nöfnin á víxlana, upp- hæðirnar og samþykki banka- stjóranna. Hann vann í víxla- deildinni og var því vel kunn- ugt um alla starfsháttu. -Gat hann því fylgzt með víxlunum, og falsaði einnig bækur bankans til að ekki kæmist upp um svikin. Var það lítilshcittar yfirsjón að kenna að fölsunin komst nú upp. Þegar bankaþjófnaðirnir kom- ust upp fyrir nokkrum árum féll grunur á Sigurð og var hann þá í gæzluvarðhaldi um tíma. En ekkert sannaðist á hann og fékk hann að halda starfi sínu í biajnk- anum. tveimur .öðrum mönnum, að gera tillögur um hvernig stjórn félags ins skyldi skipuð næsta ár, því auðvitað óttaðist stjórnin eining- arstefna Sósíalistaflokksins, ætti i Jóni s terkari talsmann, en hent- ar sundrungarstarfsemi erindreka atvinnurekenda innan Dagsbrún ar. Sveinn Sveinsson var svto lát- inn fylgja með, hann er Sjálf- stæðismaður, og ætti það að fá ókunnuga til að halda að rekstr- armál þetta væri ekki pólitískt. Síðan er því blátt áfram log- dð upp á þessa tvo menn að þeir hafi verið „valdir að óeirðum á Dagsbrúnarfundi 10. nóv. 1940“. Auðvitað er gagnslaust að halda þessari lygi fram á félags- fundi, því þar mundu mæta að mestu sömu menn og 10. nóv. Þeasvegna á nú að leita til þeirra hundraða verkamanna, sem ekki voru á þessum fundi og reyna að fá þá til þess að trúa lyg- inni, og samþykkja gjörræðið. Vcfhamenn úir öllum sijórnmálaffokkum sameínízf! Þið verkamenn eigið nú vegna hagsmuna ykkar, vegna stéttar ykkar, að koma fram sem einn maður við þessa alls- herjaratkvæðagreiðslu. Ykkur ber öllu mað segja já við fyrstu spurningunni en nei við þeirri þriðju. Minnstu máli skiptir um hið fáránlega bull, sem fram er sett í annarri spumingunni, en skömm væri það fyrir Dagsbrún, að sam- þykkja svo fáránlega tillögu, þessvegna segið þið nei við henni. 85 uðurhaís- œvintyri Skáldsaga eítir MarkCaywood leitað sér skjóls eða fallið í ómegin. Hún hefði þá ekki verið í eins mikilli hættu á meðan bardaginn stóð yflr. Ég gat ekki stillt mig um að láta í ljós ánægju mína yfir þessari hugprýði með því að hrópa: Húrra! Á meðan ég hlóð riff- ilinn miðaði ég og skaut í sífellu, þá var ég ekki að hugsa um árásarmennina frá Kilowa, heldur hvarflaði hugurinn ti! þess. þegar Virginía miðaði skammbyssunni á mig, sælkr minningar, og særði mig á síðunni. Ég sá fyrir mér eins greinilega og þá þessa ákveðnu, hörkulegu drætti í kringum munninn. Nú var skotbúrið tómt. Ég stakk nýj- um r-enningi í riffilinn og hugsaði ekki um annað en hvaða örlög biði, ef þessir öskrandi villimenn bæru hærri hiut i \ iðureigninni. Það för strax heldur að draga af þeim, er við höfðum tæmt alla rifflana. Það kom sér líka, því þar sem ég hafði búizt við nokkrum hermönnum, var svo að sjá sem hvert mannsbarn i Kilowa tæki þátt í aðförinni. (Da Silva hef- ur sannarlega ekki ætlað að láta okkur ganga sér úr greip- um). Til allrar hamingju sóttu þeir ekki mjög fast að okkur. Þetta var barnaleikur samanborið viö það, sem ég haföi komizt í endur fyrir löngu, þegar þeir ætluðu að drepa mig. Þeir voru ekki eins ofstækisfullir nú. Her- mennska þeirra verður að iengu, ef ekki kiemur á þá ber- serksgangur. Nú voru þeir aðeins að berjast fyrir hvítan mann og áhuginn var heldur lítill. Það hefði verið öðru máli a ð gegna, ef þeirn hefði verið heitið því að fá okkur til að fórna hinum grimmu goðum þeirra þremur hvítum mönnurn. Þá hefði verið fyrir mat að róa. Nú voru það einungis hinir mestu fúllhugar þeirra, sem hættu sér ná- lægt okkur, >og þeir voru miskunnarlaust skotnir niður. Flestir hinna höfðu hörfað til baka inn í skógarkjamð, þegaf er skothríðin hófst. Að stuttri stundu liðinni hurfu þeir oy vigöskrin hljóðnuðu. Ekkert rauf kyrrð næturinnar. Við tókum til fótanna. Ég greip um Virgimu. Hún titr- aði, en var ósærð með öllu. Við brutumst þegjandi áfram í sandinum. Það var varpað að okkur einu eða tveiinur spjótum, þegar við fórum út á flekann, en sá sem kast- aði hætti sér ekki svo nærri okkur, að hann gæti dregið alla leið. Brátt náðurn við snekkjunni og var okkur tafar- laust hjálpað um borð. Guði sé lof. áð við erum þó komin hingað, varð mér að orði. Dragið þið flekann upp. Allir viðbúnir, skipaði Þ,að gladdi miig, að þeir, sem um borð voru, höfðu brugðiö skjótt við og losað festar, þegar þeir heyrðu skot- hríðina, vélarnar voru í igangi. Ég hraðaði mér inn í stýr- ishúsið og hringdi niöur í vélarrúmið. (Við höfðum eytt svo miklum dýrmætum tíma á leiðinni til skips). Það kom skriöur á snekkjunna. Trjágreinar, sem héngu út yfir sjó- inn strukust við skipið. Nú, eða aldrei, Jinirny minn Buucanan, tautaði ég. Virginía stóð hjá mér, föl og þreytuleg, eftir ævintýrið á ströndinni, en nú hló hún. Mér þótti vænt um það og hló líka. Mér hefur létt svo mikið, mælti hún. Vegna fréttanna af bróður þínum? spurði ég. Húri kinkaði kolli. Ég sagði ekkert, því að allt í einu tók snekkjan niðri. Ég varð að hafa allan hugann við að stýra snekkjunni út víkina og flóann, ella yrðum viö hér að eilífu. Við höfðum einu sinni kennt grunns á leiðinni inn vík- ina um nóttina, þegar við fundum þetta hæli, en nú tók skipið niðri sex sinnum eða oftar á útleiðinni. Ég flýtti för sem mest mátti verða tii að komast út úr lóninu áður en tunglið kærni :upp. Gæfan var okkur hliðhioll og bessir árekstrar gerðu isnekkjunni lítið til. Hún skalf aðeins og nötraði á meðan á þeim stóð. Nú vorum við kontin út úr víkinni og út á flóann. Ég drö andann léttar. Ég tók stefnu beint á sundið og lét einn hásetann taka við stýrinu. Sjálf- ur igekk ég fram og aftur um skipið og skýrði fyrir mönn- um hvaða afleiðingar það gæti haft, ef kveikt væri. Ijós,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.