Þjóðviljinn - 21.11.1942, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.11.1942, Blaðsíða 1
7. árgangur. Laugardagur 21. nóv. 1942. 175. tölublað. Alþýðusambandsþíngínu lokið Guðgeír Ic nsson bostnn forseti Alþýdusambandsíns, Stefán 0$mundsson varaforsetí og Björn Bjarnason rítarí Alþýðusambandsþingið lauk störfum kl. 2 í nótt, og höfðu fundir þá staðið nær óslitið frá kl. 10 í gærmorgun. í þinglok var kosin stjórn Alþýðusambandsins til næstu tveggja ára og er hún þannig skipuð: MIÐSTJÓRN ÚR REYKJAVÍK OG IIAFNARFIRÐI : FORSETI: GUÐGEIR JÓNSSON, fonn. Bókbindarafél. Rvíkur. VARAFORSETI: STEFÁN ÖGMUNDSSON, prentari. RITARI: BJÖRN BJARNASON, formaður Iðju. MEÐSTJÓRNENDUR: Sigurður Guðnason, íormaður Dags- brúnar, Þorvaldur Brynjólfsson, járnsmiður, Jón Rafnsson, verkamaður, Sæmundur Ólafsson, Hermann Guðmundsson, for- maður Hlífar og Þórarinn Kr. Guðmundsson, Hafnarfirði. Frumvarpstillaga um breytingar i áfengislBgunum Verla alMgMlur un Fjórir þingmenn, Sigfús Sigurhjartarson, Finnur Jónsson og Ingólfur Jónsson hafa lagt fram í neðri deild Alþingis frum- varp til laga, sem heimilar að fram fari atkvæðagreiðslur kosn- ingabærra manna í þeim kaupstöðum þar sem áfcngisútsölur eru, um hvort þær skuli halda áfram eða ekki. Frumvarpið ásamt greinargerð fer hér á eftir. 3. þing Sósíalista- flokksins verður sett kl. 4 í dag í Kaup- þingsalnum Þriðja þing Sósíalista- flokksins vérður sett í dag kl. 4 í Kaupþingssalnum. Klukkan átta í kvöld hefj- ast umræður um skýrslu mið- stjórnar og stjórnmálavið- horfið. Félagar í Sósialistaflokkn- um liafa aðgang að þinginu ef þeir ha(a gild flokksskýr- teini. InliiieoD taha leuasl Bardagar i Túnís Bengasi, þýðingarmesta haín- arborgin í austurhluta Líbíu, er á valdi Bandamanna. Þýzka herstjórnin tilkynnti um miðjan dag í gær, að þýzki og ítalski herinn hafi yfirgefið Bengasi, en áður hafði verið til- kynnt frá Kairo, að áttundi brezki íierinn sækti fram í átt til borgarinnar bæði að norðan og sunnan. Ísvestía, aðalblað sovétstjóm- arinnar, segir í ritstjómargrein í gær að sigur rauða hersins f Kákasus sé aðeins byrjunin. Sovétherinn sé reiðubúinn að greiða innrásarherjunum þung högg. Fregnirnar frá Ordsonik- idse væru merki til sovéthers- ins á öðmm vígstöðvum um að- gerðir. Við munum ekki láta naz istaherina í friði nokkra stund í vetur.“ Enskir herfræðingar láta það álit í ljós, að sókn rauða hersins í Kákasus muni aðeins vera und anfari annarra meiri tíðinda. Varamenn: Þorsteinn Pétursson, Jón Sig- Þjóðverjar hafa búizt til varn ar 48 km. suðvestur af flotahöfn inni Bizerta í Túnis. í gær sló í bardaga milli sókn- arhers Bandamanna í Túnis og þýzkrar skriðdrekasveitar. Var þriðjungur þýzku skriðdrek- anna eyðilagður en hinir hrakt- ir á flótta. Þjóðverjar hafa undanfarið skýrt frá hörðum bardögum á Volkoffvígstöðvunum, og er nú .einnig farið að segja frá þeim í fregnum frá Moskva. í þeim er sagt, að í bardögum á þessum slóðum hafi fallið 3000 þýzkir hermenn síðustu vikurnar. Þjóðveyjar eru nú einnig farn- ir að segja frá bardögum í Kare- líu. í Stokkhólmsfregnum segir að Finnar séu mjög kvíðnir vegna hættunnar á því að Þjóð- verjar flytji her frá austurvíg- stöðvunum, vegna sóknar Framhald á 4. síðu. urðsson, Eggert Þorbjarnarson og Ágúst Pétursson. í sambandsstjórn utan Reykja víkur og Hafnarfjarðar: Fyrir Vestfirðingafjórðung: Árni Magnússon, ísafirði og Finnur Jónsson. ísafirði. Varamenn: Ásmundur Matt- híasson, Patreksfirði og Friðrik Hafberg, Flateyri. Fyrir Norðlendingafjórðung: Gunnar Jóhannsson, Siglufirði og Hafsteinn Halldórsson, Akur- eyri. Varamenn: Tryggvi Helgason, Akureyri og Jón Jóhannsson, Siglufirði. Fyrir Austfirðingafjórðung: Bjami Þórðarson, Norðfirði og Inga Jóhannesdóttir, Seyðis- firði. Varamenn: Leifur Björnsson, Eskifirði og Jóhann Björnsson, Reyðarfirði. Fyrir Sunnlendingafjórðung: Sigurður Stefánsson, Vest- mannaeyjum og Ragnar Guð- leifsson, Keflavík. Varamenn: Vigfús Guðmunds son, Selfossi og Hálfdan Sveins- son, Akranesi. Endurskoðendur voru kosntr: Ari Finnsson og' Hallbjörn Halldórsson. Til vara: Helgi Guðmundsson. Þingfundur Alþýðusambands- ins hófst í gærmorgun kl. 10 f. h. Dýrtíðarnefnd hafði lokið stöi'fum og lá nefndarálit henn- ar fyrir þingfundi. Framsögumaður dýrtíðarmála nefndar var Finnur Jónsson. LJmræður um nefndarálitið og framkomnar tillögur málum var lokið á þessum þing- Framh. á 4. síðu. 9. gr. laganna orðist svo: Rikisstjórninni er heimilt að setja á stofn útsölustaði á- fengis, en þó aðeins í kaup- stöðum og kauptúnum. Áður en útsalan er sett á1 stofn, skal fara fram atkvæða greiðsla kosningabærra manna í því sýslu- eöa bæjarfélagi, sem í hlut á, og þarf % hluta greiddra atkvæða til þess að útsalan sé leyfð. Nú hefur verið fellt með at- kvæóagreiöslu að stofna út- sölu samkv. framansögðu, og getur atkvæöagreiðsla þá ekki fariö fram á ný, fyrr en að i tveimur árum liðnum. I Hafi útsalan verið stofnsett, . verður hún ekki lögð niður aft ur, nema því aðeins, að atkv.- | greiðsla fari fram og fellt sé að hafa áfengissölu með meiri ) hluta atkv. Skylt er aö láta slíka atkvæðagreiðslu fara fram, þegar Vá kjósenda eða heirihluti sýslunefndar eða bæjarstjórn í viðkomandi sýslu- eða bæjarfélagi krefst þess. Greinargerð. Með Spánarundanþágunni svonefndri (1. nr. 3 4. apríl 1923) setti rikið á stofn áfeng- isútsölur í kaupstöðum lands- ins, án þess að kjósendur væru aó spuröir. Útsölur þessar hafa haldizt síðan, en í áfengislögr unum frá 9. jan. 1935 er hins vegar kveðið svo á, að nýjar útsölur megi ekki stofnsetja, liggur fyrir, stefnir að því að leiörétta þetta misræmi í á- fengislögunum með því að heimila almenna atkvæða- greiðslu um þær áfengisútsöl- ur, sem þegar eru í kaupstöð- um landsins, enda virðist sjálf sagt samkvæmt öllum lýðræö- isreglum, að hvert bæjar- eða sýslufélag geti ákveðið, hvort þar skuli vera útsala áfengis eða ekki. EUmof í hiM illsprinona I dag fara fram æfingar í með ferð eldsprengna á 4 stöðum i bænum á mismunandi tímum. Hefst fyrsta æfingin kl. 9Vz f. h. og sú síðasta kl. 2VZ e. h. Æfingarnar fara fram á eftir- töldum tímum og stöðum: kl. 9% f. h. fyrir framan Austur- bæjarbarnaskólann, kl. 11 f. h. á Óðinstorgi, kl. lVá e. h. á Landakotstúni, og hin síðasta kl. 2V2 e. h. á Leikvellinum við Lækjargötu. Allar loftvarnasveitir eru hvattar til þess að vera viðstadd ar æfingarnar. En það eru ekki aðeins þeir, sem eru 1 loftvarna- sveitúhum, sem þurfa að kynna sér meðferð eldsprengna, heldur allir íbúar bæjarins, og ættu rnenn því að vera viðstaddir æf- ingar þessar, ef þeir koma því við. nema % hlutar greiddra at- í þeim kvæöa í við komaiidi bæjar- eða sýslufélagi óski þess. Frumvarp þáð, sem hér Fasístaherínn á hröðu undanhaldí norð- ureftír. — Sígurinn í Káhasus fyrírboðí meírí tíðínda Þýzki herinn í Mið-Kákasus hefur verið hrakinn úr einu virkinu eftir annað og er á hröðu undanhaldi norður frá Ord- sonikidsesvæðlnu, að því er segir í fregn frá Moskva. Það er nú kunnugt orðið að fasistaherirnir hafa misst 15 þúsund manns i bardögunum í Mið-Kákasus síðastlidna viku.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.