Þjóðviljinn - 23.10.1943, Blaðsíða 2
2
ÞJ0ÐVILJINN
Laugardagur 23. október 194$,
I. 0. G. T.
Barnastúkurnar í Reykjavík
hefja starfsemi sína í G. T.-hús
inu í Reykjavík, sem hér segir:
St. Æskan nr. 1, sunnudaginn
24. október kl. 3,30.
St. Svava nr. 23, sunnudaginn
31. október kl. 1,15.
St. Unnur nr. 38, sunnudag-
inn 21. nóv. kl. 1,15.
St. Díana nr. 54, sunnudag-
inn 31. okt. kl. 3.30.
St. Jólagjöf nr. 107, sunnudag
inn 31. okt kl. 1,30 í barnaskóla
húsinu á Grímsstaðaholti.
Foreldrar! Athugið það, að
börnin þarfnast félagsskapar
og starfs. Látið þau ganga í
Góðtemplararegluna, þar eru
þau ’í góðum félagsskap, og
Isera að vinna markvíst og á-
kveðið að góðum málefnum.
Börn! Mætið vel og stundvís
lega og komið með nýja félaga
í stúkuna ykkar. Mætið öll.
Þinggæztumaður
ungtemplara.
muniðT»^
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
oooooooooooooooo
Sæmundur Ólafsson, forstjóri
kexverksmiðjunnar Esja og
meðlimur í stjórn Alþýðusam-
bandsins, hefur nú birt „ævi-
sögu“ mína í Alþýðublaðinu.
Það var að vísu ekki vitað fyrr
að Sæmundur byggi einnig yfir
hæfileikum til sagnaritunar, en
því meiri ástæða er til að óska
Alþýðuflokknum til hamingju
með manninn og greinina, þar
sem hvort um sig er öðru sam-
boðið.
Það væri mikill misskilning-
hjá Sæmundi ef honum skyldi
hafa flogið það í hug, að ég
færi að deila við hann um ævi-
feril minn, enda þótt hann gefi
í grein sinni tilefni til marg-
þættra málshöfðana.
Verklýðshreyfingin hefur,
sem stendur, engan brennandi
áhuga fyrir ævisögum ein-
stakra manna, hvorki minni
né Sæmundar Ólafssonar.
En hún hefur því meiri á-
huga fyrir því, að eining verka-
lýðsins og styrkur vaxi dag
frá degi og að sú stund nálgist
sem fyrst, er sameinuð verk-
lýðsstétt verður þess megnug !
að hnekkja völdum auðvalds-
ins og leggja grundvöllinn að
efnalegri velmegun og blóm-
legri menningu allrar alþýðu
landsins.
S.K.T.-' dansleikur
£ Góðtemplarahúsinu í kvöld kl. 10 — Aðeins eldri dansarnir.
Aðgöngumiðar frá kl. 2,30, sími 3355. Dansinn lengir lífið!
S. Q. T. dansleikur
verður í Listamannaskálanum í kvöld kl. 10 ÞRÁTT FYRIR
FYRRI AUGLÝSINGAR UM HIÐ GAGNSTÆÐA.
Aðgöngumiðar kl. 5—7, sími 3240. Danshljómsveit Bjarna
Böðvarssonar spilar.
", ... v - -
Unglinga eða eldrafölk
vantar okkur til áð bera ÞJÓÐVILJANN til kaupenda í eftir-
töld bæjarhverfi:
MIÐBÆR
VESTURGATA
RÁNARGATA
ÁSVALLAGATA
TJARNARGATA
Létt hverfi. Gott kaup.
Afreiðsla ÞJÓÐVILJANS, Skólavörðustíg 15 — gjmj 2184,
Kaupendur Nýja tímans í Reykjavík
eru beðnir að koma á afgreiðslu Þjóðviljans eða skrifstofu Sós-
íalistaflokksins, Skólavörðustíg 19, og greiða árgjald yfirstand-
andi árgangs, þar sem ekkl eru tök á að innheimta blaðið á
annan hátt.
AFGREIÐSLA NÝJJA TÍMANS
Út frá þessu sjónarmiði verk-
lýðsgtéttarinnar mun ég því
aðeins svara þeim atriðum í
grein Sæmund, er máli skipta.
1. Því hefur verið slegið
föstu, að Sæmundur Ólafsson
hafi ómerkt eigin undirskrift
og atkvæði í sambandsstjórn,
er hann réðist 1 Alþýðubl. á
samþykkt hennar um stofnun
bandalags alþýðusamtakanna.
Sæmund grunar, að maður,
sem þannig hagar sér, hafi fyr-
irgert heiðri sínum og trausti
og að undirskrift slíks manns
verði framvegis ekki tekin gild.
Hann reynir því að bjarga
sér úr klípunni, en því miður
fyrir hann hefur sú tilraun end-
að með því, að hann getur nú
enganveginn losnað.
Sæmundur segir í grein
sinni:
„Eg hef aldrei skrifað undir
áðurnefnd glögg, enda hafa þau
aldrei legið frammi til undir-
skriftar“.
En hvað segja staðreyndir,
sem ekki verða umflúnar með
ævisagnaritun?
Fyrir framan mig liggur af-
rit af bréfi, til Stefáns Pét-
urssonar, dagsett 22. júlí s.l.
og undirritað af forseta og rit-
ara Alþýðusambandsins. Bréfið
var birt í Alþbl. og hljóðar sá
hluti, er fjallar um ógæfu Sæ-
mundar, á þessa leið:
„1. Að loknum fjórum ítar-
legum umrœðum í miðstjórn,
var stefnuskrá bandalags vinn-
andi stétta ásamt viðkomandi
ávarpi miðstjórnar Alþýðusam-
bandsins samþykkt ÁN Á-
GREININGS í fullskipaðri mið-
stjórn, með virkri þátttöku
hvers einasta miðstjórnar-
manns.
Um þetta segir orðrétt í fund-
argerð miðstjórnar frá 2. júlí
s.l.:
„Fyrir lá frumvarp að ávarpi
og stefnuskrá fyrir bandalagið,
nokkuð breytt frá síðustu um-
ræðu.
Samþykkt eins og það lá fyr-
ir, með samhljóða atkvæðum
allra viðstaddra“.
Fundargerð undirrita þessir
menn:
Guðgeir Jónsson, Björn
Bjarnason, Sigurður Guðnason,
Þór. Kr. Guðmundsson, Her-
mann Guðmundsson, Eggert
Þorbjarnarson, Jón Rafnsson,
Jón Sigurðsson, Sæm. Elías
Ólafsson“.
Er Sæmundi Ólafssyni nú
ljóst, hvar hann er staddur með
fullyrðingu sína um að hafa
ekki greitt atkvæði með stefnu-
skrá og ávarpi og það meira
að segja án nokkurs ágrein-
ings?
Ennfremur. í 5. tbl. Vinn-
unnar, tímariti Alþýðusam-
bandsins, er birt ávarp Alþýðu-
sambandsins. Undir því eru
eftirtöld nöfn: Guðgeir Jóns-
son, Stefán Ögmundsson, Björn
Bjarnason, Sæmundur Ólafsson,
Jón Sigurðsson, Þórarinn Guð-
mundsson, Hermann Guð-
mundsson, Jón Rafnsson, Sig-
urður Guðnason.
Er Sæmundi Ólafssyni nú
ljóst, hvað það þýðir, að hafa
nafn sitt undir ákveðnu plaggi,
en lýsa því síðan yfir, að það
sé þar ekki?
2. Sæmundur Ólafsson minn-
ist á þann lið stefnuskrárinn-
ar, er fjallar um sjálfstæðis-
mál íslendinga og segist hafa
„varað við“ henni.
Aftur skulum við láta stað-
reyndirnar tala. Eftir að for-
seti og ritari Alþýðusambands-
ins hafa lýst því yfir, að stefnu-
skrá og ávarp fyrirhugaðs
bandalags hafi verið samþykkt
í miðstjórninni „án ágreinings“,
einnig með atkvæði Sæmund-
ar sjálfs, segir svo í fyrrgreindu
bréfi til gt^fáns Péturssonar^j P
„2. Miðstjórn Alþýðusam-
bandsins veit ekki til þess, að
innan hennar vébanda hafi
komið fram sú skoðun, að sjálf-
stœðismál Islands væru hinum
vinnandi stéttum, eða hags-
munasamtökum þeirra, óvið-
komandi. — Þvert á móti segir
svo í fyrrnefndu ávarpi mið-
stjómar í 5. tbl. Vinnunnar um
þessi mál:
„Alþýðusamband íslands tel-
ur, að hin vinnandi þjóð verði
að láta sig sjálfstæði landsins
miklu skipta, og hefur þá m. a.
í huga þá staðreynd, að engin
stétt í þjóðfélaginu á daglega
afkomu sína eins nábundna
þjóðernislegu sjálfstœði íslands
og alþýðan, og að alþýðan sjálf
verður að taka forystu í sjálf-
stæðisbaráttunni og skoða hana
sem eitt af brennandi hags-
munamálum sínum ... “
Um pólitísk hagsmunamál
vinnandi stétta getur vitanlega
ékki verið að ræða, enda þótt
þau geti verið þess eðlis, að
fólk með ólíkar stjórnmála-
skoðanir, geti sameinazt urn
þau“.
Er Sæmundi Ólafssyni nú
ljóst, hvar hann stendur með
tilliti til sjálfstæðismálsins og
verklýðshreyf ingar innar ?
Eða ætlar hann að hræða Al-
þýðusambandið frá afstöðu í
sjálfstæðismálinu, af því að í
því máli stendur Alþýðuflokk-
urinn einn uppi, og klofinn þó,
á móti allri þjóðinni?
Sannleikurinn er sá, að hér
er fyrst og fremst deilt við
Alþýðuflokkinn um sjálfstæði
Alþýðusambandsins, um það,
hvort Alþýðusambandið á að
láta pólitíska flokka segja sér
fyrir verkum, . eða ekki.
Það er óumdeilanlegur vilji
verkamanna, að Alþýðusam-
bandið sé sjálfstæð stofnun,
einnig um það, hvaða afstöðu
það tekur til sjálfstæðismáls
Islendinga.
3. Hvorki Sæmundur Ólafs-
son né neinn annar forystu-
maður Alþýðuflokksins ætti að
minnast á fjármál verklýðs-
hreyfingarinnar.
Hinsvegar mun almenningur
fá tækifæri til að kynnast
„fjármálastarfsemi“ þeirra í
Fulltrúaráði verklýðsfélaganna.
Að lokum þetta:
íslendingar hafa frá fornu
fari byggt þeim mönnum út úr
siðuðu samfélagi, sem svarið
hafa sannanlega rangan eið.
Myndi ekki svipaður dómur
hæfa Sæmundi Ólafssyni, er
hann hefir á opinberum vett-
Vélsmiðjan Jðtunn
sýknuð
Hinn 20. febrúar s. 1. var Vél-
smiðjan Jötunn dæmd til að
greiða kr. 8.000,00 sekt fyrir
óleyfilega notkun húsnæðis.
Vélsmiðjan áfrýjaði máli þessu
til hæstaréttar og var sýkhuð
með dómi hæstaréttar 13 þ. m.
í dóminum segir m. a. svo:
„Umboðsmenn aðilja hafa
hér fyrir dómi verið á einu máli
um það, að húsnæði því, sem í
máli þessu greinir, hafi að fullu
verið brwtt í einkaíbúð hinn
18. janúa'r 'þú a! Telja verður
það meginreglu í íslenzkri lög-
gjöf, að ákvæði dóms eða úr-
skurðar um dagsektir á hendur
aðilja verði ekki fullnægt,
hvorki með aðför né afplánun,
ef því er að skipta eftir að
hann hefur gengt þeirri skyldu.
sem knýja átti hann til með
dagsektum, sbr. 2. mgr. 193.
gr. laga nr. 85/1936 og áður 4.
gr. laga nr. 13/1925.
Samkvæmt þessu ber að fella
hinn áfrýjaða úrskurð úr gildi.
1 Eftir atvikum þykir rétt, að
málskostnaður fyrir hæsta-
rétti falli niður.
Því dæmist rétt að vera:
Hinn áfrýjaði úrskurður er úr
gildi felldur“.
vangi reynt að sverja af sér
vottfesta eiginhandarundir-
skrift.
Eða hvernig halda menn, að
svardagar slíks manns myndu
reynast, ef hann nyti betri að-
stæðna til að þjóna ósannind-
um, en Sæmundur Ólafsson
nýtur viðvíkjandi eiginhandar-
undirskrift sinni undir stefnu-
skrá bandalags alþýðusamtak-
anna?
Það er skjallega sannað, að'
Sæmundur Ólafsson hefur ó-
merkt orð sitt, atkvæði og und-
irskrift.
Það er sannað með greinum
hans, að hann hefur gerzt flugu-
maður og slefberi í stjórn Al-
þýðusambandsins fyrir óvini
verklýðssamtakanna, enda er
hann atvinnurekandi og ekki
verkamaður.
Það er sannað, að hann hef-
ur gengið fram fyrir skjöldu til
þess að eyðileggja framkvæmd
bandalagshugmyndarinnar og
að spor hans og trúbræðra hans
má rekja inn á nýafstaðin þing
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja og Fiskimanna- og far-
mannasambandsins.
Hann og þeir, sem skrifa
greinarnar fyrir hann, standa
afhjúpaðir sem skemmdarvarg-
ar í verklýðshreyfingunni, óvin-
ir einingarinnar, sem reyna að
sundra verkamönnum eftir
st j órnmálaskóðunum.
Þeir stíla upp á nýjan klofn-
ing í verklýðssamtökunum.
En í þeim efnum munu þeir
eiga verkalýðnum sjálfum að
mæta. Verkalýðurinn ætlar sér
að vernda einingu sína í bar-
áttunni fyrir atvinnu og frelai
þjóðarinnar.
iidouV rfin E. Þ.