Þjóðviljinn - 12.11.1943, Blaðsíða 2
2
Þ J ©0VIL JINN
Höstudagur 12, nóvember
Ertu fúll, Stebbi?
Moskvaráðstefnunni er lokið.
I löndum andfasista um heim
allan hefur úrslitum hennar
verið fagnað. Ekki er fögnuð-
urinn minni í hinum kúguðu
hernumdu löndum. En í þýzka
útvarpinu heyrist grátur og
gnístran tanna. Þegar þýzki
herinn tók á rás á vígvöllunum
heim á leið, var það von naz-
istaleiðtoganna að stórveldin
þrjú yrðu afvelta austur í
Moskva. f Berlín var vonað og
vonað, í Berlín var spáð í kaffi-
korg. En vonirnar brustu, og
hraustmenni nazista halda á-
fram að etja þýzku hermönn-
unum út í voðann og vonleys-
ið.
Eins og að líkindum lætur
verður af því mikill herbrest-
ur, er heilu stórveldi bregðast
vonir. Það er annað um vonir
umkomulítils einstaklings. Þær
deyja hljóðar og kyrrlátar,
heimurinn hirðir ekki um bana-
stríð þeirra, heldur gengur
fram hjá, þar sem þær liggja
við veginn, án trega og misk-
unnar. Þær fá ekki opinbera
jarðarför. Þeim er aðeins fylgt
til grafar af einum.
í Alþýðublaðinu 9. nóv. sást
til einnar slíkrar jarðarfarar.
Ritstjóri blaðsins, Stefán Pét-
ursson, var að fylgja til grafar
von sinni um sérfrið Hitlers og
Stalíns. Allir sem til þekkja
munu skilja, hvílíku sári
Stefán er lostinn, hver harmur
er kveðinn að honum við missi
vonar hans. Hún hafði komið
til hans í einveru ritstjórnar-
skrifstofunnar við Hverfisgötu
þegar önnum dagsins var lok-
ið eftir vonlausa baráttu við
kommúnismann innan lands og
utan. Og ritstjórinn tók ást-
fóstri við þessa litlu, tælandi
von. Hún varð sólargeislinn
hans í tilbreytingarlitlum erli
lífsins. Hún var það síðasta
sem hann hugsaði um þegar
hann lagðist til hvíldar, hún
var það fyrsta, sem kom hon-
um í hug, þegar hann fagnaði
ljósi hins ljúfa dags. Hann leit
á hana á morgnana og sá, að
hún dafnaði eins og fífill í túni.
En svo var það á einum
haustdegi, að vonin hans litla
brosti ekki við honum eins og
að vanda. Vonin var dáin. En
svo var hún fögur í dauðanum,
að líkari var hún lifandi veru
en liðinni, og hinn geðmikli rit-
stjóri barði höfðinu við vöggu-
stokkinn og hrópaði: Þú ert
ekki dáin, ég trúi því ekki! Síð-
an leit hann á hana tárvotum
augum, og allt í einu ljómaði
andlit hans í sælli gleði. Hann
minntist orða skáldsins: En ég
veit að látin lifir!-------Sumir
þeirra, sem sáu Stefán Péturs-
son yfir moldum vonar sinnar,
munu kannske undrast, að
hann skyldi ekki syrgja hana
meir en raun var á. En þetta
er ofur skiljanlegt. Þegar von
hans er honum horfin, leitaði
hann huggunar hjá trúnni. En
var hann samt ekki dálítið fúll?
Eggert Stefánsson og
Sigvaldi Kaldalóns
haida hijómlelka í
Grlndavík á sonnu-
daginn
Þeir Eggert Stefánsson og
Sigvaldi Kaldalóns halda hljóm
leika í Grindavík sunnudaginn
14. nóv. kl. 5. Syngur Eggert
lög eftir Kaldalóns (Suðurnesja
menn, Grindvíkingur (Örn Arn
ar), Á Sprengisandi, Fjallið
eina og Heiðin há, Þótt þú
langförull legðir, ísland ögrum
skorið, Vöggubarnsins mál o.
fl.)
Er nú orðið langt síðan þeir
bræðurnir hafa látið heyra til
sín saman.
Síðustu hljómleikar Eggerts
voru í sumar á Akureyri. Þá
ritaði Áskell Snorrason eftir-
farandi um söngvarann í
„V erkamanninn“.:
„Síðastliðið fimmtudagskvöld
söng hinn ágæti listamaður
Eggert Stefánsson í Akureyrar-
kirkju. Jakob Tryggvason org-
anleikari lék undir á kirkju-
orgelið og lék einleik tvö lög
eftir J. S. Bach: Kóralforleik
og Fúgu í h-moll.
Það er öðru nær en að vart
verði við afturför hjá Eggert.
Hann er ungur í anda, fullur
af eldmóði, og rödd hans held-
ur öllum sínum miklu kostum.
Tilfinningar hans eru svo ríkar
og heitar, að þær brjótast ó-
sjálfrátt fram í söngnum, hvaða
viðfangsefni sem hann velur
sér. Það er sama hvort hann
tekur lítið „lyriskt“ lag eins og
Hoffnung eftir Luise Reichardt
eða íslenzkt sálmalag, eða
„dramatiskt“ lag eins og The
lost Chord eftir A. S. Sullivan,
eða lag Sigvalda Kaldalóns við
hið litla, fagra ljóð Guðfinnu
frá Hömrum: Vöggubarnsins
mál, eða hið örlagaþrungna lag
Beethovens: In questa tomba
oscura, eða hinn gamla, vold-
uga sigursöng pílagrímanna:
Fögur er foldin.
Rödd Eggerts er svo mikil-
úðug, að það vekur oft undr-
un, og hann hefur hana svo
á valdi sínu, að enginn söngv-
ari á mildari hljóm en hann
t. d. í In questa tornba, né bjart-
ari en hann í laginu Víst ertu,
Jesú, kóngur klár.
Lögin: In questa tomba, The
lost Chord og Gef mér aftur
friö eftir F. Paolo Tosti hefði
áreiðanlega vakið aðdáun dóm-
bærra manna, hvar í heimi sem
verið hefði og sama má segja
um flest lögin. í síðasta laginu
(Sittu heil) var xödd hans svo
voldug, að áheyrendur sátu
sem agndofa.
Listamenn eins og Egggert
Stefánsson á þjóðin að taka upp
á arma sína og veita þeim skil- |
yrði til að starfa, og þeir munu
gefa henni ódauðleg verð-
mæti“.
poooooooooooooooo
AUGLYSIÐ
í ÞJÓÐVILJANUM
TILKYNNING
Viðskiptaráðið hefur ákveðið að álagning á vélar (mótora)
til báta og skipa og einnig landvélar (mótora) megi hæst vera
12%.
Geti innflytjandi sannað að kostnaður við innkaup slíkra
véla sé til muna meiri en heimilt er að reikna í kostnaðarverði
samkvæmt reglum um verðlagningu frá 6. okt. 1943, er verð-
lagsstjóra undir vissum kringumstæðum heimilt að leyfa inn-
flytjanda að taka tillit til þess við verðlagningu.
Ákvæði þessi koma til framkvæmda 12. nóvember 1943 og
ná einnig til birgða.
Reykjavík, 10. nóvember 1943.
VERÐL AGSST J ÓRINN.
Dráttarvextir
Samkvæmt sérstakri ákvörðun fjármálaráðuneytisins verð-
ur skattgreiðendum í Reykjavík, sem enn hafa ekki greitt
gjöld ársins 1943, gefinn kostur á að greiða þau án dráttarva^ta,
ef þeir greiða þan að fnllu fyrir 16. þ, m.
Reykjavík, 9. nóv. 1943.
TOLLSTJÓRASKRIFSTOFAN
Hafnaistræti 5.
Ráðstaianír þeirra sem
völdln hafa
fslendingar fleygja kjöti
og tlytja inn kjðt! I
flðalútflutningsvara (s-
lentflnga er fiskur - Is-
lendingar flytja Inn
„fiskmeti"!!
Fátt hefur vakið meiri
reiði almennings gegn herr-
um þeim sem með völdin
fara í atvinnu- og fram-
leiðslumálum landsins, en
þegar uppvíst varð að S. í. S.
hafði látið fleygja tugum
tonna af kjöti suður í Hafn-
arfjarðarhrauni.
Mjög hefur verið rætt um
nauðsyn þess að afla mark-
aða fyrir íslenzkt kjöt. En
það er ekki nóg með það, að
hér sé fleygt kjöti í tugtonna
tali — íslendingar flytja inn
kjöt!!
Samkvæmt 9. hefti Hag-
tíðindanna hafa fslendingar
flutt inn KJÖT og KJÖT-
VÖRUR á þessu ári til ágúst-
loka s. 1. fyrir 44 þús. kr.
Aðalútflutningsvara íslend
inga er fiskur. í áðurnefnd-
um Hagtíðindum er frá því
skýrt að flutt hafi verið inn
til ágústloka á þessu ári
FISKMETI fyrir 133 þús. kr.!
ViNNAN
Vinnan, nóvemberheftið er
nýkomið út.
Flytur hún margar ágætar
greinar og eru þessar helztar:
Sjómannaráðstefnan eftir Jón
Sigurðsson; 7. nóvember eftir
Stefán Ögmundsson; Saga
þeirra sem gleymdust eftir Ste-
fán Ögmundsson; Bandalag al-
þýðustéttanna og ráðstefnan f
haust eftir Jón Rafnsson; Verk-
föll, sem voru háð eftir Felix
Guðmundsson; Tvær myndir
eftir Helga Hannesson og þætt-
ir úr sögu Hlífar eftir Ólaf
Jónsson.
Frumvarp þetta, ef að lögum
verður, á að skapa grundvöll
til þess að útvegsmenn og aðr-
ir olíunotendur geti 1 samstarfi
sjálfír annast dreyfingu olí-
unnar, sem vafalaust verður ó-
dýrast, og mundi gera oliu-
verzlunina stórum hagkvæm-
eri en nú er“.
DAGLEGA
NY EGG, soðin og hrá
Kaf f isalan
Hafnarstræti 16.
NÝBÓK,
sem allir Islendingar þurfa að lesa og eiga
r
í bókinni er eftirfarandi
EFNISYFIRLIT:
Dansk-íslenzk sambandslög frá 13. nóv 1918 .........
Skýringar við 78. grein sambandslaganna ............
Tvær áskoranir til Alþingis ........................
Áskorun til Alþingis sumarið 1942 ..................
Áskorun til Alþingis haustið 1943 ..................
Guðmundur Hannesson, prófessor: Frá gömlum skilnað
armanni ..........................'.....!,.......
Gylfi Þ. Gíslason, dósent: Frestun sambandsslita til styrj-
aldarloka .......................................
Hallgr. Jónasson, kennaraskólakennari: Sjálfstæðismál
og þjóðartilfinning .................................. 36
Ingimar Jónsson, skólastjóri: Eigum við nokkuð vantal
að við Dani? ......................................... 39
Jóhann Sæmundsson, læknir: Skilnaðarmálið er ekki
happdrætti ........................................... 42
Jón Ólafsson, lögfræðingur: Riftun sambandslaganna .... 52
Klemenz Tryggvason, hagfræðingur: Skilnaðarmálið og
sambúðin við Dani .................................... 60
Magnús Ásgeirsson, rithöfundur: Gervimál án glæsibrags 65
Ólafur Björnsson, dósent: Sambandsmálið............... 80
Pálmi Hannesson, rektor: Frá mínum bæjardyrum séð 84
Sigurður Nordal, prófessor: Hljómurinn, sem á að kæfa 87
Sveinbjörn Finnsson, verðlagsstjóri: ímynduð barátta,
óleyst vandamál ................................... 95
Tómas Guðmundsson, rithöfundur: í skjóli við ofbeldið 98
Þorsteinn Þorsteinsson, hagstofustjóri: Hin tryggasta og
öruggasta leið ...................................... 101
Bls.
7
12
15
1Ö
21
31
Bókin verður seld í öllum bókaverzlunum og á götunum í dag.
— Kostar aðeins kr. 5.00.
Aðalútsala í Víkingsprenti,
Garðasíræii 17.
OOOOOC’<sOOC~"x.-<XXX>0 I