Þjóðviljinn - 10.12.1943, Blaðsíða 1
Alþýðusambðndið mótmælir nýjum
milljónaálögum á launþegastéttirnar
Alþýðusamband íslands hefur sent Alþingi svo-
hljóðandi mótmæli vegna dýrtíðarfrumvarps ríkis-
stjómarinnar:
Alþýðusamband íslands mótmælir hér með harð-
lega frumvarpi til laga um tekjuöflun vegna dýrtíðar-
ráðstafana, sem núverandi ríkisstjóm hefur lagt fyrir
Alþingi, og skorar á Alþingi, í nafni allra launþega og
millistétta landsins, að fella þetta frumvarp.
Alþýðusambandið vill taka fram eftirfarandi:
1. Undangengin stríðsár og fram til þessa dags
hafa launþegastéttir landsins orðið að sæta tilfinnan-
legri launaskerðingu fyrir aðgerð r löggjafarvaldsins
og stjórnarvalda, ýmist vegna gengisskráningar, órétt-
látrar dýrtíðarvísitölu eða niðurgreiðslu hennar á
kostnað þeirra, án raunverulegrar dýrtíðarlækkunar.
Þessar einstæðu aðgerðir hins opinbera hafa, svo sem
kunnugt er, þýtt árlegt milljónarán á kaupi allra laun-
þega í landinu.
2. Þar eð ekki verður annað séð en að nefnt stjórn-
arfrumvarp boði nýjar milljónaálögur á launþegastétt-
irnár, til að lækka kaup þeirra sjálfra, ofan á undan-
gengið ranglæti — sem launþegastéttirnar hafa þó um-
borið til þessa af undraverðri þolinmæði, — þá verður
ekki lengur hjá því komizt, áð þær mótmæli kröftug-
lega og bregðist einhuga til vamar með öllu samtaka-
afli sínu.
Alþýðusamband íslands mun styðja þessa baráttu
launþegastéttanna, hvenær sem á þarf að halda, bæð'
á sviði kaupgjaldsbaráttunnar og annarra réttindamála
þeirra.
Virðingarfyllst.
(Undirskrif tir).
ilmræðamav tim íolíahæfebanírnar
.OeMijlliriM defOdf aO helta saia-
tohan slain tll ao tiætma awsa-
lasglO. et saaaa 0 að lara að'
Yfirlýsingar Sósíalistaflokksins á Afþingi í gær
Fmmvarp ríkisstjómarinnar um tekjuöflun vegna
dýrtíðarráðstafana, var til fyrstu umræðu í neðri deild
í gær.
Einar Olgeirsson kvaddi sér hljóðs og fletti ofan af
háttalagi ríkisstjómarinnar og hinna 28 „samsæris-
manna“, sem hafa bundizt samtökum um það, að við-
halda og auka dýrtííina í landinu á kostnað alþýðunn-
ar, með auknum tolla- og skattaálögum.
Hringurlnn um Snamenha að lokasf
Hernaðarsérfræðingar telja a. m. k. 30 þýzk herfylki
séu í mikilli og vaxandi hættu fyrir sunnan Kremensjúg,
eftir að rauði herinn rauf járnbrautina milli Snamenka
og Krivoj Rog. Sé horfur þessara herfylkja hinar alvar-
legustu og geti enginn sigur Þjóðverja á Kieff-vígstöðv-
unum kippt þessu í lag.
Rauði herinn hefur náð þýðingarmiklum landsvæð-
um á sitt vald báðum megin við Snamenka og eru einnig
byrjaCir á innikróunarsókn til borgarinnar frá suðri.
Rússar hafa stækkað kafla þann sem þeir tóku í
fyrradag af jámbrautinni milli Snamenka og Krivoj Rog
og eru nú minna en 35 km. frá hmni þýðingarmiklu iðn-
aðar- og samgöngumiðstöð Kirovo.
Fjármálaráðherra flutti stutta
ræðu, þar sem hann leitaðist
við að sannfæra þingheim um
að þessar nýju skatta og tolla
álögur miðuðú að því að halda-
dýrtíðinni ‘ í skefjum. Vonaðist
hann til að málið fengi skjóta
afgreiðslu í þinginu, og minnt-
ist á í því sambandi að þing-
menn væri nú farið að langa til
að komast heim!
Að ræðu fjármálaráðherra
lokinni tók Einar Olgeirsson til
máls. Kvaðst hann furða sig á
því ef ríkisstjórnin ætlaðist til
að þetta mál yrði afgreitt f
flýti af þinginu og án þess að
Framhald á 8. síðu.
Fulltrúar allra lýð-
ræðisflokka í stjórn
Titos
Anthony Edcn hefur rcétt við
hina júgóslavnesku stjórn Péturs
lconungs í Kairo um hina nýju
stjóm Titos hershöjðingja. Er tal-
ið, að hann hafi reynt að koma á
málamiðlun. Það er kunnugt, að
júgóslavneska stjómin hefur reynt
að afturkalla hina álcöfu áráis sína
á nýju stjómina, eftir að hafa rœtt
um málið við áhrifamenn, en sú
afturköllun lcom of seint.
Breslct blað skýrir svo frá, að
fuíltrúar allra lýðrœðisflokka
landsins eigi sceti í stjórn Tito.
Hinn kunni brezki þingmaður,
Vernon Bartlett, hefur látið svo
um mælt:
Það er mjög athyglisvert, að
þjóðfrclsisnefnd Titos hershöfð-
ingja hcfur tekizt það, sem hinni
útlægu stjórn tókst ekki, nefni-
lega að koma á samvinnu milli
fulltrúa flestra stjórnmálaskoðana
úr öllum landshlutum.
Afleiðinga þessarar þróunar mun
gæta langt út fyrir takmörk Júgó-
slavíu, því að magn það, sem Bret-
ar hafa sent af liergögnum til Titos
hershöfðingja, er áhrifarík sönnun
um nánari samvinnu milli London
og Moskva. Ætti því að verða
mikið ágengt í að eyða grun þeim,
sem oft hefur látið á sér bæra síð-
an Darlan-málið var á döfinni, um
að brezka stjórnin vildi licldur eiga
skipti við afturhaldsöfl, þó að þau
séu miklu ónýtari í baráttunni
gegn öxulveldunum, heldur en hin-
ar sundurleitari og ómenntaðri, en
baráttufúsari alþýðuhreyfingar“.
Lundúna-blaðið Star segir allt
innbyrðis ósamkomulag Júgóslava
vera að kenna blindni afturhalds-
ins þar, sem kalli alla ráðherra
nýju stjórnarinnar kommúnista.
/ Júgóslavíu eru nú harðastir
bardagar umhverfis bæ, fyrir suð-
austan Sarajevo. IJafði jijóðfrels-
isherinn áður telcið þarm bœ.
Flugvélar Bandamanna veita
Júgóslövum aðstoð með sprengju-
árásum.
Hull, utanríkismálaráðh. Banda-
ríkjanna hefur upplýst, að afstaða
þeirra til Júgóslavíu sé alveg sú
sama og Bretlands.
Fyrir sunnan og vestan Krem-
ensjúg hrundu Rússar í gær hörð-
um gagnáhlaupuin Þjóðverja og
sóttu fram og tóku 15 hemaðar-
lega mikilvæga staði. í sókninni
vestur frá Kremensjúg hafa þeir
sótt fram meira en 15 km. á fá-
einum dögum.
Rauði herinn hratt í gær harð-
vítugum árásum þýzkra skrið-
dreka- og fótgönguliðssveita á suð-
vesturhluta Kieff-vigstöðvanna.
Bardagar vor’u harðastir fyrir norð-
ausan Tsérnigoff. Þar voru 75
skriðdrekar Þjóðverja eyðilagðir í
fyn’adag, og því samtals 159 skrið-
drekar þeirra á tveira dögum.
varaliði sínu á Kieff-vígstöðvun-
um, muni Riissar hefja feikilega
harðar gagnárásir.
Fluttir til Þýzkalands
Útvarpið í Osló segir frá því, að
samtals séu 1356 stúdentar í fanga-
búðunum lijá Larvik og Tönsberg,
og að Þjóðverjarnir álíti um 200
þeirra holla sér. IJina alla á að
senda til Þýzlcalands og sehnilega
um 20 háskólakennara. Þjóðverjar
álíti stúdentana afvegaleidda
menn, sem hafi beðið tjón á sálu
sinni i andrúmslofti Oslóar-há-
slcóla. Muni þeim því verða komið
fyrir á stað, þar sem þeim verði
Hernaðarsérfræðingar í Moskva
spá því, að sókn Þjóðverja á Kieff-
vígstöðvunum mundi algerlega
verða stöðvuð jafnskjótt og Rúss-
ar hefðu náð aðalmarkmiðum sín-
um íDnéprbugðunni. Þeir segja,
að þegar Þjóðverjar hafi eytt öllu
veitt pólitísk frœðsla og uppeldi
og auk þess hernaðarþjálfun.
Fréttir bárust um það í gær-
kvöldi, að um 600 stúdentar hefðu
yerið fluttir frá Larvik til Osló
og látnir þar í skip, sem þegar er
á leið til Þýzkalands.
31% HDgrsMar i germegagitraiB-
mneiaflaai, er laga slílisfiefllsinanna
Sigurður Kristjánsson hefur lagt fram tillögu um að heimila rikis-
stjóminni að skera niður um allt að 30% frá því, sem gert er ráð fyrir
á fjárlögum, allar þœr fjárveitingar, sem ekki em bundnar með öðr-
um lögum.
SUk heimild sem þessi hafði verið í fjárlögum á þjóðstjómartím-
anum, en í fyrra tólcst, þrátt fyrir harða mótspyrnu og nokkur œðis-
Jcöst Hriflunga, að fá fellda úr fjárlögunum. — Allir vita, að þessi
lieimild þýðir fyrst og fremst, að ríkisstjórnin getur cftir eigin geð-
þótta stórlœklcað framlög til allra verklegra framkvœmda og fjölda
menningarmáda. Ríkisstjómin hefur margsinnis látið skina í það, að
ef hún fengi slíka heimild, mundi hún nota hana, þar sem hún teldi
að ýmsar þessar fjárveitingar vœm alltof háar, miðað við telcjur
ríkissjóðs.
Þessi tillaga þýðir því niðurskurð verklcgra framkvœmda, því
fullvíst má telja, að heimildin vcrður notuð.