Þjóðviljinn - 20.05.1944, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 20.05.1944, Blaðsíða 2
ÞJÓÐ VILJINN Laugardagur 20. maí 1944.. Ríkisstjórnin gekk að öllum meginkröíum Alþýðusambandsins nm vegavinnukjörin Samningar um vegavinnuna undirritaðir i fyrradag Samningar um kaup og kjör í vegavinnu voru undirritaðir í | fyrradag kl. 1 milli fulltrúa ríkisstjómarinnar og fulltrúa Al- þýðusambands íslands. En samningaumleitanir höfðu farið fram 3—4 undanfama dag fyrir milligöngu sáttasemjara ríkisins. Kíkisstjómin gekk að öllum hinum upphaflegu kröfum Al- þýðusambandsins. Gilda skal áfram sama regla um kaupsvæða- skiptingu og gilti s.I. ár. Þar sem meiri hluti viðkomandi verka- manna óskar þess, skal þeim heimilt að ljúka 48 stunda vinnu- viku á 5 dögum, — hafa laugardaginn frían. Á 4 fjallvegum skal heimilt að vinna 10 stundir á dag fyrir dagvinnukaup, sé meiri hluti verkamanna samþykkur því. Þá era og ákvæði um ókeypis flutninga verkamanna o. fl. og að ríkið greiði hálft afnotagjald útvarps fyrir vinnuflokka. Samningar þessir eru, því tvímælalaus sigur fyrir Alþýðu- sambandið. Jafnframt var undirritaður sáttmáli um að skaðabótakröfur skuli niður falla af beggja hálfu og hvomgur aðili skuli láta hinn gjalda þess sem gerzt hefur í deilunni. Hér fara á eftir samningamir um vegavinnuna og sáttmáli sá er síðast var nefndur. (Kaupsvæðaskiptingin verður birt síðar). „SAMNINGUR milli vega- málastjóra og Alþýðusambands íslands um kaup og kjör við vega- og brúargerðir. 1. gr. ÍJm kaup og kjör verka- manna hjá vegagerð ríkissjóðs fer á félagssvæðum verkalýðs- félaganna eftir núgildandi við- urkenndum taxta eða samningi viðkomandi verklýðsfélags og utan félagssvæða, eftir núgild- andi * taxta eða samningi þess verklýðsfélags innan sömu sýslu, sem næst er vinnustað, þó með takmörkunum þeirra á- kvæða, sem felast í samningi þessum og meðfylgjandi skrá um kjarasvæði. 2. gr. Sé ekki hægt að vinna sökum óveðurs, heila daga eða hluta úr dögum, skal greiddur þriðjungur tímakaups, sé ekki öðruvísi um samið af viðkom- andi verklýðsfélagi. 3. gr. Verkamenn njóta allra hlunninda, sem verið hafa, svo sem: a) ókeypis flutninga á öllum nauðsynjavörum, ókeypis mat- reiðslu, matreiðsluáhöld, kol, olíu, skýli og rúmstæði. b) kaffihlé verður eins og venjulega hefur verið í vega- vinnu, sé ekki öðruvísi um sanr. ið af viðkomandi verklýðsfé- lagi. c) Þar sem svo hagar til, að verkamenn eru búsettir í næsta kauptúni eða nágrenni við vinnustaðinn skal greitt fyrir þeim um ókeypis flutníng að og frá heimilum þeirra um helgar, en þar sem vegagerðin hefur ekki nægan bílakost til slíkra flutninga, er eigi skylt að leigja sérstaka bíla til þeirra, nema um aðra hvora helgi. d) Þar sem svo hagar til, að verkamenn fara til heimila sinna að loknu dagsverki, skal tryggður flutningur til kaup- túns, þeim sem þar eiga heima. en aðrir verkamenn fá flutning eftir þvi sem hentar, eftir að- alleið að endastöð. Skal önnur ferðin falla inn í vinnutíma. sé ekki öðruvísi um samið af við- komandi verklýðsfélagi. Verka- mönnum sé séð fyrir skýlum til að matast í og drekka kaffi. e) Þar sem um stóra viðlegu- flokka er að ræða (12—14 manns) skal greidd af vegafé hæfileg leiga fyrir útvarpstæki til afnota fyrir vinnuflokka að hálfu móti verkamönnum, ei meirihluti verkamanna óskar þess. 4. gr. Þar sem unnið er svo langt frá heimilum verkamanna að eigi- þykir henta að þeir hverfi daglega til heimila sinna, skal á tímabilinu frá 1. maí til 30. september unnin 48 stunda vinnuvika á 5 dögum, sé þess óskað af meirihluta verka- manna viðkomandi vinnuhóps. Laugardagur og sunnudagur séu þá fríir, og skal verkamönn um tryggð heimferð á föstu- dagskvöldum, þeim að kostn aðarlausu, sbr. þó 3. gr. a. Þegar sérstaklega stendur á getur verkstjóri þó ákveðið, að unnið skuli alla virka daga ein- stakrar viku, enda sé það þá samþykkt af meirihluta verka- manna viðkomandi vinnuhópa. 5. gr. Á Vatnsskarði. Özna- dalsheiði frá Öxnadalsbrú að Silfrastöðum, Þorskaf jarðar- heiði og Jökulsdalsheiði er heimilt að vinna allt að 60 stundir á viku, með venjulegu dagvinnukaupi, enda sé meiri- hluti vinnuhóps því samþykkur. 6. gr. Þar sem í sambandi við notkun stórvirkra vinnuvéla þykir nauðsynlegt að vinna í vöktum, skal grunnkaup vera 15% hærra miðað við 8 stunda vaktavinnu. 7. gr. Lágmarkskaup og kjör fýrir bifreiðar séu samkvæmt núgildandi samningi eða viður- kenndum taxta þess bifreiða- stjórafélags, sem starfandi er á kjarasvæðinu. Á kjarasvæðum þar sem engin bifreiðastjórafé- lög eru starfandi og engir samn ingar eru til um kaup fyrir bif- reiðar, skal kaupið vera sem hér segir: Fyrir bifreiðar með veilyft- um kr. 18.00 pr. klst. Fyrir aðrar bifreiðar kr. 16.00 pr. klst., enda flytji þær minnst 2—2Vz tonna hlass. Fyrir flutning á verkafólki til og frá vinnu um helgar skal bifreiðum greitt sem svarar tímakaupi ^fyrir aðra leiðina. Þar sem um óvenjulega langan eða erfiðan akstur bifreiða er að ræða, daglega um lengri tíma, skal sérstaklega semja um aukagreiðslu þegar sýnt er orð- ið, hvað sanngjarnt er í því efni. 8. gr. Samningur þessi gildir frá og með undirskriftardegi til 1. maí 1945. Hann er uppsegj- anlegur með IV2 mánaðar fyrir- vara. Sé honum ekki sagt upp framlengist hann um 12 mánuði í senn með sama uppsagnar- fresti. Sá aðili, sem samningnum segir upp, skal áður en tvær vikur eru liðnar af uppsagnar- fresti leggja fram við hinn að- ilann skriflegar tillögur að nýj- um samningi og skulu viðræður þá hefjast milli aðilanna um nýja samningagerð. 9. gr. Samningur þessi er gerð ur í tveim samhljóða eintökum og heldur hvor aðili sínu. Reykjavík, 18. maí 1944. F. h. ríkisstjórnarinnar Geir G. Zöega (sign) F. h. Alþýðusambands íslands. Jón Sigurðsson (sign) Jón Rafnsson (sign) Hermann Guðmundsson (sign)“. „í sambandi við samning und irritaðan í dag milli vegamála- stjóra og Alþýðusambands ís- lands um kaup og kjör við vega- og brúargerðir undirrita aðail- ar eftirfarandi: Aðilar eru sammála um, að mál það, sem nú er rekið fyrir Félagsdómi skuli, á venjuleg- an hátt, rekið til enda, ennfrem ur að ekki verði um neinn frek ari málarekstur eða skaðabóta- kröfur að ræða út af deilunni eða aðgerðum í sambandi við hana og félög eða einstaklingar verði ekki á nokkurn hátt látn- ir gjalda þátttöku sinnar 1 deil- unni, á hvora hlið sem væri. Reykjavík, 18. níaí 1944. F. h. ríkisstjórnarinnar. Geir G. Zöega (sign). F. h. Alþýðusambands íslands Jón Sigurðsson (sign). Jón Rafnsson (sign). Hermann Guðmundsson (sign)“. Einstæður dagur í dag er einstæður dagur í sögu íslands. Þjóðin gengur að kjörborð- inu og samþykkir að slíta síðustu leyfar þeirra hlekkja, er húnbarum aldaraðir, hlekki sem oft krepptu svo fast að við fjörtjóni var hætt. í dag samþykkir þjóðin að stofna lýðveldi,- að reisa aftur frjálst og fullvalda lýðríki á íslandi, eftir sjö alda erlenda stjórn. í dag er hátíð- isdagur einn hinn mesti í sögu Is- lands, i dag fara allir sem vettlingi geta valdið á kjörstað og sam- þykkja að stofná íslenzkt lýðveldi. Hið sanna lýðræði En þegar lýðveldið er stofnað kemur til kasta alþýðunnar að tryggja að þar verði ríkjandi sann- arlegt og fullkomið lýðræði. Al- þýðan verður að þurrka út stétta- þjóðfélagið með öllum þess stríð- andi hagsmunum og hagsmuna á- rekstrum. Hún verður að stofna stéttlaust þjóðfélag þar sem fullkomið lýðræði er rikjandi í atvinnumálum, auk hins pólitíska lýðræðis, hún verður að gefa íslenzka lýðveldinu það inni hald að það verði í raun og sann- leika lýðveldi alþjóðar þar sem öll- um er tryggður sami réttur og allir eiga að svara samskonar skyldum. Alþýðusambandið og stétt- ardómar Nýlega er fallinn dómur gegn Al- þýðusambandinu, þar sem því er slegið föstu að það hafi ekki rétt til að fyrirskipa verkföll. Þetta er hreinræktaður stéttardómur sem ekki hefur stuðning í lögum. £ vinnulöggjöfinni er sem sé ekkL eitt orð um þetta efni en félags- dómur, sem svo er kallaður, lítur svo á að ákvæði löggjafarinnar um vinpustöðvanir séu tæmandi og þvL óheimil hver sú vinnustöðvun, sem ekki sé framkvæmd samkvæmt þeim. Þessi túlkun laganna er auðvitað fjarstæða, því öllum má vera ljóst, að fengi hún staðizt ,þá er verkfalls- rétturinn að engu ger gagnvart. vinnutaka, sem ræður menn til vinnu víðsvegar um landið, ef til vill á öllum félagssvæðum verka- lýðsfélaganna. Verkfallsréttur gagn- vart slíkum aðila hlýtur eðli máls- ins samkvæmt, að vera hjá heildar- samtökunum — Alþýðusambandinu. — Dómur félagsdóms í þessu máli er því hreinn stéttardómur, það er dómur yfirstéttarsjónarmiðanna gegn alþýðusamtökunum. Hinn svokallaði fulltrúi Alþýðusambandsins Það heitir svo, að Alþýðusam- bandið eigi fulltrúa í félagsdómi. Það er Sigurjón Á. Ólafsson, hann vék úr dómnum í þessu máli, og r stað hans kom varamaður, Sigur- geir Sigurjónsson lögfræðingur,. gamall félagi Stefáns Jóh. Fulltrúa Alþýðusambandsins bar' auðvitað að flytja sjónarmið þess: í dómnum og halda þeim fast fram. Þetta hefur hinum svokallaða full- trúa þess láðst í þessu máli, þar sem það var ekki aðeins eðlilegt, heldur sjálfsagt og hið eina rétta. Það er mál til komið fyrir Al- þýðusambandið að velja sér full- trúa í Félagsdóm við sitt hæfi. Samþykkt Ungmenna- og fþröttasambands Austur- lands um IjBveldisstofnun Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands hélt 3. þing sitt á Eskifirði dagana 13. og 14. maí. Mættir vom 24 fulltrúar frá 15 sambandsfélögum. Þingforsetar voru Ragnar Þor steinsson, Björn Sveinsson og Þóroddur Guðmundsson, ritarar Þórður Benediktsson, Guttorm- ur Þormar og Guðmundur Björnsson. Gerðar voru margar sam- þykktir um íþrótta- og menn- ingarmál, einnig var einróma samþykkt fylgi sambandsins við lýðveldisstofnunina 17. júní og lögð áhersla á að forsetinn yrði þjóðkjörinn. Þá var sam- þykkt áskorun um að hinn al- menni kosningaréttur yrði færð ur niður í 18 ára aldur þegar endurskoðun stjórnarskráinnar færi fram næst. Hyggst sambandið að auka starfsemi sína og ráða 2 fasta íþróttakennara. Stjórn sambandsins skipa nú: Skúli Þorsteinsson, forseti; Þór- oddur Guðmundsson, Stefán Þorleifsson, Gunnar Ólafsson, Þórður Benediktsson, Þórarinn Sveinsson og Þorvaldur Árna- son. Telur sambandið nú 23 félög með 1303 meðlimi. Fréttaritari. Samþykkt Fél. Suðnrnesja- manna utn lýðveldísstofnun Félag Suðumesjamanna í Rvík hélt aðalfund og lohadansleik i Oddfellowhúsinu 11. maí 191tf. í lýðveldismálinu var gerð í einu hljóði svolátandi ályktun: „Aðalfundur Félags Suðumesja- manna í Reykjavih, haldinn í Odd- feUowhúsinu 11. maí 1044, lýsir eindregnu fylgi sínu við sjálfstœð- ismál þjóðarinnar og livetur aUa félagsmenn sina, svo og alla lands- menn að greiða atkvœði með sam- bandsslitum við Danmörku og stofnun lýðveldis á íslandi, svo- sem fyrirhugað er“. Á aðalfundinum safnaðist 1200 kr. til Slysavarnafélags Islands, til minningar um lokadaginn. Lokadagsins var minnst af Tryggva Ófeigssyni með snjallri ræðu. Fleiri tóku til máls auk hans í minningu dagsins. Félagsstjórnin var endurkosin, en í henni eiga sæti: Egill Hall- grímsson formaður, og meðstjórn- endur: Ársæll Árnason, Friðrik Magnússon, Jón Thorarensen og I Tryggvi Ófeigsson. Varastjórnin var einnig endurkosin, þeir Einar Stefánsson, Finnbogi Guðmunds- son og Stefán GunnarsSon. Endur- skoðendur voru kosnir þeir Egill Kristjánsson og Kristinn Árnason, og til vara Sæmundur Tómasson. Félagsins bíða ýms framtíðar- verkefni, sem stjórnin hefur haft til íhugunar og kom fram með á fundinum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.