Þjóðviljinn - 18.01.1955, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.01.1955, Blaðsíða 1
ilJI míQjónir kr. (3 hemaiar Eisenhower segist miða íjárlög við að friður haldizt í heiminum Eisenhower Bandaríkjaforseti sendi í gær þinginu greinargerð sína um meginatriði fjárlaga- frumvarpsins fyrir fjárhagsárið sem hefst 1. júlí. Eins og áður fara um tveir þriðju ríkisútgjald- anna til hermála og „öryggis- mála“. Nemur sú upphæð 40.500 milljónum dollara eða 600.960 milljónum króna. Af beinu hern- aðarútgjöldunum fara næstum tveir þriðju til flughersins. Til aðstoðar við önnur ríki er varið 4.100 milljónum. Hernaðaraðstoð er aukin en dregið úr efnahags- aðstoð. Greiðsluhalli á fjárlögum er áætlaður 2.400 millj. dollara eða helmingi minni en á yfir- standandi fjárhagsári. í greinargerð sinni segir Eisen- hower, að fjárlögin séu miðuð við það að framundan sé langt kalt stríð en að til ófriðar muni ekki koma. VILJIN Þriðjudagur 18. janúar 1955 — 20. árgangur — 13. tölublað MíSSjóriatjón af eldsvoða um helgina FiskimjölsverksmiSjan á SuSureyri hrann ó laugardags- kvöldiS og 5 aSgerSarhús i Keflavík aSfaranótt sunnud. Aðgerðarhúsin í Keflavík évátryggð — Tjénið geyssmikið og tilfinnanlegt Elds varð vart í aðgerðarhúsum Keflavíkur h.f. í Keflavík um kl. 1 aðfaranótt sunnudagsins og varð eldurinn ekki slökktur fyrr en um kl. 7 um morg- uninn. Höfðu þá 5 aðgerðarhús brunnið. Logarnir stóðu út úr húsinu Tókst þó ekki að ráða niður- þegar eldsins varð vart og log- aði upp úr þakinu þegar slökkvi lið Keflavíkur kom á vettvang, en nokkru síðar komu 2 bílar frá flugvallarslökkviliðinu. tJrsiit Þróttaikosningaima: Vinstri Hstann vantaði aleins sex at- kvæði til að sigra Ihaldið Stjórnarkosningu í Vörubílstjórafélaginu Þrótti lauk kl. 9 s.l. sunnudagskvöld og höfðu þá 250 af 271 á kjör- skrá neytt atkvæ'ðisréttar. Talning atkvæða fór fram þeg- ar að kosningu lokinni og urðu úrslit þau að íhaldslist- inn hlaut 124 atkv. en B-listi vinstri manna fékk 119 atkv. Fjórir seölar voru auðir en persónuatkvæði 3. Þessi úrslit sýna hve and- staða vörubílstjóranna við í- haldsþjónustu og óstjórn Frið- leifsklíkunnar í félaginu fer harðnandi. Vinstri nienn í Þrótti eru komnir í öflugu. sókn sem hlýtur að ljúka með ó- sigri íhaldsins innan skamms. Kosningin var harðsótt eins og að vanda. Var ekkert til sparað af hálfu íhaldsins til að halda völdum. Má t. d. um ósvífnina geta þess að þrátt fyrir aðvaranir og mótmæli B-listamanna var Vilmundur Vilhjálmsson, fyrrv. stöðvar- stjóri látinn greiða atkvæði enda þótt hann hafði áður kos- ið við stjórnarkjörið , í Sjó- mannafélagi Reykjavíkur! Er hér um augljóst. brot að ræða á lögum Alþýðusambandsins, sem mæla svo fvrir að menn geti ekki verið aða’meðlimir og greitt atkvæði nema í einu sambandsfélagi, aðrir en þeir sem höfðu fé'agsréttindi . í fleiri en einu félagi 1940 þeg- Skemmdi lögreglubíl 1 gær stóð lögreglubill á torginu þar sem Hóte'. ís'and stóð forðum daga. Ungur mað- ur ölvaður brá sér upp í bílinn, sem hann segir að hafi verið opinn og i gangi, ók af stað, ■en hafnaði von bráðar á tröpp- um hjá Gildaskálanum í Aðal- stræti. Hkemmdist biliinn ofur- lítið, en maðurinn slapp ó- meiddur — eins og svona menn eru vanir. ar skipulagsbreytingin var gerð á sambandinu. Úrslitin í þessu stjórnar- kjöri munu verða öllum stéttvísum og vinstri sinn- uðum Þróttar-mönnum ein- dregin hvatning til þess að herða sóknina gegn þeim ó- heillaöflum íhalds og at- vinnurekenda sem hafa lam- að starfsemi féiagsins á undanförnum árum og slitið það úr öllum raunverulegum tengslum við verkalýðshreyf- inguna í bænum. lögum eldsins fyrr en um morguninn. 5 hús af 8 brunnu. Alls voru aðgerðarhúsin 8 í samfelldri byggingu. Tókst slökkviliðinu að verja 3 þeirra. Húsin voru öll úr timbri. Einn- ig tókst að verja nærliggjandi hús er voru í hættu. Elzta hús Keflavíkur, Duushúsið, var meðal þeirra sem voru í hættu. , rt.r.4S;p Um 1000 síldartunnur brunnu. Mikið var af lóðum og eitt- hvað af beitu í húsunum er brunnu, og talið er að um 1000 tómar síldartunnur hafi brunn- ið. Heildartjón var enn ómetið og rannsókn ekki hafin þegar Þjóðviljinn hafði tal af bæjar- fógetaskrifstofunni í Keflavík í gær, en blaðinu tókst ekki að ná sambandi við stjórnanda fyrirtækisins. Húsin og það sem í þeim brann mun hafa verið óvá- tryggt og er þetta mikla tjón því mjög tilfinnanlegt. Kviknaði frá olíuofni? Um eldsupptök lá sem fyrr segir engin rannsókn fyrir í gær, en talið er að kviknað hafi í frá olíuofni sem var í einu húsinu. Sovétrikiii heita fimm rsiorkuaisfoS Reisa kjarnoikukiiúin raforkuver og kjamorkuhlaða Tilkynnt var í Moskva í gær, að sovétstjórnin hefði á- kveðið að veita fimm ríkjum aðstoð við hagnýtingu kjarnorkunnar til friðsamlegra þarfa. Þau ríki sem verða aðstoðar- innar aðnjótandi frá Sovétríkjun- um eru Kína, Pólland, Tékkó- slóvakía, Austur-Þýzkaland og Rúmenía. Aðstdð við fleiri ríki er i undirbúningi. Sovétríkin munu láta í té tæki og sérfræðiaðstoð til þess að koma upp í þessum ríkjum kjarn- orkuknúnum raforkuverum í til- raunaskyni sem framleitt geta allt að 5000 kílóvatta orku. Einn- ,ig munu þau hjálpa til við að koma upp kjarnorkuhlöðum, þar sem framleidd eru geislavirk efni til notkunar við lækningar, vís- indarannsóknir og í iðnaði. Þ.jálfa sérfræðinga Vísindamönnum og tækni- menntuðum mönnum frá ríkjun- um fimm verður gefinn kostur á að afla sér þjálfunar og vit- neskju um allt sem snertir hag- nýtingu kjarnorkunnar til frið- samlegra þarfa í vísindastofn- unum og kjarnorkuverum Sovét- ríkjanna. Þá leggja Sovétríkin þessum löndum til kjarnakleyf efni til notkunar í orkuverum og kjarn- orkuhlöðum. Greiðsla kemur fyr- ir í málmgrýti, sem vinna má úr kjarnakleyf efni. Fiskimjölsverksmiðjan vátryggð — Tjónið áætlað 1 millj. kr. Á laugardagskvöldið var kom upp eldur í fiskimjöls- verksmiðjunni á Suðureyri við Súgandafjörð. Af húsinu brann allt sem brunniö gat, vélar skemmdust mjög eða eyðilögöust, 66 tonn af fiskimjöli brunnu. — Þetta er fjórði bruninn í verksmi'ðjunni á skömmum tíma. ' Eldurinn kviknaði í þakinu og læstist hann eftir viðum hússins svo það varð strax al- Dag Hammarskjöld KJarnorku- ráðstefna SÞ Hammarskjöld, framkvæmda stjóri SÞ, setti í gær fund vís- indamanna frá sjö löndum, sem komnir eru sáman í New York til að undirbúa alþjóðlega ráð- stefnu um friðsamlega hagnýt- ingu kjamorkunnar. Ákveðið var strax í gær að ráðstefnu- staðurinn skyldi vera Genf í Sviss en óráðið er enn hvenær ráðstefnan verður. Hammar- skjöld kvaðst álíta, að mikið hefði þegar áunnizt í að koma á alþjóðlegri samvinnu um notkun kjarnorkunnar til frið- arþarfa. elda. Var því aðaláherzla lögð á að bjarga frystihúsinu, sem. var áfast við verksmiðjuna, og tókst það. Slökkviliðið á ísafirði var beðið um aðstoð og fór það á vettvang á Hermóði (vitaskip- inu). Var það um tveggja og hálfs tíma ferð, en um kl. 9 var fiskimjölsverksmiðjan brunnin. Tjónið áætlað 1 inillj. kr. Auk þess að þak verksmiðj- unnar og allir viðir brunnu eyðilögðust 66 tonn af fiski- mjöli og vélar eyðilögðust eða skemmdust. Er tjónið áætlað 1 millj. kr., en fiskimjölsverk- smiðjan var vátryggð. Kviknaði í injöli. Eldurinn mun hafa komið upp í mjölskilvindu og við það varð reykrörið frá skilvindunni glóandi og kveikti í þakinu og læstist eldurinn á skammri stundu eftir viðunum. Tekur til starfa eftir 2 mánuði? Stjórnandi fyrirtækisins tel- ur að verksmiðjan verði starf- hæf aftur eftir tvo mánuði, því fyrirtækið sem lét í té mikið af vélaútbúnaði hennar mun fljót- lega geta látið nauðsynlegustu vélar aftur. Fjórði bruninn. Þetta er fjórði bruninn í fiskimjölsverksmiðjunni á Suð- ureyri. Á s.l. vori kom upp eld- ur í henni og þá skemmdist frystihúsið einnig mikið. Þar áður kviknaði í henni í smíð- um, en hina nýju byggingu var verið að reisa í stað gamall- ar er hafði brunnið. . Samband matreiSsln- og fram- reiðslumanna boðar verkfall hjá skipafélögunum á miðn. aðra nótt Samninganefndir Sambands matreiðslu- og fram- reiðslumanna og atvinnurekenda hafa verið á stöðugum fundum að undanförnu en ekkert samkomulag náðst. I dag mun sáttasemjari ríkisins fá kjaradeilu þessa til meðferðar, en hafi samningar ekki tekizt fyrir klukkan 12 á miðnætti aðra nótt hefst verkfall matreiðslu- og framreiðslumánna hjá Eimskipafélagi Islands, Skipa- útgerð ríldsins, Jökhim h.f., Skipadeild SÍS og Eim- skipafélagi Reykjavíkur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.