Þjóðviljinn - 26.04.1960, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 26.04.1960, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 26. apríl 1960 — ÞJÖÐVILJINN — (5 Hjartað stöðvað í 17 smÉfisr Tvítug sænsk stúlka er nú aftur heil heilsu eftir upp- skurð, enda þótt læknarnir stöðvuðu lijarta hennar í 97 mínútur meðan á honum stóð. Enda þótt það sé nú orðið æði algengt að hjarta sjúklinga sé stöðvað, þykir þessi uppskurð- ur mikið afrek. Hann var gerð- ur á háskólasjúkrahúsinu 'í Upnsölum af hjartaskurðlækn- inum Viking O. OBjörk. Við uppskurðinn var bæði notuð kæling hjartansjniður í 12—14 stig og hjarta-lungna-vél Hingað til hefur læ'knum ekk; tekizt að (hafa hjartað óvirki lengur en eina klukkustund eða svo. Vildi kaispa Kúbo Bandariskur fasteignasali, að nafni 'Will Barnes, skýrði frá því fyrir nokkru að stjórn Kúbu hefði hafnað góðu boði sem hann gerði ihenni: Hann hafði boðizt til að kaupa Kúbu fyrir tíu milljarða dollara út í hönd. rætfi Einn af ráðherrum bylting- arstjórnarinnar hafði svarað honum og sagt að stjórn lians hefði ekki í hyggju að selja j nein landsréttindi. Tilboðið væri vitfirringslegt, en kæmi kannski e'kki á óvart þegar haft væri í huga hverrar þjóðar maður- inn væri. Lokaumferðir biliarkeppni Bridgesambatids Islands voru spiiaðar um síðustu helgi. Sig- urvegari varð sveit Einars Þor- flnnssonar. Þetta er útsláttarkeppni, og tóku upphaflega 26 sveitir, viðs vegar að af iandinu, þátt í henni, en nú spiluðu 4 sveitir til úrslita: Sveit Einars Árnasonar, Reykjavík. Sveit Einars Þorfinnssonar,: Reykjavík. Sveit Halls Símonarsonar, Reykjavík. Sveit Mikaels Jónssonar, Akureyri. í undanrás kepptu fyrst sveitir Einars Árnasonar og Halls Símonarsonar, en sveit Halls vann með 110 stigum á móti 65, og sveit Einars Þor- finnssonar við sveit Mikaels Jónssonar, og vann sveit Ein- ars með 123 stigum á móti 60. Þá kepptu sveitir Einars Þor finnssonar og Halls Símonar- sonar um 1. sætið, og voru spiluð 96 spil. Sveit Einars sigraði með 146 stigum á móti 54 stigum. í keppninni um 3. og 4. sæti vann sveit Einars Árnasonar sveit Mikaels Jónssonar með 120 stigum móti 54, og voru spiluð 64 spil. Bikar sá sem keppt var um, er farandbikar, sem gefinn var af Stefáni Öla Stefánssyni, Akureyri, og er þetta í fyrsta sinn, sem um bikarinn er keppt. 1 sveit sigurvegaranna eru, auk Einars Þorfinnssonar: Gunnar Guðmundsson, Lárus Karlsson, Kristinn Bergþórsson cg Örn Guðmundsson. E ar stúdentar fóru í hóp- E = gijngur um götur borgar- ~ = innar og mótmæltu einræð- — E isstjórn Syngmans Rhee E E Lögreglan beinir bruna- ~ s slöngum að stúdentum, en E ~ þeir skýla sér með flek- — ~ um. Eftir að lögreglan ~ 5 8'reip til skotvopna til að E: = varna stúdentum inngöngu E E í forsetahöllina brauzt út E — uppreisn, sem nú hefur ~ E orðið til þess að Rliee loíar — E bót og betrun. Ekki vill E: E hann þó afsala sér völdum, ’ri E en stjórnarandstaðan krefsí E E þess að komið verði á þing- ™ E ræðisstjórn. E iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiicmmiiiitiiiiiiii Æ. F. R. Aðalfundur Æ.F.R. Aðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 28. apxúl kl. 9 e.h. Dagskrá: 1. Vanju- leg aðalfundai'stöi'f. 2. Byggingar- happdx-ætti Æ.F.. 3. önnur mál. Fjölmennið á fundinn. — Stjórnin. Æ.F.R. gengst fyrir fagnaði xí laugardaginn kemur og hefst hann með nýja gamanleiknuni hans Flosa Ólafssonar ,,Ástir í sóttkvi" stundvxslega kl. 20.30. Síðan flytur Hannibal Valdimars- son ávarp og að lokum verður dansiað til kl. 2. Vitjið miða á ski'ifstofu Æ.F.R. Munið að leik- urinn hefst kl. 20.30 stundviclega. Skemmtiiieíntiin. Elturbyrlarar fyrir rétfi í Babat, höfuðborg Marokkó, standa yfir málaferli gegn 24 mönnum, sem sakaðir eru um að hafa byrlað 10.000 löndum sinum eitur. Sakborningarnir eru kaupsýslumenn, sem fundu upp það gróðabragð að drýgja matarolíu með flugvélaolíu sem þeir fengu fyrir lítið í flugs'iöðvum bandaríska flughers- sns í Marokkó. Yfir 10.000 manns veiktust af að leggja sér samsullið til munns og 600 þeirra hlutu ólæluiandi lamanir. Saksóknari hefur krafizt að sakborningar verði dænidir 'íil dauða. Myndin er úr réttarsalnum í Rabat. Verjandi sakborn- inganna, Moulay Tahar og Moulay Driss ben Abd, er að Iialda læðu. Sakborningarnir sitja á bekknum hægra megin við hann. getur fengið a'tvinnu VINNUFATAGERÐ ISLANDS H.F. Upplýsingar ekki gefnar í síma. við sniðningu. ‘0 Happdrættismiðar seldir í innheimtu Landssímans — — — —-----------------Dregið 21. júní Q msa

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.