Þjóðviljinn - 16.07.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 16.07.1963, Blaðsíða 1
^■■■■■« ...................................... «■■■■■■ Almenn uppgjöf saka á vígslu- degi dómkirkjunnar í Skálholti? Þjóðviljinn frétti það á skotspónum i gær, að dóms- málayfirvöld Islands ætlnðu að veita almenna uppgjöf saka nú um næstu helgi. Þriðjudagur 16. júlí 1963 — 28. árgangur — 156. tölublað Báið að salta nær 50 þás. tunnur á Siglu fírði í gær Það fylgdi fréttinni, að sak- aruppgjöf þessi væri fram- kvæmd í tilefni vígsiu hinnar nýju dómkirkju í Skálholti á sunnudaginn kemur. I I í i Blaðinu tókst ekki að fá ! frétt þessa staðfesta hjá við- « komandi yfirvöldum í gær- : kvöld, en telur sig hafa góðar : heimildir fyrir henni. Lítur eftir stöðumœium Smjörlíki hækkar um rum 23% Hin svonefnda „viðreisn atvinnuveganna" Iætur nú skammt stórra högga milli, enda meir en mánuður Iið- inn frá kosningum. Síðustu fréttir af þeim vígstöðvum herma, að smjörlíki hafi hækkað í verði um hvorki meira né minna en rúm 23%. Hættir hún að kaupa smjörlíki? Samkvæmt viðrcisnarverð- Inu kostar eitt kg. af smjör- líki nú kr. 22,50 í smásölu, en kostaði áður 18 kr. Er þetta rúmlcga 28% hækkun, og hefur viðreisntn á glæsi- legum ferll sínum sjaldan betur gert v:ið húsmæður Iandsins. Heildsöluverð verður nú kr. 17,30 en var áður 15,20. Siglufirði 15/7 — Síðast liðið sunnudagskvöld var bú- ið að salta nér alls í 42.583 tunnur, en allmikil söltun hefur verið í dag og má búast við að nú sé búið að salta í um 50 þúsund tunnur. Mikið annríki um helgina Hæstu söltunarstöðvamar á miðnætti sl. sunnudags- kvöld voru: Pólstjarnan h.f. 5.106 tunnur, Nöf h.f. 4.970 tunnur, Söltunarstöð Haraldar Böðvarssonar 3.784 tunn- ur og Söltunarstöð Ólavs Hendrikssen 3.353 tunnur. Mikið annríki hefur verið á Siglufirði frá því að brælunni lauk. Veiðin hefur nær eingöngu verið við Kolbeinsey og mest af aflanum hefur borizt hingað. Hefur verið unnið við söltun svo að segja dag og nótt og hefur mikill skortur verið á vinnuafli. í dag hefur verið heldur treg veiði, og hefur meginið af flotanum látið reka og bíður kvöldsins í von um að veiði glæðist þá. Kjaradeilunni á Akranesi lauk án vinnustöðvunar Verkalýðsfélag Akraness | ir ýmis störf, og færist þessi þær kröfur fram að ganga ifði boðað vinnustöðvun, ef vinna í II. taxta, en vinnu- Þá voru gerðar nokkrar aðr- hafði samningar tækjust ekki fyr- ir 14. þ. m- en ágreiningur hafði orðið um kvennakaup, unglingakaup og nokkur fleiri atriði. í fiskvinnu hafa konur haft sömu laun og karlmenn fyr- SITJA VIÐRÆÐUFUNDINA í MOSKVU veitendur vildu láta kvenna- kaupið fylgja fyrsta taxta áfram. Þá hefur unglinga- kaupið verið nokkru hærra á Akranesi en í Reykjavdk og vildu vinnuveitendur ekki fallast á að hækka það um 7.5% eins og aðra taxta, Samkomulag hafði tekizt um flest önnur atriði í samning- unum, áður en deilan fór fyrir sáttasemjara. Verka- lýðsfélagið hélt fast á kröf- lum sínum um að kvenna- kaupið fylgdi karlakaupi á sama hátt og áður, og að unglingkaupið hækkaði til jáfns við aðra taxta og náðu AðaJfulItrúar veeturveldanna á ráðstcfnunni í Moskvu um afvopnunarmál cru þeir Ilarriman, að- stoðarutanrikisráðherra Bandaríkjanna, og Ilalisham greifi, vísindamálaráðherra Bretlands. Sjást þeir hér á myndinni, sem tckin var á dögunum í London, er þeir Halisham (til vinstri) og Harriman <t.h.) hittust þar og báru saman bækur sínar. Frekari fréttir á 3. síðu. Heimsmet í stangarstökki LONDON 14/7. Bandaríkjamað- urinn John Pennel setti nýtt heimsmet í stangarstökki á Iaug- ardaginn. Hann keppti scm gest- ur á meistaramóti Breta í frjáls- um íþróttum. Hið nýja heims- met cr 5.10 metrar og stökk Pcnncl yfir þá hæð í fyrstu til- raun. Hann felldi hinsvegar þeg- ar sláin var færð upp í 5.19 m. hæð. Fyrra metið var 5,02 metrar og átti það Bandaríkjamaðurirm Sternberg. Hann lamaðist eins og kunnugt er fyrir skömmu og er ekki búizt við að hann kom- ist nokkum tíma til heilsu aftur. Þeir eru orðnjr margir stöðu- mælamir í Reykjavík og eftir- lit með þeim talsvert starf, ekki hvað sízt vegna þess að brögð eru að þvi að menn troði í mælana penjngum sem ekk- ert erindi eiga þangað en geta valdið skemmdum á tækjunum. Á myndinni sést Guðlugur Gislason úrsmiður grandskoða innvolsið úr einum stöðumæl- anna í Lækjargöju. (Ljósm. Þjóðv. A.K.)'. ar lagfæringar á samningum félagsins. Verkafólk á Akranesi stóð mjög einhuga f þessari deilu, 'þótt samkomulag hefði áður náðst við ýmsa starfshópa innan félagsins . Fylkingarferð „út í bláinn“ annað kvöld Fylkingarfélagar. Annað kvöld, miðvikudagskvöld, verður farið í eina af hinum vinsælu kvöld- ferðum „út í bláinn“. Lagt verð- ur af stað frá Tjamargötu 20 kl. 8. Síldaraflinn minni en á sama tíma '62 Samkvæmt skýrslu Fiskifélags íslands var heildarafl- inn á síldveiðunum norðanlands og austan orðinn 435.994 mál og tunnur í lok síðustu viku, en það er 54 þús. málum og tunnum minni afli en á sama tíma í fyrra. Lítil síldveiði var síðastliðna viku. Bræla var á miðunum, Austan Langaness var lítið hægt að athafna sig við veiðar og á norðurmiðum var ekki veiðiveð- ur síðustu daga vikúnnar og lá allur flotinn í höfnum inni eða í landvari. Aðeins einn dag í vikunni var veiði svo nokkru næmi. Vikuaflinn var 78.032 mál og tunnur, en var 283.428 mál og tunnur sömu viku i fyrra. Söltun er nú nokkru meiri en i fyrra eða 111.528 uppsaltaðar tunnur, en í lok sömu viku. í fyrra 61.151 tunnur. Heildarafl- inn j vikulokin var 435.994 mál og tunnur, í fyrra 489.982 mál og tunnur. Aflinn hefur verið hagnýttur þannig: 1 salt, uppsalt. tunnur 111.528 1 bræðslu, mál 310.646 í frystingu, uppm. tn. 13.820 Vitað var um 211 skip, sem fengið höfðu einhvem afla í vikulokin og af þeim höfðu 175 skip aflað 500 mál og tunnur og þar yfir. Aflahæsta skipið er Sigurpáll úr Garði með 10.546 mál og tunnur. — Sjá afla- skrá á 10. síðæ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.