Þjóðviljinn - 18.08.1963, Blaðsíða 1
/
Guðrún Bjarnadóttir kjörin
„Ungfrú Alheimur 1963"
í fyrrakvöld var Guðrún Bjarnadóttir, feg-
urðardrottning íslands 1962, kjörin „Ungfrú
alheimur 1963“ í fegurðarsamkeppninni á
Langasandi í Bandaríkjunum. Er þetta 1 fyrsta
sinn sem íslenzk stúlka hlýtur slíkí sæmdar-
heiti en Sigríður Geirs varð nr. 3 í keppni
þessari á sínum tíma og Sigrún Ragnars nr.
6, Anna Geirs varð önnur í Miami.
Keppendur í fegrurðarsam
keppninni að Langasandi
voru að þessu sinni 86 og
voru 15 þeirra valdar j ur-
slitakeppnina og þar sigrað5
Guðrún með glæsibrag að þv
er fréttir að vestan herma
Austurrísk stúlka hrenp4'
hins vegar annað sætið.
Að launum fyrir sigurim
hlaut Guðrún Bjarnádóttir 1(’
þúsund dollara í reiðufé <>•
ýmsa góða gripi en auk þess
munu henni nú standa marg-*
ar leiðir opnar til frekari
''rama. óskar Þjóðviljinn
•uðrúo'i *il hamingju með
igurinn.
Guðrún er aðeins tvítug að
’’dri en hún er dóttir Bjarna
’inai'ssonar skipasm*ðameist
'ra í Njarðvikum og konu
'iíític Cfo^nsflAttlir
Á 12. síðu
blaðsins í dag er \
æviferill
Guðrúnar Bjarna-
dóttur rakinn
í stórum dráttum
Þar er einnig
birt stutt viðtal ví^
föður hennar,
Bjarna Einars«'”
skipasmíða-
meistara.
í gær gerðust þau fíðindi að ríkisstjórnin gaf út bráðabirgðalög þar
sem ákveðin er skipun gerðardóms til þess að ákveð^a kaup og kjör verk-
fræðinga sem starfa hjá öðrum en ríkinu og eru verkföll verkfræðinga
sem staðið hafa yfir að undanförnu jafnframt bönnuð með lögum þess-
um. Hefur ríkisstjórnin þar með enn einu sinni gerzt sek um þá óhæfu að
hindra eðlilega samninga launþega og atvinnurekenda um kaup og kjör
með gerðardómseinræði.
Þjóðviljanum barst fréttatil-
kynning frá atvinnumálaráðu-
neytinu um lagasetningu þessa
í gærmorgun og snéri hann sér
þegar til framkvæmdastjóra
Stéttarfél. verkfræðinga, Hinr-
iks Guðmundssonar, til þess að
leita álits hans á þessu atferli
ríkisstjórnarinnar. Hafði félag-
inu þá engin tilkynning borizt
um gerðardóminn og frétti Hinr-
ik fyrst af honum hjá Þjóðvilj-
anum. Fréttatilkynningin var
síðan lesin i hádegisfréttum
Ríkisútvarpsins.
Þegar Þjóðviljinn átti aftur
tal við Hinrik Guðmundsson
síðdegis i gær hafði verkfræð-
ingafélaginu enn engin tilkynn-
ing borizt frá ríkisstjóminni og
kvaðst hann því ékki reiðubú-
inn á þessu stigi málsins til
þess að láta í ljós fyrir hönd fé-
lagsins neitt álit eða umsögn
um lagasetninguna. Verður það
að teljast furðulegt af ríkis-
stjórninni að hún skyldi ekki
tilkynna Stéttarfélagi verkfræð-
inga um gerðardóminn á sama
hátt og blöðum og útvarpi.
Fréttatilkynning atvinnumála-
ráðuneytisins um gerðardóms-
skipunina fer hér ó eftir orð-
rétt:
„Forseti fslands hefur í dag,
samkvæmt tillögu ríkisstjómar-
innar, sett svofeJld bráðabirigða-
lög um lausn kjaradeilu verk-
fræðinga:
FORSETI ÍSLANDS gjörir
kunnugt: Ríkisstjómin hefur tjáð
mér, að algert verkfall hafi
staðið yfir hjá meðlimum Stétt-
arfélags verkfræðinga, frá 27.
júní sl. Frá 1. júlí þ.á. hafi
'tekið gildi nýtt Iaunakerfi op-
inberra starfsmanna samkvæmt
kjaradómsúrskurði, en launa-
kröfur Stéttarfélags verkfræð-
inga, sem fédagið hafi haldið fast
séu almennt vemle;
en laun sambærilegra starfs-
manna, samkvæmt kjardómi.
Þannig sé öllu samræmi launa-
kerfis rikisins, sem komið var
á með lögum um kjarasamn-
inga opinberra starfsmanna, nr.
55/1962, við laun fyrir sambæri-
leg störf hjá öðmm en ríkinu,
stefnt í hættu og þannig unnið
gegn efnahagskerfi landsins og
hagsmunum almennings. Beri
því brýna nauðsyn til að gera
rúðstafanir til að koma í veg
rir slíka þróun mála.
Fyrir því em hér með sett
bráðabirgðalög, samkvæmt 28.
gr. stjómarskrárinnar, á þessa
leið:
1. gr.
Hæstiréttur tilnefnir þrjá
menn í gerðardóm, sem ákveði
kjör verkfræðinga, sem starfa
hjá öðmm aðilum en ríkinu.
Dómurinn skal einnig setja
gjaldskrá fyrir verkfræðistörf,
sem unnin em í ákvæðisvinnu
eða tímavinnu.
Hæstiréttur kveður á um,
hver hinna þriggja gerðardóms-
vera formaður
Gerðardómurinn setur sér
starfsreglur. Hann aflar sér af
sjálfsdáðum nauðsynlegra gagna
og er rétt að krefjast skýrslna,
munnlegra og skriflegra, af ein-
stökum mönnum og embættis-
mönnum.
2. gr.
Gerðardómurinn skal við á-
kvörðun mánaðarlauna, vinnu-
tíma og launa fyrir yfirvinnu,
hafa hliðsjón af því, hver séu
kjör verkfræðinga og annarra
sambærilegra starfsmanna hjá
ríkinu, samkvæmt launakerfi
Framhald á 9. síðu.
Tveir andfasistar á Spáni
voru kyrktir mel járnum
MADRID 17/8. — í dag lét fas-
istastjórnin taka tvo stjóriunála-
andstæðinga sína af lífi. Var
jámum bmgðið um háls þeirra
og þeir kyrkíJir. Menn þessir
hétu Franeisco Granados Gata
og Joaquin Delgado Martinez.
Þeir vom báðir þrítugir að aldri.
Fasistastjómin hefur lýst því
yfir að Gata og Martinez séu
stjórnleysingjar og hafi framið
hermdarverk á Spáni. Sérstök
áherzla er lögð á það að þeir
séu báðir synir spænskra stjóm-
leysingja sem flúið hafi til
Frakklands í lok borgarastyrjald-
arinnar á Spáni og séu enn á
lífi.
Herréttur í Madrid kvað upp
dauðadóminn á þriðjudaginn var.
Voru þeir dæmdir fyrir að hafa
gengizt fyrir sprengjuárás á að-
alstöðvar öryggislögreglunnar og
skrifstofur „verkalýðssambands-
ir.s“, sem falangistar ráða, i
Madrid. Báðir neituðu þeir þess-
um ákærum en samkvæmt op-
inberum tilkynningum frá her-
réttinum viðurkenndu þeir að
hafa ílutt plastsprengjur og
annað þess háttar frá Frakklandi
til Spánar. Ennfremur viður-
kenndu þeir að þeir væru með-
limir í Frelsishreyfingu æsk-
unnar (Juventudes Libertarias)
sem bækistöðvar hefur í Frakk-
landi. Þeir félagar munu hafa
játað á sig eprengjuárásir
er þeir voru handteknir ■ en lýst
því^síðan yfir í réttinum að sú
iátning væri uppspuni. Kváðust
þeir hafa játað til að bjarga
lífi annarra manna.
Sér ekki á svörtu
I gær var spænska ríkisstjóm-
in kölluð saman til aukafundar
til þess að ræða málið, en stjórn-
in verður að staðfesta dauða-
dóma sem herrétturinn kveður
upp. Vitað er að nokkur ágrein-
ingur var í stjóminni vegna
morðsins á Julian Garcia Grim-
au, nokkrir hinna yngri falang-
ista voru því mótfallnir að hann
yrði drepinn. í þetta sinn sem
endranær höfðu þó þeir sitt
mál fram sem telja að fasista-
stjómina muni ekki um nokkra
blóðbletti til viðbótar og gera
sér grein fyrir því að það sér
ekki á svörtu
Sunnudagur 18. ágúst 1963 — 28. árgangur — 174. tölublað.
Grein um doktorsrít
Bjarna Guðnasonar
Á 7. síðu blaðsins í dag ritar
Gunnar Benediktsson rithöfund-
ur um doktorsrit próf. Bjama
Guðnasonar: Um Skjöldungasögu.
Hvað kostar að iifr
á íslandi í dag ?
Fróðleg grein um það efni er
birt á 3. síðu blaðsins í dag og
ættu lesendur ekki -að láta hana
framhjá sér fara.
Enn beitir ríkisstjórnin
gerðardómi í k jaradeilu!
»
/
*
í