Þjóðviljinn - 21.11.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.11.1963, Blaðsíða 1
skil sem ctllra fyrst VÍÐTÆK SAMSTARFSNEFND SAMSTAÐA STARFSGREINA HAPPDHÆTTI ÞJÓBIVILJANS 1963 berast stöðugrt margar óskir um ákveðin númer og hefur tekizt að verða við þeim fiestum hingað til. Þó hefur verið beðið um tvö númer sem búið er að senda út og ekki hefur enn náðst til. Eru það nr. 4232 og 8034. Þeir sem hafa fcngið þessi númer send eru vinsamlega beðnir að hafa samband við skrif- stofu happdrættisins ef núm- erin eru enn óseld og þeir vilja Iáta þau af hendi. □ Langflest verkalýðsfélögin sem lausa hafa samninga eru nú komin með í þá samtakaheild sem mynduð hefur verið fyrir forgöngu Alþýðu- sambandsins. □ Samstaða starfsgreinafélaganna í sanningavið- ræðunum hefur þegar verið ákveðin og sú skipt- ing tilkynnt sáttasemjara ríkisins. Allir starfs- greinahópar hafa myndað samstarfsnefnd, er fjalla skal um sameiginleg vandamál og stuðla að samræmingu innbyrðis við samningagerðina. □ Samningaumræður eru nú þegar hafnar af hálfu landsnefndar verkamanna- og verkakvenna- félaganna, bókagerðarmanna, verzlunarmanna og iðnverkafólks, og er þess að vænta að samninga- viðræður hefjist hið fyrsta ag hálfu allra þessara aðila. Þessi mynd var tekin á Reykjavikurflugvelli í gærmorgun og sýnir snjóblásara sem notaður er til þess að hreinsa flugbrautirnar. Þeytir hann snjónum hátt f loft upp og myndar mikinn snjó- mökk. Ekki jafnast hann þó á við gosmökkinn f Eyjum enda varla von. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.). Tryggvi Helgason festir kaup á f jórum flugvélum | | Tryggvi Helgason flugmaður á Akureyri er nýkominn heim frá Bandaríkjunum en þar hefur hann dvalið um tveggja mánaða skeið. Hefur hann gert samning um kaup á 4 tíu sæta vélum er hann ætlar að kaupa af Bandaríkja- her. Mun hver flugvél kosta um 1 milljón krón-a að með- töldum breytinga- og lagfæringakostnaði. Kosningar í Japan TOKIO 20/11. — Á morgun, fimmtudag, fara fram þingkosn- ingar í Japan eftir harða kosn- ingabaráttu sem einkum hefur staðið um hið síhækkandi verð- lag í landinu og rýmandi kjör launþega af völdum verðbólg- unnar. Ekki er búizt við mikl- um breytingum á þinginu. Flugvélar þessar eru af gerð- inni Twin Beech C 45. Eru þær tveggja hreyíla og meðalflrjg- hraði um 300 km. á klukkustund. Þurfa þær 600 til 800 metra flugbraut fullíhlaðnar en henta að öðru leytri vel ísl. staðháttum að því er Tryggvi telur. Þykja þetta mjög öruggar vélar. ílug- vélamar eru 7 ára gamlar. Eins og áður seg*r taka flug- vélar þessar 10 farþega og mun Tryggvi hafa í hyggjú að nota Bardagar i Caracas sjá síðu © þær til fólks- og vöruflutninga svo og sjúkraflugs ef með þarf. Þarí aðeins einn flugmann á hverja véL Samstarfs- nefndin Samstarfsnefndrin er þannig skipuð: Tveir fulltrúar eru frá Al- þýðusambandi Islands: Hannibal Valdimarsson forseti ASl, Snorri Jónsson framkvæmdastj óri ASl. Fimm fulltrúar frá landsnefnd verkamannafélaganna: Eðvarð Sigurðsson formaður Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar, Her- mann Guðmundsson formaður Verkamannafélagsins Hlífar, Hafnarfirði, Bjöm Jónsson for- maður Verkalýðsfélagsins Ein- ingar, Akureyri, Jóna Guðjóns- dóttir, fonmaöur Verkatovenna- félagsins Framsóknar. Reykjavík. Fimmti fulltrúinn mun verða frá Vestfjaröafélögunum. Tveir fuHtrúar frá félögum iðn- Forsetaheimsókn- inni ai Ijúka AðalveizJan til heiðurs for- seta íslands í Bretlandsförinni var haldin í Guildhall í fyrra- kvöld, og var það yfirborgar- stjórinn í London sem hana hélt. Fluttu forsetinn og borgarstjór- inn langar ræður. Borgarstjórinn gaf forsetanum bókagjöf og áletraðan silfurbik- ar. Forsetinn sæmdi hann hárri gráðu Fálkaorðunnar. Spilakvöld Sósía/istafé/agsins Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur spila- og skemmti- fund í kvöld kl. 8,30 í Tjamargöfu 20. Stefán Jónsson rithöfundur les upp úr verkum sín- im. Kvenfélagskonur standa fyrir veitingum. Fjölmennið, félagar, og takið með ykkur gesti. — I gær heimsótti forsetínn British Museum og nútímalista- safnið Tate Gallaery. Forsetinn sat hádegisverðarboð varautan- ríkisráðherra f veitingahúsinu Ye Old Gheshire Gheese i Fleet Street. Islenzka sendiráðið hélt forsetanum síðdegisboð að Dor- chester hóteli og bauð þangað öllum Islendingum í London á- samt mökum þeirra og §tóð það samkvasmi í tvær klukkustund- ir. I gærkvöld var forseta og fylgdarliði boðið í Old Vic leik- húsið að sjá Hamlet og var það Butler utanríkisráðherra sem bauð. I dag er fyrirhuguð heimsókn í Oxford og í kvöld kveðjuveizla sem forsetinn heldur. Hinni op- inberu heimsókn lýkur á föstu- dagsmorgun með því að fulltrúi Bretadrottningar kemur á hótel forsetahjðnanna og kveður þau formlega. verkafólks: Guðjón Sigurðsson formaður Iðju, Reykjavík og Jón Ingimarsson formaður Iðju Ak- ureyri. Tveir fuHtrúar frá félögum bókagerðarmanna: Pétur Stef- ánsson fortmaður Hins Isl. prent- arafélags og Grétar Sigiurðsson formaður Bókibindarafélags Isl. Þrír fulltrúar frá samtökum verzl unarm an n a: Sverrlr Her- mannsson forseti Landssambands íslenzkra verzlunarmanna. Guð- mundur H. Garðarson formað- ur Verzlunarmannafélags Reykja- vftour. Þriðji fulltrúinn er frá verzlunarmannafélaginu á Ak- ureyri, Sigurður Jóhannsson. Tveir fulltrúar frá félög- um málmiðnaðarmanna og skipa- smiða: Guðjón Jónsson fjármála- ritari Félags jámiðnaðarmanna og Sigurgestur Guðjónsson for- maður Félags bifvélavirkja. Tveir fuMitrdar frá félögum byggingariðnaðarmanna: Sturia H. Sæmundsson varaformaður Trésmiðafélags Reykjavíkur og Framhald á 2. síðu. ÞAÐ ER MJÖG BRÍNT að menn geri sem fyrst skil fyr- ir seldum miðum og það eins þótt þeir eigi enn citthvað óselt af þeim miðum er þeir hafa fengið senda. Má þá gera heildaruppgjör fyrir þeim seinna. Skrifstofa happ- drættisins er að Týsgötu 3, sími 17504, opin kl. 9—12 og 13—18. Þeir sem búa utan Reykjavíkur geta póstsent uppgjör til skrifstofunnar. AUKAVINNINGURINN sem við kynnum að þessu sinni er sófasett frá HÚSGAGNA- VERZLUN AUSTUR- BÆJAR að verðmæti kr. 10.000,00. Vissulega stórglæsileg- ur vinning- nr. Eidingabloss- ar frá gos- stöðvunum Allmargir ehlingablossar sá- ust í gærkvöld frá Reykjavík úr átt gosstöðvanna, að því er Páll Bergþórsson veðurfræðing- ur skýrði blaðinu frá, og var þó skýjað að mestu yfir fjall- garðinum. Sagðist Páll hafa séð þrjá glampa um sjöleytið og a.m.b. tvisvar seinna um kvöldið. Hann kvaðst hafa talað við Vestmannaeyjar og hefðu menn, þar líka haft á orði að óvenju miklir eldblossar sæjust frá gos- stöðvunum og gosið virtist síður en svo vera að minnka SLASAÐIST VIÐ SLÖKKVISTARFIÐ Eins og frá hefur verið skýrt I í blaðinu í gær kom upp eld-1 ur I húsi Pípuverksmiðjunnar að Rauðarárstíg 25 um kl. 22.15 í I fyrrakvöld. Kom eldurinn upp í risi hússins og urðu allmiklar skemmdir á þakinu og auk þess talsverðar skemmdir af vatni. Var slökkviliðið á þriðja tíma að Framhald á 2. síðu. Fékgsfundur ÆFR 1 kvöld kl. 8,30 hefst í Tjarnargötu 20 félags- fundur í Æskulýðsfylkingunni í Reykjavík. DAGSKRÁ: 1. Kjaramálin. Framsögumaður Björn Bjamason. 2. Félagsmál. 3. Önnur mál. Fylkingarfélagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. J:.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.