Þjóðviljinn - 05.08.1964, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.08.1964, Blaðsíða 5
r.liðvikudagur 4. ágúst 1964 ÞlðÐVIUINN siða 5 HEIMSMETIN FUKU Á BANDA- RÍSKA SUNDMEISTARAMÓTINU Frábært heimsmet ■ Afburða góður árangur náðis't' í mörgum grein- um á sundmeistaramóti Bandaríkjanna, sem háð var í Los Altos s.l. föstudag og laugardag. Sett voru sjö ný heimsmet og nokkur landsmet að auki. Er ljóst að bandarískir sundmenn verða harðir í horn að taka á olympíuleikjunum í Tokíó í haust, ekki síður en frjálsíþróttamennimir. Fyrri mótsdaginn í Los Alt- os í Kaliforníu voru sett þrjú ný heimsmet. Fyrsta 1 metið setti 18 ára gamall skólapilt- ur, Don Schollander, í 400 m skriðsundi, synti vegalengóina á 4.12.7 mín. og bætti eldra metið, sem Ástralíumaðurinn Murray Rose setti fyrir 10 árum í Chicago, um 7/10 sek. Murray Rose tók þátt í sund- inu á föstudaginn og varð annar í sundinu, fékk 3 sek. lakari tíma en sigurvegariim og hinn nýi methafi. Annað heimsmetið setti Dick Roch. 17 ára gamall, í 400 m. fjórsundi. Synti hann vega- lengdina á 4.48,6 mín og várð á undan Roy Saari í mark, en Roy er frægur sundmaður og var talinn sigurstranglegri. Roy Saari synti einnig á betri tíma -én eldra heimsmetið, sem V- Þjóðverjinn Gerhard Hetz setti í Tokíó í fyrra og var 4.50,2 mín. þriðja heimsmetið á föstudag- inn setti boðsundssveit Santa Clara félagsins í 4x100 metra skriðsundi kvenna. Syuti sveit- in á 4.08,5 mín. og bætti eldra metið um 4/10 sek., en það met 'átti sigursveit Bandaríkj- anna á olympíuleikunum í Róm 1960. Síðari dag sundmeistaramóts- ins í Los Altos bætti Don Sch- ollander heimsmetið í 200 m. Murray Rose tapaði heims- metinu. skriðsundi, synti vegalengdina á 1.57,6 mín, sem er 8/10 sek. betri tími en eldra met Þjóð- verjans Joachims Klein. R laugardaginn bætti Marl- ym Ramenofsky eigið heims- met í 400 metra skriðsundi, synti á 4.41,7 mín, sem er 3/10 sek. betri tími en eldra metið. 1 þessu sundi varð 13 ára göm- ul stúlka, Patsy Caretto, að nafni, sjöunda, en fyrri dag mótsins hafði Hún sett tvö heimsmet, í 800 og 1500 metra skriðsundi. 1500 m. synti Patsy á 18.30,5 mín., en millitími .hennar á 800 metrunum var 9.47,3 mín. Eldri heimsmetin, sem sett voru fyrir tveim ár- um, átti Carolyn House og voru þau 18.44,0 á 1500 m. og 9.51,6 á 800 m. Handknattleiksmótið: Fyrsti leikur Ár- menninga í kvöld ■ íslandsmótinu í úti- handknattleik verður hald- ið áfram á íþróttasvæðinu á Hörðuvöllum í Hafnar- firði í kvöld og annað kvöld. 1 kvöld, miðvikudag fara Tékkneski íþróttamaður- inn Ludvik Danek setti s.l. sunnudag nýtt heimsmet í kringlukasti, kastaði hvorki meira né minna en 64,55 metra og bætti þar með eldra metið, sem Banda- ríkjamaðurinn Alfred Oert- er átti, um 1 metra og 61 sentímetra. Alfred Oerter vann kringlukastið á olympiu- leikunum í Melbourne 1956 og Róm 1960 og hann hefur þegar verið valinn í banda- riska olympíuliðið i þriðja sinn. Bendir allt til þess, að olympíumeistarinh frá Bandaríkjunum fái harð- skeyttan keppinaut í Tokío í haust þar sem Tékkinn Danek er, en sá síðarnefndi kastaði kringlunni í fyrsta skipti yfir 60 metra á síð- astliðnu ári, en fyrr á þessu ári setti hann nýtt Evrópumet í íþróttagrein- inni. er hann kastaði 62,45 metra. Bikarkeppnin hófst í gœr Bikarkcppni KSÍ hófst í gær með leik milli Hauka og Vík- ings suður í Hafnarfirði. Þetta er í fjórða sinn sem slík bik- arkeppni er haldin og hefur KR sigTað í öll skiptin. Þátttaka er nú meiri en nokkru sinni fyrr og senda 13 félög alls 19 lið til keppninn- ar. 1. deildarliðin senda öll A og B-lið, en hin félögin eitt hvert; þau eru: ÍBA, ÍBÍ, ÍBV, Breiðablik, FH, Haukar og Vikingur. Mótið er hrein útsláttar- keppni og það félag sem tap- ar er þar með úr leik í keppn- inni. Fyrri hluti mótsins fer fram nú í ágústmánuði, en A- lið 1. deildarfélaganna koma ekki í keppnina fyrr en í síð- ari hluta mótsins í september. 76,22mkast Einna athyglisverðasti á- rangurinn á unglingameistara- móti Noregs í frjálsum íþrótt- um um helgina var spjótkast Arne Os, en hann kastaði spjótinu 76,22 metra. FINNAR UNNU SVÍA f KNATTSPYRNU: 1-0 fram þessir leikir: IR—Árm. í meistaraflokki karla. FH— Breiðablik í meistaraflokki kvenna. Þróttur—Ármann i meistaraflokki kvenna. Annað kvöld, fimmtudag, verða þess- ir leikir: Keflavík — FH í 2. flokki kvenna. Fram—Víkingur í 2. flokki kvenna. Haukar — IR í meistaraflokki karla. Keppnin hefst bæði kvöldin klukkan 8. ■ Sl. sunnudag sigraði finnska landsliðið í knatt- spyrnu sænska A-landsliðið í fyrsta skipti á heimavelli í 30 ár. Skoruðu Finnarnir eitt mark, en Svíar ekkert. Landsleikurinn fór fram á olympíuleikvanginum i Hels- inki að viðstöddum 15 þúsund áhorfendum, sem fögnuðu hin- um kærkomna sigri heima- liðsins mjög. -r-e> Akureyri - KR 4:1 Eiga Akureyringar sterkasta liðið? Akureyringar sigruðu Is- landsmeistara KR mcð 4:1 norður á Akureyri á laugar- dag. Leikurinn var haldinn til ágóða fyrir minningarsjóð um Jakob Jakobsson knatt- spyrnumann frá Akureyri, sem léat snemma á þessu ári. Eins og kunnugt er féllu Akureyringar úr 1. deild í fyrra, en samt sem áður er það álit margra að þeir eigi á að skipa einu sterkasta knatt- spyrnuliði landsins nú. Fyrri leikir þeirra í sumar hafa bent til þess að svo væri og úr- . slitin á laugardag virðast staðfesta það. Verður gaman að sjá hvað Akureyringar standa sig í bikarkeppni KSl sem nú er að hefjast. Geir Kristjánsson úr Fram lék í marki KR og eftir aðeins 5 mín. mátti hann hirða bolt- ann úr KR-markinu. KR-ingar jafna um stundarfjórðungi síð- ar og stóð svo þar til í lok " hálfleiksins, að Skúli Ágústs- son setti annað mark Akureyr- inga. 1 síðari hálfleik skoruðu Akureyringar svo tvö mörk til viðbótar en KR ekkert. Verðskuldaður sigur Fyrri hálfleikurinn var all- jafn og tókst hvorugu liðinu að skora mark. Strax í upphafi síðari hálf- leiks hófu Finnar þunga sókn að sænska markinu og á 14. . mínútu hálfleiksins tók^t þeim að skora sigurmarkið. ' Markið kom upp úr góðri fyrirgjöf finnska miðherjans, Arto Tolsa, sem hægri útherj- fnn, Semi Nuoranen, notfærði sér viðstöðulaust með hörku- skoti. Sænski markvörðurinn, Arvidsson, hálfvarði; hafði hann hendur á knettinum, en hélt ekki og Jervi, vinstri út- herji Finnanna kom brunandi að og sendi boltann í netið. Sjö mínútum síðar tókst Svíum að senda knöttinn í marknet Finnanna, en markið var ógilt, þar eð dómarinn hafði áður flautað vegna brots eins leikmanna. Það sem eftír var hálfleiksins áttu Finnar meira í leiknum og var sigur þeirra verðskuldaður. Bezti liðsmaður Finna var talinn vera Aarno Rinne, mið- framvörður, en af Svíunum var beztur Roger Magnusson, vinstri útherji. Sem fyrr var sagt unnu Finnar nú Svía í fyrsta skipti á heimavelli í 30 ár. Síðast unnu Finnar sænska landsliðið 13. júní 1952 í Osló. Fyrir le'kinn var val finnska landsliðsins mjög til umræðu og gagnrýnt, ekki hvað sízt vegna þess að margir leik- manna voru settir í stöður á vellinum sem þeir leika ekki í jafnaðarlega. Voru Svíar fyr- irfram vissir um að þessi til- raun Finnanna myndi mis- heppnast, og spáðu sænsk blöð því að hið leikreynda og gam- alkunna sænska landslið myndi sigra með allt að þriggja marka mun. Finnskur ungl- ingur 15,63 m / þrístökki Á unglingameistaramóti Finn- lands í frjálsum íþróttum um síðustu helgi setti Peratti Pousi nýtt finnskt unglingamet í þrístökki, stökk 15,63 metra. Af öðrum góðum afrekum má nefna 400 m. grindahlaup Jaakko Tuominen á 51,5 sek., stangarstökk Erkki Mustakari 4,50 metra. kúluvarp Antero Juntto 17,03 meíra og langstökk Heikki Mattila 7,40. Er ekki annað sýnna en langstökk verði áfram ein af hinum ,.finnsku” greinum, þv£ að 2. maður í langstökkinu var Pertti Pousi með 7.38 og sá þriðji var með litlu lakari á- rangur. Landslið gegn pressuliði á Laugardalsvellinum í kvöld I kvöld fer fram á Laugar- dalsvellinum leikur milli liðs. sem landsliðsnefnd KSl hef- ur valið, og liðs, sem íþrótta- fréttaritarar dagblaðanna velja. í Þjóðviljanum á laugardag var frá því skýrt hvemig lið landsliðsnefndar verður skip- að, en hér á eftir fer lið í- þróttaf réttaritara: Geir Kristjánsson, Fram Ámi NjáUson, Val Sigurður Einarsson Fram Magnús Jónatansson. IBA Þórffur Jónsson, KR Sveinn Jónsson, KE Gunnar Guðmannsson, KR Skúli Ágústsson, ÍBA Gunnar Felixson, KR Kári Árnason, lBA Valsteinn Jónsson, IBA Fyrirliði er Sveinn Jónsson, KR. Eins og sjá má er lið íþróttafréttaritara borið uppi af Akureyringum og KR ing- um, en lið landsliðsnefndar er skipað eins og í landsleikn- um við Skota að öðru leyti en því að Keflvíkingamir Karl og Rúnar koma nú inn í liðið. Mikil forföll eru nú meðal knattspyrnumanna og hefur það valdið erfiðleikum við val manna í lið'n. Landsliðsnefnd KSl hefur valið eftirtalda menn sem varamenn fyrir bæði liðin: Björgpiin Hermannss., Val Jóhannes Atlason, Fram Sigurffur Albertsson, ÍBK Einar Helgason. IBK Baldur Scheving, Fram Aðesins ☆ Mjúkur oddur ☆ Falleg skrift ☆ Blekiff dofnar ekki ■ir Vandað smíði HEIMS-MET f SÖLU KÚLUPENNA KRYDDRASPIÐ FÆST i NÆSTU BÚÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.