Þjóðviljinn - 15.12.1965, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 15.12.1965, Blaðsíða 1
Happdrœtti ,*! Nú fara að verða síðustu *] forvöð að gera skil í .★J happdrættinu. ★I Tekið er á móti skilum ★I á afgreiðslu Þjóðviljans ★I Skólavörðustíg 19 frá 9 ★J til 6. Umboðsmenn út um Þjóðvilians ★ land eru minntir á að ★ nota vel þessa síðustu .★] daga og póstleggja loka- [ ★' uppgjör fyrÍT jól. ■*- Vinningar eru tvær af ★ hinum eftirsóttu bifreið- ★j um Skoda 1000 - MB. ★ Freistið gæfunnar um leið ★ og þið tryggið útkomu ★ Þjóðviljans. Dregið eftir 9 daga JF • • MATVORULIDUR VISITOLU 231ST ■ í frétt frá Hagstofu íslands um vísitölu fram- færslukostnaðar í byrjun mánaðarins segir m.a. að matvöruliður vísitölunnar hafi hækkað um tvö stig í nóvembermánuði eða upp í 231 stig, og hef- ur þá þessi eini liður hækkað í tíð núverandi stjórnar um hvorki meira né minna en 131 stig! Matvöruliðurinn er einn af fjórum liðum þess flokks vísi- tölunnar sem nefnist ,,vörur og Brotizt inn á þrem stöðum Brotizt var inn á þrem stöð- um í Hafnarfirði í fyrrinótt og er líklegt, að sami eða sömu þjófer hafi verið að verki í öll skiptin. Brotizt var inn í bið- skýli með söluturni við Strand- götu 50, í apótekið við Strand- götu og í húsgagnaverkstæði við Reykj avíikurveg. Talsverðar skemmdir voru unnar á öllum stöðunum, en ekki er vitað, hvort þjófernir hafa borið nokkuð úr býtum. þjónusta“. og sá eini sem breyt- ing hefur orðið á í nóvember. Hinir undirliðir þessa flo.kks eru óbreyttir frá fyrra mán- uði; Hiti, rafmagn o.fl. 160 stig Fatnaður og álnavara 176 stig Ýmis vara og þjónusta 211 stig f heild hækkar flokkurinn ,,vörur og þjónusta“ úr 208 stig- um í 210 stig. Húsnæðisflokkur vísitölunnar er óbreyttur frá því sem var 1. nóvember, 126 stig, en til samans reiknast þessir tveir flokkar, vörur og þjónusta og húsnæði, 195 stig í visitölunni. Þrátt fyrir hækkunina á mat- vöruliðnum helzt vísitala fram- færslukostnaðar í byrjun des- ember óbreytt frá nóvember eða 180 stig. Fæst sú útkoma vegna þess að liðurinn Frádráttur: Fjölskyldubætur, hsekkar úr 403 stigum í nóv. j 412 stig í byrj- un desember. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■' Alúmín- umrœður é þingi Að loknum deildarfund- um á alþingj j dag mun Jóhann Hafstein iðnaðar- málaráðherra gefa skýrslu í sameinuðu þingi um alúmínverksmiðjumálið og að lokinni skýrslu ráðherr- ans hefjast umræður um málið. Verði deildarfundir langir er óvíst að alúmín- málið komi fyrir fyrr en á kvöldfundi. Má búast vjð að margir hafi áhuga á að fylgjast með þessum um- ræðum á alþingi um þetta mikilvæga mál. «■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ • • o JOLAOSI LIVERPOOL ★ Jólaösin er nú hafin f verzlunum borgarlnnar og birtum við hér mynd úr einni stærstu verzlun borgarinnar, en það er Liv- erpool við Laugaveg. ★ Verzlunin Liverpool er á tveim hæðum og er þetta mynd úr leikfangadeildinni á efri hæð — en, nú er mikil fjölbreytni af Ieikföngum á jólamarkaði. ★ I Liverpool eru nú sérvörudeildir fyrir snyrtivörur, gjafavörur, búsáhöld, leikföng, ferðavörur og rafmagnsvörur allt upp í ísskápa og þvottavélar. ★ Þessa daga eru að koma í verzlunina þýzkar gjafavörur úr kopar og litaðar handunnar kristalsvörur frá Tékkóslóvakíu. ★ örn Ingólfsson, verzlunarstjóri í Liverpool hefur tvívegis á þessu ári heimsótt ýmsar alþjóðiegar vörusýningar og fjölda fyrirtækja í tíu löndum Evrópu og gert fjörbreyttar pantanir hvaðanæva að miðað við jólaverzlun. ★ Er þarna fjölbreytt úrval af vörum, sem hvergi sjást annarsstað- ar í verzlunum borgarinnar og fimmtíu manns verða þarna við afgreiðsilu fyrir jólin. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Bíezkur togarí í landhelgi Landhelgisgæzluflugvélin SIF varð í gærmorgun vör við brezka togarann Ross Stokker 'rá Grimsby 5,3 sjómílur innan ’ andhelgislínu úf af Látra- '•’íargi, — var þá togarinn með ólöglegan útbúnað á veiðarfær- 'Um og fisk á þilfari. Flugvélin gaf togaranum Ijós- merki og gerðj tilraun til þess 1 hafa samband við hann gegn- nm talstöð. en togarinn hafði '<etta að engu og setti á ferð Seint til hafs. Flugvélin fylgdi 'ogaranum eftir og hafði jafn- framt samband vig Óðinn °S náði hann togaranum kl. 14 í gærdag, — var togarinn þá að veiðum j Víkurál. Óðinn var væntanlegur með togarann hingað til Reykjavík- Ur seint í nótt eða snemma í Mesti afli i sögu sildveiSa hér viS land: HEILDARSÍLDARAFLINN AUSTAN LANDS 0G SUNNAN 5.332.901 • Samkvæmt síldveiðiskýrslu Fiskifélags íslands var heildarsíldaraflinn norðanlands og austan orðinn 4.114.448 mál og tunnur á miðnætti sl. laugardag og á sama tíma var heildarsíldaraflinn sunnanlands orðinn 1.218.453 upp- mældar tunnur. Var síldaraflinn því samtals frá vertíðar- byrjun orðinn 5.332.901 mál og tunnur sem er að sjálf- sögðu algert veiðimet. f skýrslu Fiskifélagsins segir svo: Veður var sæmilegt á miðun- um austur af landinu vikuna sem leið og góð síldveiði. Flotinn var að veiðum 55—80 morgun QS hefjast réttarhöld kl. i sjóm. SA og SA af A frá Gerpi. 10 í dag. Síðustu daga hefur síldin faerzt lengra frá landi og er aðalveiði- svæðið nú um 90—100 sjóm. SA frá Dalatanga. Vikuaflinn var 162,697 mál og tunnur og var heildarsíldar- magnið norðanlands og austan orðið 4.114.448 mál og tunnur. í sömu viku í fyrra var engin síldveiði á Austfjarðamiðum. Aflinn norðanlands og austan hefur verið hagnýttur þannig: f salt 402.365 uppsaltaðar tn. f frystingu 49.799 uppmæld- ar tunnur. í bræðslu 3.662.284 mál. Sæmilegur afli var á miðun- um austur af Vestmannaeyjum vikun-, sem leið Vikuaflinn nam 81.306 uppm. tunnum og var þá heildaraflinn hér sunnan- lands orðinn 1.218.453 uppmæld- ar tunnur 20 skip með yfir 50 þús. mál og tn í kvöld kl. 8,30 heldur Vemharður Linnet jazz- kynningu. Hann mun kynna sögu trompettsins í jazzi allt frá New Orleans til nútímans. Sérstök athygli skal vak- in á því, að miklar endur- bætur hafa staðið yfir að undanfömu á salnum. Margskonar veitingar eru á boðstólum og öllum heim- ill aðgangur. \ \ \ \ VIÐREISNIN OG KEXIÐ Scnnilega verður árið 1965 nefnt ■ kexárið mikla í sögu þjóðarinnar enda segja fróð- ir menn að ríflega tvö hundr- uð tegundir séu nú á mark- aðnum. Mestmegnis er þetta sætt kex og svq hefur innflutn- ingurinn verið hömlulaus, að stórar vöruskemmur eru yf- irfullar af kexi og drjúgur hluti af þessu mikla kex- magni kemur til með að liggja þar óhreyft um lengri tíma, Tölur liggja nú fyrir á Hagstofu íslands um inn- flutning á kexi fyrstu tíu mánuði ársins og hefur ver- ið stígandi í innflutningi frá mánuði til mánaðar og enn- þá berast heilu skipsfarmarn- ir til landsins af kexi. Fyrstu tíu mánuði ársins voru flutt inn 812 tonn af sætu og ósætu kexi að verð- mæti kr. 27 miljónir 227 þúsund krónur miðað við cif verð. Hundrað próscnt tollar eru á kexi og áiagning með sölu- . skatti og uppskipunarkostnaði er varlega reiknað 72%, — er þar miðað við 15% heild- söluálagningu og fjörutíu prósent smásöluálagningu, — er það talið meðaltal gæti- lega reiknað. annars er á- lagning frjáls eins og kunn- ugt er. Verðmæti þessa kex miðað við smásöluverð til neylenda er þannig 94.8 miljónir. Innflutningurinn skiptist þannig mili; hins ósæta og sæta kexins, að 738,1 tonn er af sætu kexj og 73,9 tonn af ósætu kexi OS hefur kexið verið flutt inn frá eftirtöld- um löndum: Bretlandi, Nor- egi, Danmörku, Svíþjóð, Hol- landi, Belgíu, póllandi, Frakklandi, Finnlandi, Tékkó- slóvakíu Ungverjalandi, ísra- el og lítilsháttar frá Banda- ríkjunum. Langmest er flutt inn frá Bretlandi, — var til dæmis flutt inn frá Bretlandi fyrstn nín mánuðina 41 tonn af ósætu kexi og 454,4 tonn af sætu kexi. — þá koma næst ofarlega á blaði lönd eins og Noregur, Holland og Belgía, var til dæmis veru- legur innflutningur frá Belg- íu og Hollandi í októbermán- uði. Þess má geta, að mikið magn lá fyrir af kexj í upp- hafi ársins og æðig heldur hömlulaust áfram á inn- flutningi af allskonar teg- undum af kexi og hlaupa kaupsýslumenn nú heims- homanna á milli í 1<?it að fleirj tegundum. I I Á miðnætti sl. laugardag höfðu 20 skip fengið yfir 50 þúsund mál og tunnur síldar á vertíðinni f sumar og haust og er þá lagður saman afli skip- anna bæði fyrir austan og sunn- an. Aflahæsta skipið er enn sem fyrr Jón Kjartanson frá Eski- firði meg 71.172 mál og tunnur. Annars er listinn þannig: Jón Kjartansson SU 71.172 Hannes Hafstein EA 68.542 Bjarmi II EA 63.758 Dagfari ÞH 62.726 Heimir SU 58.755 ísleifur IV. VE 58.636 Þorsteinn RE 56.671 Ólafur Magnússon EA 56.423 Keflvíkingur KE 56.043 Þórður Jónasson EA 55.931 Gullver NS 54.023 Súlan EA 52.712 Höfrungur III AK 52.418 Lómur KE 52.363 Sigurður Bjarnason EA 52 328 Ingiber Ólafsson II KE 52.267 Barði NK 51.574 Viðey RE 50.959 Snæfell EA 50.397 Akurey RE 50.219

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.