Meira Leita Titlar Greinar Fréttir Um vefinn Algengar spurningar
skrá inn Íslenska Føroyskt Kalaallisut Dansk English

Þjóðviljinn


og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 . . . . .



Skoða síðu í nýjum glugga  Skoða texta í nýjum glugga  Skoða hágæðaútgáfu í nýjum glugga  Beinn tengill á þessa síðu
Innskráðir notendur geta bætt einstaka síðum við vinnusvæði sitt:
Bæta síðu við bókamerki








þú þarft að vera með Adobe Reader Plugin til að skoða þessa síðu


get Adobe Reader



Þjóðviljinn

					Avarp um dátasjónvarpið, hernómsfram-

kvæmiirnar í Hvalfirði og fyrirhugaða

alúmínsamninga fra Samtökum

hernámsandstæðinga

Berjumst af alefli gegn sí-

vaxandi erlendum yfirgangi

Byrjáð að flytja í íbúðirnar í Árbæjarhverfinu

Enn vantar bé frárennslii

Um þéssár múndir eru

fyrstu íbúarnir að flytja í

nýju húsin í Árbæjarhverf-

inu. bæði' blokkirnar og eill-

býlishúsin, enda eru bygg-

ingarnar margar hverjar að

verða fullgerðar. Sá galli er

þó á gjöf Njarðar að enn er

ekki lokið við að ganga frá

frárennslislögnum í hverfinu

og getur það dregizt enn í

nokkra   daga   a.m.k.

Samkvæmt        upplýsingum

Ölafs Guðmundssonar deildar-

verkfræðings hjá gatna- og

holræsadeild er búið að leggja

frárennsli frá húsunum sjálf-

um og allt niður að Elliða-

ám en þar vantar enn að

fullgera síðasta kaflann til

sjávar. Sagði Ólafur að verk-

ið hefði tafizt vegna frost-

anna. Er verið að grafa skurð-

inn niður með Elliðaánum

og leggja rör í hann, en vatn

úr ánum  streymir  stöðugt   á

nóttunni inn í skurðinn og

frýs svo að ógerningur er að

vinna verkið meðan frostið

helzt. Hefur frá því um jól

aðeins verið hægt að vinna

örfáa daga við skurðinn af

þessum   sökum.

Ekki bjóst Ólafur við að

gerðar yrðu neinar bráða-

birgðaráðstafanir, því að verk

ið myndi taka jafnlangan tíma

og að klára skurðinn, ef

dregur úr frostihu.

SkemmJarverk fyrír þúsunJir

kréna unnin á vinnuvélum

? Kjartan Blöndal framkvæmdastjóri fyrirtækisins Verk

h.f. skýrði Þjóðviljanum svo frá í gær, að frá því í sum-

ar er fyrirtækið hóf vinnu við hitaveituframkvæmdir í

Smáíbúðahverfi væri búlð aö eyðileggja þar í hverfinu

eða stela tækjum er fyrirtækið notaði við verkið fyrir

þúsundir króna auk þess sem sum skemmdarverkin hefðu

getað leitt til stórslysa.

Þessi skemmdarfaraldur hófst

með því að tveir piltar þarna úr

hverfinu eyðilögðu í haust ör-

yggisgirðingar er komið hafði

verið upp í kring um stórhættu-

legan vinnustað. Gerðist þetta að

næturlagi og var mikið íán að

ekki skyldi  verða slys af.

Aðfaranótt   25.    nóv.   sl.   voru

við Grundargerði og Melgerði,

brotnar um 50 ljósaperur og tvær

rúður í vinnuskúr.

Næst voru skemmdáVverk

whnin hjá fyrirtækinu um næst

síðustu helgina í janúar en þá

voru brotnir 4 hraðamælar og

1 olíuþrýstimælir í vinnutækjum

á  svæðinu  við  Grundargerði  og

sv<,   eyðilagðir   tveir  Ijóskastarar I tiokkrum dögum seinna var stol-

við    athafnasvæði    fyrirtækisins   íð götuvita sem fyrirtækið hafði

sett upp á Sogavegi til öryggis

i umferðinni á kvöldin og nótt-

unni vegna hitaveituframkvæmd-

anna í  götunni.

Um síðustu helgi voru svo

enn unnin skemmdarverk á

vinnusvæði fyrirtækisins við

Grundargerði. Var að þessu sinni

þrotinn þrýstimælir ög afslétt-

arventill af loftpressu, brotnir

tveir mælar í traktor, brotin

rúða í vinnuskúr og ennfremur

tvær rúður í bifreið er starfs-

maður   fyrirtækisins   átti.

í viðtali við Þjóðviljann sagði

Kjartan Blöndal, að þetta væri

sjöunda hitaveituverkið sem

fyrirtæki hans hefði tekið að

sér en það væri fyrst í þessu

hverfi sem unnin hefðu vérið

Framhald á 3. síðu.

Samningurinn um auknar hernámsfram-

kvæmdir í Hvalfirði hrein lögleysa

^r Samtök hernámsandstæðinga haía sent írá sér ávarp þar sem lands-

menn eru hvattir til baráttu gegn vaxandi erlendri ásælni, eins og hún birtist

í sfarfrækslu bandaríska sjónvarpsins, nýjum hernámsframkvæmdum í Hval-

firði og fyrirhugaðri samningagerð við erlent auðfélag um stórfelldan at-

vinnurekstur hér á landi. Ávarp samtakanna er á þessa leið:

Bandaríska sjónvarpið

Samtök hernámsandstæðinga vekja athygli

þjóðarinnar á, hvernig bandaríska hernámsliðið

vinnur skipulega að því daglangt og árlangt að

treysta siöðu sína í landi voru og ná þeim tök-

um á þjóðinni, að uppvaxandi kynslóð taki að

líta á hernámið sem óhaggandi staðreynd og

aðskotaliðið erlenda sem eðlilegan a'ðila að dag-

legu lífi þjóðar vorrar innan heimilis sem utan.

Með hverju ári verður augljósara, að Banda-

ríkin notfæia sér út í æsar ístöðuleysi íslenzkra

stjórnarvalda ásamt andvara- og sjálfsvirðingar-

leysi almennings til að ná í áföngum þeim ár-

angri, sem þau kepptu opinskátt að árið 1945:

varanlegri hersetu og meðfylgjandi hernámi

hugarfarsins. Útvarpsrekstur hernámsliðsins er

orðinn svo fastur liður í hversdagslífi íslend-

inga, að flestir eru hættir að muna eftir því, að

útvarpsstöðin á Keflavikurvelli var fram knú-

in með freklegri ágengni við íslenzk lög um

einkarétt íslenzka ríkisins til útvarpsstarfsemi

í landi voru. í enn óvænlegri efni er komið, síð-

an innrás dátasjónvarpsins á íslenzk heimili

hófst, því að bæði er þar um langtum sterkara

áróðurstæki að ræða og þar að auki hefur her-

námsliðið nú um árabil haft einokunaraðstöðu

til skoðanamyndunar meðal viðnáms- og sjálfs-

virðingarsnauðasta hluta þjóðarinnar. Með því

að gera hina geðlausustu háða dátasjónvarpinu

treystir hernámsliðið tök sín á íslenzkum stiórn-

málamönnum, sem keppa um atkvæði þessara

stoltlausu landa vorra.

Enga skarpskyggni þarf til að sjá, að banda-

ríska hernámsliðið verður innan tíðar orðið jafn-

gildur aðili og íslendingar sjálfir að skoðana-

myndun og mótun andlegs lífs í landi voru, ef

svo fer fram sem horfir. Þess vegna leggja

Samtök hernámsandstæðinga á það höfuðáherzlu

við liðsmenn sína alla, að þeir styðji af alefli

baráttuna fyrir því, að sjónvarpssendingar her-

námsliðsins verði tafarlaust takmarkaðar við-

herstöðina og ekki síðar en þá, er íslenzkt sjón-

varp tekur til starfa.

Hernámsframkvæmdir í

Hvalfirði

Fyrir nokkru létu Bandaríkin þann boð-

skap út ganga, að þau hygðust fækka verulega

herstöðvum sínum í öðrum löndum. En nú ber-

ast þær fregnir, að innan skamms muni hafiz't

handa um stórfelldar hernámsframkvæmdir á

íslandi, framkvæmdir sem kosta munu hundruð

miljóna króna og krefjast fjölmargra verkfærra

íslendinga til starfa. Er 'ætlunin að reisa í Hval-

firði mikla olíugeyma, smíða nýja bryggju og

koma fyrir á fj'arðarbotni gífurlegum múrning-

um, sem hin stærstu skip geti legið við. Þann-

ig verður 'um hnúta búið, að breyta megi Hval-

firði á einni nóttu í herskipalægi, en þar með

væri íslendingum í einni svipan teflt enn fram-

ar í víglínu en áður og þjóð vorri aukin tor-

tímingarhætta búin.

Á þessari öfugþróun er sú skýring ein, að

Bandaríkin séu að framkvæma einn liðinn í

þeim áformum sínum um varanlegt hernám ís-

lands, sem þau sóttust eftir 1945, en íslendingar

synjuðu þá.

Samningurinn um auknar hernámsfram-

kvæmdir í Hvalfirði var gerður af ríkisstjórn

íslands að alþingi fornspurðu og er því hrein

lögleysa, eins og Samtök hernámsandstæðinga

hafa margsinnis bent á. Um leið og Samtökin

vekja athygli þjóðarinnar á þeirri stórauknu

tortímingarhættu, sem frá mannvirkjagerðinni í

Hvalfirði stafar, hvetja þau íslendinga alla til

skeleggrar baráttu gegn hinu síaukna hernámi

Bandaríkjamanna á íslenzkri grund.

Samningar við alúmín-

hringinn

Samtök hernámsandstæðinga lýsa fullri and-

stöðu við samningagerð íslenzkra stjórnarvalda

og erlends auðhrings um stofnun alúmínverk-

smiðju við Straumsvík. Telja þau samningagerð

þessa fraleita af eftirtöldum ástæðum:

1.  Með slíkum samningi er horfið frá þeirri

stefnu, að fslendingar nytji sjálfir auðlindir

íslands, og boðið heim þeirri hættu, að er-

lendir aðilar nái að hafa veruleg og vaxandi

áhrif á íslenzkt atvinnulíf.

2.  Alúmínsamningur þessi mundi enn stórauka

þenslu í efnahagskerfi þjóðarinnar og valda

atvinnuvegum hennar, einkum sjávarútvegi

og   iðnaði,   geigvænlegum   búsifjum.

3.  Alúmínverksmiðja í þéttbýlinu við Faxaflóa

hlyti að valda aukinni röskun byggðajafnvæg-

is og stuðla að landauðn hinna strjálbýlli

héraða.

4.  Samningur, sem tryggir erlendum auðhring

tollfrelsi,. skattfríðindi og stórum lægra raf-

orkuverð en íslendingum sjálfum, er fráleit-

ur og ekki sæmandi fullvalda ríki.

Samtök hernámsandstæðinga skora á alþingi

og ríkisstjórn að fullgilda ekki slíkan samning

að  þjóðinni  fornspurðri.

Sjálfkjörið i Hinu íslemka prentarafélagi

Framboðsfrestur til stjórnar-

kjörs í Hinu íslenzka prentara-

félagi var útrunninn laugardag-

inn 5. þ.m. Aðeins einn listi

kom fram. Að loknum næsta að-

alfundi verður stjórn félagsins

þahnig skipuð:

Aðalstjórn: Form.: Jón Kr.

Ágústsson. Ritari: Stefán Ög-

mundsson. Gjaldkeri: Pjetur

Stefánsson. 1. meðstjórn.: Pálmi

A. Arason. 2. meðstjórn.: Ragn-

ar Magnússon. Varaform.: Óðinn

Rögnvaldsson.

Varastjórn: Baldur Aspar, rit-

ari. Jón Már Þorvaldsson, giald-

keri. Þorsteinn Marelsson, 1.

meðstjórnandi. Sverrir Kjærne-

sted,   2.   meðstjórnandi.

Formaður kvennadeildar H.Í.P.

í stjórninni er enn ekki kjörinn.

null