Þjóðviljinn - 18.04.1970, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 18. apríl 1970.
— málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kiartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V Fríðþjófssón.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Ólafur lónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Siml 17500
(5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Óeðlileg samningsaðstaða
jprumvarp Gils Guðmundssonar sem mælir svo
fyrir að gengisskráningarréttur skuli á ný feng-
inn Alþingi, vekur mál sem varðar alla landsmenn,
en ekki sízt launafólkið, vegna þess hvernig þetta
vald hefur verið misnotað til að ræna verkamenn
og aðra launþega árangrinum af kjarabaráttu
verkalýðsfélaganna. Alþingi var svipt þessu valdi
með s'tjómarskrárbroti árið 1961, þegar núverandi ;
stjórnarflokkar ákváðu með bráðabirgðalögum að
svipta Alþingi því og flytja í hendur bankastjóra
Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar. Það var þá
notað til þess að framkvæma gengislækkun sem
flestir munu nú játa að var tilefnisláus hefndar-
ráðstöfun ríkisstjórnarinnar gegn verkalýðsfélög-;
unum. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-,
flokksins hefur fjórum sinnum fellt gengi íslenzkr-1
ar krónu á einum áratug, sem þátt í framkvæmd
stórkostlegra fjármagnsflutninga milli stétta þjóð-
félagsins; og þær tilfærslur hafa alltaf orðið vatn
á myllu auðgunarbraskara og gróðasafnara. Og
nú var því beinlínis hótað í sambandi við Efta-
inngönguna, að þetta „hagstjórnartæki" væri einn-
ig nothæft gegn ávinningi verkalýðsfélaga í kjara-
baráttu.
Qils vakti athygli á þessari misbrúkun gengisfell-
inga í greinargerð frumvarps síns og eins í
framsöguræðu við 1. umræðu málsins á Alþingi. í
greinargerðinni víkur hann að samhengi málsins
við launabaráttuna framundan með þessum orð-
um: „Nú búa íslenzkar launastéttir sig undir það
að rétta hlut sinn við kaup- og kjarasamninga á
komandi vori. Viðurkennt er að kaupmáttur launa
hefur stórlega rýmað undanfarin ár. Flestir virð-
ast einnig telja að auknar þjóðartekjur og bættur
hagur atvinnuveganna geri kieift að greiða hækk-
uð laun. Um hitt er líklegf að skoðanir verði skipt-
ar hve miklar kjarabætur launþegar verði að fá
og hve háu kaupi efnahagskerfið rísi undir. Það
verður að teljast óeðlileg og óviðunandi samnings-
aðs'taða, ef viðsemjendur eiga það stöðugt á hættu
að seðlabankastjóm og ríkisstjóm komi að samn-
ingum loknum og segi: Þessir samningar ykkar,
atvinnurekenda og verkalýðsfélaga eru á þann veg
að okkur líka þeir ekki. Við ætlum því að ómerkja
þá eða a.m.k. breyta þeim verulega. Til þess not-
um við gengisfellingaraðferðina. Undir slíkum
kringumstæðum er örðugt að ganga til samninga-
gerðar".
jpiutningsmaður viðurkennir að þó valdið væri í
höndum Alþingis sé ekki með því tryggt að
gengisfellingu yrði ekki beitt gegn kjarasamning-
um. En ríkisstjórn eigi samt örðugra um vik að
veifa þessu vopni og beita því. — s.
Nú taka allar línuT að skýr-
ast í íslandsmótinu í hand-
knattleik. Á morgun kl. 20,15
verða leiknir tveir leikir f 1.
deild karla og leika þá Fram
— Valur og Víkíngur — Hauk-
ar. Eftir þessa leiki getur svo
verið, að Fram verði orðið Is-
Iandsmeistari, en keppnin um
fallið, milli Víkings og KR.
verður ekki endanlega uppgerð
hvemig sem úrslit leiks Hauka
og Víkings verða á morgun,
því Víkingur á annan leik eftir.
íslandsmótið í handknattleik:
Fram íslandsmeistari?
— dugar jafntefli við Val á morgun til að svo verði
Eins og áður segjr, dugar
Fraan jafntefli í leiknium viö
Val, til að hljóta Isilandsmeist-
aratitilinn, t>vi þá heíur fé-
lagið 15 stig, sem er meira en
önnur félög geta fengið. Tapi
Fram hinsvegar fyrir Val, auik-
ast möguleikar FH tiil muna,
því Fram og FH eiga eftir að
uton úr heimi
e Danir unnu Svía 8:1 í
landskeppni í badm.inton
um fyrri hétgi, og
fór keppnin fram í Kaup-
mannaihöifn. Danir munu
heyja landskeppni vdð Mala-
ysiu í Kuala Durnpur um
mánaðamótin maí/júní.
• Samkvæmt frétt frá NTB
hefur bandaríski olympíu-
meistarinn í -400 metra hlaupi,
Lee Evans. undirritað samn-
ing við World Sports Promot-
lon og irrun keppa fyrir þessa
nýju atvinnuveitendur sfna á
móti, sem fram fer í Los
Aneeles 23. maí n.k. Þá segir
NTB að sögusagnir séu um.
a.ð spretthlaupararnir Bob
Heyes ög Jimmy Hines hafi
gert samning við frjádsfþrótta-
sirkus, ássmt langstökkvaran-
um Earl Mccullouch, en allir
bessir fþróttamenn eru nú at-
vinnumenn í bandaríslkum
fotboilta (rugby).
Á frjálsíþróttamótí, scm
fram fór um síðustu helgi í
Abidja á Gullströndinni í
Afrfku, sigraði olympíumeist-
arinn í 1500 m. hlaupi, Kipc-
hoge Kedno, í 1500 m. og
5000 m .hlaupum. Tími hans
á 1500 m. var 3.37,5 mín, en
á 5000 m. 14.06,5 mín.
© Sænski hástökkvarinn
Lundma.rk varð sigu.rvegari i
grein sinni meö því aðstökkva
.2,16 metra á frjálsfþs-óttamóti
sem haldið vajr í Austán í Tex-
as um fyrri helgi. Þetta stökk
Lundmarks var vaillarmet í
Austin, en hæst hafði bar áð-
ur verið stokteið 2.13 m.
leika saman og er það síðasti
leiteur þegigja. Vinni FH þanrt
leik og miðað við að Fbam
tapi fyrir VaL eru þau jöfn
að stigum og yrðu þá aðledka
aukaledk urn Islandsmeistara-
titilinn. Engin leið er að spá
um úrslit leiksins á morgiun,
þvf að þessi lið eru mjög á-
þekk að styrkleika en sá er
munurinn á morgun. að Vals-
menn leika án ailrar pressu.
bar sem þeir eru úr leik í mót-
inu. en það er meira en hasgt
verður að segja um Framara.
sem þaima leáka raunverulegan
úrslitaleik.
Hinn leikurinn mdlli Vlkings
og Hautea er afar þýðinganmik-
ill fyrir Vfking, sem berst fyr-
ir tilveru sinni í 1. deild. Fyr-
ir Hauka skiptir þessi leikur
engu máli. Svo mikið hafa
Víkingar við, að þeir ætila að
sækja Jón Hjaíltalín til Svf-
þjóðar sér til fulltingis og
vissulega setur koma hans í
liðið strik í reikninginn, því
takist Jóni upp verður Vík-
ingsliðið illsigrandi fyrir Hauka.
Allavega mó búast við iötfnum
og skemmtileguim leikjum í
Lauigardalsihöllinni á morgun.
— S.dór.
Fiórða Hljéen-
skálahlaup ÍR
Hljómskálahlaup IR ferfram
í fjórða sinn að þessu sinni á
morgun, sunnuda.ginn 19. apr-
íl. og hefst eins og venjulega
kl. 14,00.
Aðstæður allar til hlaupa i
Hljómskálagairðinum eru n.ú
óðum að batna og er því bú-
izt við mikluim fjölda þátttak-
enda í bau 3 hlaup, sem eftir
eru.
Að gefnu tilefni vilja for-
ráðamenn hlaupsins taka það
fram enn einu sinni, að hlaup-
ið er öllum opið. sem vilja
reyna sig. Vissulega hafa böm
og unglingar verið iðm.st við
að taka bátt hingað til, en full-
orðnir eru velkomnir til leiks.
Keppendur eru beðnir að
mœta tímanlega til skráningar
og númeraúthlutunar, heilzt
eigi síðar en kl. 13,30.
Litla bikarkeppnin:
ÍBK og ÍA leika í dag
og ÍBH og Breiðablik leika í Kópavogi
í dag kl. 16 mætast Keflvík-
íngar o® Skagamenn f Litlu
bikarkeppninni og fer leikur-
inn fram á Akranesi. Á sáma
tíma Icika svo Hafnfirðingar
og Breiðablik í þessari sömu
keppni og fer sá leikur fram S;
í Kópavogi.
Keflavfk og Ateranes urðu
sem kunnugt er númer 1 og 2
í síðasta íslandsm/óti og er því
hægt aö segja, að uim stórleik
sé áð ræða þegiar þessi liðmæt-
ast. Þau hafa um margra ára
steeið skipzt á um að vinona
Litlu bitearkeppnina og verður
án efa mikíl barátta milli
þeirra nu sem endranær. Kefl-
víkingar hafa leikið tvo lei'ki í
Litlu bikarkeppninni og unmð
báða. Haífnfirðinga unnia þeir
naumt 3:2 og Breiðaiblik 2:1 og
hetfði Só sigur getað orðið mun
stærri. Skagamenn hafa aðeins
leikið einn leik og unnið hann
með rniklum yfirburðum 11:1,
en það var gegn IBH. Hafn-
firðingar hældu Steaigamönnum
mjög eftir þennan léik ogsögðu
þá með eitt sterkasta lið, sem
þeir hefðu mætt. I dag ætti
raunveruleg geta lA-Iiðsins að
kema betur í ljós, þar sem um
sterkari andstæðing er að ræða
nú. en um síðustu helgi.
Leiktrrinn milli Breiðaibliks
og IBH ætti að geta orðið jafn
og steemimtilegur, þó teljaverði
Breiðablik líklegri til sigurs, en
lið þeirra hefur tekið miklum
framförum og spá menn þvi,
að þeir fari upp í 1. deiiki í
sumar. — S.dór.
Jón Hjaltalín mun leika með
Víkingum á móti Haukum
Baráttan um falllið f 1. dedld
Islandsmótsins í handknattleik,
milli Víkings og KR er mjög
hörð. KR hefur lokið öillum
sínum leitejum, en Víkinigiur á
eför tvo leílci og hefur 2 stig.
Á morgun leika Vfkingar við
Hautea og hafla þeir lagt í þann
kostnað að seékja Jón Hjalta-
Iín til Sviþjóðar sér tdl fulll-
tingis. Taikist Jóni vel upp, þó
standast honum fáir snúning
og verða Vfkingar ékM auð-
Rigraðir með hann í fararbroddi
Það er vel skiljanlegt, að Vík-
ingar leggi mdkdð upp úr setu
í 1. deild, því hún er eina mtót-
ið í handkn attleiknum sem
gefur atf sér hagnað og þar á
otfan bætist, að Víkingar eru
með ungt lið ög mjög efnilegt.
seim á fullt erindi i 1. deild og
ætti að ná langt þar næsta
vetur, etf' alTt fer sem skyldi.
Það verða áreiðanlega margir,
sem koma til að sjá þennan
skotfastasta handknattleiks-
mann íslands og þó víðarværi
leitað, leika með sínum gömlu
félögum á morgun. — S.dór.
Jón Hjaltalín
með Vkingi.
FRÁ
LJÓSMÆÐRASKÓLA
ÍSLANDS
Samkvæmt venju liefst kennsla í skólanum hinn
1. okt. n.k.
INNTÖK U SKIL YRÐI:
Umsækjendur skulu ekki vera yngtri en 20 ára og
ekki eldri en 30 ára, er þeir hef ja nám. Undirbún-
ingsmenntun skal vera gaenfræðanróf eða tilsvar-
andi skólapróf. Krafist er góðrar andlegrar og lík-
amlegrar heilbrigði. Heilbrigðisástand verður nán-
ar athugað í skóianum.
Eiginhandarumsókn sendist forstöðumanni skól-
ans 1 Fæðingardeild Landspítalans fyrir 15. júní
1970. Umsókn skal fylgja læknisvottorð um and-
lega og likamleí?a heilbrigði. aldursvottorð og lög-
gilt eftirrit gagnfræðaprófs. Umsœkjendur eru beðn-
ir að skrifa greinilegt heamilisfano á umsóknina.
og hver sé næsta símstöð við heimili þeirra.
Umsóknareyðublöð fást í skólanum.
UPPLÝSINGAR UM KJÖR
NEMENDA:
Ljósmæðraskóli íslands er heimavistarskóli og búa
nemendur í hei'mavist námstímann.
Nemendur fá laun námstímarm. Evrra námsárið
kr. 5.057,00 á mánuði og síðara námsárið kr.
7.225,00 á mánuði. Auk bess fá nemar greiddar löe-
boðnar tryggingar og skólabúning
Húsnæði ásamt húsbúnaði. fæði bvotti og rúm-
fatnaði, sem Ljósmæðraskólirm lætur nemendum
i té. greiða þeir samkvæmt mati skattstjóra
Reykjavíkur.
Fæðingardeild Landspítalans,
16. apríl 1970.
SKÓL A ST JÓRINN.