Alþýðublaðið - 30.11.1926, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÁskoruEi
til hr. Einars Þorgilssonar, út-
gerðarmanns i Hafnarfirði.
Að gefnu tilefni skora ég hér
með á hr. Einar Þorgilsson, út-
gerðarmann í Hafnarfirði, að
skýra opinberlega frá, af hvaða
ástæðu hann bannaði Jóni Sig-
urðssyni vélstj. á „S-t. Surprise'1 úr
Hafnarfirði að veita mér starf
það, sem ég hefi gegnt í eitt ár
á sama skipi. Skora ég á hann að
koma fram með þær sannanir,
sem réttlætt geti gerðir útgerðar-
mannsins. AÖ öðrum kosti verður
framkoma Einars Porgilssonar sð
skoðast sem svívirðilegt óréttlæti
í minn garð.
Ég vænti þess, að Einar Þor-
gilsson útgerðarmaður gefi innan
fárra daga skýringu við áskorun
þessari.
Heyk.'avik, 29. nóv. 1926.
Jens Pálsson.
Usia daglnn o?j vefjiun.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Hansen, Thor-
valdsensstræti 4, sími 1580.
Fund fyrir atvinnulausa menn
heldur framkvæ.Tidasljórn fulltrúa-
ráðs verklýðsfélaganna kl. 1 á
jnorgun í Báruhúsinu. Umræðuefnið
verður krafa um atvinnubœtur. Skor-
að er á alla atvinnulausa menn í
borginni og sérstaklega þá, sem hafa
láfið skrá sig, að koma á fundinn
og mæta stundvíslega. Konur at-
vinnulausra manna eru einnig vel-
koirnar á fundirin. Þér-atvinnu-
lausu menn! Látið nú ekki á ykkur
standa, en fylgið fram kröfum ykkar
og ’sjnio á afmæli rikisins, hvern-
ig atvinnuástandið er. Því að eins
er von um, að hægt sé að verða
ykkur að liði, að þér komið nú
og standið sameinaðir.
Fulltrúar
frá Vestmannaeyjum á sambands-
þing Alþýðuflokksins komu hingað
með „Lyru' í nó t. Fulltrúarnir eru
Vilhjálmur S. Vilhjáhnsson, Jón
Rafnsson, Haukur Björnsson, Jón
Erlendsson, Ingibergur Hannesson
og Cuðrún Jónsdó'.tir.
Veðrið.
Hiti 7—1 stig. Átt suðlæg og vest-
læg. Hvassviðri á ísafirði og víða
allhvast. Deyfa í Vestmannaeyjum.
Annars staðar þurí veður. Loftvæg-
islægð fyrir norðvestan land. Útlit:
Allhvöss vestlæg átt; hvöss suðvest-
anátt á Vestfjörðum. Hryðjuvfeður
og snjóél, nema á Austfjörðum. Á
Norðurlandi og Vestfjörðum bíða þó
élin næturinnar. — 1 veðurfréttunum
í gær átti að standa: Hiti mestur
5 stig, minstur 5 stiga frost. Höfðu
orð fallið úr i setningu.
Dánarfregn.
Qísli Sigurðsson, sjómaður á
„Gylfa", hefir orðið fyrir þeirri sorg
að missa konu sína, Lilju Guðmunds-
dóttur, af afleiðingum uppskurðar.
Þau voru sex ár í hjónabandi og
eignuðust þrjú börn.
Þenna dag
árið 1835 fæddist skemtisagna-
skáldið heimskunna, Mark Twain.
Hann var amerískur, en ferðaðist
mjög víða. Upphaflega hét hann Sa-
muel Langhorne Clemens. Höfundar-
nafnið þýðir „annað mark" (við
dýptarmæíingu) og er frá hafnsögu-
menskudögum skáldsins.
Kossahljóðið.
Sú var ein af samlíkingúm Marks
Twains, að hljóðið, þegar kyst er,
sé eins og þegar belja dregur löpp-
ina upp úr mýrarfeni.
Jafnaðarmannafélag íslands
heldur fund í kvöld kl. 8V2 í kaup-
þingssalnum. Þar verða kosnir full-
trúar á sambandsþingið. Félagarnir
eru beðnir að fjölmenna og mæta
stundvíslega.
Félag ungra kommunista
heldur fund í kvöld kl. 8 í Ung-
mennafélagshúsinu.
Á verkafóiksskemtuninni
á laugardagskvöldið las Jón Bald-
vinsson upp kvæði Matthíasar um
viðureign Grettis við Glám og síð-
en sögu eftir Mark Twain. Þá sýndi
ungfrú Ruth Hansson og systur
hennar iis'danza. Eru þær vel sam-
æfðar og færar í þeirri grein.
Stærsta sýningin hét „Hafmeyjan",
tákndanz. Yngsta systirin danzaði
rússneskan danz. Þá voru tvær sýn-
ingar enn og síðast nokkrir tízku-
danzar. Eftir það flutti Þórbergur
Þórðarson erindi það, sem getið var
ihér i biaöLnu í gær. Reinhold Richt-
er söng gamanvísur, og loks var
stiginn danz til kl. 3. Fór skemt-
unin vel frain, svo sem vant er
um samkomur verkalýðsins.
Viðstaddur.
Silfurbrúðkaup
eiga á morgun Vilhjálmur Bjarna-
son sjómaður og sjómannafélags-
maður á Lokastíg 28 A og Guðný
Magnúsdóttir, kona hans.
„Ástir“
heitir bók, sem nýkomin er út
eftir Stanley Melax. Eru það tvær
ástarsögur, og lýsir önnur ást og
of miklum barneignum, en hin ást,
stéttabaráttu og hefnd.
Minningarsjóður Eggerts Ólafs«
sonar,
náítúrufræðingsins og skáldsins, er
stofnaður í 'iininningu hans til nátt-
úrufræðirannsókna og útbreiðslu
þekkingar á náítúrufræði. Sjóður-
inn er alls orðinn um 28 þúsund kr.
Á morgun eru liðin 200 ár frá fæð-
ingu Eggerts. Þá verða seld hér á
götunum póstkort og merki til á-
góða fyrir sjöðinn. Fyrirtækið er
gott og gagnlegt, og ættu menn að
styrkja það eftir föngum með því
að kaupa spjöld þess og merki.
U. M. F. Velvakandi
heldur fund kl. 8V2 í kvöld í
Kirkjutorgi 4 (efsta lofti).
Kvöldvökurnar
í gærkveldi: Ásgeir Ásgeirsson las
í Njálu um Björn og Kára. Baldur
Sveinsson las úr Svoldarrímum Sig-
urðar Breiðfjörðs um upphaf og
endi Orms hins langa og mansöng
úr Númarinum, „Móðurjörð, hvar
maður fæðist", og loks kvæðið
„Ljósálfar" éftir Þorstein Erlings-
son. Séra Árni Sigurðsson las hafís-
ljóð skáldanna þriggja, Einars Bene-
diktssonar, téra Matlhíasar og Hann-
esar Hafsteins.
Um Breiðabólstað í Fljótshlíð
sækja þessir prestar: Séra Eiríkur
Helgáson, Sandfelli í Öræíum, séra.
Guðbrandur Jónsson í Viðvík, séra
Gunnar Arnason frá Skútustöðum,
prestur á Bergsstöðum, séra Jón-
mundur Halldórsson á Stað í
Grunnavík, sára Stanley Melax á
Barði og séra Sveinbjörn Högnason
í Laufási. Fleiri höfðu ekki sótt í
morgun, en umsóknarfresturinn er
út þenna dag.
Skipafréttir.
„Esja" kom i gærkveldi austan.
um land úr hringferð. Hún fer aft-
ur á föstudaginn. „Lyra" koirt í nótt.
Gengi erlendra mynta i dag:
Sterlingspund. . .
100 kr. danskar . .
100 kr. sænskar . .
100 kr. norskar . .
Dollar..............
100 frankar franskir.
100 gyllíni hollenzk
100 gullmörk þýzk.
. . kr. 22,15
. . - 121,64
. . - 122,00
. . — 115,74
• • - 4,571/4
. . — 16,91
. . — 183,06
. . — 108,62
Átrúnaöur á grímudanzleikinn.
Svo er að sjá af síðasta „Veröi",
sem Kristján Albertsson hafi ekki
meiri skilning á h imsstjórnmál-
unum en svo, að hann haldi, að
hið svo riefnda Þjóðabandalag sé
fctofnað í þeim tilgangi að koma á
varanlegum friði rneðal allra þjóða
jarðarinnar og útrýma vígbúnaði. Ef
allir rynnu svona hvatlega á agnið,
þá'mæitu þeir, sem kunna að beita,