Þjóðviljinn - 14.05.1974, Blaðsíða 1
UOWIUINN
Þriðiudagur 14. mail974 — 39. árg. —74. tbl.
ÍH k >f .* L* i|
Bm mi f: 'ÍÍLja œHm
r ylB il-'lyj ilp* i
P \ ■ r y'va- *^jjSrSi^6fc ***' fmr fflPf \ ll
§||» jBf gfj ( aar
Svipmynd frá hinum fjölmenna baráttufundi Alþýftubandalagsins I Háskólabiói á laugardaginn (Ljósm. AK)
BARÁTTUHUGUR
einkenndi fjölmennasta fund sem til þessa
hefur verið haldinn í kosnLígabaráttu höfuðstaðarins
Hvað eftir annað var
mál rræðumanna rofið
með lófaklappi á fundi Al-
þýðubandalagsins í Há-
skólabíói á laugardaginn.
Þetta var fyrsti fundur Al-
þýðubandalagsins í kosn-
ingabaráttunni; boðaður
með örstuttum fyrirvara.
Vorsólin baðaði borgina —
en stuðningsmenn Alþýðu-
bandalagsins f jölmenntu
engu að siður, og húsfyllir
varð. Þar með er kosn-
ingabarátta G-listans í
Reykjavík hafin af fullum
krafti; hálfur mánuður er
til borgarst jórnarkosn-
inga, réttar sjö vikur til al-
þingiskosninganna.
Ræðumenn ó fundinum voru
þrir. Fyrstur talaði Lúðvik
Jósepsson, sjávarútvegsráð-
herra. Ræddi hann stöðuna i efna-
hagsmálum og stjórnmálavið-
horfin i dag. Ræða Lúðviks verð-
ur birt i blaðinu siðar. Þá talaði
Sigurjón Pétursson, borgarráðs-
maður. Ræddi hann um borgar-
málin og kosningabaráttu Al-
þýðubandalagsins. Loks talaði
Magnús Kjartansson og er ræða
hans birt i heild á opnu blaðsins
i dag.
Fundarstjóri var borbjörn
Broddason, lektor, en hann skipar
sem kunnugt er þriðja sætið á
framboðslista Alþýðubandalags-
ins vegna borgarstjórnarkosning-
anna 26. mai næstkomandi.
Allir flokkar hafa efnt til alls
konar kosningafunda það sem af
er mai-mánuði en enginn fundur-
inn hefur verið jafnf jölmennur og
þessi fundur Alþýðubandalags-
ins. Þeir þúsund fundarmenn sem
sóttu fundinn i Háskólabiói á
laugardaginn munu nú einhenda
sér i kosningabaráttuna, sjö
vikna kosningabarátta Alþýðu-
bandalagsins er hafin.
Það var ljóst á þessum fundi i
Háskólabiói að styrkur Alþýðu-
bandalagsins i kosningabarátt-
unni stafar einkum af þvi, að það
er eini heilsteypti vinstriflokkur-
inn og þvi eini vinstriflokkurinn
sem getur skapað verulegt afl
gegn ihaldi.
Ástandið 1 Danmörku:
Skyndiverkföll og kröfu
göngur gegn Hartling
KAUPMANNAHÖFN
13/5 Um 60 þúsund verka-
menn tóku i dag þátt í mót-
mælaverkf öllum gegn
frumvarpi minnihluta-
stjórnar Hartlings um
skattamál og niðurskurð á
rikisútgjöldum. 40 þúsund-
ir manna fóru i mótmæla-
göngu til þinghússins.
Á mótmælafundi við Kristjáns-
borgarhöll var þess krafist að
sósialisku flokkarnir þrir tækju af
skarið um afstöðu sina til frum-
varps Hartlings. Anker Jörgen-
sen, formaður sósialdemókrata,
neitaði að taka þátt i fundinum,
en áður hafði flokksbróðir hans,
formaður alþýðusambandsins,
varað verkamenn við að fara i
„ólögleg skyndiverkföll”.
Jörgensen lofaði þvi samt, að
flokkur sinn mundi sjá til þess, að
frumvarpið kæmi ekki niður á fé-
lagsmálalöggjöfinni.
Gert Petersen, hinn nýkjörni
formaður Sósialiska alþýðu-
flokksins gagnrýndi sósialdemó-
krata harðlega fyrir samninga-
makk við afturhaldsstjórn. Knud
Jespersen, formaður
kommúnista, sagði, að um það
væri að velja, að gera þúsundir
verkamanna atvinnulausar eða
að reka stjórn Hartlings úr vinnu.
leyfi til að skilja
Italir fá
ROM 13/5 — Fyrstu
tölur úr þjóðaratkvæða-
greiðslu um lög sem
leyfa hjónaskilnað á
(talíu benda til þess, að
lögin verði samþykkt.
Eftir að 60% atkvæða
höfðu verið talin voru
um 58% með lögunum en
42% gegn þeim. Kristi-
legir demókratar og
kirkjan hafa barist af
mikilli heift gegn lögun-
um, en samt er andstað-
an gegn þeim minni en
búist var við í hinum
rammkaþólsku héruð-
um Suður-ltalíu.
Innflutt
fyrir 3,2
miljarða
1 nýjum tölum frá Hagstofu
um verðmæti inn- og útflutn-
ings fyrstu þrjá mánuði ársins
kemur fram, að innflutningur-
inn jókst um 60% i mars sl.
miðað við sama mánuð i
fyrra. Nam innflutningurinn
nú 3,2 miljörðum króna, en
hafði verið 2 miljarðar i mars
1972. Útflutningur fyrstu þrjá
mánuði þessa árs var 700
miljónum króna verðmeiri en
i fyrra, innflutningurinn aftur
3 miljörðum meiri. Vöru-
skiptajöfnuðurinn varð óhag-
stæður i ár um 2 1/2 miljarð
króna.
Vogaskóli
afhentur
MT
Blaðið frétti i gær, að ákveðið
hafi verið að leggja niður
Vogaskóla sem gagnfræða-
skóla og afhenda skólahús-
næðið Menntaskólanum við
Tjörnina. Námsflokkar
Reykjavikur eiga að fá hús-
næði MT, en þeir gagnfræða-
skólanemendur, sem stundað
hafa nám i Vogaskóla eiga að
flytjast yfir i Langholtsskóla.
í DAG
Sævar Bjarnason skrif-
ar skákþátt fyrir Þjóð-
viljann i stað Jóns
Briem, sem er i próf-
lestri um þessar mund-
ir. — sjá bls. 2.