Þjóðviljinn - 26.10.1974, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.10.1974, Blaðsíða 1
Páll Bersbórsson veðurfrœðineur: Leigu- bíla- taxtinn hœkkaði um 20% í gœr Leigubílstjórar fengu aö hækka taxta sinn um 20% i gær, en samt telja þeir að ekki sé lengur grund- völlur fyrir rekstri bensinbifreiöa i leigubilaakstri eins og kemur fram i viðtali við Úlf Markússon formann Frama. — S.dór Enda þótt dagatalið greini okkur skýrt og skorinort frá þvi að i dag hefjist veturinn, er náttúran jafnan órækasti vitnisburðurinn um árstiðaskiptin eins og þessar myndir S.dórs sýna. — Bara vel held ég. Ég er held- ur bjartsýnn. Hitamælingar sjáv- ar við Jan Mayen og lengra norð- ur i höfum benda svona heldur til þess að við eigum mildan vetur i vændum og ekki á ég von á hafis Sjálfsagt vildu flestir gefa mik- ið til þess að geta séð fyrir hvort veturinn verður harður eða mild- ur þegar kemur að veturnóttum. En þvi miður, jafnvel lærðustu veðurfræðingar geta engu spáð með vissu, en þó standa þeir ef til vili næst þvi að geta sagt okkur fyrr um hvernig veturinn verður og þess vegna snerum við okkur til Páls Bergþórssonar veður- fræðings og báðum hann segja okkur hvernig komandi vetur leggist I hann? hér við land sem neinu nemur i vetur. — Nú er það fróðra manna sögn Páll, að ef rjúpan er mjög nærri byggð á haustin, og það hefur hún verið i haust, bendi það til þess að harður vetur sé framundan, trúir þú þessu? — Nei, það geri ég alls ekki. Þó finnst mér alltaf að erfiðara sé að kalla þetta algera hégilju, heldur Framhald á bls. 13 Landsfund ur Alþýðu- bandalagsins Þjóðviljinn ræðir við Ragn- ar Arnalds, formann Alþýðu- bandalagsins um undirbúning landsfundar þess i næsta mán- uði. A landsfundinum er ætl- unin að ganga frá færðilegri stefnuskrá Aiþýðubandalags- ins og þar verður fjallað um þau mái, sem efst eru á baugi 1 islenskum stjórnmálum. Sjá viðtal við Ragn- ar á siðu 6 Bruna- bótamat hækkar um 53% Brunabótafélag Islands hækkaði um miðjan mánuðinn brunabótamatið um 53%. Gildir sá útreikningur til 15. október næsta ár. Þetta þýðir að hús, sem áður hefur verið að brunabótamati að verðgildi 3,6 miljónir er nú metið á 5,5 miljónir. Hækkunin er reiknuð eftir byggingarvisitölu. Húsatryggingar Reykjavik- urborgar hafa ekki enn hækk- að brunabótamatið, en þar er það gert um áramót. — úþ UOÐVIUINN Laugardagur 26. október 1974 — 39. árg. 211. tbl. | Sjá baksiðu KONA VARÐ MANNS- BANI í REYKJAVÍK 28 ára gamall Reykvíkingur, Jóhannes Þorvaldsson, lést í sjúkra- húsi í fyrrinótt eftir áverka, sem kona veitti honum í húsi nokkru við Suðurlandsbraut í Reykja- vík. Það var klukkan rúmlega 2 I fyrrinótt, sem lögreglan var kvödd að húsi þvi, sem umræddur atburður átti sér stað. Var maðurinn þá ekki látinn, en hafði hlotið þrjá áverka af hnlfsstungu, á hálsi, ofan við viðbein og ofan við herðablað. Jóhannes andaðist á sjúkrahúsi stuttu síðar. At- burður þessi átti sér stað I ein- býlishúsi á heimili konu þeirrar, sem varð Jóhannesi að bana. Tveir ungir piltar, 15 og 17 ára gamlir, annar þeirra heimilis-- maður, uröu varir við átök milli Jóhannesar og konunnar sem varð honum að bana, þegar þeir komu þangað heim um klukkan tvö um nóttina. Eldri pilturinn reyndi að stilla til friðar en þar sem enginn simi var I ibúðinni fór hinn út i þvi skyni að hringja I lögregluna. Eldri piltinum þótti langt að biða lögreglunnar og fór þá einnig út til að reyna að komast I sima. Varð hann að brjótast inn i verslun i ná- grenninu til að ná simasambandi. Meðan beðið var lögreglunnar mögnuðust átök og enduðu á þann hörmulega hátt, sem hér hefur verið greint frá. Konan, sem var undir áhrifum áfengis, hefur viðurkennt verknaðinn. Hún hefur verið úr- skurðuð I 90 daga gæsluvarðhald og að sæta geðrannsókn. Spá heldur vægum vetri í BLAÐINU I DAG Iðnaðurinn hefur fengið sinar hœkkanir. Urlausn hjá fœreyskum bœndum. Viðtal við Erlend Patursson. Eina stéttin sem launin eru beinlinis lœkkuð hjá er sjómannastéttin. „Vot er geit” Greinargerð Einars Braga i meiðyrðamálinu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.