Þjóðviljinn - 12.03.1976, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 12.03.1976, Blaðsíða 17
Föstudagur 12. marz 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17 Frá vinstri: Ingvar Guömundsson, Geröur Aradóttir, Guörún Kjerúlf, Einar Rafn Haraldsson, Guölaug Bachmann. HELGI SELJAN: Ærsladraugurinn Leikfélag Fljótsdalshéraðs hefur að undanförnu sýnt gaman- leikinn Ærsladrauginn eftir Noel Coward undir leikstjórn Hauks V. Gunnarssonar. S.l. föstudag sá ég sýningu þeirra á leiknum á Reyðarfirði mér til óblandinnar ánægju. Yfir flestum sæmilega heppn- uðum leiksýningum áhugafólks er viss þokki, viss leikgleði er rikjandi, oft sakna ég þessa úr at- vinnuleikhúsunum. Heildarsvipur þessarar sýn- ingar einkenndist mjög hér af og glöggt er, að leikstjórinn hefur lagt alúð við verk sitt. Leikstjórar, sem koma til starfa hjá áhugafélögum, falla stundum i þá gryfju að einbeita sér um of að einhverjum tiltekn- um persónum — aðalhlutverkun- um, en missa þá um leið viss tök á verkefninu og túlkun þess i heild, jafnvel svo að mikilvæg hlutverk verða að engu og týnast. f þessari sýningu var þessu ekki til að dreifa, sem betur fer. Leikritið er og á að vera ærsla- fullt, kimileg tilsvör og svipbrigði eftir Noel Coward ráða miklu um velheppnað verk, margt kemst þar ágæta vel til skila, enda var óspart hlegið. Framsögn leikenda var i heild mjög góð, en þó þótti mér Krist- rún Eiriksdóttir i ærsladraugnum sjálfum jafnbest, einkennilega kliðmjúk en hrein rödd minnti oftlega á eitthvað handan okkar vitundar. Og sviflétt framkoman var eins og best varð á kostið. Burðarásinn i sýningunni hlýt- ur þó húsbóndinn að vera Hann var leikinn af Einari Rafni Har- aldssyni, sem hefur allt til að bera i sitt hlutverk: frapikomu, framsögn og svipbrigði. Eiginkonan siðari var leikin af Gerði Aradóttur, sem var hikandi i fyrstu, en náði sér verulega á strik siðar og þó aldrei betur en sem framliðin vera. Læknishjónin, leikin af Guð- laugu Bachmann og Ingvari A. Guðmundssyni, komu mjög þokkalega fyrir i tiltölulega litl- um hlutverkum og Guðlaugu ætti að fela viðameiri verkefni, til þess hefur hún greinilega hæfi- leika. Hrappurinn i leikritinu, gervi- miðillinn, var leikinn af Guðrúnu Kjerúlf, sem fór oft á mikhim kostum og vakti ærna kátinu. Þó var hér ekki um ofleik að ræða eins og hlutverkið býður að nokkru upp á. Litið hlutverk stofustúlkunnar var ágætlega túlkað af Helgu Aðalsteinsdóttur — taugaóstyrkur hennar var ein- mitt hæfilega fjölbreytilegur. Annars átti þetta ekki að'vera leikdómur sem slikur, aðeins um- sögn ásamt þakklæti fyrir góða skemmtan. Ég þekki af eigin raun, hversu mikið og fórnfúst starf liggur hér að baki og eru þá •ótaldir ailir þeir aðrir, sem hafa unnið hin fjöimörgu störf kring- um leiksýninguna. Það þarf til að koma mikið starf margra þannig að sýning eins og þessi komist á fjalirnar. Mikil gróska er nú i leiklistarlífi áhugafólks. Verzlunarhúsnæði Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis óskar eftir HUSNÆÐI FYRIR VÖRUMARKAÐ til kaups eða leigu. — Tilboð sendist Lögfræðiskrifstofu Ragnars Ólafssonar, Laugavegi 18. Kristrún Eiríksdóttir, (sitjandi) °6 Guðrún Kjerúlf. Með þessári sýningu hefur Leik hugastarfs. Fyrir það og ánægju- félag Fljótsdalshéraðs lagt fram legt kvöld færi ég bestu þakkir. ágætan skerf til þess mikla á- HelgiSeljan. IÐJA félag verksmiðjufólks Aðalfundur félagsins verður haldinn i Tjarnarbúð, sunnudaginn 14. mars, kl. 2 e.h. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Félagar mæti stundvislega og sýni skir- teini við innganginn. Félagsstjórn. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir febrúar- mánuð er 15. mars. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna rikissjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti. Fjármálaráðuneytið 10. mars 1976 Sovéskar bækur og tímarit (á ensku), hljómplötur og nótur. Opið frá kl. 10—12 og 14—18, föstudaga til kl. 19, laugardaga kl. 10—12. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæð ..

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.