Þjóðviljinn - 28.07.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 28.07.1976, Blaðsíða 16
UQÐVIUINN Miövikudagur 28. júli 1976. Ungir bridge- menn a leið í útlönd Taka þátt í evrópu- meistaramóti Framhald á bls. 14 Aflabrögð á Vestfjörðum Góður togaraafli Undanfarna daga hafa borist fréttir af góöum afla togara á Vestfjaröamiöum. Afþvítilefni hringdum viö i Pál Halldórsson frkvstj. f r y s ti h ús s i n s Noröurtanga á isafiröi og spuröum hann um aflabrögö isfirskra skipa. — Þaö hefur veriö ágætur afli hjá togurunum aö undanförnu. í siöustu viku var hann mjög góöur en núna hefur heldur dregiö úr honum. Þeir hafa veriö á Halanum og fengiö bæöi Línufiskírí sáralítið en dágóð handfœraveiði þorsk ogufsa. Þarna hafa verið 30-40 islenskir togarar dreifðir um stórt svæöi. 2-3 daga i siö- ustu viku fékkst fiskur einkum i flotvörpu en að undanförnu hafa skipin verið með botnvörpu. — Isafjarðartogararnir komu allir meö fullfermi i siðustu viku Páll Pálssonsem landaöi i gær, lika fullfermi. Hafa skipin kom- ið með 140-200 tonn eftir 5-10 daga veiðiferöir. — Það má segja aö þessi hrota sé orðin árvisst fyrirbæri sem alltaf gerist rétt fyrir verslunarmannahelgi. Þannig hefur það verið undanfarin ár svo nú oröiö má likja þessu við páskahrotuna hjá ykkur fyrir sunnan. — Hvað er um önnur aflabrögð aðsegja? — Linuafli hefur verið sára- tregur aö undanförnu og eru flestir linubátar hættir veiðum. Það varð aðeins vart við grálúðu i byrjun júni en svo var eins og hún gufaði upp og hefur ekkert sést til hennar lengi. Linubátarnir eru nú flestir i hreinsun og lagfæringum eins og vaninn er i júli og ágúst. — Handfærabátar hafa hins vegar fegnið dágóðan afla að undanförnu. Þær veiðar stunda mjög margir bátar, ég held að þeir séu orðnir á annað hundrað sem gera út á handfæri á sumrin frá Vestfjörðunum öllum, sa.gði Jón Páll. —ÞH Úrslit í bikar- keppni KSÍ í gœrkv. Sex leikir fóru fram i 16 liöa úrslitum Bikarkeppni KSl i gær. Ingi Björn Albertsson skoraöi fjögur mörk fyrir Val i leik liösins gegn Haukum og uröu úrslitin 4-1. önnur úrslit uröu þessi: Völsungur - Breiöablik 2:3 Keflavik — ÍBV 4:0 Akranes — Vikingur 3:0 FH — Þróttur 2:0 KA— KR 2:6 Lifæð Bridgesambands islands er hin árlega firmakeppni sem er aöaltekulindin. Aö þessu sinni varö Slippfélagið h/f sigurvegari i keppninni og tók Magnús Jónsson, t.v. á móti vcrölaununum. Meö honum á myndinni er Simon Simonarson sem keppti fyrir hönd fyrirtækisins. Mynd: eik Skattakóngar Reykjaneskjördœmis: Árstekjur á þriðja tug miljóna! Evrópumeistaramót i bridge ungra manna fer fram i Lundi i Sviþjóö dagana 1. — 7. ágúst. Is- lendingar senda þangaö sex manna sveit og einn fararstjóra. Sveitina skipa þeir Guömundur P. Arnarson, Helgi Jónsson, Helgi Sigurösson, Jón Baldursson, Sig- urður Sverrisson og Sverrir Ar- mannsson. Fyrirliöi án spila- mennsku er Páll Bergsson, sem jafnframt er fararstjóri. Samtals taka sveitir frá átján löndum þátt i evrópumótinu og er daglega leikiö gegn þremur þjóð- um þannig aö dagskráin fyrir is- lensku spilamennina verður ansi stif. Mótiö hefst á sunnudegi og lýkur siðan á næsta laugardegi þar á eftir. Þetta er i annað sinn sem Bridgesambandið sendir landslið til útlanda á þessu ári, en i mai fór A-landsliðið til Monte Carlo á Olympiumótið, sem þar varð haldið. Urðu islendingar þar vel fyrir ofan miðju og er vonast til þess að árangur ungu mannanna, sem fæddir eru 1951 eða siðar verði ekki siðri. — gsp Grétar Sveinsson, húsasmiða- meistari, Miövangi 114 Hafnar- firöi greiðir hæstan skatt ein- staklinga í Reykjaneskjördæmi að þessu sinni, eða 12.311.410.00 krónur. Vel að merkja eru þetta sjálfsagt gjöld, sem hann jafn- framt greiðir af atvinnurekstri þeim, sem hann stundar. Ilæst gjöld fyrirtækja greiöa Isl. Aöalverktakar, en þeir greiöa hluta af hermangsgróöa sinum I bæjarsjóö m.a. i Njarövikum. Er þeim aö þessu sinni gert að greiða 35,6 miljónir og munar bæjarsjóö þar sjálfsagt um minna. Annan hæsta skatt einstaklinga i umdæminu greiðir Sveinn Skaflason, framkv.stj. i Kópa- vogi. Greiðir hann 12,2 miljónir i gjöld enda hafa tekjur hans fariö nokkuð á þriðja tug miljóna á liönu ári, eöa sem svarar launum rúmlega 20 Dagsbrúnarverka- manna. Hæstan skatt I Keflavik að þessu sinni, sem og flest undan- farin ár, greiðir Jóhann G. Ellerup, lyfsali, og er honum gert að greiða 6,7 miljónir i samanlögð gjöld. t Garðabæ ber hæst gjöld Hall- grimur Guðmundsson, rafvirki, 5,8 miljónir tæpar. A Seltjarnarnesi greiðir hæstan skatt ólafur Björgúlfson, tann- læknir, tæpar 3,2 miljónir. At- hygli vekur að annar tannlæknir er þar talinn með 5 gjaldendum, sem hæstan skatt greiði, Börkur Thoroddsen.og greiðir hann tæpl. 2,2 miljónir i gjöld. Kaupmaður ber hæst gjöld i Grindavik. Er þar Bragi Guöráðsson og er honum gert að greiða 3,1 miljón. Friðrik Valdemarsson, fram- kvæmdastjóri skráður, ber hæst gjöld einstaklinga i Njarðvikum og á að greiða 3,1 miljón. í hreppum umdæmisins ber fiskverkandinn og útgerðarmað- urinn Guöbergur Ingólfsson i Garðinum hæstgjöld einstaklinga og er gert áð greiða 3,1 miljón króna. Að frágengnum Isl. Aðalverk- tökum greiða þessi fyrirtæki meira en 10 miljónir samanlögð gjöld: Byggingavöruverslun Kópa- Vélskólanemar enn í sparnaðarhugleiðingum: Of dýrt rafmaffn til skipa í Nemendur á þriöja stigi Vél- skóla islands i Reykjavík geröu i vor könnun á rafaflsnotkun báta og skipa i þremur höfnum á höf- uöborgarsvæðinu: Reykjavfkur- höfn, Sundahöfn og Hafnarfjarö- arhöfn. Könnunin var gerð dagana 7.—12. april og náði til allra skipa sem lágu i nefndum höfnum þessa daga. I frétt frá nemendunum segirað tilgangur þessarar könn- unar hafi veriö ,,að sanna eða af- sanna þann grun manna hvort um væri aö ræða óhóflega hátt raf- magnsveröfrá rafveitum þessara staða.” Einnig geröu nemendurn- ir samanburð á hagkvæmni þess höfnum að fá rafmagn úr landi annars vegar og að láta eigin ljósavélar framleiða rafmagns hins vegar. I stuttu máli voru niðurstööur könnunarinnar þær aö ef afinotk- un skips fer yfir 24 kilóvött er hagkvæmara aö sleppa landteng- ingunni og ræsa Ijósavélarnar. Þvi meira sem afliö veröur þeim mun meiri er sparnaöurinn. 1 fréttinni er nefnt eitt dæmi. Togarinn Ingólfur Arnarson lá við Faxagarð 12. april og þegar lesið var á mæla hans kom i ljós að raf- aflsnotkun hans var 80 kilóvött. Þetta afl kom úr ljósavélum skipsinsog samkvæmt útreikn- ingum vélskólanema kostaði það 23.200 krónur. Ef drepið hefði ver- ið á ljósavélunum og landtenging fengin i staðinn hefði kostnaður- inn orðið. 41.760 krónur. Þarna spöruðust þvi 18.560 krónur við keyrslu ljósavélanna. Inn I kostn- aðar.útreikninga vélskólanema á keyrslu ljósavéla er tekin vél- gæsla en þar sem gæslumenn vinna yfirleitt önnur störf með reiknuöu þeir dæmið einnig án hennar. Þá reyndist sparnaður- inn hvorki meiri né minni en 26.560 krónur á sólarhringinn. I könnun vélskólanema kom i ljós að „landtenging er yfirleitt aðeins notuð i neyðartilvikum”. Einu skipin sem notuðu landteng- ingu voru varðskipin sem fengu rafmagn til ljósa, skip og bátar i slipp og einn bátur þar sem verið Framhald á 14. siðu. I I I I I Fólksbíladekk Kynnið ykkur hin hagstæðu verð. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ A /SLAND/ H/F AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.