Þjóðviljinn - 16.11.1977, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 16. növember 1977 —42. árg. 256 tbl.
SÖGULEGUR DAGUR 1 RAFORKUMÁLUM:
Kílóvattstundin
kostar um 20kr.
frá dísilstöð en
5 kr. með
byggðalínunni til
Akureyrar
Full spenna á byggðalínu
Stofnendur og stjórnarmenn Málfrelsissjóðsins á fundi meö fréttamönnum I gær. Frá vinstri: blaöamaóur Timans, þá Páll Skúlason, prófessor,
Silja Aöalsteinsdóttir, cand. mag. Jóhann S. Hjálmarsson ménntaskólakennari og Vésteinn ólason, lektor.
78 stofna Málfrelsissjóð
Sjá lista yfir stofnendur sjóðsins og ávarp vegna
stofnunar málfrelsissjóðs á 3. síðu
Slökkt á
dísilstöðvum
á Norður-
landi
Um hádegisbiiið í gær
var slökkt á dísilstöðvum
þeim sem notaðar hafa
verið til raforkufram-
leiðslu á Norðurlandi. Þá
hafði byggðalínan verið
tengd og þar með var lokið
langþráðum áfanga i raf-
orkumálum landsmanna.
Til þess að menn átti sig á
þeim fjárhagslega sparn-
aði sem hér um ræðir skal
þess getið að kilóvattstund
kostaði í framleiðslu frá
dísilstöðvum 20 krónur/ en
hver kílóvattstund til
Akureyrar er seld á 5 krón-
ur.
, Framhald á 14. siðu
Stœrð þorsk-
stofnsins ’78
verður sú
minnsta síðan
rannsóknir
hófust
SJÁ 6. SlÐU
Stofnaður hefur verið
sjóður til verndar mál-
frelsi á islandi. Tilgangur
sjóðsins er að tryggja
fyllsta frelsi til umræðu
um málefni sem varða al-
mannaheill og til óheftrar
listrænnar tjáningar.
Hlutverk sjóösins er aö standa
straum af kostnaði og miskabót-
um vegna meiðyrðamála þegar
stjórn sjóðsins telur aö með þeim
séu óeðlilega heftar umræður um
mál sem hafa almenna sam-
félagslega eða menningarlega
skirskotun.
Málfrelsissjóður er stofnaður af
78einstaklingum og var ákvörðun
um sjóðstofnunina tekin fyrir
réttri viku. Stofnendur hafa
undirritað ávarp, þar sem til-
gangi sjóðsins og tilefni stofnunar
hans er lýst og er ávarpið I heild
og listi yfir stofnendur sjóðsins
birt á siðu 14 i blaðinu I dag.
Stjórn sjóðsins skipa Jóhann S.
Hannesson, menntaskólakennari,
Jónas Jónsson frá Ysta-Felli rit-
stjóri, Páll Skúlason prófessor,
Silja Aðalsteinsdóttir cand. mag.
og Thor Vilhjálmsson rithöf-
undur.
Stofnunin var tilkynnt á blaða-
mannafundi i gær. Þar var saman
komin stjórn sjóðsins, utan þeir
Jónas og Thor sem eru erlendis
en auk þeirra starfsmaður Mál-
frelsissjóðsins Guðrún Þorbergs-
dóttir og einn af stofnendum Vé-
steinn Ólason lektor.
Á blaðamannafundinum kom
fram að stofnendur telja að
meiðyrðalöggjöf Islendinga setji
almennri umræðu um málefni
sem varða almannaheill og til
óheftrar listrænnar tjáningar
mjög þröngar skorður, og skerði
framkvæmd gildandi lagaákvæða
um þau lýðréttindi sem
stjórnarskráin tryggir, þ.e. mál-
frelsi og tjáningarfrelsi.
Markmið Málfrelsissjóðsins er að
tryggja að menn geti talað og
ritað um slik mál án þess að
hugsa um pyngjuna, þ.e. án þess
að eiga á hættu að greiða háar
miskabætur eða málskostnað af
meiðyrðamálaferlum.
Stofnendur sjóðsins telja að
dómar þeir sem nýlega hafa verið
kveðnir upp i Hæstarétti vegna
Framhald á 14. siðu
Horfur á rekstrarhalla á Grundartanga:
Heimsmarkaösverð á
kísiljárni lækkar enn
Eins og greint var frá i Þjóö-
viljanum sl. vor eru verulegar
likur á rekstrarhalla járn-
blendiverksmiðjunnar f Hval-
firöi. Þessar likur fara nú vax-
andi og eru aö breytast I vissu
samkvæmt fréttum i virtum er-
lendum blööum. Samkvæmt
þeim er heimsmarkaösverö á
framleiöslu verksmiöja af þvi
tagi sem nú er veriö aö reisa I
Hvalfiröi um 2.300 norskar
krónur hvert tonn, en þaö heföi i
för meö sér árlegan halia á
járnbiendiverksm iöjunni i
Hvalfiröi upp á liöiega 800
miljónir islenskra króna á ári.
Þetta verð er lægra en þaö verð
sem taliö var lágmark I fyrra,
þá 2.388 norskar krónur.
1 áætlun fyrir járnblendiverk-
smiðjuna 1978 sem lögð var fyr-
ir alþingi sl. vor var hins vegar
gert ráð fyrir 3.405 norskum
krónum á hvert tonn af kisil-
> járni.
Þennan halla yrði islenska
rikið að taka á sig — það er:
Greitt yröi beint úr rikissjóði
meö verksmiðjunni á Grundar-
tanga.
1 timaritinu Metal Bulletin frá
6. september sl. er birt frétta-
klausa um verksmiðjuna á
Grundartanga. Þar segir meðal
annars:
„Kisiljárnverksmiðja Is-
lenska járnblendifélagsins, sem
framleiðir um 50.000 tonn á ári,
mun njóta mun hagstæöari
kjara en flestar aörar verk-
smiðjur, að þvi er nýlega var
upplýst. Orkan fæst þar á sem
svarar aðeins 350 norskum
krónum á hvert tonn af kisil-
járni en til samanburöar er
orkuveröiö 1.800 norskar krónur
á hvert tonn af kisiljárni i
Jaþan... Verksmiöja þessi, sem
núris að Grundartanga f grennd
við Reykjavik, er sameign is-
lenska rikisins og hins nýstofn-
aða Norræna fjárfestingar-
banka (sic!) sem sér Islenska
járnblendifélaginu fyrir láni aö
upphæð 540 miljónir dollara.
Bankastjórinn Bert Lindtrom
sagði að verksmiðjan væri gott
dæmi um það hvernig sérstök
náttúruskilyröi eru hagnýtt til
þess að koma á lifvænlegum
iönaði. (Alþjóðiegi kisiljárn-
iðnaðurinn er samt I þvilikri
óreiðu eins og sakir standa og
óliklegt aö úr rætist fljótlega aö
eitthvaö meira en hagstæö
náttúruleg skilyrði þarf til þess
að gera þennan iðnað llfvænleg-
an á næstu árum. — Ritstj.)” —
Þessi athugasemd ritstjóra
Metal Bulletin er athyglisverð
spáumframtlðarhorfuri þessari
iðngrein um leið og tilvitnunin
segir sina sögu um það orkuverð
sem hér á landi verður notað til
járnblendiverksmiðjunnar I
samanburði við það verð sem
hliöstæður iðnaður verður að
greiða annars staöar.
Augljóst er aö verö á kisil-
ÍLow costs in lceland
I rom our Norwtfj-ian correspondent
I HI! '>(),()()() tp.v ferro-silicon plant
beint* IVuill hy Icelandic Alloys will
i be producinti ai a distinct cost ad-
| vanlá.ne lo most other producers,
it was recently revealed. Hydro-
electric cnerv»y will bc available at (
only NKr350 (S67) a ton of ferro-
alloy production, compared with
some NKrl,800 (S344) a ton for
Japanesc ferro-silicon, which is
k based on thermal power.
The plant, which is being built at
|Grundartangi near Reykjavik, is the
' result of a partnership between the
Icelandic state and the recently
formed Nordic Investment Ðank,
which is providing Icelandic Alloys
with a $40m. loan. The bank’s direc-
tor, Bert Lindstrom, said that the
plant is a good example of how
special natural advantages can be
| Vxploited to achieve a viable in-
dustry. (Though, with the inter-
national ferro-silicon industry in
1 such a mess at the present time and
unlikely to improve with any speed,
I something more than natural ad-
t vantages will be needed to keep it
viable in the next few years.—Ed.)
Úrklippa úr Metal Bulletin
járni er enn i þvi lágmarki sem
það var i fyrra — og það virðist
enn fara lækkandi.
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
i
■
I
i
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I