Þjóðviljinn - 03.01.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 03.01.1979, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN Miðvikudagur 3. janúar 1979 1. tbl. 44. drg. Togaranum Júpiter breytt í nótaskip Reiknaö með aö hann veröi tilbúinn fyrir nœstu sumarloönuvertíð Nú er unnið að þvl hjá skipa- smiðastöðinni Stálvik h.f. I Garðabæ, að breyta slðutogaran- um Júpiter I nútaveiðiskip og að sögn eiganda skipsins. Hrólfs Gunnarssonar, er reiknað með að skipið veröi tilbúið fyrir næsta sumar, þannig að hægt veröi að stunda á þvi veiðar á sumar- og haust-loðnuvertiðinni. Hrólfur sagði að Júpiter, sem er 800 tonna skip, myndi bera 1200 lestir af loðnu eftir breyt- ingarnar. Þrátt fyrir að skipiö er orðið 20 ára gamalt, sagði Hrólfur aö þarna væri um mjög gott skip að ræða. Auk þess sem byggt verður yfir skipið verður að skipta um allar vélar og eins verða sett ný fisk- leitartæki I það. Ekki kvaðst Hrólfur þora að segja til um kostnaðinn við þessar breyt- ingar, enda færi þaö mjög eftir þvi hver verðbólgan yrði næstu mánuði, en þó væri ljóst að hann færi hátt i einn miljarð. Þess má til gamans geta, að fyrir einum tveimur eða þremur árum, seldi Bæjarútgerö Hafnar- fjaröar togarann Mai úr landi fyrir litlar 40 miljónir, en Mai var einn yngsti siðutogarinn hér á landi og jafnframt einn sá stærsti, systurskipnótaskipanna Sigurðar RE og Vikings AK I stað þess að breyta skipinu I nótaskip, sem hefði getað greitt kostnaðinn af breytingunni upp á einu eða tveimur árum. —S.dór \ t * i iiv j r \',r' Verið er aö byggja yfir gamla siðutogarann Júpiter og breyta honum Inótaskip (I.jósim Leifur) Fiskverd hækkar um 11 % A fundi yfirnefndar Verðlags- ráðs sjávarútvegsins I gærkvöld var ákveðið nýtt fiskverð frá 1. janú ar. Ákvöröun þessi felur I sér 11% hækkuná verði allra tegunda sem hún nær til, nema steinbits sem hækkar um 13% og grálúðu og keilu, sem hækka um 9%. Verðiö gildir til malloka 1979, en fari almenn launahækkun fram úr 5% á verötlmabilinu má segja verðinu upp frá 1. mars 1979. Verðiö var ákveðiö meö atkvæðum fulltrúa sjómanna Ingólfs Ingólfssonar, annars fulltrúa fiskkaupenda Arna Bene- diktssonar og oddamanns Jóns Sigurðssonar, gegn atkvæðum fulttrúa útvegsmanna Kristjáns Ragnarssonar og annars fuiltrúa fiskkaupenda Eyjólfs tsfelds Eyjólfssonar. TILLAGA UM HEILDARÚTTEKT Á REKSTRI BORGARINNAR: Kostnadarlækkun, bætt þjón- usta og virkara stjórnkerfi er markmiðiðy sagði Sigurjón Pétursson Borgarráðsfulltrúar Al- þýðubandalags/ Alþýð- flokks og Framsóknar- flokks hafa lagt fram til- lögu um að gerð verði heildarúttekt á rekstri Reykjavíkurborgar. Var tillögunni/ sem lögð var fram á fundi borgarráðs í gær, vísað til afgreiðslu borgarstjórnar sem koma mun saman n.k. fimmtu- dag. Tillagan er svohljóðandi: „Borgarstjórn samþykkir að gerö verði heiidarúttekt á rekstri borgarinnar. Kerfisbundið verði tekin fyrir afmörkuð verkefni og verði i þvi sambandi leitað til viðurkenndra aðila á sviði hag- ræðingar, þegar þurfa þykir og þeim falið að gera ýtarlega úttekt á verkefnum og skila um þau álitsgerð ásamt tillögum um skipuiagsbreytingar og endur- bætur á rekstrinum. Jafnframt vinni hagsýsluskrifstofa borgarinnar skv. áætlun að hagræöingarverkum á þessu ári og verði jafnframt m'eð i ráðum varðandi úttektirnar”. ,, Með þessu ætlum við að reyna að fá fram kostnaðarlækkun i rekstri borgarinnar ásamt bættri þjónustu og virkara stjórn- kerfi , sagði Sigurjón Péturssoni gær. Tillöguflutningur þessi er i samræmi viö ákvæði málefna- samnings flokkanna þriggja,enda fluttu þeir i minnihluta itrekað tiliögur sama efnis, en þær voru jafnan felldar”. —A1 1 Þorsteinn Magnússon Ragnar Arnalds rædur sér aðstoðarmann Þorsteinn Magnússon hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Ragnars Arnalds, mennta- og samgönguráðherra. Þorsteinn hóf starf sitt I gær. Hann er 26 ára gamall, lauk BA prófi i stjórn- málafræði frá Háskóla tslands s.l. vor. 1 Háskólanum gegndi Þorsteinn ýmsum trúnaðarstörf- um, sat m.a. i Stúdentaráöi I 3 ár og I Háskólaráði i 2 ár. Veturinn 1977—1978 var Þorsteinn Magnús- son þingfréttaritari Þjóðviljans. Ráðning þessi er gerð skv. heimild i lögum frá 1969. —AI Mjög þungfært víða um land Mjög þungfært var viða á Suður og Vesturlandi i gær eftir að veö- ur tókað hvessa ogsnjó að skafa. Síðdegis i gær var orðið afar þungfært um vegi á á Suöurnesj- um, enda mikill skafrenningur kominn þar. Sama var aö segja um veginn frá Reykjavlk um Hvaifjörð, þar skóf viða og raun- ar alla leið uppl AndakO. Þaðan var aftur á móti sæmi- lega færtum Snæfellsnes alla leiö til Stykkishólms og einnig var fært vestur i Dali um Heydal. í var var unnið að þvi að ryðja veg- inn fyrir Gilsfjörð. Holtavörðuheiði opnaðist i gær og komust all-margir bilar yfir, en þar er óvenju mikill lausa- snjór, þannig að ófært veröur um leið og hreyfir vind. Skafrenning- ur var byrjaður i Norðurárdal siðdegis i gær. A Norðurlandi er ástandið betra,enda mun minni snjór þar. Fært var til Siglufjarðar I gær og til Akureyrar og þaöan var stór- um bilum fært til Húsavikur. framhald á bls. 14 ÁRAMOT í ÞÓRSMÖRK SS' 1 | ' TÍ"** .......... ............*Saa \ JökuIIónið var á Is og gengu nokkrir Ferðafélagsmanna uppað Gigjöklinum. Ljósm. Jóhannes Eirlks- Feröaféiag tslands fór sina árlegu Þórsmerkurferð nú um áramótin. Lagt var upp árla á laugardagsmorgun og komið i bæinn aftur á nýjársdagskvöid. Ferðin gekkialla staði vel, enda litill snjór þar um slóöir og vötn- in með minna móti. Gönguferðir voru farnar um Mörkina og fjörugar kvöldvökur bæði kvöldin ásamt blysför og brennu, sem tilheyrir áramót- um. Þátttakendur voru með þvi mesta eða nær 90 manns. Fleiri myndir eru á siðu 5. Sjá síðu 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.