Þjóðviljinn - 30.01.1980, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.01.1980, Blaðsíða 1
UOBVIUINN Miðvikudagur 30. janúar 1980 24. tbl. 45. árg. saman Arið 1979 var fluttur til landsins alls 8.181 bíll en árið áður var innflutningur- inn 8.862 bilar og hefur hann þvi dregist saman um 681 bfl. Telst það ekki óeðlilegt i orkukreppunni sem yfir gekk. Eins og áður var mest flutt inn af bilum af gerðinni AE-Lada frá Sovétrikjunum eða alls 1007 bilar.Næstmest var flutt inn af Mazda-bilum frá Japan eða alls 935 og næstir i röðinni koma Daihatsu-bilar lika frá Japan. Þeir voru 916. — Gfr. Kvenna- ríki i Fiskmarkaðurinn í Bandarikjunum: Úr vinnslusal hjá Coldwater vestra Bilainnflutningur: Dróst heldur • Erfiðir tímar í vœndum sagði Guðmundur H Garðarsson hjá SR — Jú/ það er rétt að nokkur verðlækkun hefur orðið á nokkrum fisk- tegundum á Bandaríkja- markaði að undanförnu# sagði Guðmundur H. Garðarsson blaðafulltrúi Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna í samtali við Þjóðviljann í gær. Guðmundur sagði að samkeppnin á bandariska mark- aðnum væri að harðna, nú væri þar mikið framboð af fiski á lægra verði en íslendingar hafa selt sinn fisk á. — Það er erfitt að spá um framvindu mála á þessum markaði, en margt bendir til þess að framundan séu erfiðari timar en verið hefur, sagði Guðmundur. Lækkanir þær sem orðið hafa á Bandarikjamarkaðnum eru á þorskblokk úr 108 sentum i 103 sent, á ýsublokk úr 130 sentum i 125 sent, á karfablokk úr 96 sent- um i 90 sent og einnig hefur orðið nokkur lækkun á karfaflökum. Aftur á móti hefur ekki orðið lækkun á þorskflökum sem er um það bil 70% af þeim þorski sem fluttur er til Bandarikjanna en þorskblokkin er aftur á móti ekki nema um 30%. Fyrir utan það að mikið framboð er nú á ódýrum fiski á Bandar ikjamarkaði, sagði Guðmundur að orkukreppan hefði sitt að segja i þessu máli. Mikið af fiski er selt á „drive inn” matsölustöðum, þar kaupir fólk hann djúpsteiktan. Vegna hækkandi bensfn *verðs hefur jdregið mjög úr viðskiptum þess- ara veitingastaða og það er fljótt að segja til sin i minni eftirspurn eftir fiski. Enn liggja ekki fyrir tölur um hvað mikið þessi verðlækkun þýðir fyrir islenska þjóðarbúið. — S.dór Reykjavík Nú mun vera rétti timinn til að klippa runna og trjágróður. Þessa mynd tók — Reykjavikurborgar I gær þar sem þeir voru aö snyrta trjágróður. eik af starfsmönnum N okkrar tegundir lækkuðu í verði þó að karlmenn séu mun fleiri á öllu landinu Loðnukvótiim aukinn um 80 þúsund lestir Aflamagnið til hrognatöku minnkað að sama skapi Karlmenn á tslandi eru um 2000 fleiri en kvenmenn og I nær öllum s veitar félögum landsins er fjöldi karla meiri en kvenna. Þarna sker þó Reykjavik sig úr þvi að þar eru konur 2445 fleiri en karlmenn. Þetta kemur fram i b r á ð a b i r g ð a t ö I u m um mannfjölda á islandi 1. desember 1979. Eftir þessu aö dæma ætti Reykjavik að vera góssenland kvenna eða öllu heldur karla — eftir þvi hvernig á það er litið. Strax i næstu kaupstöðum svo sem Kópavogi, Seltjarnarnesi og Garðabæ eru karlmenn fleiri en konur. 1 sumum sveitahreppum eru karlmenn i yfirgnæfandi .meirihluta. 1 Helgustaðahreppi i S.Múlasýslu eru t.d. 27 karlmenn en aðeins 8 konur. 1 nálægum hreppi, Mjóafjarðarhreppi, eru þó 20 konur a móti 14 körlum. — GFr Sú frétt Þ jóðviljans i gær að loðnukvótinn til bræðslu nú yrði aukinn úr 100 þús- und í um 180 þúsund lestir en minnköíour að sama skapi til hrognatöku hefur verið staðfest, þvi i gær gaf sjávarútvegsráðuneyt- ið út fréttatilkynningu þess ef nis að vegna þess hve illa lítur út með sölu á loðnu- hrognum, verði kvótinn til bræðslu hækkaður úr 100 þúsund lestum i 180 þúsund lestir. Og einnig að kvótinn til hrognatöku verði 100 þúsund lestir. 1 gær hélt sjávarútvegsráö- herra fund með hagsmunaaðil- um i loðnuveiðum og bræöslu og fulltrúum frá Hafrannsóknar- stofnuninni og kynnti þeim málið. Ástæðan fyrir þessari breyt- inguer, eftir þvi sem Þjóðviljinn kemst nær ekki eingöngu þetta breytta viðhorf i hrognasölunni, heldur og ekki siður sá mikli þrýstingur sem útgerðarmenn og bræðslurnar hafa lagt á sjávarútvegsráðherra um að hækka loðnukvótann almennt, frá þvi sem ákveöið hafði verið. Þeir sem gerst þekkja til i þessum málum segja að ekki þurfi að koma á óvart, þótt leyft verði að veiða allt að 250 þúsund lestir til bræðslu og 150 til 200 þúsund lestir til hrognatöku eins og það verður þá látið heita. Skitt með alla skynsemi, loðna er gull. — S.dór. Allt getur gerst Þjóðstjórn aftur ! á dagskrá? Formenn stjórnmála- ■ flokkanna fjögurra munu I sitja sameiginiegan fund I með forseta islands dr. | Kristjáni Eldjárn I dag. ■ Forseti hefur nú snúið við I stundaglasinu og sandurinn I er farinn að renna i neðra | hólfið. Talið er að hann • Imuni veita formönnum 5—7 I daga frest til þess að koma | sér niður á starfhæfa ríkis- stjórn án þess að nokkru þeirra verði veitt formlegt umboð til stjórnarmynd- unar. 1 flokkunum öllum er nú mikill viðbúnaður og eru all- ir möguleikar á stjórnar- mynstri tii umræðu. Allt getur þvi gerst á næstu dög- um og litlu hægt að spá. Það sem helst er talið hafa vald- ið breytingu á afstöðu flokk- anna til stjórnarmyndunar, er sú frétt sem spurðist út fyrir skemmstu, að forseti hefði setiö fund með dr. Jóhannesi Nordal. Var þvi fleygt að umræðuefnið hefði verið utanþingsstjórn undir hans forsæti, þó ekki fengist það staðfest. Það sem einkum er til umræðu i flokkunum núna er „Stefaniu” stjórn, við- reisnarstjórn eöa minni- hlutastjórn Sjálfstæðis- flokks með stuðningi Al- þýðuflokksins en Alþýöu- bandalagið mun vera þvi hlynnt að skoðaður verði möguleiki á þjóðstjórn. Aðr- ir flokkar munu hins vegar til þessa hafa sýnt þjóð- stjórn heldur litinn áhuga nema helst Framsóknar- flokkurinn. Loðnuveiðin: Sigurður hefur tekið forustuna Eins og skýrt var fú i Þjóð- viljanum i gær, er heildar afiinn á loðnuvertiðinni orðinn um 115 þúsund lestir. Sigurður RE hef- ur tekið forystuna i hópi þess 51 skips, setn fengið hefur afla á þessari vertið. Um siðustu helgi var Sigurður RE kominn með 4493 lestir, næst- ur honum var Pétur Jónsson RE 3309 lestir og i 3ja sæti var Júpiter RE með 3253 lestir, Bjarni Ölafsson AK með 3247 lestir, Grindvíkingur GK með 3204 lestir, Guðmundur RE með 2930 lestir, Hákon ÞH með 2809 lestir og Börkur NK með 2506 lestir. Loðnu hefur verið landað á 14 stöðum á landinu.mestu á Siglu- firði, 36,831 lestum, næst kemur svo Krossanesverksmiöjan með 7.336 lestir, Reykjavik með 7297 lestir, Bolungarvik 6527 lestir og Raufarhöfn með 5210 lestir. — S.dór. Munið Munið fundinn með borgarfulltrúum Alþýðubanda- lagsins á Hótel Sögu i kvöld kl. 20.30. Fundurinn er öllum opinn. Almennar umræður og fyrir- spurnum svarað.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.