Þjóðviljinn - 18.03.1980, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.03.1980, Blaðsíða 1
ÞJÚÐVIIJINN tfS Þriðjudagur 18. mars 1980 —42. tbl. 61. árg. Flugleiðamenn í Luxemburg: Félag starfsfólks í veitingahúsum: Starfsmaðurinn felldi stjómina Persónulegt frambod, ekki pólitískt, segir nýi formaðurinn Ameríkuflugid er 1 óvissu Stjórn Flugleiða hefur enn ekki tekið afstöðu til þeirra þriggja skilyrða, sem ríkisstjórnin ákvað að setja fyrir veitingu ríkisábyrgðar á eins mil- jarðs króna rekstrarláni til félagsins. Sigurður Helga- son forstjóri Flugleiða hélt á sunnudag til Luxemburg- ar ásamt tveimur stjórnar- mönnum og fulltrúa sam- gönguráðuneytisins og mun stjórn Flugleiða væntanlega f jalla um skil- yrðin þegar þeir koma heim innan fárra daga. 1 Luxemburg mun m.a. vera unniö að stofnun nýs flugfélags, sem gæti yfirtekið Atlantshafs- flug Flugleiða ef illa færi en tapið á þeirri leið ku nú vera á leið með að sliga félagið fjárhagslega. Luxemburgarar leggja mikla áherslu á að loftbrúin milli Lux og Bandarikjanna haldist og munu þvi tilbúnir að leggja sitt lóð á þá vogarskál með eignaraðild i nýja félaginu. Hins vegar líst starfsmönnum Flugleiða slður en svo vel á það að flytja Atlantshafsflugið úr landi og þvi vakti það mikinn ugg þegar einn forráðamanna Flug- leiða lýsti þvi yfir fyrir'helgina að ekkert væri ákveðið með Atlants- hafsflugið eftir 1. október n.k. Býður ýmsum i grun að frá og með þeim tima eigi aö leggja flugiö niður og myndi það aö sjálfsögöu þýða atvinnumissi fyrir þau hundruð manna sem sinna Atlantshafsfluginu og sem þessa dagana eru einmitt aö semja um kaup sin og kjör,—A1 A sunnudag voru kunn úrslit í stjórnarkjöri Félags starfsfólks í veit- ingahúsum og féll listi stjórnar félagsins fyrir lista Siguröar Guömunds- sonar starfsmanns félags- ins með 1038 atkvæðum á móti 183. Sigurður Guðmundsson sagði i samtali við Þjóðviljann i gær, að persónulegar ástæöur en ekki pólitiskar hefðu valdiö þvi að hann bauðfram á móti stjórninni. Hann sagðist hafa verið ráðinn starfsmaður félagsins I nóvem- bermánuði, en siöan hefur komið upp mikil óánægja og úlflúö, og um siðustu mánaðamót hefði soö- ið uppúr, þegar stjórn félagsins ákvað að segja honum upp. Sigurður sagði að ástæður upp- sagnarinnar hefðu veriö sagðar þær aö hann væri ekki nógu harð- ur gagnvart atvinnurekendum, Öflugt en stutt eldgos viö Kröflu A sunnudag varð fjórða eldgosið á Kröflusvæðinu siðan Kröflueldar ar meö hverju gosi og telur Sigurður Þórarinsson jaröfræöingur þaö hófust i desember 1975. Mynd þessa tók eiki ljósmyndari Þjóöviljans, góösvita fyrirbyggöir Mývatnssveitar. Sjá frásögn af ferö blaöamanna úr iofti af hluta nýja hraunsins. Eidvirknin hefur færst noröar og norö- á gossvæöið i opnu blaösins I dag. en þaö sagði hann að væri mjög óréttmæt ásökun. 1 stjórn félagsins nú eru.auk Sigurðar, Málfriður Olafsdóttir, Matthildur Einarsdóttir, Guðlaug Þórarinsdóttir, Sjöfn Þorgeirs- dóttir, Vigdls Bjarnadóttir og Ingibjörg Guömundsdóttir. Sigurður sagðist ekki telja aö um pólitísk átök hefði veriö að ræða I kosningunum um helgina og ekki sagði hann að sér væri kunnugt um að veitingahúsa- eigendur hefðu talið sig eiga ein- hverra hagsmuna aö gæta i þeim. Þjóðviljanum er þó kunnugt um aö talsverður hiti var i slagnum og mikið smalaö, þó kosninga- þátttaka hafi verið mun lakari en þegar siöast var kosið, en um 650 manns voru á kjörskrá. Þá hefur Þjóöviljinn það fyrir satt aö á kjörstaðnum hafi Sigurður Guö- mundsson og stuðningsmenn hans verið með eina kosninga- skrifstofu sína og neyddist kjör- stjórn til þess aö loka henni I miöri kosningu. Ekki náðist i Kristrúnu Guömundsdóttur, frá- farandi formann félagsins,i gær, en hún hefur gegnt formennsku I tvö ár. -AI Krafla: Smá- skjálftar áfram Um kl. 6 í gærkvöld sagöi Bald- ur Þórisson á skjálftavaktinni i Reynihliö i Mývatnssveit aö smá- skjálftar héldu áfram þannig aö ennþá væri einhver hreyfing á kvikunni. Eins og fram kemur annars staðar i blaðinu hófst landris að nýju um kl. 31 fyrrinótt en Baldur sagöi að um hádegi I gær hefði komið afturkippur og sig byrjaö að nýju en siöan hóf land aö risa aftur. Fjölmargir visindamenn eru nú við mælingar I Kröfluöskjunni og sagði Baldur að svo liti út að kvikuhlaup heföi orðið bæði til norðurs og suðurs auk eldgossins. -GFr Frydenlund fullur af samningavilja og bjartsýni „Tökum loðnuna fyrst” ,,Ég er þeirrar skoöunar aö megináherslu eigi aö leggja á aö leysa loönudeiluna og önnur fiskveiöimál i samningum milli tslendinga og Norömanna. Þau mál á aö semja um fyrst en geyma á meöan lagalegar hiiö- ar varöandi lögsögu og marka- linur”, sagöi Knut Frydenlund utanrikisráöherra Noregs, á fundi meö islenskum blaöa- mönnum i Osló I gærmorgun. Sex Islenskir blaöamenn eru nú á viku feröalagi um Noregi i boöi norska utanrikisráöu- neytisins. I máli Frydenlunds kom fram að þaö er einkum tvennt sem veldur þvi að hann vill hraöa samningaumleitunum um fisk- veiöimálin á Jan Mayen svæð- inu. Annarsvegar væri geysileg pressa á norskum stjórnvöldum frá sjómönnum og atkvæöalega skipti það Verkamannaflokkinn mjög miklu máli að viöunandi úrslit fengjust á þessu sviði, þvi mönnum væri heitt i hamsi I Noröur-Noregi. Hinsvegar væri mikilvægt að Islendingar og Norömenn kæmu sér saman um loðnuveiðarnar áður en fisk- veiðilögsaga yröi færð út við Grænland, en 200 milna lögsaga þar myndi skera stóra sneiö af helstu loðnumiðunum á þessu svæði. Islensku blaöamennirnir voru sammála um þaö eftir fundinn með Frydenlund aö mjög greinilegur vilji hefði komið fram hjá honum til þess að leysa Jan Mayen deiluna með samn- ingum. Sérstaklega tók hann fram aö honum hefði aukist bjartsýni á samningahorfurnar eftir samtöl sin við islenska ráð- herra meðan á þingi Norður- landaráös stóð I Reykjavik i Knut Frydeniund: Vill losna viö pressuna frá norskum sjómönn- um fyrst. byrjun þessa mánaðar. Frydenlund vildi ekki segja um hugsanlega einhliða útfærslu Norömanna i 200 milur við Jan Mayen. Hann lagöi áherslu á samningahlið málsins, en mót- mælti þvi að Jan Mayen væri á Frá Sigurdóri Sigurdórssyni í Osló islenska landgrunninu þvi of mikiö dýpi væri á milli eyjunnar og islands. Hann kvaðst sömu- leiðis ekki gefa mikið fyrir sögulegar röksemdir tslendinga og tilkall þeirra til Jan Mayen á þeim grundvelli. Hinsvegar sagði Frydenlund aö norska rikisstjórnin hefði fullan skilning á sérhagsmunum Islendinga gagnvart Jan Mayen svæðinu. Hann hafnaði þvi al- gjörlega að Jan Mayen væri klettur i hafréttarlegum skiln- ingi og sagði það að sjálfsögöu vera eyju með þeirri réttarstöðu sem mannvistarsvæðum til- heyrðu. Islensku blaðamennirnir ræddu einnig við lögfræðinga norska utanrikisráðuneytisins að loknu samtalinu við Frydenlund. Virtust þeir mun einstrengingslegri en ráöherr- ann og haröari á lagalegri þrætubók málsins. 1 dag ræða blaðamennirnir við Eyvind Boile sjávarútvegs- ráðherra og formenn þingflokka á norska þjóðþinginu. I blaða- mannasveitinni eru Björn Bjarnason, Morgunbl., Jónas Kristjánsson, Dagbl., Höröur Einarsson, Visi, Sigurdór Sigur- dórsson, Þjóöv., Helgi H. Jóns- son, útv., og Guöjón Einarsson, sjónv.. —S'.dór/ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.