Þjóðviljinn - 28.04.1982, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miftvikudagur 28. april 1982.
Þessa dagana eru sýnd húsgögn fyrir fatlaöa á Hótel Loftleiðum. Hér I
stólnum er danski húsgagnaarkitektinn Flemming Hvidt, sem mun I
kvöld flytja fyrirlestur um húsgögn sem eru sérhönnuð fyrir aldraða og
fatiaða. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.00 að Hótel Loftleiöum og er öllum
opinn.
✓
Urbætur í skipaviðgerðum:
Samstarf útgerðar
og itiálmiðnaðarins
Vegna slælegs undirbúnings fer
oft meiri timi i skipaviðgerðir hér
á landi, en ástæða er til og við-
geröin veröur þvi dýrari en ella.
Samband málm- og skipasmiðja
og Landssamband isl. útgerðar-
manna hafa um nokkurt skeið
unnið að úrbótum i þessum efn-
um. Skráningarkerfi hafa verið
endurnýjuð og samræmd og jafn-
framt unnið á grundvelli norsks
flokkunarkerfis að þvi að bjóða i
auknu mæli fast verð í viðgerðir.
Nýlega létu samböndin þýða og
staðfæra norskt námskeið sem
fjallar um undirbúning og
framkvæmd skipaviögerða. Slikt
námskeið hefur nú verið haldið
tvisvar og alls hafa sótt það 30
menn frá smiðjum, útgerðum og
tryggingarfélagi.
Af viðbrögðum þátttakenda að
dæma er ljóst, að með þessu sam-
starfsátaki S.M.S. og L.l.Ú. hefur
veriðbrotið blað i þróun skipavið-
gerða hér á landi.
I fréttatilkynningu frá sam-
böndunum, segir m.a. að af feng-
inni reynslu sé auðsætt að samtök
útvegs og smiðja muni halda
áfram á þessari braut og efna til
slikra námskeiða oftar og viðar
en i Heykjavik, eftir þvi sem til-
efnigefsttil.
—»g-
Frá námskeiði málmiðnaðarins og útgcröar um undirbúning og fram-
kvæmd skipaviögerða.
Fundur fbúasamtaka
Vesturbæjar í kvöld
íbúasamtök Vestur-
bæjar halda aðalfund
sinn í kvöld i kjallarasal
Hallveigarstaða. Hefst
fundurinn kl. 20.30. Auk
venjulegra aðalfundar-
starfa verður m.a. kynnt
endurskoðun á umferð-
armálum i gamla bæj-
arhlutanum.
tbúasamtökin hafa beitt sér
fyrir ýmsum hagsmunamálum
vesturbæinga sl. starfsár s.s.
skólamálum, umferðarmálum og
málefnum aldraðra i hverfinu.
Fyrir tilstilli þeirra hefur gang-
brautaljósum verið komið upp við
Landakotsskóla, geigvænlegum
umferðarhraða við Vesturgötu
var mótmælt nýverið, óskað var
eftir stuðningi borgaryfirvalda,
við framleiðslu máltiða fyrir
aldraða og sítthvað fleira biður
úrlausnar.
Frá stjórn
ibúasamtaka Vesturbæjar.
Jón og Valur
eru bestir
Islandsmótinu i tvimenning
1082 lauk á sunnudaginn, með
sigri þeirra Jóns Baldurssonar og
Vals Sigurðssonar. Þeir sigruöu
einnig i fyrra, þannig að þeir
hljóta þvi aö teljast okkar besta
tvimenningspar i dag. Gengi
þeirra félaga, Jóns og Vals hefur
veriö með eindæmum I vetur.
Sigur nú, nýbakaðir Islands-
meistarar i sveitakeppni, einnig i
sveitakeppni Heykja vikurmóts
og aðalsveitameistarar B.R.
Býður einhver betur i einn vetur?
1 úrslitakeppninni nú tóku þá 24
pör. Ef við rekjum gang mótsins i
heild, voru það 3 pör sem héldu
toppnum út allt mótið. önnur pör
komu litið þar við sögu. Þessi pör
voru Jón og Valur, Hermann
Lárusson — Ólafur Lárusson og
Ásmundur Pálsson — Karl Sigur-
hjartarson.
I upphafi móts eftir 3 umferöir,
var staöan þessi:
Hermann — ólafur 73
Jón —Valur 59
Ásmundur — Karl 49
Guðlaugur — örn 46
Eftir 6 umferðir var staöan þessi:
Jón—Valur 87
Guðlaugur — Orn 76
Ásmundur — Karl 74
Hermann — Ólafur 68
A þessum tima voru næstu pör
með undir 20 stigum.
Eftir 9 umferðir var staðan
þessi:
Asmundur — Karl 118
Jón — Valur 111
Hermann — Ólafur 94
Guðiaugur — örn 64
Aðalsteinn — Asgeir 64
önnur pör undir 25 stigum.
Eftir 12 umferðir var staðan
þessi:
Jón—Valur 153
Ásmundur—-Karl 120
Hermann — Ólafur 86
Guðlaugur — örn 83
Aöalsteinn — Asgeir 64
Sævar — Þorlákur 54
Eftir 15 umferöir (af 23) var
staðan þessi:
Jón — Valur 169
Asmundur — Karl 157
Hermann — Ólafur 123
Goðlaugur — örn 93
Aðalsteinn — Ásgeir 80
Eftir 18 umferðir var staðan
þessi:
Ásmundur —Karl 193
Jón — Valur 159
Hermann — Ólafur 134
Guðl. — örn 87
Eftir 21 umferð var staðan
þessi:
Jón —Valur 168
Ásmundur — Karl 154
Hermann — ólafur 123
Aðalsteinn — Ásgeir 104
Og eftir 22 umferöir (fyrir slð-
ustu) var staðan:
Jón — Valur 168
Asmundur—-Karl 147
Hermann — ÓÞlafur 126
Aðalsteinn — Ásgeir 109
Guðlaugur — örn 103
Að lokinni siðustu umferð
myndaðist nokkur spenna meðal
viðstaddra þvi ljóst var að Her-
mann og Ólafur voru með „rosa-
skor” i siðustu umferð, meðan
efstu pörin tvö voru með lakari á
móti sinum andstæðingum.
En réttlætið lét ekki að sér
hæða, þvi Jón og Valur héldu
efsta sætinu með 6 stiga mun.
Lokastaða efstu para varð
þessi:
1. Jón Baldursson —
ValurSigurösson 165
2. Hermann Lárusson —
ÓlafurLárusson 159
3. Asmundur Pálsson —
Karl Sigurhjartarson 141
4. Guðlaugur R. Jóhannsson —
örn Arnþórsson 122
5. Aðalsteinn Jörgensen —
Asgeir P. Asbjörnsson 112
6. Sævar Þorbjörnsson —
Þorlákur Jónsson 75
7. Hrólfur Hjaltason —
Þórir Sigursteinsson 61
8. Esther Jakobsdóttir —
Guðmundur Pétursson 54
Jón og Valur, tslandsmeistarar i bridge 1982
9. Jón Þorvarðarson —
Magnús Ólafsson 47
10. Stefán Guðjohnsen —
Sigtryggur Sigurðsson 32
bridgc
Umsjon
Ólafur
Lárusson
Um mótið sjálft er það að segja,
að mörgum finnst nv. keppnis-
form nokkuðstirti meðferð og iitt
áhugavekjandi meðal spilara. Að
þessu sinni duttu nokkur pör út i
undanrás, sem aftur á móti
bitnaði nokkuð á úrslitakeppninni
vegna styrkleikamissis. Pör eins
og Þórarinn — Guðm., Sigurður
— Þorgeir, Jón — Hörður, Jón —
Simon (ekki með) Hjalti — Þórir
(ekki með) o.fl., vantaði i úrslita-
keppnina. Það rýrir þó ekki hinn
góða árangur þeirra para sem
efst urðu, til þess var stöðugleiki
þeirra of mikill i mótinu. En
nokkuð kemur þaö spánskt fyrir
sjónir að heyra fólk (og
keppendur) tala um það, hve
mótið sé veikt? Eða var ekki
ströng undanrás, og hafa ekki
„sterk” pör áður misst sæti i úr-
slitum? Það læðist að manni sá
grunur, að þessi sterku pör séu
ekki svo sterk eftir allt saman.
Eða hvað?
Um einstaka keppendur er það
að segja, að aðeins 1 par mætti til
leiks i undanrásir (62 pör) frá
Austfjörðum. Er það af sem áður
var fyrir austan, þegar fjölmennt
var til keppni. Að þessu sinni voru
það höfðingjarnir Aðalsteinn
Jónsson og Sölvi Sigurðsson frá
Eskifirði.
Þeir stóðu sig eins og hetjur i
mótinu. 1 1. umferð mættu þeir
undirrituðum og fóru illa út úr
þeirri viðureign. Fengu 31 i
minus. í 2. umferð mættu þeir As-
mundi — Karli og fengu nú 33 i
minus. Hrikalegt það. Þá varð
mætum lögfræðing að orði: Þess-
ir menn eiga ekki heima hér.
Lögfræðingurinn var þá með
heldur betri skor en Aðalsteinn og
Sölvi, en nokkrum umferðum
seinna, þegar austanmenn voru
komnir i 8. sætið og lögfræðingur-
inn með minus 60 stig, þá labbaði
Aðalsteinn sig i hverri umferð og
bar sig saman við lögfræðinginn,
samviskusamlegast. Litlar sögur
fara af viðbrögðum hans.
Þessi dæmisaga er hér sögð til
að varpa ljósi á þá staðreynd, að
flestir eiga heima i úrslitum, að
undangenginni strangri undan-
rás, með úrtaki 1 á móti 3. Flestir
ætla að menn eigi visst erindi i úr-
slit, þó lögheimilið sé utan
Reykjavikur. A það er að lita að
þetta eru landsmót þó einhverjir
haldi annað.
Þátturinn óskar Jóni og Vali til
hamingju með áfangann. Leiðin
til stjarnanna virðist nokkuð
greið um þessar mundir, allavega
á OL ’82, sem haldið er i otkóber i
haust. 3 efstu pörin áunnu sér rétt
til þátttöku þar, auk þess sem B.l.
velur önnur.
erlendar
bækur
Anthony Burgess:
Earthly Powers.
Penguin Books 1981.
Það væri að æra óstöðugan, að
gera viðhlitandi grein fyrir þessu
þykka og yfirgripsmikla riti,
stórrithöfundarins Anthony
Burgess. Hann er mörgum kunn-
ur fyrir sinar fyrri bækur og lik-
asttil muna margir biómyndina
Clockwork Orange, sem gerð var
eftir einni af sögum hans.
Earthly Powers er saga tuttug-
ustu aldarinnar. Kynvilltur rit-
höfundur á afmæli og tekur á móti
góðvinisinum sem er erkibiskup.
Þeir spjalla saman og fyrr en
varir er Burgess stokkinn áratugi
aftur i timann og hefur að segja
Ódysseifsferð K. Toomeys. Sem
fyrr segir er þetta afskaplega
mikið rit, og af þeim sökum verö-
ur ekki frekar fjallað um það.
Bókin er um 650 siður og er öllum
sem unna bókmenntum bent á að
lesa hana hið fyrsta.
Stanisla w Lem:
Solaris
The Chain of Chance.
A Perfect Vacuum
Penguin Books, 1981.
Stanislaw Lem er pólskur rit-
höfundur, fæddur 1921. Hann nam
lyfjafræði i Lamberg og Kraká,
þar sem hann er fyrirlesari i fag-
inu. Lem hefur skrifað meira en
tuttugu bækur, skáldsögur og
önnur rit. Bækur hans hafa verið
þýddar á margar tungur og þykir
hann prýðilegur rithöfundur.
Helst fæst Lem við visinda-
skáldskap og er saga hans, Solar-
is, talin hans besta bók, og er
henni mjög hampað af unnendum
visindasagna. Sú bók, sem hér er
kynnt, inniheldur þrjár sögur.
Solaris er, sem fyrr segir, vis-
indaskáldsaga og eins er um A
Perfect Vacuum. The Chain of
Change er aftur á móti reyfari af
gömlu sortinni. Allar sögurnar
þrjár eru býsna skemmtilegar og
þó visindaskáldverk séu yfirhöfuð
leiðinleg lesning er ekki svo um
þessar sögur Lems.
Bókin er allþykk og kemur út i
flokki King Penguin.