Þjóðviljinn - 22.07.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 22.07.1982, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 22. júll 1982 . ÞJOÐVILJINPí' — SlÐA 11 . íþróttir[/J iþrottirj | iþróttir Stuttar fréttir Siggi Sveins til Nettelstedt Sigurður Sveinsson, lands- liðsmaður i handknattleik úr Þrótti, leikur með v-þýska 1. deildarliðinu Nettelstedt næsta vetur. Með Nettelstedt leikur annar islenskur lands- liðsmaður, Bjarni Guð- mundsson. Þetta er mikið áfall fyrir lið Þróttar þar sem Siggi hefur verið mesti markaskorari þess undan- farin ár, en á móti kemur að bróðir hans, Guðmundur Sveinsson, sem hefur verið i Sviþjóð, leikur með þrótti i vetur. 6. flokksmót á Selfossi Á Selfossi hófst i gær mót i 6. aldursflokki i knattspyrnu en þar leika 10 ára og yngri. Tiu íið frá sex félögum, ÍÁ, ÍBK, Tý, Vikingi, Gróttu og Sel- fossi, taka þátt i mótinu sem lýkur á mánudag Það er tþróttamiðstöðin á Selfossi sem sér um framkvæmd mótsins og dvelja keppendur i henni á meðan það stendur. Arnór frá Lokeren? Ekki er vist að Arnór Guð- johnsen landsliðsmaður i knattspyrnu verði áfram hjá belgiska félaginu Lokeren. Samningur hans við félagið rann út i sumar og ekkert hefur gengið i umræðum um nýjan samning. Þá eru allar likur á að Janus Guðlaugsson, landsliðsmaður hjá v.-þýska félaginu Fortuna Köln, skipti um félag áður en keppnis- timabilið hefst i haust. Huginn vann á Hornafirði Huginn frá Seyðisfirði vann Sindra 3:1 á Hornafirði i B-riðli 3. deildar i knatt- spyrnu i fyrrakvöld. Hinn 17 ára gamli Arnar Jónsson skoraði fyrsta markið fyrir Hugin og Haraldur Leifsson bættiöðru við fyrir hlé. Svein- björn Jóhannsson kom Hugin i 3:0 með skoti af 30 m færi en Erlingur Grétarsson minnkaði muninn i 3:1 með marki úr vitaspyrnu. KS, Huginn og Tindastóll hafa nú 16 stig hvert á toppi riðilsins en tvö þessara fara i urslitakeppn- ina um sæti i 2. deild. Eðvard og Guðrún Fema til Innsbruck Sundfólkið efnilega, Eðvard Þ. Eðvardsson úr UMFN og Guörún Fema Agústsdóttir úr Ægi, tekur þátt i unglinga- meistaramóti Evrópu i Inns- bruck i Austurriki dagana 26.-29. ágúst. Þau halda þann 28. júli til Sviþjóðar þar sem þau æfa með sænska lands- liðinu I boði landsliðsþjálfara Svia fram að mótinu. Miklar vonir eru bundnar við frammistööu þeirra i Inns- bruck og telur sænski lands- liðsþjálfarinn Eðvard vera eitt mesta efni sem hann hefur séð. Góður sigur Valsstúlkna Valsstúlkurnar unnu góðan sigur á Islandsmeisturum FH I utanhússmótinu i handknatt- leik I gærkvöldi. Valur vann 14:10 eftir 8:3 i hálfleik. I karlaflokki vann FH HK 26:20 (15:9) og Valur sigraði Breiðablik 27:16 (14:8) 1 kvöld kl. 19 leika Haukar-IR og kl. 20 Fram-Valur i kvennaflokki og kl. 21 KR og HK i karlaflokki. Bikarkeppni KSÍ: Bikardraumur Blikanna varð að engu þegar Skagamenn sóttu þá heim I Kópavoginn i gær- kvöldi. 1A fékk óskabyrjun, mark á 3. minútu, og eftir þaö var alltaf á brattann að sækja hjá Breiðabliki. ÍA sigraði 2:1 og fögnuður þeirra Skaga- manna I leikslok var mikill, enda hafa þeir ekki að neinu að keppa nema bikarnum eftir þetta, og svo aö sjálfsögðu að halda sæti sinu I 1. deildinni. Strax á 3. min. fékk IA auka- spyrnu um 20 m frá marki Breiðabliks. Kristján Olgeirs- son lyfti knettinum snyrtilega yfir vamarvegginn og i netiö. Skagamennirnir Jón Askelsson og Sigurður Lárusson stöðva þarna eina Blikasóknina af mörgum I Kópavoginum i gærkvöldi. Mynd: eik Blikadraumurmn búinn Akranes, Keflavik, Vikingur og KR komin í undanúrslitin Skotið var laust en nokkuð óvænt og Guðmundur mark- vörður Ásgeirsson hefur senni- lega frekar reiknað með aö Arni Sveinsson myndi skjóta. A 9. min. átti Sveinbjörn Hákonarson fallegt skot af um 25 m færi utan af kanti. Knött- urinn sveigði glfurlega og virtist stefna I hornið fjær en small I samskeytum Blikamarksins og aftur fyrir. Skömmu síðar fékk Kristján gott færi þegar Guð- mundur Blikamarkvörður missti knöttinn en Blikar björg- uðu i horn. Breiðablik fékk siðan dauðafæri á 31. mln. þegar Hákon Gunnarsson skaut fram- hjá af markteig eftir gegnum- brot Sigurjóns Kristjánssonar. A 34. mín. fékk svo Kristján Olgeirsson knöttinn á markteig Blikanna eftir fyrirgjöf Arna og skoraði, 0:2 fyrir IA. En á 42. mín. minnkaði Breiðablik muninn. Sigurður Grétarssonskautaf25m færiog knötturinn datt niður, enda skotið gegn sterkum vindi, fyrir aftan Davið markvörð, 1:2, og Blikar hurfu vongóðir til leik- hlés. Þeir sóttu siöan linnulitið framan af siöari hálfleik en sköpuðu sér fá færi. Jóhann Grétarsson átti gott skot á 60. mln. en Davið varöi, missti knöttinn en gómaöi hann siðan. IA fékk hættuleg skyndiuR)- hlaup og eftir eitt slikt fékk Sig- þórOmarsson knöttinn frá Arna en fyrirgjöf hans rann óáreitt framhjá Blikamarkinu. Hinn kornungi Siguröur Jónsson sýndi oft og sannaöi að þar er gifurlegt efni á ferö og á 77. mín. átti hann gott skot að marki Breiðabliks úr þröngu færi en Guðmundur náði að verja. Loks á 87. mín. fékk Sig- þór algert dauöafæri en hnoðaði tuðrunni framhjá á óskiljan- legan hátt. IA hélt þvl slnu gegn vindinum og siglir I undan- úrslitin en Blikarnir verða nú að einbeita sér að 1. deildinni. Slakir KR-ingar mörðu sigur KiRverður aö leika betur i undanúrslitum bikarkeppn- innar en gegn 2. deildarliði Reynis frá Sandgerði i gær- kvöldi ef þeir ætla sér einhvern hlut þar. Sandgerðingar komu á óvart I Laugardalnum I gær- kvöldi, voru ákveðnari en Vesturbæjarliöið og hefðu getað náð hagstæöari úrslitum. Það var Öskar Ingimundar- son sem skoraði eina mark leiksins á 19. mln. Hann fékk sendingu frá Sæbirni Guömundssyni og skot hans frá vltateigs linu hafnaði I horninu nær. Reynismenn sóttu mun meir það sem eftir var leiks en sköpuðu sér engin umtalsverð færi. Helst var hætta á 34. mín. þegar Hálfdán Orlygsson bjarg- aöi á marklinu KR. Besta færi KR kom hins vegar á 51. mín., þegar Magnús Jónsson áttiskot i þverslá. Ekki er hægt aö geta þessa leiks án þess að minnast á aö hann gat ekki hafist fyrr en 15 mlnútum eftir átta vegna þess að annan linuvörðinn vantaöi. Skammarlegt og óvirðing gagn- vart leikmönnum og áhorf- endum. tBK yfirspilaði slaka Framara Fram átti aldrei möguleika gegn frisku liði IBK suður i Keflavik I gærkvöldi og mátti þakka fyrirað sleppa með 3:0 á bakinu. Var það mál manna þar syðra að þetta væri einn besti leikur IBK i mörg ár og liöið er nú komið i undanúrslit bikar- keppninnar. IBK óð I færum og Einar As- björn átti skalla og skot I stöng áður en hann skoraöi fyrsta markiö á 18. mln. Þá björguðu Framarar á linu og vildu sumir meina aö knötturinn heföi fariö innfyrirhana. Á41. min. skoraði Kristinn Jóhannsson glæsimark eftir samvinnu við Danlel Ein- arsson, hörkuskot eftir ,,þri- hyrning” sem ;illa staðsettur Guðmundur Baldursson réð ekkert við. Magnús Garöarsson braust upp vinstra megin á 62. mln. og sendi fyrir mark Fram þar sem Oli Þór Magnússon var einn, og óvaldaður og skoraði þriðja markið frá vltapunkti, 3:0 og mörkin hefðu getað orðið fleiri. Sigurður Björgvinsson var yf- irburðamaöur I liði IBK og besti maður vallarins. Hjá Fram var Hafþór Sveinjónsson einna skárstur en liöið var algerlega heillum horfið i þessum bikar- leik. Öruggur Vfkings- sigur fyrir norðan Vikingar unnu gööan sigur á KA á Akureyri, 3:1 og voru mun betri aðilinn. Eina mark fyrri hálfleiks skoraöi Heimir Karls- son fyrir Vfking eftir 15 minútur og snemma I þeim siðari bætti Sverrir Herbertsson öðru við, 0:2. Ragnar Rögnvaldsson sem nú skorar grimmt fyrir norðan- menn, minnkaöi muninn i 1:2 en það dugði skammt þvi Sverrir skoraði aftur og innsiglaði ör- uggan Vikingssigur 1:3, og Vik- ingarnir eru i baráttu um báða bikarana. Undanúrslitin komin á hreint Þaö er þvi ljóst hvaða fjögur lið berjast um sigur i bikar- keppni KSl 1982. IA, Víkingur, IBK og KR eru kotnin i undan- úrslitin en þau fara fram mið- vikudaginn 11. ágúst. —VS/B 1. deild kvenna ... 1. deild kvenna ... 1. deild kvenna 1. defld kvenna.... Skagastúlkurnar voru næstum þvi búnar að stela sigrinum í lokin — en það hefði verið ósanngjamt þar sem KR var mun betri aðilinn KR og ÍA gerðu markalaust jafntefli I 1. deild kvenna á tslandsmótinu I knattspyrnu f fyrrakvöld. Leikurinn var nokkuð jafn i fyrri hálfleik og sóttu liöin til skiptis. KR-stúlkur komu tvíefldar til leiks i seinni hálfleik og ætluðu sér greinilega að leggja Skipa- skagastúlkumar að velli. Þær sóttu stanslaust en einhvern veginn vantaöi alltaf að reka endahnútinn á sóknirnar. Þær voru mjög óheppnar, áttu ein tvö stangarskot og tvisvar björguöu lA-stúlkurnar á siðustu stundu. 1A átti þrár skyndisóknir I siðari hálfleik. Sú hættulegasta kom þegar tvær mlnútur voru til leiksloka. Laufey Sigurðardóttir fékk stungusendingu fram völlinn, rak knöttinn áfram, KR- markvörðurinn hikaði og bakkaði siðan en þá missti Laufey knött- inn of langt frá sér og mark- maðurinn var snöggur út úr markinu og bjargaði á siðustu stundu. EWtí heföi verið ósanngjarnt eftir 'gangi leiksins að Vestur- bæjarliið heföi hlotið bæði stigin, en þaö eru mörkin sem ráða. — MHM

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.