Þjóðviljinn - 06.03.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 06.03.1985, Blaðsíða 1
ÞJÓÐMÁL MENNING Sjómannasamningarnir felldir. Verkfall sjómanna tekur gildi á ný. Fellt víðast á Austfjörðum. Óskar Vigfússon: Ekki annað en við mátti búast. Sjómenn felldu nýgerða kjara- samninga með miklum meiri- hluta atkvæða, en talningu lauk laust fyrir miðnættið í gær. Báta- kjarasamningarnir voru felldir með 655 nei-atkvæðum gegn 384 já-atkvæðum. Fimm seðlar voru- ógildir og auðir voru 18. Samn- ingarnir á stóru togurunum voru felldir með 50 nei-atkvæðum gegn 15 já-atkvæðum. Óvíst var um framhald samningaviðræðna í gær. Verkfall hefur því tekið gildi á ný. Mér sýnist þetta stefna í áfram- haldandi stríð, sagði Óskar Vig- Verður Kolbeinsey seld? Allt er nú í óvissu um framtíð atvinnulífs á Húsavík eftir að ljóst er orðið að útgerðarfélagið Höfði hf. getur ekki staðið undir gífurlegum hækkunum á skuld- um sem hvíla á togaranum Kol- beinsey. Aflaverðmæti togarans í fyrra var um 130 miljónir króna að sögn Kristjáns Ásgeirssonar útgerðarstjóra. Það voru 40% þessa afla sem barst á land í Húsavík í fyrra. Eins og nú horfir verður skipið boðið upp vegna tæplega 200 miljóna króna skuldar, en greiðslufrestur rann út sl. mánudag. Sjá viðtöl við heimamenn á bls. 3. Stórhugur Sexaf sjö mundu lækka! Tilboð ríkisins þýðir kauplœkkun hjá helmingi kennara Sex af sjö samninganefndar- mönnum kennara mundu lækka í launum ef tilboð rfldsins til BHM í fyrradag tæki gildi. Tilboðið var kynnt sem 5% meðalhækkun launa hjá ríkis- starfsmönnum í BHM, en fiff og trix kringum starfsaldursþrep valda því að í raun er ríkið að bjóðast til að lækka laun þeirra sem hafa minna en meðalstarfs- aldur. Þeir sem lengst hafa unnið fengju 6-7%. Um helmingur framhaldsskólakennara mundi lækka í launum ef HÍK gengi að tilboði fulltrúa Alberts og Ragn- hildar óbreyttu. Sjá bls 2 fússon formaður Sjómannasam- bandsins í gær, þegar ljóst var að sjómenn nær alls staðar á landinu höfðu tekið nýju samningunum mjög illa og töluverðar líkur á að þeir verði felldi í sameiginlegri at- kvæðagreiðslu. Það var nánast sama hvert haft var samband í gærdag, alls staðar var mikill urgur í sjómönnum og ljóst að mikill meirihluti þeirra hafði lýst andstöðu sinni við samningana á félagsfundum. Þeir voru felldir nær allsstaðar á Austfjörðum, og í Vestmanna- eyjum munu um 70-80% þeirra 230, sem sóttu fund hjá Sjó- mannafélaginu Jötni hafa verið andvígir samningunum, að sögn Elíasar Björnssonar, formanns félagsins. Svipaða sögu er að segja víða utan af landi. Forystu- menn sjómanna sögðu þó rétt að bíða og sjá hvað kæmi uppúr kössunum. „Þessi viðbrögð eru ekki önnur en við mátti búast. Þetta eru grimmir menn í okkar hóp,“ sagði Óskar Vigfússon í gær. Sjómenn eru óánægðir með lítinn árangur við lækkun kostn- aðarhlutdeildar og benda á að sú 2% lækkun sem samið var um Forvígismenn Alþýðubandalagsins voru boðnir velkomnir á vinnustaðafundi á Suðurnesjum í gær eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. í gærkvöldi efndi flokkurinn til fundar í Stapa í Njarðvíkum og kom þar fram gífurleg óánægja fólks með ástandið í kjaramálum. Ljósm. S.dór. Sjá bls. 5. Samskipti Alþýðuflokksins skili aðeins 0.52% beint til sjó- manna. Þá eru togarasjómenn einnig mjög óánægðir með sinn hlut út úr samningunum. Mjög var gagnrýnt á fundunum úthlaup yfirmanna úr samfylkingunni og segjast sjómenn hafa verið illa sviknir. - Ig. Sjá viðbrögð á iandsbyggðinni bls 2. Kaffibaunir í rannsókn KafTibaunamálið er nú komið til rannsóknarlögregiunnar, sem hefur fengið fyrirmæli frá ríkis- saksóknara um að hefja opinbera rannsókn á málinu. Samkvæmt upplýsingum Hallvarðs Ein- varðssonar rannsóknarlögreglu- stjóra er viðfangsefni rannsóknarinnar að _ upplýsa hvort um hafi verið að ræða auðgunarbrot og/eða brot á regl- um um meðferð gjaldeyris, af hálfu Sambands íslenskra Sam- vinnufélaga. Hallvarður sagði að mikil áhersla væri lögð á að hraða mál- inu. Hins vegar væri RLR nú sem áður of fáliðuð þannig að ómögu- legt væri að segja um það hve langan tíma rannsóknin tæki. hágé Viðtal við Antti Tuuri í gær voru finnska rithöfundin- um Antti Tuuri afhent bók- menntaverðlaun Norðurlandar- áðs við liátíðlega athöfn a Hásk- ólabíói. í viðtali við Þjóðviljann segir Antti Tuuri frá verðlaunaskáld- sögu sinni, viðhorfum og verk- efnum. Sjá bls 7. Kalt borð hjá krötum Kalevi Sorsa afþakkaði kvöldverð hjá Jóni Baldvin í fyrrakvöld Kalevi Sorsa, forsætisráðherra Finnlands og formaður finnska jafnaðarmannafiokksins afþakkaði að taka þátt í kvöld- verðarboði Alþýðuflokksins fyrir jafnaðarmenn sem nú sitja á Norðurlandaráðsþingi, en boð þetta var haldið í fyrrakvöld. Með þessu móti vildi Kalevi Sorsa mótmæla ummælum sem Jón Baldvin Hannibalsson formaður flokksins hafði látið falla opinber- lega í desember síðastliðnum um ,J'inlandístringu“ og meint póli- tískt ósjálfstæði Finna. Þessi formlegu mótmæli Kalevi Sorsa forsætisráðherra Finnlands bætast við þær ákúrur sem Anker Jörgensen veitti Jóni Baldvin Hannibalssyni vegna yfirlýsinga hans og Alþýðuflokksins um meint afskipti Ánkers Jörgensens af íslenskum innanríkismálum vegna stuðnings hans við hug- myndina um kjarnorkuVopna- laus Norðurlönd, en af því tilefni sagðist Anker meðal annars ekki hafa sérstakar óskir uin að hitta hinn nýja leiðtoga Alþýðuflokks- ins á íslandi, þótt hann mundi vart komast hjá því. ólg.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.