Þjóðviljinn - 06.06.1985, Blaðsíða 15
ÍÞRÓTTIR
Preben Elkjær (efri mynd) og Michael
Laudrup (neöri mynd), „Italirnir" í
danska landsliðinu, gerðu tvö mörk
hvor í gær, gegn Sovétmönnum.
Handbolti
Biynjar
í Olympia
Brynjar Harðarson handknatt-
leiksmaður scm áður lék með Val
skipti um félag í Svíþjóð fyrr í
þessari viku - gekk til liðs við 2.
deildarféiagið Olympia sem
Ólafur Bencdiktsson markvörður
lék eitt sinn með.
Brynjar var hjá Lugi sl. vetur
en fékk lítið að spila, aðallega
vegna þess að hann var ólöglegur
i Evrópukeppni og mátti heldur
ekki spila í úrslitakeppni um
meistaratitilinn. Hann lék aðal-
lega með dótturliði Lugi sem sigr-
aði í 2. deild og skoraði grimmt.
-VS
Golf
Fyrsta opna
kvennakeppnin
Fyrsta opna kvennakeppnin
hjá Golfklúbbnum Keili verður
haldin sunnudaginn 9. júní.
Leiknar verða 18 holur með og án
forgjafar. Ræst verður út frá kl.
11. Wella-umboðið, Halldór
Jónsson hf, gefur verðlaunin.
Danmörk
Mexíkó blasir við!
Fyrsti sigurinn á Sovétmönnum, 4-2 í HM ígœr
Frá Emil Björnssyni fréttamanni Þjóð-
viljans í Danmörku:
Já, hann var sögulegur leikur Dana
og Sovétmanna í gær. Danir höfðu
aldrei sigrað Sovétmenn í knatt-
spyrnu og voru mjög taugastrekktir.
En danska þjóðin krafðist sigurs, og
strax í gærmorgun söfnuðust áhorf-
endur saman í miðborg Kaupmanna-
hafnar, sungu baráttusöngva og
veifuðu fánum, íklæddir „þjóð-
legum“ ættjarðarbúningum, rauðum
og hvítum.
Hinn fornfrægi leikvangur Idræts-
parken skartaði sínu fegursta og var
eins og billjardborð yfir að líta. Veð-
urfræðingar höfðu spáð roki, rign-
ingu og þrumuveðri, og að sjálfsögðu
var útkoman blíðviðri þannig að að-
stæður voru hinar ákjósanlegustu.
Um 45,700 áhorfendum var troðið
inná leikvanginn og voru síðustu mið-
ar svartamarkaðsbraskaranna keypt-
ir á allt að 5000 dönskum krónum.
Danir hófu leikinn með mikilli
sókn og strax á 3. mín. skaut Bertels-
en framhjá úr dauðafæri. Skyndi-
sóknir Sovétmanna voru hættulegar
og þeir áttu skot sem smaug framhjá
stöng á 5. mínútu.
Danir pressuðu og á 16. mínútu
sendi Michael Laudrup á Preben El-
kjær sem komst í gegn og skoraði,
1- 0. Fjórum mínútum síðar sneri El-
kjær af sér þrjá sovéska varnarmenn
og skoraði aftur, 2-0. Sovétmenn
skiptu sóknarmanni inná fyrir miðju-
mann og tóku öll völd. Þeir skoruðu,
2- 1, á 26. mínútu og áttu stangarskot
á undan markinu og eftir.
Seinni hálfleikur byrjaði svipað og
sá fyrri, Danir meira í sókn, og á 61.
mínútu var komið að þætti Michaels
Laudrups. Hann sneri á varnarmann
með einfaldri bolvindu og skoraði ör-
ugglega hjá Dasayev, besta mark-
verði heims, 3-1. Og aðeins þremur
mínútum síðar gerði Laudrup útum
leikinn. Hann fékk boltann á miðju,
óð uppað vítateig og skoraði af miklu
öryggi, 4-1. Sovétmenn tóku öll völd
eftir þetta og Gotsmanov skoraði, 4-
2, á 67. mínútu, en nær komust þeir
ekki þrátt fyrir mikla pressu. Danir
léku skynsamlega og yfirvegað þegar
þeir náðu knettinum og ekkert var
um færi þar til í lokin að Sovétmenn
fengu tvö dauðafæri sem þeir náðu
ekki að nýta. Úrslit 4-2, Danir efstir í
6. riðli og sæti í úrslitakeppninni í
Mexíkó blasir við. „Vi er pá vej til
Mexiko“ sungu áhorfendur mest all-
an seinni hálfleikinn, og svo mikið er
víst að nú er Sepp Piontek þjálfari
danska landsliðsins vinsælasti maður
Danmerkur.
Laudrup var stjarna dagsins en lið-
ið lék allt vel. Ástæða er einnig til að
nefna Sören Lerby, Frank Arnesen
og stjórnandann frábæra, Morten Ol-
sen.
Staðan í 6. riðli:
Danmörk.................4 3 0 1 8-3 6
(rland..................5 2 1 2 4-4 5
Sviss...................5 2 1 2 4-9 5
Sovótríkin..............5 1 2 2 9-8 4
Noregur.................5 1 2 2 2-3 4
Tvö efstu liðin komast til Mexíkó
og Sovétmenn standa best að vígi
með að ná öðru sæti þar sem þeir eiga
aðeins heimaleiki eftir.
Knattspyrna
Sigurjón
til ÍBK!
Sigurjón Kristjánsson, fyrrum
leikmaður með Breiðabliki, gekk
í fyrrakvöld til liðs við 1. deildar-
lið Keflvíkinga. Sigurjón, sem lék
með Campinese í Portúgal sl. vet-
ur, verður löglegur eftir mánuð
og getur leikið með ÍBK gegn Vík-
ingi þann 6. júií.
„Mér líst mjög vel á mig í
Keflavík, góður og skemmtilegur
hópur og góður þjálfari,“ sagði
Sigurjón við Þjóðviljann í gær, en
þá mætti hann á sína fyrstu
æfingu með ÍBK. „Ég á eftir að fá
staðfestingu frá Portúgölunum á
félagaskiptunum en reikna alls
ekki með að það verði neitt
vandamál.“
Sókn Keflvíkinga ætti því að
vera enn beittari, með þá Ragnar
Margeirsson, Óla Þór Magnús-
son, Helga Bentsson og Sigurjón
innanborðs.
-VS
Kvennaboltinn Bikarkeppnin
r
Aftur Ovænt í Kópavogi
tapar
Valur
Bikarmeistarar Vals töpuðu
sínum öðrum lcik í 1. deild
kvenna í gærkvöldi - 0-1 gegn ís-
landsmeisturum ÍA á Valsvellin-
um.
Valsstúlkurnar, sem léku í
mjög ósamstæðum búningum,
voru meira með boltann í
leiknum en gekk illa að skapa sér
færi og ÍA var alltaf inni í mynd-
inni. Sigurmark Skagastúlkn-
anna kom 12 mínútum fyrir leiks-
lok - Vanda Sigurgeirsdóttir
skaut nánast frá miðju vallarins
og knötturinn fór yfir markvörð
Vals og í netið.
„Þetta er erfitt hjá okkur núna
- við höfum misst einar sex stúlk-
ur úr liðinu frá því í fyrra og það
tekur tíma að ná sér á strik eftir
það,“ sagði Hafsteinn Tómasson
þjálfari Vals við Þjóðviljann eftir
leikinn.
-VS
Grindavík vann Breiðablik. ÍR vann Skallagrím. Árvakur með 13
Grindvíkingar komu mjög á óvart í
gærkvöldi er þeir slógu Breiðablik
útúr bikarkcppni KSÍ - unnu 1-0 á
Kópavogsvelli. Símon Alfreðsson
skoraði sigurmark 3. deildarliðsins
sem mætir Árvaki í 3. umferð.
ÍR, sem leikur í 4. deild, vann 2.
deildarlið Skallagríms 2-1 á ÍR-
vellinum. Páll Rafnsson og Gústaf
Björnsson komu ÍR í 2-0 en Ólafur
Jóhannesson lagaði stöðuna fyrir
Borgnesinga.
Úrslit í 2. umferð í gærkvöldi urðu
þessi:
IR-Skallagrímur......................2-1
Víkingur O.-Augnablik................8-6
Reynir S.-Léttir.....................5-1
Árvakur-Tálknafjörður....:...........13-1
Breiðablik-Grindavík.................0-1
Stjarnan-Njarðvík....................5-6
Tindastóll-KA........................0-3
Leiftur-KS...........................0-1
Huginn-Austri........................4-5
1. umferð:
Einherji-LeiknirF....................3-2
Þórarinn Hannesson skoraði fyrir
Tálknfirðinga á gervigrasinu í þeirra
fyrsta opinbera leik - en fyrir Árvak-
ur svöruðu Friðrik Þorbjörnsson sem
gerði 4 mörkj Ragnar Hermannsson
skoraði 3, Árni Guðmundsson 3,
Haukur Arason 2 og Björn Pétursson
1.
Ari Haukur Arason skoraði 3 mðrk
fyrir Reyni gegn Létti, Þórður Þork-
elsson eitt og Júlíus Jónsson eitt úr
víti en Egill Ragnarsson kom Létti á
blað.
Tryggvi Gunnarsson 2 og Erlingur
Kristjánsson skoruðu mörk KA á
korters kafla um miðjan seinni hálf-
leik á Sauðárkróki.
Einherjasigur í framlengdum leik á
Vopnafirði - Stefán Guðmundsson 2
og Kristján Davíðsson skoruðu fyrir
Einheria en Steinþór Pétursson og
Einar Áskelsson fyrir Leikni.
Hörður Júlíusson tryggði KS sigur
á Ólafsfirði. Vítaspyrnukeppni þurfti
á þremur stöðum og í þeim höfðu
Víkingur Ólafsvík, Njarðvík og
Austri betur. Ingólfur Ingólfsson
skoraði fyrir Stjörnuna en Guðmund-
ur V. Sigurðsson fyrir Njarðvík í
venjulegum leiktíma. ÍBV og ÍBÍ
leika í Eyjum á laugardaginn.
-VS
Knattspyrna
Góður sigur Svía
Akureyri
„Wembley"
tilbuinn
Aðalleikvangurinn á Akureyri
er tilbúinn til notkunar. Hann er
fagurgrænn og glæsilegur og ekk-
ert að vanbúnaði til að leika á
Svíar unnu þýðingarmikinn sigur á
Tékkum, 2-0, í undankeppni HM í
knattspyrnu í gær. Robert Prytz og
Lars Larsson skoruðu mörkin. Þar
með eiga Tékkar nánast enga von um
að komast í úrslitakeppnina í Mexíkó
en Svíar berjast við Portúgal um ann-
að sætið. Staðan í 2. riðli er þessi:
V.Þýskaland 5 5 0 0 18-4 1
Svíþjóð 5 3 0 2 9-4
Porlúgal 5 3 0 2 8-7
Tékkóslóvakía 5 1 1 3 6-9
Malta 6 0 1 5 3-20
-VS
Akureyri
EÓP-mótið
Sigurður setti
vallarmet
Hefði orðið annar á Grand Prix!
Landsliðið
mætir Þór
Allir bestu úr íslensku liðunum og
Pétur að auki. Þór 70 ára
Sigurður Einarsson úr Ár-
manni setti vallarmet í spjótkasti
á frjálsíþróttavellinum í Laugar-
dal á EÓP-mótinu í fyrrakvöld.
Sigurður kastaði spjótinu 84,30
nietra sem er frábær árangur, á
heimsmælikvarða, og heíði t.d.
dugað honum í annað sætið á síð-
asta Grand-Prix móti í Banda-
rikjunum, á eftir Einari Vil-
hjálmssyni.
Önnur úrslit á mótinu uröu þau
að Svanhildur Kristjánsdóttir,
Bréiöabliki, sigraði bæði í 100 og
200 m hlaupi kvenna, á 11,9 og
24,9 sek. Helga Halldórsdóttir,
KR, sigraði í 100 m grindahlaupi
á 14,2 sek, Soffía R. Gestsdóttir,
HSK, í kúluvarpi með 13,07
metra og Bryndís Hólm, ÍR, í
hástökki nteð 1,60 metra.
Már Hermannsson, UMFK,
sigraði í 5000 m hlaupi á 15:34,8
mín, Hjörtur Gíslason, UMSE, í
110 m grindahlaupi á 14,5 sek,
Aðalsteinn Bernharðsson,
UMSE, í 200 m hlaupi á 22,2 sek,
Viggó Þ. Þórisson, FH, í 400 m
grindahlaupi á 57, 8 sek, og
Kristján Gissurarson, KR, í
stangarstökki með 4,90 metra. Þá
unnu ÍR-sveitirnar boðhlaup
karla og kvenna í 4x100 m, karla-
sveitin hljóp á 44,8 sek, en
kvennasveitin á 52,2 sek.
-VS
honum. Fyrsti knattspyrnuleikur
sumarsins á honum verður á
laugardaginn kl. 15 en þá mætast
KA og Fylkir í 2. deildarkeppn-
'nn*- -K&H/Akureyri
Ragnar Margeirsson, sem er besti
leikmaður 1. deildarinnar að margra
mati og er með forystu I stjörnugjöf
Þjóðviljans, leikur með landsliðinu á
Akureyri í kvöld.
íslcnska landsliðið í knatt-
spyrnu, skipað lcikmönnum úr 1.
og 2. deild og Pétri Péturssyni að
auki, mætir Þórsurum á Þórsvell-
inum á Akureyri í kvöld kl. 20.
Þór á 70 ára afmæli í dag, 6. júní,
og er leikurinn af því tilefni.
í landsliðinu eru átta leikmenn
sem spiluðu eða voru í hópnum
gegn Skotum. Það er þannig
skipað:
Markverðir:
Friðrik Friðriksson, Fram
Stefán Jóhannsson, KR
Aörir leikmenn:
Árni Sveinsson (A
Einar Ásbjörn Ólafsson, Víði
Guðmundur Steinsson, Fram
Guðmundur Þorbjörnsson, Val
Guðni Bergsson, Val
Gunnar Gíslason, KR
Kristján Jónsson, Þrótti
Njáll Eiösson, KA
Ómar Torfason, Fram
Pétur Pétursson, Feyenoord
Ragnar Margeirsson, IBK
Sveinbjörn Hákonarson, ÍA
Sævar Jónsson, Val
Þorgrímur Þráinsson, Val
Lið Þórs verður væntanlega
skipað eins og að undanförnu í 1.
deildinni. Þess má geta að áhorf-
endum verður boðið uppá kafli í
iþróttahúsi Glerárskóla í hálfleik.
-K&H/Akureyri
Fimmtudagur 6. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15